Dagur - 24.11.1990, Qupperneq 15
Laugardagur 24. nóvember 1990 - DAGUR - 15
bœkur
Hörpuútgáfan:
Aflnælisdagar
með stjömuspám
- ný bók eftir
Amy Engilberts
Hörpuútgáfan hefur gefiö út nýja
íslenska bók „Afmælisdagar með
stjörnuspám”.
Höfundurinn, Amy Engil-
berts, er vel þekkt fyrir spádóms-
gáfu sína og dulskyggni. Þetta er
fyrsta bók hennar, sem mun vafa-
lítið þykja forvitnileg. Bókin
skiptist í 12 kafla og fær hvert
stjörnumerki sérstaka umfjöllun.
Greint er frá eiginleikum fólks,
sem fætt er í hinum ýmsu stjörnu-
merkjum, og sérstakir reitir til
þess að færa inn nöfn vina og
minna þannig á afmælisdaga
þeirra. Einnig er sagt frá frægu
fólki, sem fætt er í viðkomandi
stjörnumerkjum.
í inngangsorðum bókarinnar
segir:
„Þessi litla afmælisdagabók er
ætluð til þess að gleðja vini og
kunningja. Hver afmælisdagur
ntinnir á hið liðna, en einnig þær
vonir sem bundnar eru við fram-
tíðina. Með því að minnast vina
og gleðjast á afmælisdögum fær-
ast manneskjurnar nær hver ann-
arri.“
Afmælisdagar með stjörnu-
spám er 130 bls. Filmuvinna,
prentun og bókband er unnið í
prentsmiðjunni Odda hf.
Bókin Líf og landshagir:
Hagsaga í
hnotskurn
Bókin Líf og landshagir eftir dr.
Magna Guðnrundsson er nýkom-
in á markaðinn. Á titilblaði segir,
að bókin sé hagsaga í hnotskurn.
Formáli greinir frá tilurð bók-
arinnar og tilhögun. í stuttum
inngangskafla eru „atriði sem
spegla tíðarandann á uppvaxtar-
árum höfundar.“ Næstu þrír kafl-
ar rekja verðbólguna í þrjá ára-
tugi, 1940-1970 og aðgerðir
stjórnvalda á hverjum tíma, sem
höfundur túlkar. Sérstakur kafli
er helgaður Kanada, þar sem
höfundur stundaði framhaldsnám
í hagfræði 1972-77 og lauk dokt-
orsprófi við Manitoba-háskóla.
Sagt er nokkuð frá hagstjórn
þar vestra, sem höfundur kynnt-
ist af eigin raun, þegar hann vann
í þjónustu fylkisstjórnarinnar og
síðar Sambandsstjórnarinar í
Ottawa. í næstu fjórum köflum
heldur hagsagan áfram. Rætt er
aðallega um svonefnt hávaxta-
skeið, um frjálsa samkeppni,
vaxtafrelsi og markaðslögmálin
margrómuðu.
í kaflanum „Höfum við gengið
tiL góðs... ?“ er dæmið gert upp og
niðurstöður dregnar. Bókin er
læsileg og skemmtileg á köflum.
Hún fæst m.a. versluninni Bók-
vali á Akureyri.
Láttu okkur
þvo, þurrka
og bóna
bílinn
Verð frá kr. 400,-
Þvottastöðin
Veganesti
Leiöalýsing
St. Georgsgildið stendur fyrir leiðalýsingu í kirkju-
garðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntun-
um í síma 22517 og 21093 fram til föstudagsins 5.
desember. Verð á krossi er kr. 1.000.-.
Þeir sem vilja hætta tilkynni það í sömu símum.
0LÍANHÆKKAR
0GHÆKKAR!
Smíðum fjölmargar gerðir af rafmagns-
\ hitatækjum fyrir miðstöðvakerfi.
Leitið upplýsinga og fáið ráðgjöf.
Járnsmiðjan Mjölnir,
Óseyri 4, Akureyri, sími 21488.
dagskró fjölmiðla
þættinum Fólkið í landinu, sem er á dagskrá Sjónvarpsins laugardaginn 24. nóv. kl. 21.25, ræðir Sonja B
Jónsdóttir við yngsta leikstjóra landsins, Magnús Geir Þórðarson.
Sjónvarpið
Laugardagur 24. nóvember
14.30 íþróttaþátturinn.
14.30 Úr einu í annað.
14.55 Enska knattspyman.
Bein útsending frá leik Luton og Aston
Villa.
16.45 Hrikaleg átök: Þriðji þáttur.
17.15 HM í blaki - Úrslit í karlaflokki.
17.50 Úrslit dagsins.
18.00 Alfreð önd (6).
18.25 Kisuleikhúsið (6).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.30 Háskaslóðir (5).
(Danger Bay.)
20.00 Fróttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Líf í tuskunum (4).
Búpeningur á mölinni.
21.00 Fyrirmyndarfaðir (9).
(The Cosby Show.)
21.25 Fólkið í landinu.
Landsins yngsti leikstjóri.
Sonja B. Jónsdóttir ræðir við Magnús Geir
Þórðarson yngsta leikhússtjóra landsins.
21.55 Himnahundurinn.
(O, Heavenly Dog.)
Bandarísk fjölskyldumynd frá 1980.
Þar segir frá einkaspæjara sem gengur
aftur í hundslíki og rannsakar morðið á
sjálfum sér.
Aðalhlutverk: Chevy Chase, Jane Sey-
mour, Omar Sharif og hundurinn Benji.
23.35 Fórnarlömbin.
(Victims for Victims.)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1984.
Leikkona verður fyrir árás brjálaðs aðdá-
anda og einsetur sér að hjálpa fólki sem
orðið hefur fyrir svipaðri reynslu.
Aðalhlutverk: Theresa Saldana og Adrian
Zmed.
01.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 25. nóvember
14.00 Golf.
15.00 íslendingar í Kanada.
Hið dýrmæta erfðafé.
15.45 Ljóðið mitt.
Hannes Pétursson skáld velur sér ljóð.
16.05 Vilhjálmur Tell.
Seinni hluti.
17.50 Sunnudagshugvekja.
18.00 Stundin okkar.
18.30 Kirsuberjaræningjarnir.
(Körsbársrövama.)
Teiknimynd um héra, sem er bóndi, og fer
með grænmetið sitt á markaðstorg, þar
sem ýmsir óvæntir atburðir eiga sér stað.
18.40 Ungir blaðamenn (4).
(Deadline.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Dularfulli skiptineminn (1).
(Alfonzo Bonzo.)
19.30 Fagri-Blakkur.
(The New Adventures of Black Beauty.)
20.00 Fréttir og Kastljós.
20.40 Landsleikur i handknattleik.
Bein útsending frá seinni hálfleik í leik
íslendinga og Tékka í Laugardalshöll.
21.15 Ófriður og örlög (7).
(War and Remembrance.)
22.10 í 60 ár (6).
Fréttir.
22.20 Undir Biltmore-klukkunni.
(Under the Biltmore Clock.)
Bandarísk sjónvarpsmynd gerð eftir sögu
F. Scott Fitzgeralds.
Hún fjallar um unga elskendur, sem
verða leiksoppar hefða og stéttaskipting-
ar á fyrri hluta aldarinnar.
Aðalhlutverk: Sean Young, Lenny Von
Dohlen og Barnard Hughes.
23.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 26. nóvember
17.50 Töfraglugginn.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fjölskyldulif (11).
(Families.).
19.20 Úrskurður kviðdóms (25).
19.50 Hökki hundur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Svarta naðran (4).
21.05 Litróf (5).
Þáttur um listir og menningarmál.
21.35 íþróttir.
Fjallað um íþróttaviðburði helgarinnar og
sýndar svipmyndir úr knattspymuleikj-
um í Evrópu.
22.00 Þrenns konar ást (8).
(Tre Kárlekar.)
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Þingsjá.
23.25 Dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 24. nóvember
09.00 Með Afa.
10.30 Biblíusögur.
10.55 Táningarnir í Hæðagerði.
11.20 Herra Maggú.
11.25 Teiknimyndir.
11.35 Tinna.
12.00 í dýraleit.
(Search for the Worlds Most Secret
Animals.)
12.30 Kjallarinn.
13.00 Ópera mánaðarins.
Billy Budd.
15.40 Eðaltónar.
16.10 Syrtir i álinn.
(Black Tide.)
Endurtekinn þáttur um eitt mesta meng-
unarslys sögunnar, þegar olíuskipið Vald-
on Exxon strandaði við strendur Alaska.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Popp og kók.
18.30 Hvað viltu verða?
Endurtekinn þáttur þar sem fjallað er um
störf innan Rafiðnaðarsambandsins.
19.19 19.19.
20.00 Morðgáta.
(Murder She Wrote.)
20.50 Spéspegill.
21.20 Tvídrangar.
22.10 í kröppum leik.#
(The Big Easy.)
Vönduð og spennandi mynd þar sem seg-
ir frá valdabaráttu tveggja mafíuhópa í
New Orleans í suðurríkjum Bandaríkj-
anna. Þegar mafíuforingi finnst myrtur
óttast Remt McSwain, sem er lögreglu-
foringi í morðdeild, að mafiustríð sé i upp-
siglingu.
Aðalhlutverk: Dennis Quaid, Ellen Barkin
og Ned Beatty.
Bönnuð börnum.
00.00 Lögga til leigu.#
(Rent-A-Cop.)
Hér er á ferðinni þrælgóð spennumynd,
þar sem segir frá lögreglumanni og gleði-
konu, sem neyðast til að vinna í samein-
ingu að framgangi sakamáls.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds og Liza Min-
elli.
Bönnuð börnum.
01.35 Frumherjar.
(Winds of Kitty Hawk.)
Myndin segir frá hinum frægu Wright
bræðrum, sem voru frumkvöðlar flugsins,
en um síðustu aldamót skutu þeir verk-
fræðingum ref fyrir rass og smíðuðu
fyrstu flugvélina.
Aðalhlutverk: Michael Moriarty og David
Huffman.
03.15 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 25. nóvember
09.00 Geimálfarnir.
09.25 Naggarnir.
09.50 Sannir draugabanar.
10.15 Mímisbrunnur.
11.10 Perla.
11.35 Skippy.
12.00 Popp og kók.
12.30 Breska konungsfjölskyldan.
(Unauthorized Biography: The Royals.)
13.20 ítalski boltinn.
Bein útsending frá leik í fyrstu deild
ítalska fótboltans.
15.10 NBA karfan.
16.25 Beinn í baki.
(Walk Like A Man.)
Gamanmynd þar sem segir frá ungum
manni sem hefur ahst upp á meðal úlfa.
Aðalhlutverk: Howie Mandel, Christop-
her Lloyd og Cloris Leachman.
17.50 Leikur að ljósi.
(Six Kinds of Light.)
Ný þáttaröð þar sem fjallað verður um
lýsingu, aðallega í kvikmyndum en einnig
á sviði.
Rætt er við bæði ljósameistara, leikara og
leikstjóra.
Fyrsti þáttur af sex.
18.20 Frakkland nútímans.
(Aujourd’hui.)
18.35 Viðskipti í Evrópu.
(Financial Times Business Weekly.)
19.19 19.19.
20.00 Bernskubrek.
(Wonder Years.)
20.30 Lagakrókar.
(L.A. Law.)
21.20 Björtu hliðarnar.
21.45 Hoover gegn Kennedy.#
(Hoover vs. the Kennedys: The Second
Civil War.)
Þegar John F. Kennedy varð forseti
Bandaríkjanna árið 1960 var J. Edgar
Hoover æðsti maður alríkislögreglunnar,
þá sextíu og fimm ára gamall. Eftir þrjátiu
og sex ára starf í þágu fimm forseta,
heyrði hann í fyrsta skipti undir hinn
þrjátíu og fimm ára gamla dómsmálaráð-
herra, Robert Kennedy. Þessu undi
Hoover illa og hundsaði skipanir Kennedy-
anna.
Aðalhlutverk: Jack Warden, Nicholas
Campbell, Robert Pine, Heather Thomas
og LeLand Gantt.
Fyrsti hluti af þremur.
Annar hluti er á dagskrá annað kvöld.
23.30 Stolið og stælt.
(Murph the Surf.)
Þessi mynd er byggð á sönnum atburð-
um.
Tveir auðnuleysingjar frá Florída freista
þess að gera hið ómögulega, ræna Ind-
landsstjömunni, sem er 564 karata dem-
antur.
Aðalhlutverk: Robert Conrad, Don Stroud
og Donna Mills.
Bönnuð bömum.
01.15 Dagskrárlok.
Stöð 2
Ménudagur 26. nóvember
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Depill.
17.40 Hetjur himingeimsins.
18.05 í dýraleit.
18.30 Kjallarinn.
19.19 19.19.
20.10 Dallas.
21.05 Sjónaukinn.
21.35 Á dagskrá.
21.50 Hoover gegn Kennedy.
(Hoover vs. the Kennedys: The Second
Civil War.)
Annar hluti.
22.40 Öryggisþjónustan.
(Saracen.)
22.40 Sögur að handan.
23.30 Fjalakötturinn.
í sporðdrekamerkinu.#
(Sotto il segno dello Scorpione.)
Einhvem timann í fornöld lifðu nokkrar
manneskjur af geigvænleg eldgos á eyju
nokkurri. Þegar þessar sömu manneskjur
reyna að sannfæra ættbálk nokkum um
að taka sér búsetu á eynni gerist eitt-
hvað...
Aðalhlutverk: G.M. Volonte, L. Bose, G.
Brogi og Samy Pavel.
01.00 Dagskrárlok.