Dagur - 30.12.1988, Side 13
bílar
30, desember 1988 - p^GUR - 43
l
Volkswagen
Passat GL1.8
Þegar Volkswagen ákvað að
smíða meðalstóran fjölskyldubíl
fyrir u.þ.b. 15 árum, var sú
ákvörðun tekin með mjög
skömmum fyrirvara. Bíllinn sem
nefndur var Passat var eiginlega
Audi 80 með fimmtu hurðina á
hallandi afturendanum (Hatch-
back). Passatinn seldist í 4,2
millj. eintaka á þessum 15 árum
og því rökrétt fyrir VW að halda
áfram smíði bíls í þessum stærð-
er hægt að fella niður aftursætis-
bakið í tvennu lagi og stækka
með því farangursrýmið. Stjórn-
tækin falla vel að hendi og mælar
eru skýrir aflestrar og vel stað-
settir, að sjálfsögðu. Óvenju
ntargar smáhirslur eru í Passatin-
um fyrir utan „hanskahólfið"
hefðbundna. Hirslur cru undir
ntælaborðinu, milli framsætanna,
í hurðunum og í hliðum farang-
ursrýmisins. Allur frágangur er
Mælar eru skýrir aflestrar og vel staðsettir.
Vclin hefur þýðan og skemmtilegan gang á öllum snúningshröðum.
arflokki. Nú þegar VW endur-
. nýjar svo Passatinn er það í þetta
sinn gert með venjulegri þýskri
aðferð, nákvæmum undirbún-
ingi, tilraunum og vandvirkni.
Nýi Passatinn er nokkuð
merkilegur bíll og kemur þar
margt til. í fyrsta lagi er hann
óvenjulega venjulegur útlits ef ég
má komast svo að orði. Par á ég
við það, að bíllinn veldur svo sem
ekki hjartsláttartruflunum fyrir
fegurð eða byltingarkennt útlit,
en er þó auðþekkjanlegur. Eink-
um eru það hlutföllin sem eru
óvenjuleg. Farþega- og farang-
ursrými eru stærri hluti af þessum
bíl en nokkruni öðrum í flokki
bíla af þessari stærð. VW hefur,
gagnstætt dótturfyrirtækinu
Audi, sett vélina þverstæða í
Passatinn og þar með nýtist rým-
ið betur. Fáir bílar, þó stærri séu,
geta státað af betra rými en Pass-
atinn. Gildir það sérstaklega um
aftursætið en rýmið í framsætum
er einnig afbragðsgott. Sætin sjálf
eru vel löguð og bólstruð, e.t.v.
nokkuð hörð við fyrstu kynni, en
vafalaust þægileg á langferðum.
Aftursætið í GL-gerðinni er still-
anlegt, því má renna frafn eða
aftur um 8 cm og þá breytist hall-
inn á bakinu um leið. Jafnframt
mjög góður og sama er að segja
um klæðningu að innan, bæði
efnisval og handbragð er fyrsta
flokks.
Passatinn er fáanlegur með 4
mismunandi vélarstærðum, 1,6 til
2,0 lítra, sem eru 75 til 136 hö.
Vélin í bílnum sem ég ók var 1,8
1, búin beinni innspýtingu og skil-
ar 112 hö. Þessi vél er sú sama og
þekkt er í VW Golf GTi. Hún
hefur mjög þýðan og skemmti-
legan gang á hvaða snúnings-
hraða sem er og dregur ágætlega
frá ca. 2000 sn./mín. og bregst vel
við bensíngjöfinni. Passatinn er á
hinn bóginn hátt í 1300 kg með
ökumanni og því skortir nokkuð
á að hann geti fylgt bróður
sínum, Golf GTi, í viðbragði þó
„hjartað“ sé hið sama.
Ekki verður hjá því konrist að
hæla gírkassanum og hlutföllum í
kassa og drifi ásamt sérlega lipri
gírskiptingu. Nokkur vandkvæði
eru á því að gera gírskiptingar-
búnaðinn í bílum með framhjóla-
drif sæmilega lipran, vegna þess
að gírkassinn er oftast sambyggð-
ur vélinni og drifinu og því þarf
oftast millistangir til að tengja'
kassann og gírstöngina. Nokkuð
óvenjulegt er að sjá stálbarka
Passatinn er nokkuö óvenjulegur útlits hvað hlutföll snertir.
Umsjón:
Úlfar
Hauksson
notaða til þess að tengja gírkassa
og gírstöng í Passatinum, í stað
stanga. Þetta er ágæt lausn og
kemur í vcg fyrir það að gírstöng-
in skakist fram og aftur þegar vél
og gírkassi ganga til í mjúkum
vélarfestingunum, einkum undir
álagi. Þegar stangir eru notaðar
getur stundum verið ómögulegt
eða mjög stirt að skipta milli gíra
á framdrifsbílum í kröppum
beygjum eða í fullri vinnslu, því
rígur getur myndast milli gír-
kassa og gírstangar. Þetta vanda-
mál ætti ekki að vera fyrir hendi í
Passatinum.
Fyrst í stað fannst mér Passat-
inn óþarflega stífur, en eftir
nokkra metra hvarf sú tilfinning.
Ég hafði að vísu ekki tækifæri til
að aka bílnum á reglulega vond-
um vegi en ég er samt ekki í vafa
um að fjöðrunin er mjög vel
heppnuð. Hún er nægilega slag-
löng og ræður vel við flestar
ójöfnur, stórar og smáar. Helst
er að skarpar brúnir á malbiki
„slái“ í gegn (nokkuð algengur
kvilli á bílum nútímans). Óvenju
lítið veghljóö berst inn í bílinn.
jafnvel á malarvegi, og þó var
bíllinn á breiðum lágum hjól-
börðum. Bíllinn hcfur örugga og
skemmtilega aksturseiginleika.
Fjöðrunin sér til þess að hann
hallast lítið í beygjum og vcggrip-
ið er mjög gott. Hann undirstýrir
lítillega í beygjum, en er alltaf
fullkomlega útreiknanlegur. Rás-
festan er óaðfinnanleg eins og
reyndar má búast við í bíl með
svo mikið hjólahaf. Passatinn er
afar lipur í akstri og, a.m.k. mcð
vökvastýri, sem ég mæli eindreg-
ið með og ekki skemmir gírskipt-
ingin sem áöur er getiö. Brems-
urnar í 112 ha. bílnum eru með
diska við öll hjól og vinna vel,
ástigið er þó e.t.v. lítillega í þyngri
kantinum.
Volkswagen Passat er sérlega
rúmgóður og mjög þægilegur bíll
af meðalstærð. Hann er nota-
drjúgur vegna stækkanlegs far-
angursrýmis og allt handbragð og
frágangur lofar góðri endingu í
hefðbundnum VW-stíl. Veröið,
ca. 1080 þús. verður að teljast
samkeppnisfært.
Gerð:
Volkswagen Passat GL I.Si. 5 manna, 4 dyra fólksbifreið, vél að
framan, drif á framhjólum.
Vél og undirvagn:
4 strokka, 4 gengis bensínvél, vatnskæld, 5 höfuðlegur, yfirliggjandi
knastás, rafeindastýrð eldsneytisinnspýting; borvídd; 81,0 mm;
slaglengd: 86,4 mm; slagrými: 1781 cc; þjöppun: 0,0:1: 112 hö. við
5400 sn./mín.; 154 Nm við 3800 sn./mín.
Drif á framhjólum, 5 gíra gírkassi. Sjálfstæð fjöðrun að framan með
McPherson gormlegg og þríhyrndum þverarmi að neðan, jafnvægis-
stöng. Að al'tan, langsarmar (samtengdir), gormleggur og
jafnvægisstöng.
Diskahemlar á öllum hjólum (aflhemlar). Vökvastýri. Handhemill
á afturhjólum. Eldsneytisgeymir 70 lítra. Hjólbarðar 105/60 R 14
H. Hámarkshraði 190 km/klst. 0-100 á ca. 11,5 sek.
Lengd:
457,3 cm; breidd 170,4 cm; hæð: 142,8 cm; hjólahaf: 262,3 cm;
sporvídd: 147,0/142,2 cm; eigin þyngd: 1120 kg.
Verð:
U.þ.b. 1080 þús. kr.
Innflytjandi:
Hekla hf., Reykjavík.
Umboð:
Höldur sf., Akureyri.
VW Passat er rúmgóður og þægilegur bíll af meðalstærð