Dagur - 30.12.1988, Side 17
30. desember 1988 - DAGUR - 17
Mirniing
T Hallfreð Sigtryggsson
Fæddur 24. júní 1900 - Dáinn 22. desember 1988
Aldinn heiðursmaður, Hallfreð
Sigtryggsson, hefur kvatt þennan
heim. Hann lést eftir stutta legu á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, 88 ára að aldri, og hafði þá
kennt veikinda um hríð. Fráfall
manns á þessum aldri kemur ekki
á óvart en þó finna þeir sem
þekktu Halla Tryggva, eins og
hann var alla tíð nefndur, að
skarð er fyrir skildi.
Hallfreð fæddist þann 24. júní
á Grund í Höfðahverfi, Grýtu-
bakkahreppi, aldamótaárið 1900.
Foreldrar hans voru hjónin Sigrún
Sigurðardóttir og Sigtryggur
Helgason. Börn þeirra hjóna
voru fjögur en aðeins það yngsta,
Hallfreð, átti eftir að lifa langa
ævi. Eldri systkini hans, Alfreð
og Þorbjörg, dóu á þrítugsaldri
og Þórir, bróðir hans, á barns-
aldri.
Halli fluttist barn að aldri til
Akureyrar. Þar gekk hann í
Barnaskóla Akureyrar og fékk
þá undirstöðumenntun sem
algeng var í þá daga. Hann starf-
aði við flest algeng verk á ungl-
ingsárum en hafði sérstakt yndi
af öllum íþróttum, ekki síst
knattspyrnu, skautahlaupi og
sundi. Halli var einn þeirra sem
grófu fyrir fystu sundlauginni á
Akureyri og vann einnig, - í
sjálfboðavinnu, við að leggja
vatnsleiðslu að lauginni. í þá
daga var ekki siður að taka pen-
inga fyrir öll viðvik, sérstaklega
ef þar voru málefni sem horfðu til
almannaheilla.
Sjórinn var sá starfsvettvangur
sem margir kusu sér á fyrstu ára-
tugum aldarinnar, enda ekki um
eins margt að velja þá og síðar
varð. Halli fór á síld á sumrin og
margar sögur kunni hann af
sjónum. Er það álit þess sem
þetta skrifar að sjórinn hafi átt
vel við Halla að mörgu leyti. Á
eldri árum las hann og safnaði
bókum um íslenska sjómenn og
sjósókn, ekki síst bókum sem
gefnar hafa verið út af Slysa-
varnafélagi íslands og fjalla um
sögu íslenskra sjóslysa.
Ekki er hægt að minnast Halla
án þess að geta um gamla slipp-
inn á Akureyri, en þar vann hann
í mörg ár, m.a. sem hjálmkafari.
Á millistríðsárunum slasaðist
hann alvarlega á fæti og gekk
haltur eftir það. Ekki varð fötlun
hans þó til að hindra hann í vinnu
og gekk hann óbugaður að
hverju starfi sem fyrr.
Halli hlýtur að vera öllum sem
þekktu hann minnisstæður
maður. Hann var léttur í lund og
vinsæll til allra starfa, enda eftir-
sóttur verkmaður. Þrátt fyrir fötl-
un sína vann hann til 75 ára
aldurs, síðustu áratugina hjá
Sláturhúsi KEA. Halli vann auk
þess mikið fyrir ýmsa aðra aðila,
t.d. við að mála húsþök fyrir
menn á Akureyri og ýmis önnur
verk sem kröfðust vandvirkni og
góðrar þekkingar á vinnu-
brögðum. Hef ég oft heyrt menn
minnast þess að Halli Tryggva
hafi verið einstaklega hjálpsamur
og greiðvikinn varðandi slíka
hluti þegar til hans var leitað.
Oft hefur mér verið hugsað til
þess hversu margt mátti af Halla
læra. Hann lét mótlæti ekki buga
sig en var oftast kátur í lund.
Þannig vildi hann einnig að aðrir
væru, bölsýni var honum ekki að
skapi. Mátti oft sjá hann í sam-
ræðum við menn á förnum vegi
fyrir utan heimilið að Gránufélags-
götu 28.
Halli var 28. stofnfélagi
íþróttafélagsins Þórs á Akureyri,
en félagið var stofnað 6. júní
1915. Árið 1965, á 50 ára afmæli
félagsins, var hann gerður að
heiðursfélaga. Hann unni félaginu
ætíð og fylgdist með öllu því
markverðasta sem þar gerðist.
Árið 1981 vígði hann t.d. hinn
nýja grasvöll félagsins í Glerár-
hverfi við hátíðlega athöfn. Halli
hafði á orði að hann hlakkaði til
að vera viðstaddu'r vígslu félags-
heimilis Þórs sem nú er í byggingu
en honum entist ekki aldur til
þess. Sýnir þetta traust hans og
hug til félagsins betur en margt
annað.
Fáir Akureyringar munu hafa
haldið jafn miklu trausti við
sundiðkun eins og Halli. Hann
fór reglulega í sund og þótti mið-
ur ef hann komst ekki af ein-
hverjum ástæðum. Þegar hann
varð áttræður gáfu sundfélagarn-
ir honum minjagrip af því tilefni
sem ég veit að honum þótti mjög
vænt um.
Heimili Halla og konu hans,
Önnu Stefánsdóttur, var þekkt
fyrir gestrisni og hlýleika. Mörg-
um veittu þau húsaskjól um
lengri og skemmri tíma og veit ég
að þakklæti ríkir í garð þeirra
hjóna úr mörgum áttum. Er
margra ógleymanlegra samveru-
stunda að minnast, ekki síst frá
jólum og áramótum liðinna ára.
Hallfreð og Anna eignuðust
þrjú börn, dæturnar Sigrúnu og
Guðnýju, og einn son, Þorstein
Marinó, tengdaföður þess sem
þetta ritar. Það var Halla og
Önnu mikið áfall að inissa son
sinn aðeins fimmtugan að aldri,
fyrir réttum fiinm árum. Gekk sá
missir mjög nærri gamla mannin-
um.
Eg vil að lokum kveðja Halla
hinstu kveðju, eftirlifandi konu
hans, dætrum og öðrum aðstand-
endum votta ég samúð.
Egiil H. Bragason.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
í 1. FL. B1985
Hinn 10. janúar 1989 er áttundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 8 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini kr. 373,80
Vaxtamiði með 10.000,- kr. skírteini kr. 747,60
Vaxtamiði með 100.000 kr. skírteini kr. 7.476,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1988
til 10. janúar 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur
á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2279 hinn 1. janúar 1989.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga
Innlausn vaxtamiða nr. 8 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1989.
Reykjavík, 30. desember 1988
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Fagnaður á gamlaárskvöld
G.A.-félagar ætla að halda fagnað að Jaðri
á gamlaárskvöld, sem hefst um miðnættið.
Hljómsveit Finns Eydal, Helena, Alli, Árni Ketill og Siggi
skemmta.
- Allir velkomnir! - Hattar og knöll á staðnum!
Kveðjum gamla árið með „stæl" og fögnum nýju!
Ath.: - Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði -
- Vinningur: Farseðill - Akureyri - London - Akureyri -
- Verð kr. 1.000,-
Með nýárskveðju,
G.A.-félagar.
........ X
Viðskiptavinir
athugið!
Vegna vörutalningar verður verslunin lokuð á
gamlársdag og 2. og 3. janúar 1989.
Óskum vidskiptavinum gleðilegs
nýárs með þökk fyrir árið sem er að
líða.
• •
Auglýsendur athugið!
Fyrsta blað á nýju ári kemur út
þriðjud. 3. janúar.
Skilafrestur auglýsinga í það blað er til kl. 11.00
mánud. 2. janúar, nema um stærri auglýsingar sé að
ræða, en þær þurfa að berast fyrir kl. 16.00 föstud.
30. desember.
auglýsingadeild, sími 24222.
V________________________________________/
VINNINGSNÚMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
— -..... Dregið 24. desember 1988......
AUDI80: 34324
MITSUBISHILANCER1500 GLX: 9456 24972 88354
VÖRUR AÐ EIGIN VALI FYRIR 100.000 KR.:
3350 11613 47651 105447 170551
7357 11841 49787 110492 172046
8632 45037 72399 112079 173542
8696 45712 88681 159035 175799
VÖRUR AÐ EIGIN VALI FYRIR 50.000 KR.:
582 17163 33968 59044 86699 97586 118057 133461 159406
614 18951 35562 61510 86971 102209 118961 135872 164014
661 19421 36043 62611 87112 103516 120138 138594 164777
5801 20652 37131 65969 87851 107148 124131 146225 170357
5898 25010 37758 65975 92584 107430 124594 147770 177356
6918 26179 38267 71392 93520 107765 126207 151039 177384
9283 26553 46225 73869 93629 110897 126286 152758 183966
11086 32746 56800 75950 95675 111841 126380 157716 184620
11490 33073 58932 85240 96194 114950 129103 158679
Handhafar vinningsmiöa framvisi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
aö Skógarhlfö 8, simi 621414.
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuöning.
Krabbameinsfélagið