Dagur - 12.06.1993, Page 3
Fréttir
Laugardagur 12. júní 1993 - DAGUR - 3
þjónustuíbúðir aldraðra á Dalvík. Fyrir liggur áætlun um byggingu fleiri húsa en óvíst hvenær ráðist verður í það
verk. Myncl: GG
Dalvík:
Fyrstu þjónustuíbúðimar afhentar
Páll Hersteinsson veiðistjóri:
Grenjaleit hafin
- hægt að ná allri „Qölskyldunni“
á þessum tíma
Fyrstu þjónustuíbúðir fyrir
aldraða sem reistar eru á Dal-
vík verða afhentar væntanleg-
um íbúum nk. laugardag. Hér
er um fjórar íbúðir að ræða í
320 fm húsi, tvær íbúðir sem
eru 90 fm og aðrar tvær 70 fm.
Snorri Snorrason útgerðarmað-
ur á Dalvík hefur keypt 918 fm
steinhús á Böggvisstöðum, sem
eru sunnan byggðarinnar á
Dalvík, en það var í eigu
Landsbanka íslands. Bankinn
eignaðist húsið eftir að loðdýra-
búið Pólarpels sem starfaði á
Böggvisstöðum varð gjaldþrota.
Húsinu fylgir allstór lóð.
Húsið hyggst Snorri nota fyrst í
stað sem geymsluhúsnæði, neta-
verkstæði o.fl. sem fylgir útgerð-
um en áður hafði Snorri selt bæn-
um svokallaó „hænsnahús" sem
hann notaði sem geymsluhús og
stendur ofan Karlsrauðatorgs.
Engar aðrar nýtingarhugmyndir
cru enn uppi á borði varðandi
húsið á Böggvisstöóum.
Nýlega voru auglýstar tvær
stöður við sambýli fatlaðra að
Gauksmýri í Vestur-Húnavatns-
sýslu sem m.a. er rekið af
Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra á Norðurlandi vestra. AIls
bárust nær 20 umsóknir um
starfíð og þar af voru 14 þeirra
taldar raunhæfar. Heimilið hóf
starfsemi í ársbyrjun 1991.
Það voru Kristín Olöf Þórarins-
dóttir, Brúarholti í Ytri- Torfu-
staðahrcppi og Aðalsteinn
Tryggvason á Hvammstanga sem
Stuðningsmenn KA:
Hittast fyrir leik
Félagar í stuðningsmannaklúbbi
KA ætla að hittast kl. 13.00 í dag,
fyrir leik KA og Tindastóls í 2.
deildinni í knattspymu sem hefst
kl. 14.00. Þá verður félögum boð-
ið upp á kaffí í hálfleik. Eru allir
féiagar í stuðningsmannaklúbbn-
um hvattir til að mæta.
Húsið stendur austan Dalbæjar,
dvalarheimilis aldraðra á Dal-
vík.
Tilboð verktaka, Daltré hf. á
Dalvík, hljóðaði upp á rúmar 23
milljónir króna og hefur hann af-
hent byggingarncfndinni íbúðim-
Fyrr á þessu ári var gengió frá
sölu á togaranum Baldri, sem
Snorri Snorrason á, til Rússlands
en ekki hefur enn verið gengið
formlega frá sölunni til Rússlands
og skipið því enn í eigu Snorra og
er það á bolfiskveiðum fyrir vest-
an land. Reyndar tafðist málið
vegna innflutningstolls og skatts
sem settur var á kaup á skipum
frá Vesturlöndum en því hefur nú
verió aflétt en öll slík viðskipta-
mál taka óhemju tíma í þessu
fyrrverandi sæluríki kommúnism-
ans.
Jóhann Antonsson hefur kynnt
í bæjarstjóm Dalvíkur hugmyndir
um aö stofnað verði útgerðarfélag
sem keypti skip þeirra útgerða
sem þess óska og þannig yrói
voru ráðinn. Kristín er stúdent af
uppeldisbraut frá Kvennaskólan-
um í Reykjavík en Aðalsteinn
hefur starfað við landbúnaó og
sjómennsku og hefur kynnst tölu-
vert vistmönnum á Sólborg á Ak-
ureyri vegna byggingavinnu þar.
A Gauksmýri eru fimm vistmenn.
GG
Mýflug
Flugfélagið Mýflug reis úr vetr-
arhíði nú á dögunum og hefur
hafið fullan rekstur. Hafnar eru
daglegar áætlunarferðir til og
frá Reykjavík. Rekstur flugfé-
lagsins gekk vel á síðasta ári.
„Sumarið leggst vel í okkur,
talsvert er um pantanir í áætlunar-
flugið hjá okkur og útsýnisflug
sem viö bjóðum uppá verður sí-
fellt stærri hluti af okkar rekstri,
sem gekk vel á síðasta ári,“ sagði
ar en eftir er fullnaðarfrágangur
utanhúss, bæði málningarvinna
og lóöarfrágangur.
Ibúðimar verða almenningi til
sýnis frá kl. 13.00 til 16.00 en
síóan fá væntanlegir íbúar lykla-
völdin. GG
reynt að tryggja að skip og kvóti
sem hugsanlega væri til sölu færu
ekki úr héraði. Að baki þessu fyr-
irtæki, ef af verður, standa nokkr-
ar útgerðir á Dalvík. GG
Baldvin Baldursson, bóndi á
Rangá og formaður Héraðs-
nefndar Suður-Þingeyinga, segir
að ef í ljós komi að um upp-
blástur sé að ræða á Þingey í
Skjálfandafljóti, sem er á móts
við bæinn Ystafell í Kinn, sé
ástæða til að friða hana.
A fundi Héraðsnefndar S.-
Þingeyinga sl. miðvikudag var
lagt fram bréf frá Óttari Indriða-
syni frá Fjalli þar sem hann lýsti
áhyggjum vegna eyðingar jarð-
vegs á Þingey og lagði áherslu á
nauðsyn aðgerða. Héraðsnefnd
tók undir erindið og samþykkti að
leita eftir samstarfi við Land-
græðslu ríkisins um uppgræðslu
Þingeyjar. „Kunnugir menn segja
að þama sé frá suðvestri til norð-
austurs dálítil sandalda sem er
uppblástur á. Við samþykktum að
snúa okkur til Landgræðslunnar
í loftið
Leifur Hallgrímsson, hjá Mý-
flugi, þegar blaðamaður spurði
hann um horfumar fyrir sumarið.
Hann sagði flugfélagið bjóða
uppá sex mismunandi ferðir, allt
frá því að fljúga með fólk í kring-
um Mývatnið og allt upp í það að
fara suður á Vatnajökul og eftir
Jökulsá og norður í Ásbyrgi. í
þessi útsýnisflug er stöðug aukn-
ing ár frá ári en eins og með margt
annað er það veðrið sem spilar
stærstu rulluna," sagði Leifur. SV
„Þumalfíngursreglan er að
byrja svona viku af júní. Ég á
ekki von á miklum breytingum
milli ára,“ sagði Páll Hersteins-
son veiðistjóri um horfur í
grenjavinnslu en grenjalægjur
eru að búa sig undir að vinna á
grenjum - nú á meðan hægt er
að ná karldýrunum heima og
yrðlingum út úr greni - þ.e.
allri „Qölskyldunni“.
Á Norðurlandi vestra voru í
fyrra unnin 59 greni, 91 grendýr
náðist - en svo nefnast fullorðin
dýr sem nást á grenjunum, - 231
yrðlingur og 94 hlaupadýr sem
eru þeir refir sem ekki eru unnir
við greni - hvort sem er að sumri
til eða að vetrarlagi.
Á Norðurlandi eystra voru unn-
in 46 greni, 73 grendýr, 202 yrð-
lingar og 27 hlaupadýr en ekki er
gert upp á milli kynja í tölfræði
refaveiða.
Tófugreni eru helst unnin frá
því um 7. júní „og svo er þetta að
mestu búið í júnílok en það er
breytilegt eftir svæðum; þar sem
farið er eitthvað inn á hálendið er
farið nokkuð seinna vegna færðar
þannig að grenjavinnsla stendur
svolítið fram í júlí,“ sagði Páll
Hersteinsson en tömin tekur því
um mánuð. «
Aðspurður um hvemig standi á
þessari nákvæmu tímasetningu
sagði Páll: „Það er mjög gömul
hefð að byrja á þessum tíma sem
hefur vafalaust skapast af því að
um 7. júní er u.þ.b. helmingur
yrðlinga orðinn svona 3ja vikna
gamall - en meðaltími gots er um
miójan maí - þegar grenjavinnsl-
an hefst. Þriggja vikna gamlir eru
þeir yfirleitt orðnir færir um að
koma sér sjálfir út úr greni þegar
um hvað gera skuli í þessu,“
sagði Baldvin. Hann sagði að þeg-
ar Skjálfandafljótið væri vatnslít-
ið kæmist sauðfé auðveldlega út í
Þingey að austanverðu. „Auðvitað
þyrfti að friða eyjuna, sérstaklega
ef þessi uppblástur er raunveru-
Sútunarverksmiðjan Loðskinn
hf. á Sauðárkróki hefur um
skeið átt við örðugleika að etja
og hefur verið að endurskipu-
leggja reksturinn. Að sögn Birg-
is Bjarnasonar rekstrarstjóra er
tíðinda að vænta um mánaða-
mótin, en hann segir ljóst að
fyrirtækið lifi ekki við óbreyttar
aðstæður. íslenskur skinnaiðn-
aður stendur höllum fæti og í
maímánuði skipaði landbúnað-
arráðherra fimm manna nefnd
til að skoða málefni skinnaiðn-
aðarins. Aðeins tvö fyrirtæki
starfa í skinnaiðnaði á landinu,
Loðskinn hf. á Sauðárkróki og
íslenskur skinnaiðnaður hf. á
Akureyri.
Hjá Loðskinni hf. starfa milli
50-60 manns. Fyrirtækið hefur um
skeið átt við fjárhagsörðugleika að
stríða og að sögn Birgis eru viö-
ræður við lánardrottna nú í gangi
og vonast hann eftir niðurstöðum
nú um mánaóamót. Hjá íslenskum
skinnaiðnaði hf. á Akureyri starfa
skyttan kallar á þá - hermir eftir
foreldrunum - kallar á þá út úr
greninu. Þá eru þeir famir að éta
kjöt sem þýðir að foreldramir
koma meira heim en meðan þeir
eru ekki famir að éta kjöt sækir
steggurinn ekki mjög stíft heim.
Þetta er praktískt val.“ GT
Kirkj ugarðsbyggingar-
málið:
Endanlega tíl
lykta leitt í
bæjarstjórn
Umdeilt deiliskipulag af kirkju-
garðssvæðinu á Akureyri, sem
gerir ráð fyrir nýbyggingu á
syðri brún Búðargils, mun
koma til staðfestingar á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar 22.
júní nk.
Eins og fram kom í Degi í gær
samþykkti meirihluti skipulags-
nefndar Akureyrar á fundi sínum
sl. fimmtudag að staðfesta deili-
skipulagið. Málið var ekki rætt á
fundi bæjarráðs á fimmtudag og
mun því koma til endanlegrar
staðfestingar eða synjunar í bæj-
arstjóm 22. júní nk.
Verði deiliskipulagið staðfest
má ætla að byggingaframkvæmd-
ir hefjist mjög fljótlega, en eins
og fram hefur komið í Degi er
þegar búið að opna tilboð í bygg-
inguna og reyndist Trésmíðaverk-
stæði Þorgils Jóhannessonar á
Svalbarðsströnd eiga lægsta til-
boðió, 39 milljónir króna, 77,7%
af kostnaðaráætlun. óþh
leiki,“ sagði Baldvin.
Þess má geta aó Þingey er
sögufrægur staður. Til foma var
þar jafnan haldið vorþing, svokall-
að Þingeyjarþing. í Reykdæla
sögu var það hins vegar kallað
Eyjarþing. óþh
um 200 manns.
Ein af þeim hættum sem steðjar
að íslenskum skinnaiðnaði er sú
að sláturleyfishafar og bændur
telja sig geta fengið mun betra
verð með því að selja óunnin
skinn beint á erlenda markaði. Ef
sláturleyfishafar ákveða að selja
beint til útlanda er ólíklegt að
skinnaiðnaður innanlands haldi
velli. Fimm manna nefndin lagði
til að bændum verði greitt 25%
hærra verð fyrir skinnin, sem yrði
þá gert með niðurgreiðslum frá
ríkinu.
Ef bændur og sláturieyfishafar
samþykkja 25% niðurgreiðsluleið-
ina þá verða skilyrðin væntanlega
þau að innlendur skinnaiðnaður
fái öll óunnin skinn, þau verði
ekki seld beint á erlendan markað.
Engin ákvörðun hefur enn verið
tekin. Að mati Birgis mun Loð-
skinn hf. fá næg skinn, þar sem
þau eru keypt af Sláturfélagi Suð-
urlands og Slátursamlagi Skag-
firðinga, sem jafnframt eru hlut-
hafar. sþ
Dalvík:
Togaraútgerð kaupir Böggvisstaðahúsið
Sambýli fatlaðra að Gauksmýri:
Héraðsnefnd Suður-Þingeyinga:
Ahyggjur af uppblæstri á Þingey
Loðskinn hf.:
Enn verið að meta stöðuna