Dagur - 24.11.1990, Blaðsíða 3
fréttir
Radíónaust á Akurcyri opnaði í gær nýja og glæsilega verslun í Geislagötu 14, þar sem Iðnaðarbankinn var áður til
húsa. Á myndinni eru Robert Friðriksson eigandi verslunarinnar t.v. og Einar Guðmundsson verslunarstjóri.
Mynd: Golli
Sameiginlegt eyfirskt fiskútflutningsfyrirtæki:
Ekki komið til umræðu í stjóm
Útgerðarfélags Akureyringa
Atvinnumálanefnd Akureyrar
hefur áhuga á að kanna ihögu-
leika á stofnun fyrirtækis sem
sjái um sölu á öllum fiski og
fiskafurðum frá Eyjafirði, eða
jafnvel stærra svæði á Norður-
landi. Hugsanleg þátttaka
Útgerðarfélags Akureyringa
hf. í slíku íískútflutningsfyrir-
tæki hefur ekki komið til
umræðu í stjórn félagsins.
Pétur Bjarnason, stjórnarfor-
maður U.A., greindi frá þessu í
samtali við Dag. Hann benti á að
útflytjendur sjávarafurða við
Eyjafjörð væru fjölmargir, þótt
Ú.A. væri stærsti einstaki aðil-
inn. Ef rætt væri um samstarf
þessara aðila þyrfti að skoða mál-
in gaumgæfilega, en úrsögn Ú.A.
úr S.H. kæmi aldrei til greina
nema að vel athuguðu máli.
„Petta er ekki komið á það stig
að við hjá Ú.A. séum komin
nálægt því að geta tekið afstöðu
til málsins. Við erum ásamt
Granda hf. stærstu aðilarnir í
S.H., og seljum frysta fiskinn
okkar gegnum þá,“ segir Pétur.
í bókun atvinnumálanefndar 6.
nóvember segir að starfsmönnum
nefndarinnar sé falið að kanna
möguleika á stofnun sameigin-
legs markaðs- og útflutningsfyr-
irtækis. Pétur Bjarnason segir að
sjónarmið Ú.A. sé að líta á málin
með langtímamarkmið í huga. „í
dag er tilhneigingin sú að fisksala
og markaðsmál matvæla almennt
eru að færast til færri og stærri
aðila. Umsetning risafyrirtækja í
matvælaiðnaði eins og Unilevel,
sem veltir 35 milljörðum banda-
ríkjadollara á ári, er mjög mikil
miðað við það að heildarverð-
mæti útfluttra íslenskra sjávar-
afurða er ekki nema einn millj-
arður dollara árlega. Maður hlýt-
ur að velta fyrir sér hver sam-
keppnisstaða lítillar þjóðar eins
og fslands verður gagnvart
Evrópu þegar búið er að skipta
þessum eina milljarði í hundrað
hluta, svo dæmi sé tekið. Þetta
segi ég ekki af því ég sé hug-
myndinni andsnúinn, heldur
verða menn að gera sér grein fyr-
ir þróun markaðsmála í stærra
samhengi, á Evrópumæli-
kvarða,“ segir Pétur Bjarnason.
EHB
Norðurland vestra:
Alþýðubandalagið með forval
- fyrri umferð um miðjan desember
Ákveðið var á fundum sl.
flmmtudagskvöld að forval fari
fram til að raða á lista Alþýðu-
Þegar í gær var haflst handa
við að gera nauðsynlegar
breytingar á sláturhúsi KEA á
Dalvík til þess að koma þar
fyrir fískpökkunarlínu, sem
Kaupfélag Eyfírðinga hefur
fest kaup á og Dagur greindi
frá í gær.
Fiskpökkunarlínunni, sem er í
frystihúsi Hvaleyrar hf. í Hafnar-
firði, verður komið fyrir í kjötsal
sláturhússins á Dalvík. Salurinn
hefur að mestu staðið ónotaður
síðan í sláturtíðinni haustið 1988.
Aðrir hlutar hússins hafa verið í
leigu til tveggja trésmíðafyrir-
tækja og eins fiskverkunarfyrir-
tækis.
Að sögn Rögnvaldar Skíða
bandalagsins á Norðurlandi
vestra. Alþýðubandalagsféiög-
in á hverjum stað funduðu og
Friðbjörnssonar, útibússtjóra
KEA á Dalvík, þarf að gera tölu-
vert miklar breytingar á húsinu
áður en hægt verður að taka þar
inn fiskpökkunarlínuna. Loft yfir
kjötsalnum verður rifið og þakið
lagfært. Þá þarf að renna í gólf
salarins. „Við þurfum því að
kosta nokkru til, en þá teljum við
okkur líka vera komnir með var-
anlegt húsnæði," sagði Rögn-
valdur Skíði. Hann sagðist ætla
að um 300 fermetra rými færi
undir fiskpökkunarlínuna.
Rögnvaldur Skíði sagði að í
ljós yrði að koma hvernig endur-
bótum á húsinu miðaði, en von-
andi yrði hægt að setja nýju fisk-
pökkunarlínuna upp strax eftir
áramót. óþh
var þetta sú niðurstaða sem
þau fengu að sögn Sveins All-
ans Morthens, formanns kjör-
dæmisráðs.
Forvalið verður í tveimur
umferðum. í fyrri umferð til-
nefna félagar þá menn sem þeir
vilja sjá á listanum og áður en sú
seinni hefst hefur kjörnefnd sam-
band við viðkomandi aðila og
athugar hvort þeir vilji vera á list-
anum. í seinni umferðinni verður
mönnum svo raðað á listann.
í síðustu Alþingiskosningum
voru þrjú efstu sætin skipuð þeim
Ragnari Arnalds, Þórði Skúla-
syni og Unni Kristjánsdóttir og
það er því ljóst að einhver breyt-
ing verður listanum, þar sem
Þórður Skúlason er orðinn fram-
kvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Kjördæmisráðstefna hjá Alþýðu-
bandalaginu á Norðurlandi
vestra verður trúlega þann 2.
des., þar sem forvalsreglur og
fleira verður tekið fyrir að sögn
Allans. Hann sagðist einnig búast
við að fyrri umferð forvalsins yrði
lokið um miðjan desember og
trúlega yrði sú seinni í lok þess
mánaðar eða janúarbyrjun.
SBG
Fiskpökkunarlína til Dalvíkur:
Endurbætur hófust í
gær á sláturhúsinu
Laugardagur 24. nóvember 1990 - DAGUR - 3
Listagilið á Akureyri:
Ekki komið til
skipulagsnefndar
- skipulagsstjóri telur ólíklegt að unnt sé
að loka hluta Kaupvangsstrætis
Hugmyndir um „Listagil“ í
Kaupvangsstræti á Akureyri
hafa ekki komið formlega inn
á borð skipulagsnefndar
bæjarins. Árni Ólafsson,
skipulagsstjóri, segir að vegna
húsa sem ekki hafa stöðurétt
til framtíðar í núverandi deili-
skipulagi miðbæjarins verði
hugsanlega nauðsynlegt að
endurskoða það.
Ef hugmyndir um „Listagil"
stangast á við miðbæjarskipulag-
ið á einhvern hátt kemur til kasta
skipulagsnefndar að skoða málið
nánar. Samkvæmt gildandi deili-
skipulagi er ekki gert ráð fyrir
húsunum sunnan götunnar, þ.e.
verksmiðju smjörlíkisgerðar
KEA og húsinu þar sem efna-
gerðin Flóra er. Skipulagsstjóri
segir að þrátt fyrir það sé ekki
endilega nauðsynlegt að staðfesta
þessar byggingar í nýju deili-
skipulagi, en þó geti sú staða
e.t.v. komið upp að sú leið verði
farin.
Breytingar á umferð og
umferðarmannvirkjum koma inn
á borð skipulagsnefndar, sem
gegnir einnig hlutverki umferðar-
nefndar. Fyrir skömmu var sagt
frá því í Degi að hugmyndir
hefðu komið fram um að loka
Kaupvangsstræti að hluta, til að
minnka umferð í „Listagilinu,“
og vegna öryggis fyrir gangandi
umferð að Barnaskóla Akureyr-
ar. Árni segir að allar vangavelt-
ur um að loka Kaupvangsstræti
fyrir neðan Sundlaug Akureyrar
séu óraunhæfar, því með slíkri
aðgerð myndu skapast gríðarleg-
ir og nánast illviðráðanlegir erfið-
leikar í umferð annars staðar í
bænum. Annað mál væri, að sá
möguleiki hefði verið óformlega
ræddur að takmarka umferð
stórra bíla annarra en strætis-
vagna, um Kaupvangsstræti með
notkun viðeigandi umferðar-
merkja. Gamlar hugmyndir eru
til um að leysa umferðarvanda
gangandi vegfarenda í Kaup-
vangsstræti með göngubrú þvert
yfir götuna til móts við kartöflu-
geymsluna, og er til teikning af
slíkri brú á skipulagsuppdrætti,
en ekkert hefur verið ákveðið um
framkvæmdir. EHB
Endurnýjun innanlandsvéla Flugleiða:
Ákvörðun um fjórðu
vélina fyrir áramót
- gömlu velarnar allar seldar
Endurnýjun innanlandsvéla
Flugleiða hefst eftir 15 mán-
uði, eða í mars 1992. Þá munu
koma tvær vélar af gerðinni
Fokker 50 en búist er við að í
maí sama ár komi ein eða tvær
vélar af sömu gerð. Hvort vél-
arnar verða þrjár eða fjórar
ræðst, að sögn upplýsingafull-
trúa félagsins, af því hvernig
mál þróast með leyfísmál í
innanlandsflugi en ákvörðun
um það hvort fjórða vélin
verður keypt mun liggja fyrir á
þessu ári.
Þær vélar sem nú eru í innan-
landsflugi Flugleiða eru allar
seldar en félagið leigir þær af
nýja eigendanum, sem er fjár-
mögnunarfyrirtæki í eigu Fokk-
er-verksmiðjanna og Rolls Royce
verksmiðjanna. Einar Sigurðs-
son, upplýsingafulltrúi Flugleiða,
segir að greiddar hafi verið um 90
milljónir króna fyrir gömlu vél-
arnar en nýju vélarnar munu
kosta um 900 milljónir króna.
Einar segir að nú sé byrjað að
undirbúa smíði vélanna fyrir
Flugleiðir en þegar fram á næsta
ár líði fari smíði þeirra í fullan
gang. JÓH
bridds
Sveitakeppni Bridgefélags Akureyrar:
Spennan eykst á toppnum
- fyrri umferð keppninnar að ljúka
Nú er lokið 10 umferðum af 22
í sveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar, Akureyrarmóti.
Spiluð er tvöföld umferð, tveir
16 spila leikir hvert spilakvöld.
Sveit Dags situr enn í efsta sæti
mótsins en eftir síðasta spila-
kvöld hefur þó heldur dregið
saman með efstu sveitum.
Annars er röð efstu sveita
þessi: stig
1. Dagur 205
2. Grettir Frímannsson 189
3. Jakob Kristinsson 187
4. Hermann Tómasson 182
5. Jónas Róbertsson 162
6. Stefán Vilhjálmsson 139
7. Ævar Ármannsson 139
8. Zarioh Hamadi 134
Síðasti leikur í fyrri umferð og
fyrsti leikur í síðari umferð verða
spilaðir í Hamri n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 19.30. í síðasta leik
fyrri umferðar eigast m.a. við
sveit Dags og sveit Hermans
Tómassonar annars vegar og
sveit Jónasar Róbertssonar og
sveit Jakobs Kristinssonar hins
vegar.
Loks má geta þess að hægt er
að skrá sveitir í Bikarkeppni
Norðurlands til 25. nóv. n.k.
Öllu spilafólki á Norðurlandi er
heimil þátttaka. -KK