Dagur - 09.12.1989, Page 2

Dagur - 09.12.1989, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 9. desember 1989 Góðan daginn, ágætu lesendur. Fyrst vildu allir fá varaflugvöll og nú vilja allir álver. Þetta er dæmigert fyrir múgsefjunina á íslandi. Ef einn byrjar að klóra sér þá logar allt í ofsakláða inn- an tíðar. Þannig var það með loðdýrabúskapinn og fiskeldið. Múgsefjun og stjórnleysi. Akur- eyringar vilja nú ekkert annað en álver í jólagjöf og væla máli sínu til stuðnings um eitthvert munnlegt gaspur fyrir áratug. A þeim tíma vildu Akureyringar samt ekki fá álver í Eyjafjörð- inn, sérstaklega ekki svokallaðir vinstri menn. Þeir hafa nú smit- ast af múgsefjuninni. Atvinnuástandið er ekkert allt of gott á Akureyri og því grípa menn til örþrifaráða. Ein- hverjum framámanninum datt skyndilega í hug að heimta álver og þá var eins og lýðurinn yröi gjörsamlega trylltur. Álverskór- inn hefur ekki þagnað síðan og það er engu líkara en að bæjar- yfirvöld þckki ekkert annað ráð til að efla atvinnulífið á Akur- eyri en fá erlenda auðhringa til að reisa reykspúandi stóriðju í Eyjafirði. Þetta kalla ég uppgjöf. Afstaða stjórnvalda er þó skýr í þessu máli, þótt Akurcyr- ingar vilji ekki viðurkenna það. Álviðræðurnar hafa ætíð miðast við frekari uppbyggingu í Straumsvík, annað hvort með stækkun álversins sem þar er fyrir eða byggingu nýs. Hag- kvæmniathuganir taka mið af Straumsvík, viðræður við erlend álfyrirtæki taka mið af Straums- vík og í rauninni er Straumsvík eini kosturinn. Ég vil skora á Akureyringa að láta af þessunt draumórum um álver og líta raunsæjum augum á málið. Það verður ekki reist álver í Eyjafirði næstu tvo ára- tugina og sennilcga aldrei - sanniði til. Það er tilgangslaust að eyða meiri tíma í þetta mark- lausa hjal og ég vona aö álvcrs- draugarnir verði horfnir fyrir jólin. Konan mín hefur löngunt ver- ið áhugamanneskja um nýsköp- un í atvinnulífinu og mér finnst sjálfsagt að koma skoðunum hennar á framfæri. Líkt og fleiri konur af hcnnar sauðahúsi er hún afar veik fyrir lífefnaiönaði og öllu sem kallast ensím eða hvatar. Framtíðarmöguleikar Akureyrar liggja í þessum iön- aði en ekki stóriðju, segir hún. Smáiðnaður af ýmsu tagi er hennar hjartans mál, ekki síst litlar saumastofur, hönnunar- stofur, hugvitsfyrirtæki og nytjalistastofur. Hún vill efla atvinnuþátttöku kvenna og hún telur að mjúku málin verði haldbetri þcgar upp er staðið. Nóg um það. Eg hef líka ýmsar hugmyndir til bjargar atvinnulífinu á Akur- eyri. Vegna tímaskorts hef ég ekki sent þær í hugmyndasam- Hallfreður Örgumleiðason: matarkrókur l Hallfreður setur fram athyglisverða hugmynd um smíði dvergkafbáta til að leyfa ferðamönnuin að skoða dýralífið í Pollinum. keppni atvinnumálanefndar en ég skal koma nokkrum þeirra á framfæri hér án frekari skuld- bindinga. Ansi yrði samt gaman að fá fálkaorðu. Nú skiptir ekki máli, hvimleitt vesen, gúlp! Lítum t.d. á ferðaþjónust- una. Ótæmandi möguleikar. Ég gæti hugsað mér lítið fyrirtæki sem framlciddi dvergkafbáta. Þessa báta væri hægt að nota til að selja túristum neðansjávar- fcrðir og að sjálfsögðu yrði að hanna þá með stórum gluggum. Hugsið ykkur bara ævintýraferð um undirdjúp Eyjafjarðar þar sem allt iðar af lífi og framandi hlutum. Stórgróði. Annað dæmi sem bæjarfélag- ið mætti skoða er stofnun alvöru næturklúbbs, jafnt fyrir inn- lenda sem erlenda gleðimenn. Með réttu framboði og skipu- lagi gæti þetta orðið stórgróða- fyrirtæki fyrir bæinn og laðað að fólk til búsetu. Mýmargar hugmyndir gæti ég viðrað til .viðbótar en rýmið er orðið knappt. Nú eru blessuð jólin að nálgast og vertið frarn- undan hjá þeim sem leika jóla- sveina í atvinnuskyni. Þau mál mætti vissulega skoða, t.d. hvers vegna jólasveinar borga ekki skatta. En ég er að reyna að komast í jólaskap og það kemur í Ijós í næsta pistli hvern- ig til hefur tekist. Takk fyrir að sinni. Smákökur og jólakaka Pá er komið að jólabakstrin- um og þóttfyrr hefði verið. í dag verða smákökurnar í öndvegi en þegar nœr dregur jólum œtlum við að snúa okkur að konfekti og öðru góðgæti. En hér koma smá- kökur, einnig fyrir sykur- sjúka, og ein hreinrœktuð ávaxtajólakaka. Lindukökur 150 g möndlur 3 msk. kókosmjöl 3 egg 225 g sykur rifinn börkur af 1 appelsínu 300 g hveiti V/2 tsk. lyftiduft Egg og sykur hrært saman. Möndlurnar eru malaðar og þeim blandað saman við kókosmjöl og appelsínubörk. Sett ásamt hveiti og lyftidufti út í eggjahræruna. Síðan er deigið sett með teskeið á bökunarplötu með góðu millibili og kökurnar bakaðar í u.þ.b. 10 mínútur. Fínar smákökur 200 g hveiti 125 g hrísmjöl 75 g sykur 200 g smjör eða smjörlíki kokteilber Blandið mjöltegundunum. og sykri saman. Smjörið er skorið í sneiðar og deigið hnoðað fljótt. Rúllað í lengjur og geymt í kæli- skáp í 2 klst. Skorið í þunnar sneiðar sem settar eru á smurða plötu. Hálft kokteilber lagt ofan á hverja köku. Bakað í um 8 mínútur. Ávaxtajólakaka 200 g smjörlíki m dl sykur 3 egg 4 dl hveiti 1 tsk. lyftiduft V2 dl appelsínumarmelaði 1 dl rúsínur 1 dl kúrennur 1 dl hnetur 1 dl súkkat 1 dl saxaðar döðlur V/2 dl kokteilber Smjörlíki og sykur hrært vel saman. Eggjunum hrært út í einu í senn. Blandið ávöxtunum í hveitið svo þeir setjist ekki á botninn. Þessu er hrært varlega saman við ásamt marmelaðinu. Sett í 2 fremur lítil form. Bakað við vægan hita (150-160 gráður) í u.þ.b. 1 klst. Kakan geymist mjög vel pökkuð í álpappír og hún er bæði fjarskalega góð og jólaleg. Hneturkransar (f. sykursjúka) 200 g heslihnetur 3 dl hveiti 5 msk. strásœta fyrir sykursjúka 200 g smjörlíki 2 eggjahvítur Hneturnar eru malaðar, hveiti og strásætu blandað í og hrært saman við smjörlíkið. Hvíturnar stífþeyttar og blandað í deigið. Sett í sprautupoka og hringir mótaðir úr deiginu. Betra er að hafa bökunarpappír á plötunni. Bakað í miðjum ofni í u.þ.b. 12 mínútur. Hafrakökur (f sykursjúka) 200 g smjörlíki 4 msk. strásœta f. sykursjúka V/2 dl hafragrjón 3 dl hveiti Smjörlíki og strásætu hrært Kokteilberin setja fallegan svip á kökurnar sem kallast hér einfaldlega Fínar smákökur. saman. Haframjöli og hveiti bætt í og deigið hnoðað. Búnar til kúl- ur og þrýst ofan á þær með gaffli svo þær verði rifflaðar. Bakað í miðjum ofni í u.þ.b. 10 mínútur. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.