Dagur - 24.11.1990, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 24. nóvember 1990
poppsíðon
Islandica - Rammíslensk:
Ramm íslensk er rétta orðið
David Lee Roth vinnur að nýrri plötu
þessa dagana.
est söngvara Europe hafa þeir
félagar hljóðritað fjórtán lög sem
til greina koma á plötuna og
hugsanlegt sé að einhver fleiri
bætist við, hins vegar er ekki
ákveðið enn hvað lög fara á plöt-
una af þessum fjórtán. Þá er ekki
heldur búið að ákveða nafn á
hana en Break Free og Mind in the
Gutter munu vera líklegustu titl-
arnir. Ekki er gert ráð fyrir að
platan komi út fyrr en í maí á
næsta ári en þangað til mun
Poþpsíðan flytja frekari fregnir af
plötunni þegar þær berast.
íslensk plötuútgáfa
Nú þegar jólahátíðin er farin að
nálgast fer íslensk plötuútgáfa á
fullt skrið og hellast hreinlega yfir
landann nýir titlar þannig að erfitt
reynist að henda reiður á öllu
saman. En svo einhverjar plötur
séu nefndar þá má fyrst geta
plötunnar hans Bubba Morthens
Sögur af landi, þeir félagar Jón
Ólafsson og Stefán Hjörieifsson
eru mættir á ný sem Possibilles
og heitir nýja platan þeirra Töfra-
maðurinn frá Riga. Til fróðleiks fyr-
ir lesendur Poppsíðunnar má
geta þess að sá sem þennan titil
ber er Míkhaíl Tal fyrrum heims-
meistari í skák. Rikshaw kemur
sömuleiðis með nýja plötu eftir
nokkurt hlé og kallast hún Angels
and Devils og loks má minna á
plötur með Gildrunni, Sverri
Stormsker og Pandoru frá Kefla-
vík. Umsjónarmaður Poppsíð-
unnar mun á næstu vikum reyna
að gera einhverjum af þessum
þlötum skil og birtist fyrsta
umfjöllunin einmitt hér á síðunni í
dag. Reyndar er rétt að taka fram
að plata Islandica er ekki alveg
ný af nálinni en er samt sem áður
verðugur fulltrúi í jólapakka
landsmanna og til vina erlendis.
Islandica, þjóðleg ytra sem innra.
Vísnavinum og er því samspil
þeirra mjög heilsteypt.
Söngurinn er að mestu í hönd-
um þeirra Guðmundar og Inga
Gunnars en þau Gísli og Herdís
Ijá raddir sínar í þremur lögum,
Herdís í tveimur en Gísli í einu.
Þá syngur ung stúlka Bryndís
Sveinbjarnardóttur Móðir mín í
kví kví og er söngur hennar mjög
fallegur sem lofar góðu fyrir fram-
tíðina.
Að lokum ber að geta þess,
sem segja má að setji punktinn
yfir i-ið, en það er umslag plöt-
unnar sem er einstaklega vand-
að með íslenska fánanum
skreyttum með landslagsmynd-
um í grunninum. Það er því hægt
að mæla óhikað með plötu
Islandica Rammíslensk við þá
sem hyggjast gefa tónlistargjöf í
ár til vina og ættingja jafnt heima
og erlendis.
Sigbjörn Gunnarsson,
Akureyri,
gefur kost á sér í 1. sæti.
Ég hvet all^, sem ekki eru bundnir
í öðrum stjórnmálaflokkum
og verða orðnir 18 ára í maí 1991
til að taka þátt í prófkjörinu.
Skrifstofa í Hafnarstræti 94, 2. hæð.
Símar 24027 og 21700.
Heimasími 22234.
0
u \A/rvti a/r &&0 4/1
Hitt og þetta
New Order/John Denver
Ekki alls fyrir löngu stefndi þjóð-
lagasöngvarinn frægi John Den-
ver Manchesterpoppsveitinni
New Order fyrir rétt og sakaði
hana um lagastuld. Snerist
ákæran um lagið Run sem Denver
taldi að væri hreinlega önnur
útgáfa af hans eigin lagi Leaving
on a Jet Plane í lélegum dulbún-
ingi. Hefur nú fallið dómur í mál-
inu Denver í vil og munu honum
og útgáfufyrirtæki hans verða
greiddar skaðabætur m.a. í formi
hagnaðar sem varð af Run laginu
og Hew Order hafði áður notið
góðs af.
Michael Jackson
Gulldrengurinn Michael Jackson
skrifaði nú fyrir skömmu undir
nýjan samning við CBS útgáfufyr-
irtækið til næstu þriggja ára. Væri
það í sjálfu sér ekki svo mjög í
frásögur færandi nema fyrir það
GUMMIVINNSLAN HF. • RÉTTARHVAMM11 ■ S. 96-26776
HJÓLBARÐAR
Erum með mikið úrval
af dekkjum fyrir allar
gerðir ökutækja.
Veitum alhliða hjól
barðáþjónustu.
RAF-
GEYMAR
Mælum gamla
rafgeyma.
Seljum nýja
rafgeyma á
kynningarverði
í nóvember.
ísetning
á staðnum
að talið er að Jackson fái hvorki
meira né minna en litla þrjá millj-
arða íslenskra króna fyrir samn-
inginn. Hefur þetta reyndar ekki
verið staðfest endanlega en ef
satt reynist þá er þetta einn hæsti
samningur sem nokkurn tímann
hefur verið gerður við tónlistar-
mann.
Djasstrommuleikari allur
Einn af frægari trommuleikurum
djassins Art Blakey lést í síðasta
mánuði sjötíu og eins árs að
aldri. Varð hann héimsfrægur
með hljómsveit sinni The Jazz
Messingers sem hann stofnaði
árið 1947 auk spilamennsku með
mörgum af þekktustu nöfnum
djassins. Var banamein hans
krabbamein í lungum.
DavidLee Roth
Fyrrum söngvari Van Halen
hjartaknúsarinn David Lee Roth er
nú loks búinn að Ijúka vinnu sinni
við nýja plötu eftir þó nokkurt
basl. Nefnist platan A little ain’t
enough og er hún þriðja sóló-
breiðskífa Roth en auk þeirra hef-
ur hann sent frá sér eina EP
plötu með gömlum slögurum á
borð við Just a Gigolo. Upptöku-
stjórn var í höndum Bob Rock og
er áætlað að platan komi út í
byrjun nýársins.
Quireboys
Breska rokkhljómsveitin Quire-
boys sem nýtur mikilla vinsælda
hér á landi eftir komu sína hing-
að með Whitesnake í haust er nú
á næstunni að senda frá sér tón-
leikaplötu undir nafninu Official
live Bootleg. Er um að ræða upp-
tökur frá tónleikum Quireboys
víðsvegar um heiminn en þó ekki
frá tónleikunum hér á landi að
því er best fæst vitað.
Europe
Svíarnir í rokksveitinni léttu
Europe eru þessa dagana að
Ijúka vinnu við sína fimmtu breið-
skífu í Los Angeles undir hand-
leiðslu upptökustjórans Beau Hill.
Eins og margir muna eflaust þá
sló Europe rækilega í gegn hér-
lendis sem erlendis með plötunni
The final countdown og náði titil-
lagið toppsætum vinsældalista
víðast hvar. Að sögn Joey Temp-
Lög: Krummavísur, Maístjarnan, Þaö
á að gefa börnum brauð, Olafur Lilju-
rós, Lllja, Afmælisdagur (í Skóla-
vörðuholtið hótt), sjera Magnús/Ó mín
flaskan frlða, Vera mátt góður, Trölla-
þvaður, Á Sprengisandi, Rimur og
kvæðalög, Sofðu unga ástin mín, Kall
sat undir kletti, Móðir mfn I kví kvi,
Krummi krúnkar úti, i'sland (farsælda
frón), Lofsöngur (Ó, guð vors lands).
Líkt og hinar fágætu bókmenntir
okkar íslendinga þá hefur varð-
veist gegnum aldirnar mikið af
tónlist sem við í daglegu tali
nefnum þjóðlög eða alþýðulög.
Með því að afar og ömmur,
feður og mæður, hafa sungið fyr-
ir börn sín og sagt þeim sögur,
hefur tekist að varðveita þessa
dýrmætu arfleifð allt til þessa
dags. Nú á tímum tækni og
endalausra möguleika til dægra-
styttingar hefur þessi arfleifð
aldrei verið dýrmætari en um leið
aldrei verið í eins mikilli hættu á
að glatast. Sem betur fer er til
fólk sem gerir sér grein fyrir
þessu og eru þau fjögur sem
skipa Islandica ásamt aðstoð-
armönnum sínum þar framarlega
í flokki. En þau fjögur, Gísli
Helgason, Herdís Hallvarðsdótt-
ir, Guðmundur Benediktsson og
Ingi Gunnar Jóhannsson, láta
sér ekki aðeins nægja að halda
okkur íslendingum við efnið held-
ur hafa þau einnig verið dugleg
að kynna tónlistina fyrir útlend-
ingum með góðum árangri.
Rammíslenska er ekki hægt
að dæma út frá tónlistarlegu
sjónarmiði því að sem slík er hún
sígild. Að vísu er eitt frumsamið
lag á piötunni, Tröllaþvaður eftir
Herdísi, en það fellur einkar vel
að heildarmynd hennar og er hið
áheyrilegasta. Það er því út frá
flutningi og meðferð tónlistarinn-
ar sem platan hlýtur að dæmast
og ekki er hægt að segja annað
en að mjög vel hafi tekist til. Það
vandaverk að færa hina öldnu
tónlist í nútímabúning þar sem
henta þótti hefur tekist vel og all-
ar aðrar útsendingar í einfaldara
formi eru mjög vel unnar og þá er
hljómurinn með þeim betri sem
umsjónarmaður hefur heyrt á
íslenskri plötu. Um flutninginn er
hægt að segja nokkuð það
sama. Þau fjögur hafa starfað
lengi saman bæöi í Islandica og
Prófkjör Alþýðuflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra