Dagur - 30.12.1988, Side 12
12 - DAGUR - 3Ó. desember 1988
Tottenham hefur ávallt verið eitt
af stóru liðunurn á Englandi og
þess er krafist af félaginu að
það sé í fremstu röð. Totten-
ham varð Englandsmeistari árin
1951 og 1961. 2. deildarmeist-
ari 1920 og 1950, Evrópu-
meistari bikarhafa 1963, UEFA-
meistari 1972 og 1984. Deilda-
bikarmeistari 1971 og 1973 auk
þess sem liðið hefur sex sinn-
um sigrað í FA Charity Shield.
En það er í FA-bikarnum sem
Tottenham hefur oftast sigrað,
alls 7 sinnum, 1901, 1921,
1961, 1962, 1967, 1981 og
1982. Það voru margir sem
bjuggust við miklu af liðinu á
þessu leiktímabili, en strax á
fyrsta degi deildakeppninnar
varð félagið fyrir áfalli, er völlur
félagsins var dæmdur óleikhæf-
ur af lögreglunni og því var leik
liðsins gegn Coventry frestað á
síðustu stundu. Tvö stig voru
dæmd af liðinu fyrir vikið, en því
hefur þó verið breytt síðan, liðið
fékk stigin aftur, en greiddi sekt
í staðinn. Síðan fylgdi röð
slæmra úrslita sem varð þess
valdandi að liðið sat í neðstu
sætum deildarinnar lengi fram-
an af. Þrátt fyrir að leikmenn
léku oftast góða knattspyrnu
varð slök vörn og markvarsla
þess valdandi að erfiðlega gekk"
að hala inn stig.
Venables hélt þó ró sinni,
vissi að fyrr eða síðar hlaut
gæfan að snúast liðinu í hag og
það hefur nú gerst. Meiðsli
enska bakvarðarins Gary
Stevens urðu til þess að 19 ára
unglingur, Gay Butters fékk
tækifæri með liðinu og hann
hefur gerbreytt varnarleik liðs-
Kynning
ct ensku
li&unijm
ins til hins betra sem hefur að
undanförnu þotið upp stigatöfl-
una í 1. deild. Þau eru ekki
mörg 1. deildarliðin sem geta
státað af betri einstaklingum en
Tottenham, en vandamálið hef-
ur verið að samstilla þessa
snjöllu einstaklinga. Markvörð-
urinn Bobby Mimms hefur verið
mjög umdeildur, en nú hefur
hann fengið samkeppni um
stöðuna frá Erik Thorstvedt.
Vörnin sem var eins og gata-
sigti framan af er nú önnur og
betri eftir komu Butters. Gary
Mabbutt og Terry Fenwick eru
báðir enskir landsliðsmenn og
þeir Mitchell Thomas og Chris
Fairclough hafa sótt sig að
undanförnu. Chris Hughton
landsliðsbakvörður írlands hefur
ekki getað leikið vegna meiðsla
og Brian Statham bakvörður
komst í enska landsliðið 21 árs
og yngri þó að honum hafi ekki
tekist að halda stöðu sinni í
Tottenham liðinu.
Miðjumaðurinn Paul Gasco-
igne er einn sá sterkasti í ensku
knattspyrnunni, Vinny Samways
mjög efnilegur og var nú nýlega
valinn í 21 árs landslið
Englands, þá er Paul Allen
traustur leikmaður á miðjunni
hjá liðinu.
Ekki er skortur á snjöllum
sóknarmönnum hjá félaginu,
Chris Waddle landsliðsútherji
Englands hefur að undanförnu
leikið mjög vel. Paul Stewart
miðherjinn hefur nú fundið
skotskóna, en hann missti af
fyrstu leikjum liðsins vegna leik-
banns og Paul Walsh er eld-
snöggur og leikinn sóknarmað-
ur. Þrátt fyrir uppgang liðsins að
undanförnu þarf mikla bjartsýni
til að ætla því einhvern hlut í
baráttunni um Englandsmeist-
aratitilinn í vor og Southampton
batt enda á vonir Tottenham um
deildabikarinn í 4. umferð. Það
er því ekki ólíklegt að helsta
von Tottenham um sigurlaun að
þessu sinni liggi í FA-bikarnum,
en þar hefur félagið keppni í
janúar. Þ.L.A.
Aftasta röð f.v.: David Howells, Chris Fairclough, Bobby Mimms, Chris Waddle, Peter Guthrie, Mitchell Thomas,
Phi.l Gray. Miðröð: Mark Stimson, John Moncur, Paul Moran, Paul Gascoigne, Paul Stewart, Brian Statham.
Fremsta röð: Gary Stevens, Paul Walsh, Terry Fenwick, Gary Mabbutt, Paul Allen, Vinny Samways, John Polston.
Framkvœmdasljórinn
Terry Venables var í sólbaði á
Flórida sl. vetur er honum var
boðin framkvæmdastjórastað-
an hjá Tottenham. David Pleat
hafði verið látinn hætta hjá
félaginu sem var framkvæmda-
stjóralaust í mánuð þar til Vena-
bles skrifaði undir tveggja og
hálfs árs samning þann 23.
nóvember. Hann tók boð Tott-
enham fram yfir önnur boð frá
félögum í Evrópu. Hann hafði
áður verið í þrjú ár við stjórnvöl-
inn hjá Barcelona á Spáni og
keypt þangað Steve Archibald,
Gary Lineker og Mark Hughes.
Hann gerði Barcelona að meist-
urum á Spáni og liðið tapaði
úrslitaleik í Evrópukeppninni
gegn Steaua Bucharest á víta-
spyrnukeppni. Venables var
snjall leikmaður og lék með
Chelsea þar sem hann varð
deildabikarmeistari áður en
Tottenham keypti hann á
Kaup og sölur
Tottenham hefur sjaldan skort
fjármagn til mannakaupa og
ekki hikað við að eyða stórum
fjárfúlgum til að styrkja lið sitt.
Þegar Terry Venables hóf að
byggja upp lið sitt fyrir ári fékk
hann til ráðstöfunar £1,5 millj-
ónir sem fékkst frá Rangers er
Richard Gough var seldur
þangað. Enski landsliðs-
miðvörðurinn Terry Fenwick
var fyrst keyptur frá Q.P.R. fyr-
ir £550.000 og í kjölfar hans
komu Paul Walsh miðherji
Liverpool £500.000 og Bobby
Mimms markvörður frá Ever-
ton fyrir £375.000. Þá greiddi
Venables £100.000 fyrir Peter
Guthrie markvörð frá utan-
deildaliðinu Weymouth. í sum-
ar keypti Tottenham síðan tvo
unga og efnilega leikmenn, þá
Paul Stewart sóknarmann frá
Man. City fyrir £1,7 milljónir og
miðvallarspilarann Paul Gasco-
igne frá Newcastle fyrir 2 millj-
ónir punda, en hann hefur síð-
an komist í enska landsliðið.
En Venables seldi einnig leik-
menn í sumar og tókst þannig
að vega nokkuð upp eyðsluna.
Clive Allen fór til Bordeaux í
Hlíöarendastrákurinn Guöni Bergs-
son lék sinn fyrsta leik með aðalliði
Tottenham á annan dag jóla. Vera
hans hjá félaginu mun örugglega
tryggja aðdáendum þess hér stöð-
ugt fréttastreymi.
Frakklandi fyrir 1 milljón
punda, Nico Cleasen til Ant-
werp £500.000, Steve Hodge
til Nottingham For. £575.000,
Neil Ruddock til Millwall
£300.000, Johnny Metgod til
Feyenoord £185.000 og mark-
vörðurinn Tony Parks fór til
Brentford fyrir £60.000. Bak-
vörðurinn Danny Thomas sem
leikið hafði með landsliði Eng-
lands varð að hætta vegna
meiðsla og frjálsa sölu fengu
þeir Ossie Ardiles til Q.P.R.,
John Chiedozie til Derby og
Tim O’Shea til Leyton Orient.
En Venables lét ekki þar við
sitja og nú nýlega keypti hann
tvo leikmenn, norska landsliðs-
markvörðinn Erik Thorstvedt
frá Gothenburg fyrir £400.000,
en hann hefur að baki 47
landsleiki fyrir Noreg og
Guðna Bergsson íslenska
landsliðsmanninn frá Val sem
hann greiddi £350.000 fyrir. Þá
hafði hann samið við Luton um
sölu á bakverðinum Mitchell
Thomas fyrir £325.000, en sú
sala gekk til baka þar sem
Thomas vildi ekki fara frá
félaginu. Þ.L.A.
£80.000 1966, en með þeim
varð hann FA-bikarmeistari
1967. Síðan lá leið hans þrem
árum síðar til Q.P.R. og loks til
Crystal Palace þar sem hann
gerðist síðar þjálfari og loks
framkvæmdastjóri 1976. Hann
lék með landsliði Englands í öll-
um aldursflokkum og raunar
einnig í áhugamannalandsliði
þeirra. Sem framkvæmdastjóri
kom hann Crystal Palace upp í
1. deild og það sama gerði
hann fyrir Q.P.R., en hann tók
við stjórnvelinum þar þegar
hann hætti hjá Palace. Q.P.R.
lék til úrslita um FA-bikarinn
undir hans stjórn 1982, en tap-
aði í endurteknum úrslitaleik
gegn Tottenham. Síðan lá leið
hans eins og fyrr segir til Spán-
ar árið 1984 þar sem hann gekk
undir nafninu El Tel. Aðstoðar-
maður hans hjá Tottenham er
Allan Harris, en þeir hafa lengi
starfað saman og voru hlið við
hlið bæði hjá Q.P.R. og Barce-
lona. Venables er talinn einn
besti þjálfarinn á Englandi, en
það er ekki öllum framkvæmda-
stjórunum þar sú gáfa gefin og
oft hefur nafn hans verið nefnt
sem líklegur framkvæmdastjóri
enska landsliðsins. Þ.L.A.
Paul Gascoigne var valinn efnilegasti leikmaðurinn í enska boltanum á síð-
asta keppnistímabili. Hann var keyptur frá Newcastle fyrir 165 milljónir.