Dagur - 24.11.1990, Side 19
Laugardagur 24. nóvember 1990 - DAGUR - 19
f
P
I
l>
I
I
I
»
Káinn.
mennsku" hér en drykkjuvísur
Káins verður þó að skoða vegna
umfangs þeirra.
Flestir íslendingar sem komnir
eru til vits og ára hafa raulað
Ævintýri á gönguför fyrir munni
sér (Úr fimmtíu „centa“ glasinu |
ég fengið gat ei nóg). Þetta er
drykkjukvæði í gamansömum
dúr líkt og ótal mörg kvæði
skáldsins.
Flúði ég kenndur fyrst til þín,
fullur enn af gríni.
Byrja og enda árin mín
öll á brennivíni.
En þótt Káinn hafi yfirleitt ort
áfenginu lofgjörð þá kveður líka
við annan tón. Má þar nefna van-
líðan og sjálfsvorkunn sem skín í
gegn þrátt fyrir umbúðir
skopsins.
Káinn hætti eitt sinn að drekka
í um tvö ár og samdi auðvitað
gamanvísur um líðan sína þá.
Mörgum árum síðar rifjaði hann
þetta tímabil upp og sá í sþé-
spegli sínum að það er ekki eftir-
sóknarvert að hætta að drekka:
Ég hét að reyna að hætta að
drekka bjór,
en hörmung er að vita hvernig fór.
Ég umgekkst bara gott og
guðhrætt fólk,
sem gaf mér sýrublöndu, vatn
og mjólk.
Með góðtemplurum gekk ég
til og frá
og góðtemplara dömum
kvaldist hjá,
og þetta hreif - en þá fór
líka ver;
það þornaði upp í lakanum
á mér.
Gluggað í kvæði
um kvennamál
Kvenfólkið var skáldinu jafn
kært yrkisefni og blessað brenni-
vínið og tók hann það svipuðum
tökum:
Margan svanna ég mætan sá,
mér sem ann að vonum;
yndi fann ég oftast hjá
annarra manna konum.
Tími stuttu pilsanna var gós-
entíð að mati Káins og um pils-
lengdina kvað hann m.a. þetta:
Kæru löndur! Hvað veit ég,
karl, um pilsin yðar;
en mér finnst lengdin mátuleg
milli hnés og kviðar.
Einstaka sinnum örlar á eftir-
sjá og trega þrátt fyrir gaman-
semina, sbr. „Sú mér reyndist
svikulust,/sem mér vænst um
þótti“ en erfitt er að gera sér í
hugarlund hvenær skáldinu var
alvara. Hann segir það líka full-
um fetum í kvæðum sínum að
hann hafi aldrei haft áhuga á að
ganga í hjónaband og að sjálf-
sögðu ber að virða það viðhorf.
í þessu sambandi er gaman að
rifja upp eina sögu. Gömul kunn-
ingjakona Káins fór eitt sinn að
vanda um við hann fyrir drykkju-
skap hans. Hún útmálaði það
með mörgum orðum hve illa
hann hefði farið með líf sitt og
hæfileika af völdum Bakkusar og
sagði að ef því hefði ekki verið til
að dreifa hefði hann getað valið
um kvonfang. Káinn svaraði kon-
unni:
Gamli Bakkus gaf mér að smakka
gæðin bestu, öl og vín,
og honum á ég það að þakka,
að þú ert ekki konan mín!
Við komumst ekki öllu lengra
hér með Akureyringinn í Dakóta
en látum þó fljóta með eina vísu
sem sýnir hve skemmtilega hann
gat blandað enskunni og íslensk-
unni saman í sama kvæði. Þetta
kvæði er um hund sem ekki skildi
íslensku:
Berja og skamma þyrfti þig,
þrællinn grimmi. „Svei þér!“
Hættu að gjamma og glefsa í mig:
„Go to hell and stay there!“
Og að lokum skulum við rifja
upp hina ógleymanlega vöggu-
vísu sem uppalendur eru kannski
ekkert of hrifnir af. En húmor-
inn, höfundareinkenni Káins,
skín í gegn:
Farðu að sofa, blessað
barnið smáa,
brúkaðu ekki minnsta
fjandans þráa.
Haltu kjafti! Hlýddu og
vertu góður!
Heiðra skaltu föður þinn
og móður.
Sögubrotinu lýkur með þess-
um orðum Káins en fleiri þætti
mun ég flytja ykkur í vetur.
Stefán Sæmundsson.
ARNÓR BENÓNÝSSON
er frambjóðandi í opnu prófkjöri
Alþýðuflokksins á Norðurlandi eystra.
Kosningaskrifstofa hans er
að Óseyri 6, Akureyri.
Síminn er 25002.
Opið alla daga frá kl. 16-
19. (Arnór hellir upp á
kaffið!)
Bjóðum upp á akstur
á kjördag.
Stuðningsmenn.
Arnór Benónýsson.
Varðan opnar viðskiptavinum Landsbankans
leið inn í bankaþjónustu framtíðarinnar.
Varða er nafn á víðtækri fjármála-
þjónustu Landsbankans sem er
sérsniðin fyrir einstaklinga 60 ára og
eldri. Með Vörðunni vill Landsbankinn
efla sérstaklega tengslin við þessa
viðskiptavini sína, sem margir hverjir
hafa skiptvið bankann áratugum
saman, og veita þeim persónulegri
bankaþjónustu sem er mun
yfirgripsmeiri en áður hefur þekkst.
Varðan er samsett úr mörgum þjónustu-
þáttum. Þar á meðal er að sjálfsögðu
ávöxtun sparifjár, verðbréfaþjónusta,
lánafyrirgreiðsla og greiðslukorta-
viðskipti. En í Vörðunni er einnig veitt
ráðgjöf og þjónusta á sviði trygginga-
og skattamála, aðstoðað við gerð fjár-
hagsáætlana og leiðbeint um útfyllingu
ýmissa gagna og umsókna, s.s. til Trygg
ingastofnunar. Ennfremur er Vörðu-
félögum veitt aðstoð vegna húsnæðis-
skipta.
Hafðu samband við Vörðu-
þjónustufulltrúann á næsta
afgreiðslustað bankans og
fáðu nánari upplýsingar.
Varðan er félagsskapur sem
bo'rgar sig að eiga aðild að.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna