Dagur - 24.11.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 24. nóvember 1990
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000
Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda:
Rækjuvmnslan rekin
með yfír 20% tapi
Gert er ráð fyrir að framleiðslu-
verðmæti skelflettrar, frystrar
rækju verði um 4 milljarðar
króna á þessu ári. Rekstrar-
afkoma þessarar vinnslugrein-
ar hefur versnað gífurlega síð-
ustu mánuði. Útreikningar
Þjóðhagsstofnunar gera ráð
fyrir að tap á rækjuvinnslunni
sé nú 18,2%. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá
Félagi rækju- og hörpudisk-
framleiðenda.
Þessi niðurstaða sýnir meðal-
afkomu allrar rækjuvinnslu í
landinu, en nú er nær eingöngu
unnin innfjarðarrækja sem er
mun smærri en úthafsrækjan og
fyrir hana fæst mun lægra verð.
Afkoman í nóvember er því enn
verri en fram kemur í útreikning-
um Þjóðhagsstofnunar því þeir
eru byggðir á skilyrðum í októ-
ber. Tapið í núverandi vinnslu er
áætlað yfir 20%.
í tilkynningu félagsins er getið
um ástæður fyrir þessar slæmu
afkomu, s.s. lækkun á markaðs-
verði um 15% í erlendri mynt frá
því í vor og enn meiri á smá-
rækju. Þá hefur greiðslum úr
Verðjöfnunarsjóði verið hætt þar
sem innstæður rækjumanna hafa
gengið til þurrðar í sjóðnum.
Þessar greiðslur námu um 11% af
tekjum að meðaltali.á síðasta ári.
Einnig kemur fram að hráefn-
isverð hafi einungis verið lækkað
um 5% í september sem er í engu
samræmi við lækkun á markaðs-
verði og greiðslur úr Verðjöfnun-
arsjóði. SS
Alþýðuflokkurinn:
Opið prófkjör á Norður-
landi eystra um helgina
í dag og á morgun verður opið
prófkjör Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra
um skipan efstu sæta á lista
flokksins fyrir komandi alþing-
iskosningar. Sex kandidatar
takast á um skipan efstu sæt-
anna.
Eins og kunnugt er gaf Árni
Gunnarsson, alþingismaður
krata á Norðurlandi eystra, það
út á kjördæmisþingi nú á haust-
dögum að hann myndi ekki verða
aftur í kjöri. Arni hefur nú
ákveðið að gefa kost á sér í efsta
sæti lista Alþýðuflokksins í
Suðurlandskjördæmi.
Af sexmenningunum stefna
fimm á efsta sætið. Þeir eru
Hreinn Pálsson, bæjarlögmaður
á Akureyri, Sigbjörn Gunnars-
son, kaupmaður Akureyri, Pálmi
Ólason, skólastjóri Þórshöfn,
Aðalsteinn Hallsson, fulltrúi
Reykjavík og Arnór Benónýs-
son, leikari Reykjavík. Sjötti
kandidatinn, Sigurður Arnórs-
son, stefnir á annað sæti fram-
boðslistans.
Ráðgert er að kosningu ljúki
kl. 18 annað kvöld. Talning
atkvæða hefst á Akureyri strax
að kjörfundi loknum og má ætla
að úrslit liggi fyrir seint annað
kvöld. óþh
Kvennalistinn:
Efnir til funda á
Norðurlandi eystra
Kvennalistinn í Norðurlands-
kjördæmi eystra hefur ákveðið
að efna til almennra funda vítt
og breitt um kjördæmið á
næstu dögum.
Boðað verður til fundanna
með spurningunni: „Viltu hafa
áhrif á framboðsmál Kvennalist-
ans? Ef svo er, mættu þá á fund.“
Ætlunin er að kynna markmið og
stefnu Kvennalistans og fá fram
óskir jafnt sem gagnrýni fundar-
gesta.
Fyrsti fundurinn var í Hrísey í
gærkvöld en sunnudaginn 25.
nóvember er ætlunin að fara til
Ólafsfjarðar og Dalvíkur ef veð-
ur leyfir. Þriðjudagskvöldið 27.
nóvember verður fundur á Akur-
eyri og síðari hluta vikunnar í
dreifbýli Eyjafjarðar. Nánar aug-
lýst síðar.
Uppstillingarnefnd stefnir að
því að birta fyrir jól niðurstöður
fyrri skoðanakönnunarinnar um
skipan lista fyrir næstu alþingis-
kosningar. Kosning um 3 efstu
sætin fer fram í janúar og verður
listinn birtur fljótlega upp úr því.
(Fréttatilkynning)
Sögubrot í helgarblaði
Sögubrot er endurlífgaður þáttur
í helgarblaði Dags sem verður á
dagskrá einu sinni í mánuði í
vetur. Þar segir frá norðlenskum
skáldum og rithöfundum svo og
ýmsum liðnum atburðum sem í
flestum tilvikum tengjast
Norðurlandi. Sögubrotið fékk
ínjög góðar viðtökur á sínum
tíma og er það von okkar að
þjóðlegur fróðleikur eigi ekki
síður erindi við lesendur nú. SS
I
I
(
(
í
-