Dagur - 24.11.1990, Page 18
18 - DAGUR - Laugardagur 24. nóvember 1990
t----------------------------------->
Sýning á
tölvubúnaði
á Hótel KEA
í dag kl. 10-18 og laugardag kl. 10-16.
Sýndar verða Hyundai tölvur
og bókhalds- og upplýsingakerfið.
Bústjóri/Ps
- raunverulegt stjórntæki.
w Endurskoðun
b8kw»!l Akureyrí h.f.
Heilsugæslustöð á
Húsavík
Boðinn er út lokafrágangur heilsugæslustöðvar á
Húsavík, þ.á.m. málun inni, frágangur gólfa og
raflagna, innréttingar, hreinlætistæki og frágangur
lóðar. Verkið er boðið út í einu lagi. Gólfflatarmál
hússins er um 1477 ferm.
Tilboð óskast í verkið bæði miðað við verklok 31.
maí 1991 og miðað við verklok 31. október 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7, Reykjavík, til og með fimmtudegi 29.11. gegn
10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7,
þriðjudaginn 4. desember n.k. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 SIMI 26844
sögubrot
Frá Akureyri til Ameríku
með kímmgáfu í farteskinu
- stiklað á stóru í lífi Káins 130 árum eftir fæðingu hans
Kristján Níels Jónsson var fríður sýnum og hinn glæsilegasti
ásýndum, mikill á velli, sviphreinn, djarfmannlegur og gáfu-
legur. Hann var hvers manns hugljúfi og hrókur alls fagnað-
ar, jafnt í heimahúsum sem á mannamótum, fyndinn, frjáls-
lyndur og víðsýnn. Hvar sem hann fór og hverju sem hann
klæddist, bar hann yfír sér meðfædda reisn og höfðingsbrag.
Og höfðingi var hann einnig að því leyti, að hann sóaði gjöf-
um listar sinnar rausnarlega, þó aldrei yrði hann talinn meðal
höfuðskálda eða þjóðskálda, sem svo eru nefnd.
etta er ekki amaleg mann-
lýsing en margur kann að
spyrja í forundran: Hver
var hann, þessi Kristján Níels
Jónsson? Pví er til að svara að
hann var betur þekktur sem K.N.
eða einfaldlega Káinn. Þá rennur
eflaust upp ljós fyrir flestum enda
var Káinn eitt ástsælasta gaman-
skáld þjóðarinnar og um langt
skeið voru vísur hans á hvers
manns vörum.
Káinn var fæddur á Akureyri
fyrir 130 árum, nánar tiltekið 7.
apríl 1860. Sögubrotið er helgað
þessu gamansama skáldi sem
ætíð hafði skopvísur á taktein-
um, jafnt í meðbyr sem and-
streymi.
Bernskuheimilið flutt að
Strandgötu 25
Hér verður aðeins stiklað á stóru
í lífi Káins og litlu bætt við mann-
lýsinguna hér að ofan sem Tómas
Guðmundsson ritaði í formála að
Vísnabók Káins. Nokkrar vísur
verða rifjaðar upp til að gefa
mynd af skáldinu sem settist að í
Vesturheimi og bar þar beinin,
en fyrst skulum við fara á bernsku-
slóðirnar.
Kristján Níels Jónsson fæddist
í Aðalstræti 76 en á þeirri lóð
hafði faðir hans, Jón Jónsson
járnsmiður, reist fyrsta húsið
skömmu fyrir 1860. í þessu húsi
ólst hann upp og bjó fyrstu 14
æviárin en móðir hans, Pórdís
Kristjánsdóttir, dó árið 1874. Þá
fluttist Káinn til móðurbróður
síns, Davíðs bónda á Jódísar-
stöðum, og dvaldi þar næstu fjög-
ur árin uns hann fluttist vestur 18
ára gamall.
Því miður eiga Akureyringar
ekkert Káins-hús til að varðveita
minningu alþýðuskáldsins inn-
fædda. Örlög hússins að Aðal-
stræti 76 urðu þau að fyrst var
það flutt og síðan rifið. Árið 1875
keypti Kr. Sigurðsson, Vært, hús-
ið og flutti það á ísilögðum Poll-
inum út á Öddeyri og reisti það
aftur á lóðinni Strandgötu 25.
Var það ýmist kallað Værtshúsið
eða Baujan. Húsið var rifið 1914
er Sigvalda Þorsteinssyni var
leyft að byggja steinhús á lóðinni
og árið 1931 byggði Sigvaldi eina
hæð ofan á húsið. Þetta er húsið
sem gjarnan er nefnt Alaska og
Akureyringar kannast vel við.
Vann sveitastörf og sóttist
ekki eftir auði
Káinn fór snauður að heiman
og sóttist hvorki eftir auði né
mannvirðingu fyrir vestan. Hann
dó ókvæntur og barnlaus 25. októ-
ber 1936 og var grafinn að Eyford-
kirkju í grennd við Montain. Þar
hafa landar hans reist honum veg-
legan minnisvarða.
Hinn ástkæri mögur Akureyr-
ar, bóndinn og hagyrðingurinn
sjálfmenntaði fékk þannig ekki
ósk sína uppfyllta að bera beinin
„heima í Eyjafirði“ eins og segir í
þekktri vísu hans. Hitt er svo
annað mál að nafnið Eyford er
ekki svo ólíkt Eyjafirði, a.m.k.
ekki á prenti.
Hæddist mest
að sjálfum sér
Heimildum ber saman um að
Káinn hafi frá unga aldri verið
gamansamur og orðheppinn eins
og glöggt má sjá í vfsum hans.
Sagt er að hann hafi aldrei átt
óvini, aðeins vini, og þótt hann
hafi líka samið skammarvísur
voru þær aldrei svæsnar eins og
t.d. hjá Bólu-Hjálmari heldur
sveipaðar góðlátlegu glensi. En
skyldi þessi kunna mannlýsing
eiga við einhvern samferðarmann
hans?:
Þú er sveitar svívirðing,
sótugi eldhús-raftur.
Aftan og framan, allt í kring
ekkert nema - kjaftur.
Það er allt eins h'klegt að
Káinn hafi verið að gera grín að
sjálíum sér eins og í næstu vísu.
Þá hafði hann látið raka af sér
yfirvararskeggið og vildu stúlk-
urnar fá að vita hvenær hann ætl-
Bókasafn Félagsmálastofnunarinnar, pósthólf 9168, 109 Reykjavík
Já takk. Ég óska að fá sendar í póstkröfu eftirtaldar baekur skv. sórtilboðinu:
□ Islensk sjálfstæðis- og utanríkismál nnnn nn rouu,uu 2240,00 Nafn:
□ Lýðræðisleg félagsstörf, 2. útgága CUUUÁAJ 1600,00 Heimili:
□ Evrópumarkaðshyggjan 1000,00 800,00 Póststöð:
□ Allar3bækurnar 5600,00 4350,00 Kennitala:
E vrópu markaöshy ggjan:
Hagsmunir og valkostir Islands.
Höfundur rekur þróun Evrópumark-
aðshyggjunnartilfríverslunarkenningar
Adams Smith. Af henni hafi sprottið
jafn ólíkar stofnanir og Gatt, Oeec/
Oeqd, Eb, Efta og síðast huamyndin
um Efnahagssvæöi 18 Evrópuríkja,
Ees. Gerö er grein fyrir einkennum og
markmiöum þessara stofnana,
yfirþióölegu eðli Eb og fullveldisafsali
aðiidarríkjanna. Gerð er úttekt ágildandi
pfnahags,- og utanríkisviðskiptakerfi
Islands. í lokakafla skoðar höfundur
aðra og betri valkosti fy rir Island en Ees
og Eb.
Þetta er traust og aögengilep heimild
um mikilvægasta milliríkjamal okkar í
dag. Yfirgripsmikið efni er sett fram á
lipru máli og svo skýran h£tt, að allir
megi skilja. Fjöldi mynda og skýringa-
teikninga. Kilja í storu broti, 118 bls.
Verökr. 1000,00.
fslensk sjálfstæöis- og
utanríkismál.
Yfirgripsmikið grundvallarrit þar sem í
fyrsta sinn er brugðiö upp heildarsýn
yfir sjálfstæðis-, fullveldis- og utan-
ríkismál þjóðríkisins, konungsríkisins
og lýðveldisins. „Þjóðveldið" er þjóð-
félagsfræðilega skilgreint sem þjoöríki
með stjórnskipulagi nöfðingjaveldis, er
þróaðist niður í klíkuveldi og tortímdi
sjálfu sér vegna höfðingjadeilna og
ógætilegra milíiríkjasamskipta. Megin-
hluti bókarinnar er um utanríkis- og
öryggisstefnu lýðveldisins og 8 hlutlæg
stefnumótandi atriði, sem smáríki getur
ekki sniðgengið. Varar höfundur við
hliðstæðum hættum Sturlunga^ldar,
sem nú steðja að fullveldi okkar. I um-
sögn „Þjóðlífs" segir: „Hér er á ferðinni
bók, sem á erindi til allra þeirra, sem
líta vilja þróun íslandssögunnar frá nýj-
um sjónarhóli." Yfir 70 myndir og upp-
drættir, 336 bls. í stóru broti og vönduöu
bandi. Verð kr. 2800,00.
Lýöræöisleg félagsstörf,
2. útgáfa.
Heilsteypt og yfirgripsmikil handbókfyrir
alla þá, sem taka vilja ábyrgan þátt í
félagsstarfi og ná árangri í fundarstörf-
umog mælsku. Bókinfjallaráhlutlaus-
an, hagnýtan og fræðilegan hátt um
alla þætti félags- og fundarstarfa, fundi
og fundarstjórn, félags- og forystustörf,
mælsku, rökræður, lyðræðisskipulagiö
og samhengi félagslífsins. Margar
froðlegar teikningar af hentugu fyrir-
komulagi í fundarsal smærri og stærri
funda. í bókinni eru verkefni og dagskrár
til þjálfunar á 10 málfundum. Hentug
bók fyrir málfundarstarfsemi allra
félaga, flokka og skóla, byggð á ís-
lenskum aöstæðum. 304 bís. í fallegu
bandi. Verð kr. 2000,00.
I BÓKASAFN FÉLAGSMÁLASTOFNUNARINNAR
Pósthólf 9168-109 Reykjavík - Sími 75352
Káinn mun hafa byrjað ungur að
setja saman vísur en illt er að
finna þær f Vfsnabók hans. Efnið
í henni er sennilega allt samið í
hinni stóru Ameríku sem Káinn
fluttist til er hann var átján ára
unglingur.
Hann átti heimá á sléttum
Norður-Ameríku í meira en
hálfa öld. Fyrstu árin dvaldist
hann í Winnipeg en lengst átti
hann heima í Pembínahéraði í
Norður-Dakóta. Þar vann hann
öll algeng sveitastörf og stritaði
fyrir mat sínum með líkamlegum
styrk, ekki andlegum hæfileikum
og skáldskap:
Hönd en ekki heila
held ég meti fremur,
ýmsir um það deila,
engum saman kemur.
Allt er eins og stendur
afþeim skinnið brunnið.
Þessar hörðu hendur
hafa fyrir mér unnið.
aði að láta það vaxa aftur. Káinn
svaraði:
Ég rækta mitt skegg í tæka tíð,
því tennurnar vantar að framan;
það kemur sér illa íkulda og hríð,
efkjafturinn nær ekki saman.
Slíkum vísum kastaði hann
fram við ýmis tækifæri, samferð-
armönnum sínum til óblandinnar
ánægju. Hann kunni líka þá list
að hæðast að sjálfum sér, sem er
óneitanlega betur fallið til vin-
sælda en að hæðast að öðrum.
Mikið af drykkjuvísum
Sú staðreynd að Káinn kvæntist
aldrei og hitt að hann yrkir mikið
um áfengi gæti gefið einhverjum
nútímamanninum tilefni til vafa-
samra ályktana. Nú er víst í tísku
að glugga í fornar sögur og finna
höggstað á hetjum vorum og
kunnum skáldsagnapersónum.
Ekki verður farið út í slíka „sölu-
AKUREYRARB/tR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 26. nóvember 1990, kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir, Sigurður J. Sigurðsson og Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.