Dagur - 30.12.1988, Blaðsíða 20
MSUR
Akureyri, föstudagur 30. desember 1988
Grímseyingar kvitta fyrir 1988:
Brenna út gamla
/ • X j / •
anð a Eiðatum
'Blys ☆ Rakettur ☆ Stjörnugos'
Flugeldar ☆ Flugeldar
Einnig úrval af fjölskyldupökkum
Flugeldasala K.A. og Þórs er viö KA-heimilið og í
Hamri, félagsheimili Þórs dagana 27.-30. desember
kl. 13-22 og á gamiársdag frá kl. 9-16.
Ef veðurfræðingar og -guðir
leyfa hyggjast Grímseyingar
brenna út árið 1988 á gamlárs-
kvöld. Brennan verður að öll-
Spáð slæmu
veðriá
gamlárskvöld
Það kann að fara svo, að
flugeldarnir sem keppst er
við að selja á Akureyri komi
ekki til með. að sjást ýkja
vel, ef þeim á annað borð
verður skotið upp. Sú er
a.nt.k. spá veðurfræðinga á
Veðurstofu íslands sem spá
okkur Norðlendingum
slæmu veðri á gamlárs-
kvöld.
í dag á veðrið að vera
skikkanlegt þar til síödegis, en
þá fer að livessa með snjó-
komu. Á laugardag, gamlárs-
dag, er reiknað með slyddu
eða snjókomu, þungbúnu
veðri og hvassviðri á bilinu 6-8
vindstig. Síðla nætur er vonast
til að vcðrið lægi og á nýársdag
léttir til og hægir vind.
íbúar á Norövesturlandi fá
heldur verra veöur en þeir sem
austar búa og segja má að
Akureyri sé á mörkum góðs
og ills, eins og veðurfræðingur
orðaði það. Þegar austar kem-
ur skánar veörið og reiknað er
nteð að það verði ágætt á Aust-
urlandi. Sem sagt, leiðinda-
veður á gantlárskvöld og best
að klæða börnin scm ætla á
brennurnar vel. VG
Varasamt áramótatríó:
Vín, háJka
og flugeldar
Hina fyrstu hálkudaga
vetrarins hefur fólk farið
varlega og lítið hefur verið
um beinbrot í kjölfar þess
að mönnum hail skrikað fót-
ur í hálkunni. „Það er eins
og menn fari varlegar yfir
fyrstu hálkudagana, en er
hálkan hefur varað lengur
fyllast menn sjálfstrausti og
þá eru meiri líkur á bein-
brotum,“ sagði Júlíus
Gestsson læknir á slysadeild
FSA.
Júlíus sagði óvenju rólegt
hafa verið á slysadeildinni yfir
hátíðina og þó svo hálkan hafi
það í för með sér að crfiðara
cr að komast leiðar sinnar hef-
ur fólk farið varlega yfir svell-
in og sloppið aö mestu við
beinbrot.
Um áramót þurfa ævinlega
einhverjir að heimsækja slysa-
deildir sjúkrahúsanna og sagði
Júlíus brunaslysin algengust.
„Menn þurfa fyrst og fremst
að passa sig á brennivíninu,
hálkunni og flugeldunum um
áramótin,“ sagði hann. „Þegar
þetta þrennt fer saman í mikl-
um mæli getur verið hættulegt
að lifa.“ mþþ
um líkindum á svokölluðu Eiða-
túni. Svo er aldrei að vita
nema að dans verði stiginn í
félagsheimilinu á eftir.
Að sögn Vilborgar Sigurðar-
dóttur, stöðvarstjóra Pósts og
síma í Grímsey, hafa eyjar-
skeggjar haft það náðugt um
jólin, borðað ljúffengar steikur,
lesið bækur og notið friðsemdar
jólanna. Pann 27. desember var
jólamessa í Miðgarðakirkju.
Prestur var séra Pálmi Matthías-
son. Síðdegis var efnt til barna-
dansleiks í félagsheimilinu.
Aðspurð um hvaða mat eigi að
bera fram annað kvöld, gamlárs-
kvöld, sagði Vilborg að það verði
einhver steik, ekki sé búið að
ákveða endanlega af hvaða
skepnu hún veröi. „Pað verður
a.m.k. ekki rjúpa á borðum. Hún
er allt of fallegur fugl til að hafa
hana í matinn,“ bætti Vilborg
við. óþh
Eitt af cftirniinnilegustu hitumáluiu í bæjarpólitíkinni á Akureyri á árinu 1988 voru kaup bæjarins á nýjum snjó-
truðara fyrir skíðasvæAiA í HlíAarfjalli. Eftir nokkuA hvöss orAaskipti ónefndra bæjarfulltrúa var tekin sú ákvörAun
aA fcsta kaup á snjótroAara af gerAinni Kassbohrcr. Gripurinn er nú koniinn til Akureyrar og bíAur þess aA skíAa-
svæAiA vcrAi opnaA. AA sögn ValgarAs Baldvinssonar, bæjarritara, hefur þcgar veriA greiddur allur erlendur kostn-
aAur vegna kaupanna en hins vegar á eftir aö ganga frá tollauppgjöri. Valgaröur segir þaA veröa gert um leiA og
verkefni veröu fyrir troöarann ■ fjallinu. AAspurAur sagði Valgarður ekki Ijóst með endanlegan kostnað vegna
kaupa á snjótroðaranum. óþh
17% gengisfellmgu strax!
Áramótaskilaboö Víglundar
Þorsteinssonar, formanns
Félags íslenskra iönrekenda,
til ríkisstjórnarinnar eru skýr.
Hann segir að hún verði að
grípa til róttækra aðgerða í
upphafí næsta árs til þess að
afstýra fjöldagjaldþroti iðn-
fyrirtækja og annarra útflutn-
ings- og samkeppnisfyrirtækja.
Víglundur segir að fella verði
gengi íslensku krónunnar um
17% til þess að koma fram-
leiðslugreinunum á réttan kjöl.
Víglundur Porsteinsson segir
að ef augu stjórnmálamanna
opnist ekki á allra næstu vikum
fyrir þeirri röngu gengisskrán-
ingu, sem hér hafi verið til langs
tíma, blasi ekkert annað við hjá
fyrirtækjum á árinu 1989 en stór-
kostlegt hrun, uppsagnir og lok-
amr.
Formaður FÍI telur að í þessari
stöðu sé í raun ekki nema um
tvær leiðir að velja. Annars vegar
Húsvískur heimilisiðnaður
gerður upptækur af lögreglu
- hald lagt á um 70 lítra af bruggi og landaflöskur
Um 70 lítrar af bruggi, tvær
flöskur af landa og eimingar-
tæki voru gerð upptæk af lög-
reglunni á Húsavík síðastliðið
miðvikudagskvöld í húsi einu
þar í bæ. Grunsemdir höfðu
vaknað hjá lögreglu um
ástundun þessa heimilisiðnað-
ar þar sem ölvað fólk sást iðu-
lega í námunda hússins og
einnig hafði talsvert verið um
útköll á staðinn.
Lögreglan fann eimingartæki,
tvær 100 lítra tunnur, hvar vökv-
inn gerjast og annað það er til
áfengisgerðar þarf í húsinu. Upp
úr hverri tunnu fást um 15 flöskur
af landa og hafði þegar verið lok-
ið við að drekka afrakstur ann-
arrar. í hinni voru um 70 lítrar af
óeimuðu bruggi í gerjun. Auk
þess fundust tvær flöskur af full-
unnum vökva. Lögreglan lagði
hald á þennan varning.
„Það hefði náðst að eima
þarna í sæmilegt fyllerí fyrir ára-
mótin,“ sagði Daníel Guðjóns-
son varðstjóri.
Húsráðandi viðurkenndi að
hafa léð húsrými fyrir framleiðsl-
una, en sagði að kunningi sinn
væri eigandi tækjanna. Munu
þeir þó báðir hafa notið góðs af
afurðunum.
Engin játning hefur enn fengist
um sölu heimiliðnaðarins á al-
mennum markaði, en lögreglan
hafði þó ákveðnar grunsemdir
um að svo hafi verið innan
þröngs hóps. IM/mþþ
hina sérstöku íslensku aðferð,
gengislækkun, sem miði að því
að koma framleiðslugreinunum á
fullt skrið auk þess „að dreifa
kaupmáttarskerðingunni eins
jafnt og hægt er yfir allt þjóð-
félagið.“ Hins vegar þá leið ný-
frjálshyggjunnar að halda geng-
inu föstu og láta fyrirtækin fara á
hausinn. „Leiðin út úr þessum
ógöngum felst í því að lækka
raungengi krónunnar. Það er
unnt að gera það með tvennum
hætti, að fella gengið eða lækka
launin. Eg vil ekki tala neina
tæpitungu um það að launalækk-
un var rétta leiðin \ september-
mánuði. Launalækkun er þó vart
raunhæfur kostur í þessari stöðu
vegna þess hve hún þyrfti að vera
mikil. Héðan af geta menn því
ekkert annað gert en að fella
gengið. Hún er aðalmálið í stöð-
unni, hliðarráðstafanir eru ekki
höfuðatriðið,“ sagði Víglundur
Þorsteinsson.
oþh
Sauðárkrókur:
Það verður áramótabrenna
- byrjað að safna í gær
Það fór ekki svo að engin
brenna yrði á Sauðárkróki um
áramótin. Sagt var í blaðinu í
fyrradag að miklar líkur væru á
að engin áramótabrenna yrði
en nú hafa nokkrir aðilar í
bænum tekið sig saman og ætla
að safna í brennu. Þeir gengu á
fund bæjarráðs sl. þriðjudag
og fengu samþykki fyrir því að
halda brennu, ekki á Áshildar-
holtshæð eins og búið var að
veita leyfi fyrir, heldur verður
hún staðsett á Nöfunum, fyrir
ofan Heimavistina, norðan við
Sauðárgilið.
Þaðan á brennan að sjást víða
um bæinn, auk þess sem hún
verður nálægt flugeldasýningunni
sem Sauðárkróksbær efnir til á
gamlárskvöld. Þar munu björg-
unarsveitarmenn skjóta upp alls
kyns sprengjum og blysum.
Forráðamenn brennunnar
byrjuðu að safna í gær og í dag
munu vörubílar aka um bæinn og
taka við rusli. Fólk er beðið að
taka til hendinni og tína allt það
til sem það má missa. Að sögn
forráðainanna brennunnar búast
þeir ekki við að brennan verði
stór að þessu sinni, en allt sé
betra en ekkert. Það er því ljóst
að Sauðárkróksbúar fá að berja
áramótabrennu augum, en lengi
leit út fyrir að svo yrði ekki. Það
gátu forráðamenn brennunnar og
fleiri ekki liðið og því var tekið af
skarið á sfðustu stundu. Að lok-
um skal þess getið að kveikt
verður í brennunni á Nöfunum
kl. 20.30 á gamlárskvöld. -bjb
Næsta blað kemur
út þriðjudaginn
3. janúar.
Auglýsendur þurfa að
skila inn handritum
fyrir kl. 11.00 mánu-
daginn 2. janúar nk.