Dagur - 30.12.1988, Blaðsíða 11
«*>
30. desember 1988 - DAGUR - 11
30. ríftss'mbeí* 1008
Þessi aðsópsfnikli norðlenski þingmaður hefur að margra mati skar-
að fram úr í sölum Alþingis á liðnuni vetri. Hann hefur gert víðreist
um kjördæmi sitt í embættiserindum á einkar vel lökkuðum skóm.
Prátt fyrir vasklega framgöngu þykir þingmáður þessi ekki við eina
fjölina felldur. heldur þrjár. Hvert er þrístyrnið?
(X) Að Samtök jafnréttis og fé-
lagshyggju biðu fram í næstu
sveitarstjórnarkosningum í Fær-
eyjum.
(2) Askorun til húsfreyju í Vest-
mannaeyjum um að bjóða sig
fram til forsetakjörs á móti starf-
andi forseta
2
Mývatnssveit varð, aldrei þessu
vant, á vörum allra Islendinga og
raunar miklu fleiri á liðnu sumri.
Stórir hópar manna flykktust á
vit mýsins til þess að verða vitni
að heimssögulegum atburði. Á
hverju áttu menn von?
(1) Glímukeppni milli talsmanna
áframhaldandi vinnslu kísilgúrs
úr Mývatni og andstæðinga
hennar.
(X) Kröflugosi.
(2) Sovéskum geimförum sem
höfðu í hyggju að setja upp æt'-
ingabúðir vegna fyrirhugaðrar
ársdvalar í sovéska geimfarinu
Sojus 750.
8 1 HBT\ 2
„Þjóðin er agndofa og ég er það
líka,“ sagði Steingrímur nokkur
Hermannsson í viðtali við Dag á
haustdögum. Yfir hverju var
Steingrímur agndofa?
(1) Tómas Árnason seðlabanka-
stjóri fékk 35 punda stórlax á
Denna-flugu nr. 21 í Laxá í Kjós.
Á einhvern óskiljanlegan hátt
missti Tómas af þeim stóra.
Steingrímur taldi þennan laxa-
missi seðlabankastjóra táknræn-
an fyrir þann glundroða sem ríkti
í stjórn landsins.
(X) Tillögum Þorsteins Pálsson-
ar, forsætisráðherra, um sirkus-
aðgerðir í efnahagsmálum, svo-
kölluðum hókus-pókus aðgerð-
(2) Opinskáum ástarbréfum Jóns
Baldvins Hannibalssonar til dótt-
ur heildsalans, og síðar eigin-
konu sinnar, Bryndísar Schram.
„Útkjálkahrokinn og dranibið
var slíkt að ég á engin orð,“ sagði
landskunnugt Ijóöskáld á haust-
mánuðum. Hvað fékk skáldið til
að segja slíkt?
(1) Skáldið hallmælti bíóstjóra á
Akureyri vegna sýningar á
íslensk/sænskri kvikmynd, sem
það leikstýrði, og þótti hann
ósamvinnuþýður í meira lagi.
(X) Hæstvirt útvarpsráð, með
Ingu Jónu í broddi fylkingar,
synjaði ljóðskáldinu í þrítugasta
skipti um fimmtu endursýningu á
„listaverki“ þess Blóðrauðu sól-
arlagi."
(2) Virt sænskt stórblað fór mis-
fögrum orðum um klæðaburð og
atgervi skáldsins við frumsýningu
nýjasta afkvæmis þess í kvik-
myndaheiminum á sl. hausti.
10 1 2 ■
Annar fulltrúa Alþýöu-
bandalagsins í bæjarstjórn Ákur-
eyrar beitti sér af alefli gegn
kaupum bæjarins á afar sérkenni-
legu apparati af gerðinni Kass-
bohrer. Meirihluti bæjarstjórnar
lagðist hins vegar á sveif með
fyrirbærinu. Hvaða vélknúna
tæki olli þessum „jarðskjálfta“ í
bæjarstjórninni?
(1) Sérhannað eimingartæki til að
spara bænum ómæld útgjöld
vegna áfengiskaupa.
(X) Þar til gerð samlokugerðar-
vél, sérsmíðuð fyrir dagvistar-
heimili á afskekktum norðlægum
slóðum.
(2) Tryllitæki á beltum, sérstak-
lega ætlað til þess að troða snjó.
11 1 ■ xh 2H
Afar sérkennilegur félagsskapur,
sem fékk nafnið Afglapar, var
stofnaöur á Dalvík á liðnu sumri.
Hver var tilgangur með stofnun
hans?
(1) Að sleppa laxi í Hrísatjörn og
gefa hungruðum veiðiklóm tæki-
færi á að spreyta sig við þann
stóra.
(X) Að tryggja hagsmuni hins
almenna afglapa á Dalvík gegn
beljumenguðu vatni úr Svarfað-
ardal.
(2) Að kalla saman öll saklaus
fórnarlömb aprílgabba liðinna
ára.
12 1 rai CM ■
„Við erum Ijós í myrkrinu,“
sögðu ungir bjartsýnismenn í
byrjun desember. Hverjir voru
þessir bjartsýnu menn?
(1) Aðstandendur útvarpsstöðv-
arinnar Ólundar á Akureyri.
(X) Tárfellandi Vöpnfirðingar
þegar ljóst var að þeirra fulltrúi
hefði rótburstað andstæðinga
sína í keppninni Miss World.
(2) Leikmenn 1. deildar liðs Þórs
í knattspyrnu eftir að gengið
hafði verið frá ráðningu austur-
blokkarþjálfara fyrir næstu spar-
kvertíð.
13 1 N3 ■
Undarleg styrjöld, sem ekki sér
fyrir endann á, braust út á Akur-
eyri undir lok ársins. Um hvað
snérist þessi styrjöld?
(1) Þá samþykkti bæjarstjórn að
heimila mönnum að synda, sýna
sig og sjá aðra á Ádanvs- og
Evuklæðum, í Sundlaug Akur-
eyrar frá kl. 12-13 virka daga.
(X) Sölu á flugeldum.
(2) Sökum gífurlegra hreppa-
flutninga á rjóma varð bærinn
skyndilega rjómalaus. Kaloríu-
snauðar sálir á Akureyri bitust
hrottalega um þær fáu rjómafern-
ur sem voru á boðstólum.
74 1 2 ■
Arftaki Vals Arnþórssonar í stól
kaupfélagstjóra KEA var ráðinn
í desember. Hver hlaut vegtyll-
una?
(1) Valgerður Skautan Snæfells,
húðsnyrtir og framreiðslukona.
(X) Magnús Gauti Gaufason,
fyrrverandi markvörður.
(2) Gunnar Ragnars, samflokks-
maður Egils á Seljavöllum.
15 1 ■ X ■ 2 ■
Þistilfirðingurinn Steingrímur J.
flaug í skyndi norður í land í sept-
ember. Hann hafði ákveöið verk
að vinna í kjördæmi sínu. Hvaö
var það?
(1) Að vera viðstaddur opnun
hárgreiðslustofu sem sérhæfir sig
í lubbalegunv burstaklippingum.
(X) Að dæma í æsispennandi
kappræðum klerksins Hannesar
Arnar og „ýtustjórans'" um trúar-
legt gildi þess að brosa undir stýri
þegar ekin er Hrafnagilsbrautin.
(2) Að hefja jarðgangasprenging-
ar í Ólafsfjarðarmúla.
16 1H XH 2
í febrúar kom þjóðin sér sanian
um að hatast við sígarettu-
útblástur. Af hvaða tilefni?
(1) Árni Johnsen, formaður
tóbaksvarnanefndar, orti kjarn-
yrtan, en jafnframt hnyttinn, bar-
áttubrag gegn eiturnaglanum.
Skáldskapur Árna olli hreinlega
umbyltingu meðal þjóðarinnar í
garð sígarettunnar.
(X) Jóhann Hjartarson, skák-
maður, tefldi í þoku í einvígi við
keðjureykingamann í St. John.
(2) Á bæ einum undir Eyjafjöll-
um stráféll búsmali og álitu dýra-
læknar að' stöðugur sígarettuút-
blástur heimilisfólks hafi valdið
dauða hans.
Allar auglýsingar sem þarf að vinna sérstak-
lega, þurfa ad berast til auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Augiýsingadeild Dags.