Dagur - 06.11.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. nóvember 1993
FRÉTTI R
Meðaltalsbónus í frystihúsum:
Hæstí bónus á Ólafsfirði í september
Frá því um áramót hefur mán-
aðarlega verið unnið yfirlit um
meðalbónus frystihúsa á svæð-
inu frá Þórshöfn til Sauðár-
króks, á skrifstofu Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur. Öll frystihús á
svæðinu taka þátt í verkefninu,
að undaskildu frystihúsinu á
Raufarhöfn.
I september var hæsti meðal-
talsbónus á svæðinu í Frystihúsinu
á Ólafsfirói, 182 kr. á tímann.
Hæsti meðaltalsbónus á árinu er á
Hofsósi 188 kr. á tímann.
Troppu-
þrek
LOKAÐIR
KVENNATÍMAR
mánudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga kl. 19.00.
Sími12080
Nuddpottur, vatnsgufubað
og Ijósabekkir.
Raftæki
í miklu úrvali
Kaffikönnur frá 1.995
Brauðristar frá 1.995
Vöfflujárn frá 5.355
Straujárn frá 3.335
Gæði og
góð þjónusta
\4 KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565
Aðalsteinn Baldursson, starfs-
maður VH, sagói að slík yfirlit
hefðu fyrst verið unnin í fyrra en
síóan reglulega um hver mánaóa-
mót frá áramótum. Hann sagði aö
fiskvinnslufólk væri mjög ánægt
með að fá þennan samanburó og
það væri til bóta fyrir fyrirtækin
aó geta borið þetta saman. Það
væri metnaóur hjá starfsfólki og
fyrirtækjum að vera ekki með
lægstu bónustölurnar, þó mann-
skapur og hráefni hefði þar mikið
að segja.
Aðalsteinn sagði að nú stæði
yfir saumanámskeið á vegum
Verkalýósfélags Húsavíkur og 22
konur sem tækju þátt í námskeið-
inu væru svo áhugasamar að þær
saumuðu bæði dag og nótt. Leið-
beinandi á þessu vinsæla nám-
skeiói er Hulda Ragnheióur Arna-
dóttir, kjólameistari. IM
Króksverk
á Sauðár-
króki með
lægsta
tilboðið
í vikunni voru opnuð tilboð í
lokuðu útboði Vegagerðar-
innar á lagningu fyllingar á
Sauðárkróksbraut við vest-
urós Héraðsvatna vegna fyr-
irhugaðrar brúarsnu'ði á
næsta ári. Átta aðilum var
boðið að bjóða í verkið og
buðu sjö. Króksverk var með
lægsta tilboðið, 44% af
kostnaðaráætlun, sem hljóð-
ar upp á 8,8 milljónir kr.
Til stendur aó breyta vegar-
stæði vió vesturós Héraósvatna
og byggja þar nýja brú á næsta
ári. Nýja brúin verður um 500
m sunnar en sú sem nú er. Sá
verkhluti sem nú er boðinn út
er lagning fyllingar að tilvon-
andi brúarstæði, um 500 m
vegalengd. Kostnaðaráætlun er
á 8,8 miilj. kr. og buðu 7 aðilar
af 8 í verkið. Króksverk var
með lægsta tilboðið, rúmar 3,8
millj. kr„ eöa 44% af kostnað-
aráætlun. Næstlægst var Fjöró-
ur með rúmar 4 millj, eða
46,5% af kostn.áætlun og þar á
eftir G. Hjálmarsson meó tæp-
lega 4,7 millj., eða 53% af
kostn.áætlun. Hæsta tilboð átti
Amarfell, rúmar 8 millj., eða
92,5% af kostn.áætlun. sþ
- NAMS KulD -
íþróttcifélagiö Akur
heldur ndmskeiö í
Namskeibin hefjost um miðjan nóvember n.k.
Ndnari upplýsingar og skrdning er á Bjargi í
síma 26888 - Ndmskeibin eru öllum opin,
(bogfimi þó abeins 16 drn og eldri).
200
Meöalbónus 1 .-38. vika □ Meðalbónus 35.-39. vika
Meðaltalsbónus í frystihúsum á Norðurlæandi 01.01.93-30.09.93.
Greinilegt er að verð á svínakjöti hefur farið lækkandi að undanfömu. Þessi
mynd er tekin í sláturhúsi Benny Jensen í Giæsibæjarhreppi.
Verlækkun á svínakjöti
Verð á svínakjöti hefur farið
Iækkandi að undanförnu. Eftir
nokkra verðlækkun á markaði á
síðasta ári var skráð verð
lækkað um 8% og hefur það
ieitt til meiri lækkunar. Þar sem
verðlagning á svínakjöti er
frjáls ræður markaðurinn
mestu um hver þróun verðs er á
hverjum tíma en verðskrá Fé-
lags svínabænda er fremur til
leiðbeiningar.
Valur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Félags svínabænda,
sagði í samtali við Dag að verð á
svínakjöti hafi lækkaó nokkuó að
undanfömu. Framleiðslan hafi far-
ið vaxandi á þessu ári þótt hún nái
ekki framleiðslu ársins 1989 en þá
hail framleiðslan orðiö mest.
Hann sagði aó nú væru til um
vikubirgóir af svínakjöti í landinu
sem væri nokkuð mikió í þessari
framleiðslugrein þar sem nær öll
sala fari fram á kjötinu fersku. Ef
framleiðslan fari enn vaxandi
þurfi að grípa til annarra ráða - til
dæmis að frysta birgóir - sem væri
slæmur kostur. Hann kvaðst þó
ekki eiga von á að þess muni
þurfa með.
Valur sagði að svínabændur
bindi nokkrar vonir við breytingar
á virðisaukaskatti er koma eiga til
framkvæmda um næstu áramót og
einnig að kjarnfóðurgjöldum verði
létt af greininni og gætu slíkar
ráðstafanir komið neytendum til
góða. Hann kvaðst telja að krepp-
an í þjóðfélaginu komi illa niður á
svínabændum jafnt sem öðrum
kjötframleiðendum. Fólk hafi
hreinlega ekki efni á að kaupa
sama magn af kjöti og verið hafi á
undanförnum árum og haldist
samdráttur í sölu þannig í hendur
við minnkandi kaupgetu. Fólk
verði að velja sér r.ðra fæðu en
kjöt í auknum mæli. ÞI
Guðrún í Betrí
helmingnum
Guðrún Kristjánsdóttir, hús-
móðir á Akureyri, eiginkona
Einars Kristjánssonar frá
Hermundarfelli, er ein fimm
kvenna sem segja frá í viö-
talsbókinni Betri helmingur-
inn, sem Skjaldborg gefur út
fyrir jólin. Hinar fjórar eru:
Gyða Stefánsdóttir, maki
Sigurðar Helgasonar, fv.
sýslumanns, Guörún Ingólfs-
dóttir, maki Ásgríms Hall-
dórssonar, framkvæmda-
stjóra, Steinunn Bergsteins-
dóttir, maki Sigurðar G.
Tómassonar, dagskrárstjóra
Rásar 2 og Árný Erla Svein-
björnsdóttir, maki Össurar
Skarphéöinssonar, umhverf-
isráðherra.
Spurt um „Halló
Akureyrí"
Kristinn H. Gunnarsson
(Alþbl - Vefj.) hefur lagt fram
fyrirspurn á Alþingi til dóms-
málaráðherra um löggæslu
á skemmtunum. Fyrirspurnin
erí tveim liðum. í síðari liðn-
um er spurt hve mikið hafi
þurft að auka löggæslu á
„Halló Akureyri" annars veg-
ar og hins vegar skemmtun
ÚÍA á Eiðum. „Hver var
kostnaður ríkissjóðs af auk-
inni löggæslu, hver var áætl-
aður fjöldi gesta og hver var
endurgreiddur kostnaöur í
hvoru tilviki fyrir sig?“ spyr
Kristinn. Beðið er svars
dómsmálaráöherra.
Norðlensk list
opinberra eigna
í svari menntamálaráöherra
við fyrirspurn Guðrúnar
Helgadóttur um listaverka-
kaup Listasafns íslands á
síðustu fimm árum, koma
nokkrir Noröiendingar viö
sögu. Árið 1988 keypti safn-
ið olíuverkið Skugginn minn
eftir Hring Jóhannesson fyrir
120 þúsund og árið 1990
keypti það annað verk eftir
Hring, Kvöldsól á tjaldi, fyrir
180 þúsund. Sama ár keypti
safnið skúlptúrinn Kröflu eft-
ir Ólafsfirðinginn Kristinn E.
Hrafnsson fyrir 200 þúsund.
Árið eftir festi Listasafnið
kaup á olíuverkinu Ský og
vatn eftir Akureyringinn Sig-
urð Árna Sigurðsson. Þetta
verk kostaði 200 þúsund.
Sama ár keypti safniö olíu-
verk eftir Kristján Steingrlm
Jónsson fyrir 350 þúsund. í
fyrra keypti Listasafn ís-
lands síöan tréristu eftir
Dröfn Friðfinnsdóttur fyrri 30
þúsund krónur.
Jónco hf.
gjaldþrota
Jónco hf. Skarðshlíð 30a á
Akureyri hefur verið úrskurö-
aö gjaldþrota. Þetta kemur
fram 1 Lögbirtingablaöinu.
Fyrsti skiptafunduríþrotabú-
inu verður 20. desember.
Skiptastjóri er Þorsteinn
Hjaltason, héraðsdómslög-
maður á Akureyri.