Dagur - 06.11.1993, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 6. nóvember 1993
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
Sl'MI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
(íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON.
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Aðstöðumunurinn
skattlagður
Sú fyrirætlun stjórnvalda að leggja virðisaukaskatt
á innanlandsflug frá og með næstu áramótum hefur
réttilega verið gagnrýnd. Flugfélögin fimm, sem
stunda áætlunarflug innanlands, hafa mótmælt
þessum áformum harðlega og bent á að skattlagn-
ingin hækki flugfargjöld um 9-10%. Svo mikil hækk-
un mun óhjákvæmilega leiða til fækkunar farþega
og samdráttar í þjónustu.
íslenska vegakerfið hefur tekið stakkaskiptum á
síðustu árum og er nú allt að því viðunandi. Þess
vegna hafa æ fleiri tekið þann kostinn að fara ak-
andi milli landshluta fremur en að nýta sér þjónustu
flugfélaganna. Þau flugfélög, sem stunda áætlunar-
flug innanlands, hafa fyrir vikið átt erfitt uppdráttar
síðustu ár. Þau hafa átt sífellt erfiðara með að ná
endum saman í rekstrinum og hafa neyðst til að
grípa til þess óyndisúrræðis að fækka ferðum og
skerða þjónustuna á annan hátt. Hin nýja skatt-
lagning mun örugglega verða til þess að enn fleiri
taka þann kostinn að keyra milli landshluta og
byggðarlaga fremur en að fljúga. Skatturinn mun
jafnframt verða til þess að ferðum innlendra og er-
lendra ferðamanna um landið fækkar. Virðisauka-
skattur á innanlandsflug stefnir því ekki einungis
flugsamgöngum innanlands í verulega hættu, held-
ur mun áhrifa hans vafalaust gæta í ferðaþjónust-
unni.
Þrátt fyrir vegabætur og umtalsverðar framfarir á
öðrum sviðum samgöngumála eiga þeir, sem búa
lengst frá höfuðborginni, erfitt með að komast af án
flugs. Sömu sögu er að segja af þeim sem búa við
einangrun vegna snjóþyngsla hluta ársins. Þess
vegna var söluskattur af flugsamgöngum felldur
niður á sínum tíma. Það var einfaldlega ekki talið
verjandi að skattleggja aðstöðumun landsmanna.
Það var ekki talið verjandi að innheimta skatt, sem
kom verst við þá sem lengst bjuggu frá höfuðborg-
inni. Þau rök eru enn í fullu gildi. Þess vegna er hin
fyrirhugaða skattlagning á innanlandsflug eitt það
ranglátasta sem fundið hefur verið upp í skattamál-
um frá upphafi. Er þó af nógu að taka í þeim efnum.
BB.
I UPPAHALDI
„Ævinlega bækur á náttborðinu“
- segir Gunnar Karlsson, hótelstjóri
Gunnar Karlsson er
hótelstjóri á Hótel
KEA. Hann skoraðist
ekki undan því frekar
en aðrir að segja okkur frá hugð-
arefnum sínum og áhugamálum.
Þess má geta að á sunnudags-
kvöldið verður haldió málverka-
uppboð á Hótel KEA sem List-
húsið Þing og Gallerí Borg
standa fyrir, en langt er síöan
slíkt uppboð hefur verið haldið á
Akureyri. En víkjum þá aó
spumingunum okkar og svörum
hótelstjórans.
Hvað gerirðu helst ífrístundum?
„Eg reyni yfirleitt að slappa af og
hafa þaó notalegt. Eg hef nóg vió
að vera heíma fyrir og við að
sinna áhugamálunum.“
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Þetta er erfið spurning. Ég hef
alltaf verið hrifinn af gömlum og
þjóðlegum mat og til dæmis voru
svið í mestu uppáhaldi hjá mér
þegar ég var stráklingur. Lamba-
kjötió er alltaf gott en til sér-
stakra hátíðarbrigða myndi ég
scnnilcga velja safaríka nauta-
steik eóa góðan hurnar.'*
Uppáhaldsdrykkur?
„Að vatninu slepptu er það diet-
kók.“
Ertu hamhleypa til allra verka á
heimilinu?
„Já, ég kemst ekki hjá því. Ég
hef alltaf haft gaman af því að
taka til hendinni vió heimilisstörf
Gunnar Karlsson.
og þaö eina sem mér finnst leiö-
inlegt er að strauja."
Er heilsusamlegt líferni ofarlega á
baugi hjá þér?
„Já, það er ofarlega á baugi þegar
öllum hlaupum sleppir.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
„Ég kaupi Morgunblaðið og
Garða og gróóur. Svo sé ég Dag
og fleiri blöð í vinnunni."
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Það er ævjnlega bók á nátfborð-
inu og oftast fleiri en ein. Ég hef
sérstakt dálæti á Halldóri Lax-
ness og Sjálfstætt fólk er sú bók
sem ég hef lesið oltast. Þaö líöur
aldrei það kvöld aö ég lesi ekki
bók.“
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Ég hef mest dálæti á tónlist frá
1950-60 og ég hef alltaf gaman
af harmoniku og gríp svolítið í
hana sjáifur.“
Uppálialdsíþróttamaður?
„Ég er ekki mikill íþróttaáhuga-
maður. Ætli ég verði ekki aö taka
undir með syni mínum og nefna
Michael Jordan.“
Hvað hoifirðu mest á í sjónvarpi?
„Ég horfí langmest á fréttir og
má ckki missa af þeim. Þar fyrir
utan horfi ég mest á umræðu- og
fræósluþætti og hef sérdeilis
gaman af ölln sem lýtur að is-
lenskum þjóðháttum.“
A hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
„Ég vil ekki ncfna neinn sérstak-
an en þó verö ég að segja að
Halldór Blöndal hefur komið
mér mikið á óvart og hann hefur
staðið sig vel."
Hvar á landinu vildirðu helst búa
fyrir utan lieimahagana?
„í Reykjavík.“
Hvaða hlut eðafasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mund-
ir?
„Fyrst ég má nefna hvað sem er
þá ætla ég að biðja um skemmti-
snekkju."
Hvað gerðirðu í sumarleyfinu?
„Ég flúði rigninguna og fór í
Borgarfjöró og á Snæfellsnes.“
Hvað œtlarðu aðgera um helgina?
„Ég ætla bara að eiga rólega
helgi og hugsa um börn og bú.“
SS
BAKÞANKAR
KRISTINN C. JÓHANNSSON
Um þá óseðjandi homskökku hít
Segir nú enn frekar af umsvifum
hlutafélags þess sem stofnaó var í
nauðvörn utan um margvíslega
starfsemi vora til hagræóis og ein-
földunar i bókhaldi og til tryggingar
skilvísri greiðslu í sjóði atvinnulífs-
ins.
Það er alkunna að íslendingar
og þar meó vér veróum einna vit-
lausastir á vorin. Þegar snjóa leysir
og nætur veróa bjartar ganga menn
gjarnan eins konar berserksgang í
framkvæmdasemi alls konar og
fjárfestingum, sem síðan hafa verió
að leggja bankakerfið í rúst.
Þetta sérstaka hlutafélag fór
varlega í fjárfestingar í ár en gerói
þó bjartsýnisspá í vor áóur en
skatturinn komst í bókhaldió og
hafói þegar keypt byggingarefni áó-
ur en upp komst um strákinn Tuma.
Þá var of seint að draga í land svo
framkvæmdir hófust um svipaó leyti
og allir aórir uróu frávita af vorgleði.
Fyrst hafði verið ráógert aó félagió
réðist í geró laxastiga í Glerá eóa
ræktun regnbogasilungs í því sama
fallvatni en af ókunnum ástæðum
vildi hió opinbera ekki koma til
hjálpar við þær framkvæmdir. Þá
var ákveóió að smíða kassa í staó-
inn, með aóstoó stofnlánadeildar,
og sýnir það ábyrga fjármálastjórn
vora. Þetta var heldur ekki neinn
venjulegur kassi heldur eins konar
þrískipt ílát eða safnþró, sem eru
nú mjög í tísku og sumir álíta meir
að segja aó svona ílát geti framleitt
brúklega mold. Það er meó öllu
ósannaó og þess vegna vilja allir
eiga svoddan kassa.
Þar sem vér höfum ekki löggild-
ingu sem kassasmiðir en ætluóum
samt aó smíóa sjálfir voru fram-
kvæmdir hafnar sunnan undir vegg
fjarri heimsins glaumi og forvitni
enda ekki víst aó aógeróin yrði
hefóbundin.
Vegna almenns samdráttar og
aóhaldssemi í fjármálum landsins
var þegar ákveðið að byggja í
áföngum, í staó þriggja hólfa tvö,
innláns- og ávöxtunardeild en
fresta framkvæmdum við útlána-
deildina.
Oss hafði verió komió í skilning
um að ef safnaó yrði í innlánsdeild-
ina öllu því sen landareignin gæfi
af sér og eru þá nýsprottnar kartöfl-
ur ekki undanskildar mundi allt
þetta koma sér saman um að veróa
að mold á þriggja ára fresti.
í annarra manna göróum eru
svona safnkassar einföld smíð að
sjá enda hugðumst vér nú Ijúka
þessu verki á svipstundu ekki síst
til þess að fjármagnið nýttist sem
best. Þetta var góó ráðagerð þang-
að til framkvæmdir hófust. Vér fór-
um með kærulausu látbragði suður
fyrir vegg, vopnaðir vaturpassa,
húsvansi, nöglum og hamri og
vinkli ásamt viðeigandi timbri sem
kom þó tregt til þessa leiks. Sam-
kvæmt uppdráttum tæknideildar
áttu þessi þriskipta stofnun að vera
með fjórum hornum hver deild og
öll horn níutíu gráóur auk þess sem
mannvirkió átti að mynda samskon-
ar horn við ísland sem var undir.
Þessi hornakonsert bar ekki í sér
mikinn frumleik höfundanna en
þeim mun meiri leikni krafóist hann
af verktakanum.
Ekki er rétt að lýsa út í hörgul
gangi framkvæmdanna en aó tveim
vikum liðnum sátum vér uppi með
mannvirki sem hefur í sjálfu sér
býsna mörg horn en ekkert þeirra
er níutíu gráður og fjarri er því að
byggingin myndi þess konar horn
vió jöróina.
Þessi inniánsstofnun mun seint
fá gæóastimpil frá skipulagsstjóra.
Var nú aó því komið aó safna til
moldargerðarinnar og leið reyndar
ekki á löngu áður en farió var að
kalla þessa furóusmíð „ríkiskass-
ann“. Kassi þessi hefur nefnilega
þá náttúru aó það er sama hve í
hann er látið aó aldrei fær hann
nóg.
Fyrst fór í hann leifar af hvanna-
stóði frá í fyrra, runnar murkaðir við
jörð, og varla höfóu grösin stungið
höfói upp úr jöróu fyrr en slegin
voru og flutt í gímaldió, kartöflu-
grös, arfi, fíflar og sóleyjar og varla
að frú Guðbjörg fengi að hafa
grænmetið sitt í friði i ísskápnum,
egg heil og hálf, þrisvar hellt upp á
könnuna á kvöldin til að fá korginn,
fiskur, nýr, saltaður og siginn að
ekki sé nú talað um ávexti sem oft
hurfu sporlaust af eldhúsborði.
Pottaplöntur, jukkur, kaktusar og
annað stofuskraut hvarf nú allt í
einu suður fyrir vegg. Vér óttumst
satt aó segja að jólatréó í ár fari
aldrei inn fyrir dyr hér á bæ en haldi
jólin í þessu samkvæmi í kassan-
um. Hann ropar bara kassinn og
stendur þarna eins og honum komi
ekki við sviðin jöróin allt um kring.
Þar er af skiljanlegum ástæóum
varla stingandi strá að sjá og einu
viðbrögðin sem hann hefur sýnt til
þessa er að eitt kartöflugras stakk
sér út á milli rimlanna á miðju sumri
í háóungarskyni, ávöxtur nokkurra
kartaflna sem vér höfóum stolið úr
matarbúri heimilisins þegar fátt var
um annaó hráefni.
Þótt vér skiljum við hann fullan
að kvöldi er sigió í honum til hálfs
aó morgni og hefst þá enn örvænt-
ingarfull leit að jurtaleifum eða vér
bregóum oss svo lítið beri á í græn-
metisborðið í Hagkaup aó kaupa
handa honum dagskammtinn. Ekki
höfum vér lengur sál í oss að borða
kvöldskatt nema til hálfs, afgangur-
inn fer í hann.
Hann er sem sagt ríkiskassaleg-
ur þessi hornskakki gámur og
minnir á ekkert meir en óseðjandi
hít og það sem verra er þá höldum
vér hann muni líkjast frænda sínum
líka aó því leyti að það sem hann
skilar til baka í fyllingu tímans verói
ekki endilega það sem vonir vorar
stóðu til í upphafi framkvæmda.
Þess má svo að lokum geta að
oss finnst níutíu gráðu horn heldur
ómerkileg eftir aó hafa séð þá miklu
fjölbreytni sem ná má út úr þrjú-
hundruðogsextiu gráöa horna-
summu ferhyrnings.
Kr. G. Jóh. hf.