Dagur - 24.11.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 24. nóvember 1990
Herrakvöld KA:
Steikarpanna á 95 þúsund krónur!
Herrakvöld KA var haldið í
KA-heimilinu sl. laugardags-
kvöld. Uppákomur þessar eru
orðnar árviss viðburður hjá
KA-mönnum, þetta var 5.
herrakvöld félagsins og var
stemmningin góð að vanda.
Veislustjóri að þessu sinni var
Björn Björnsson, skólastjóri á
Sauðárkróki, en aðalræðu-
maður kvöldsins var Halldór
Blöndal, alþingismaður.
Tilgangurinn með þessum
kvöldum mun vera tvenns konar,
að sameina menn í hinum sanna
KA-anda og afla um leið peninga
fyrir KA-heimilið. Hvort tveggja
heppnaðist með ágætum. 72
félagar mættu til leiks og áttu
saman skemmtilegt kvöld. Menn
nutu góðs af glæsilegum veiting-
um á meðan kveðskapur og glens
af ýmsu tagi flaug um salinn.
Skemmtikraftarnir Sveinn Ævar
Stefánsson og Arnar Pétursson
tróðu upp að máltíð lokinni við
góðar undirtektir og síðan stjórn-
aði Halldór Rafnsson hinu fræga
bögglauppboði. Bauð hann upp
sex kassa sem enginn vissi hvað
höfðu að geyma og verður ekki
annað sagt en að viðbrögð veislu-
gesta hafi verið með besta móti.
Sem dæmi um það má nefna að
síðasti pakkinn seldist þrisvar og
þegar hann var opnaður kom í
ljós panna sem þá var orðin 95
þúsund króna virði.
Eftir uppboðið tók við meiri
kveðskapur og gamanmál en um
miðnætti var veislunni slitið og
menn héldu á vit annarra ævin-
týra. JHB
Tveir góðir, Eiður Eiðsson og Siguróli Sigurðsson.
> %
H - -
„Nei strákar mínir, ég vil fá meira en þetta.“ Halldór Rafnsson stýrir böggla-
uppboðinu vinsæla.
Skemmtikraftarnir Sveinn Ævar Stefánsson og Arnar Pétursson.
Halldór Blöndal var aðalræðumaður kvöldsins og stóð sig vel enda vanur maður. Lengst til hægri er Halldór
Rafnsson, sem hafði veg og vanda af undirbúningi kvöldsins, þá veislustjórinn, Björn Björnsson. Lengst til hægri
er Sigmundur Þórisson, formaður KA.
Viðar Þorsteinsson fór á kostum sem „varaveislustjóri.“ Skondnar athugasemdir hans vöktu hvað eftir annað mikla
kátínu í salnum. Við hlið hans situr Sigbjörn Gunnarsson. Myndir: jhb