Dagur - 24.11.1990, Page 17
Laugardagur 24. nóvember 1990 - DAGUR - 17
efst í hugo
Æfingin skapar meistarann
íþróttir eru alla jafna ofarlega í huga
mér. Ég ætla þó ekki í þessum pistli
mínum aö fara aö skrifa um slakt gengi
KA í 1. deildinni í handbolta, eða slakt
gengi Þórsara í úrvalsdeildinni ( körfu-
bolta og heldur ekki um gott gengi Þórs-
ara í 2. deildinni í handbolta.
Þaö er annað sem er mér ofarlega í
huga þessa stundina og það eru æfingar
knattspyrnumanna yfir vetrarmánuðina
hér á Akureyri. Síðustu ár hefur veriö
mikið ritað og rætt um aðstöðuleysi
knattspyrnumanna á Akureyri og víöar á
landsbyggðinni. Þá er jafnan vitnað til
þess að í Reykjavík sé gervigras í Laug-
ardalnum og því búi fólögin þar við mun
betri aðstöðu en félögin á landsbyggð-
inni. Þá er til hálfur gervigrasvöllur í
Garðabæ og samkvæmt því sem ég
kemst næst er verið að taka nýjan gervi-
grasvöll í gagnið í Kópavogi innan tíðar.
Víst má segja að það komi sór vel fyrir
félögin fyrir sunnan að eiga einnig
aðgang að góðum völlum yfir vetrarmán-
uðina og það er vitað að þeir eru mikið
notaðir af fólögunum og þá fyrir alla
aldursflokka. En á sama tíma og við fyrir
norðan horfum öfundaraugum suður á
bóginn, virðumst við ekki hafa rænu eða
áhuga á því að nýta okkur þá góðu tíð
sem verið hefur að undanförnu, til knatt-
spyrnuiðkana á malarvöllum félaganna
á Akureyri.
Það hefur jafnan verið þannig, að um
leið og knattspyrnuvertíðinni lýkur að
hausti hafa allt of margir knattspyrnu-
menn og þjálfarar lagst í dvala fram yfir
áramót, ef undanskilið er eitthvert sþrikl í
íþróttahúsum bæjarins. Þetta á jafnt við
um unga sem aldna knattsgyrnumenn.
Væri ekki nær fyrir félögin að láta þjálf-
ara (leiðbeinendur) sína halda áfram
þjálfun eftir að knattspyrnuvertíðinni lýk-
ur og nýta um leið þá aðstöðu sem í boði
er, svo framarlega sem tíðarfarið er gott,
eins og það hefur reyndar verið í haust.
(Ekki er aðstaðan alltaf glæsileg seinni
part vetrar og á vorin þegar flest lið eru
komin á fulla ferð).
Það eru flestir sammála um það að
gervigras eða yfirbygging yfir malarvöll
sé mjög nauðsynlegt fyrir knattspyrnu-
menn á Akureyri en ég tel það eigi ekki
að ráða því hvort hægt sé að æfa hér
fyrir norðan t.d. að haustlagi eða ekki.
Ungir sem aldnir hafa bæði gagn og
gaman að því að spila fótbolta undir ber-
um himni, þótt ekki só hiti og sól. - Og
það á að vera að frumkvæði forsvars-
manna félaganna að það sé gert.
Akureyringar vilja áfram eiga knatt-
spyrnulið í fremstu röð og til þess að svo
megi vera, þurfum við að halda vel á
spöðunum og leggja sérstaka rækt við
þá yngstu. Það gerum við m.a. með því
aö bjóða þeim uþp á góða þjálfara, góða
æfingaaðstöðu og möguleika á því að
stunda sína íþrótt sem flesta mánuði á
ári. Því eins og máltækið segir: „Æfingin
skaþar meistarann."
Kristján Kristjánsson.
-i
íþróttir
f
Handknattleikur, 2. deild:
Völsungar einní sekúndu frá stígi
- Jóhann Samúelsson tryggði Þórsurum 22:21 sigur
Völsungar veittu Þórsurum
óvænta mótspyrnu þegar liðin
mættust í 2. deiid íslandsmóts-
ins í handknattleik á Akureyri
í fyrrakvöld. Leikurinn var
jafn allan tímann en Jóhann
Samúelsson tryggði Þórsurum
sigurinn með marki úr auka-
kasti um leið og leiktíminn
rann út og úrslitin urðu því
22:21.
Það var allt annað að sjá til
Völsunga í þessum leik en í
bikarleiknum sem Þórsarar unnu
með miklum yfirburðum fyrir
nokkrum vikum. f>eir börðust
mjög vel í vörninni og spiluðu
skynsamlega í sókninni og þetta
virtist slá Þórsara út af laginu.
Jafnt var á flestum tölum allan
leikinn og þegar hálf mínúta var
til leiksloka var staðan 21:21 og
Knattspyrna:
Ásmundur í Þór
Húsvíkingurinn Ásmundur
Arnarsson hefur ákveðið að
leika með 2. deildarliði Þórs í
knattspyrnu í sumar. Ásmund-
ur lék með Völsungi sl. sumar.
Ásmundur er 18 ára gamall og
hefur leikið 3 leiki með unglinga-
landsliðinu, skipuðu 18 ára leik-
mönnum og yngri. Hann var einn
sterkasti maður Völsungs sl. sum-
ar og skoraði þá 10 mörk fyrir lið-
ið í 3. deildinni. „Okkur líst vel á
að fá þennan unga og efnilega
leikmann til liðs við okkur og
væntum mikils af honum,“ sagði
Rúnar Antonsson, formaður
knattspyrnudeildar Þórs, í sam-
tali við Dag.
Jóhann Samúelsson tryggði Þórsurum sigur gegn Völsungi á elleftu stundu.
Mynd: Golli
Þórsarar með boltann. Þeim
gekk illa að finna leiðina að
markinu en þegar þrjár sekúndur
voru til leiksloka fengu þeir
aukakast og boltinn var sendur á
Jóhann sem þrumaði honum í
markið.
Þórsarar hafa leikið betur í
flestum leikjum til þessa og
sennilega hafa þeir vanmetið
Völsunga. Þeir höfðu þó greini-
lega ekki efni á því og voru
heppnir að hirða bæði stigin. Páll
Gíslason var þeirra frískastur og
Jóhann Samúelsson var drjúgur
en all mistækur.
Völsungsliðið barðist vel en á
lokakaflanum gerði reynsluleysið
vart við sig. Asmundur Arnars-
son var mjög frískur á miðjunni
en annars var liðið jafnt.
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 9/4, Páll
Gíslason 5, Sævar Árnason 3, Ólafur
Hilmarsson 2, Rúnar Sigtryggsson 2,
Jóhann Jóhannsson 1.
Mörk Völsungs: Haraldur Haraldsson 5,
Ásmundur Arnarsson 4, Helgi Helgason
4/2, Tryggvi Þór Guðmundsson 4, Jónas
Grani Garðarsson 3, Örvar Sveinsson 1.
Dómarar: Guðmundur Lárusson og
Guðmundur Stefánsson. Dæmdu þokka-
lega.
ri
spurning vikunnar
Ertu farin(n) að huga að
undirbúningi jólanna?
(Spurt á Húsavík)
Arnhildur Pálmadóttir:
Nei, en ég byrja svona í byrjun
desember. Þá fer ég að hugsa
um gjafirnar og aö þrífa eitt-
hvað. Annars er ég aðeins farin
að pæla í því hvað ég ætla að
gefa. Já, ég hlakka til jólanna.
Þóra Björk Lárusdóttir:
Æi nei, eiginlega ekki. Ég byrja
svona mánuði fyrir jólin að
föndra eitthvað. Ég hlakka til
jólanna.
Sveinn Rúnar Arason:
Nei, ég er ekki byrjaður á því og
ætla helst að byrja nógu seint.
Mér finnst fólk byrja allt of fljótt
að hugsa um þetta, strax einum
og hálfum mánuði fyrir jól eru
farnar að heyrast auglýsingar
um jólavörur. Ætli ég byrji ekki
jólaundirbúninginn svona 10.
desember.
María Aðalsteinsdóttir:
Ég byrjaði að gera hreint um
síðustu mánaðamót og geri allt
hreint nema loftin. Fyrstu helg-
ina í desember baka ég smá-
kökur. Ég sauma lítið því börnin
eru öll uppkomin. Ég hef mjög
gaman af jólaundirbúningnum
og það er í nógu að snúast því
ég vinn líka úti.
Guðríður Ragnarsdóttir:
Já, ég er byrjuð að föndra og
búin að búatil nokkrar jólagjafir.
Ég er farin að hlakka til jólanna.