Dagur - 06.11.1993, Síða 17
KVIKMYNPIR
Laugardagur 6. nóvember 1993 - DAGUR - 17
JÓN HJALTASON
Sylvester snýr aftur
Þeir segja vestra að Arnaldur
Schwarsenegger hafi vart mátt
snúa sér svo við að Sylvester
Stallone hafi ekki verið búiim að
stæla hreyfinguna. En nú hcfur
minn maður svo sannarlega hætt
stælunum; hann er ekki lengur að
væflast urn í einhverjum kómcd-
íum. H;uui er komimi aftur í hlut-
verk iiarða naglans sem getur allt
og kann allt, hvort sem það cr nú
að klifra þrítugan hamarimi eða
clta uppi vonda memi í stórborg-
um.
Nýjasta myndin með Stallone,
Demolition Man, er spemiutryllir
eins og þcir gerast bestir, það
segja aö minnsta kosti kunnugir
en svo geta auðvitað brostið
krosstré sem ömiur tré. Eg hef þó
enga ástæöu til að ætla annað en
að hér sé á ferðinni hin mesta
morð- og ofbeldismynd sem
furðulegt nokk virðist oft á tíðum
ganga bctur í Evrópumannimi en
Kanann.
Söguþráðuriim er skenmrtilega
kiikkaður. Við erurn stödd í Los
Angeles árið 1996. Þar er allt í
kalda kol og drepur maður maim
(merkilegt hvað framtíðin er oft
skuggaleg, að miimsta kosti í bíó).
Simbn nokkur Phoenix, ærlega
trufluð týpa, hefur tekið 30 mairns
í gíslingu og hótar að sprengja all-
an hópinn í loft upp. Þá tekur Joe
„Demolition Man“ Spartan til
sinna ráða. Þvert ofan í allar skip-
amr reynir haim að l'relsa gíslana
en eitthvað fer úrskeiðis og lög-
reglumaðurimi og krimminn eru
báðir dæmdir til frystingar í 70 ár.
Mörgum árum síðar, eða 2036,
er sá illi þýddur upp og leiddur
fyrir áfrýjunardómstól. Hann
kemst undan og tekur upp l’yrri
háttu. Samfélagið hefur þá breyst
og er óviðbúið að taka á móti
slíku meindýri; oddvitar þess
standa uppi ráðalausir. Þá er það
sem ung lögreglukona tekur til
siima ráða; Spartan er tekimi úr
l’rosti og hasarinn byrjar á ný.
Mótleikari Stallones í Demo-
lition Man er Wesley Snipes,
svartur og illur.
Stallone í hlutvcrki Spartans.
Nú er það „inni“ að
sýna rass og lim
Nú vcrðum við eiginmenn og hjá-
svæfur, lriðlar og kviðmágar,
hommar og lesbíur (nei er þetta
ekki út í hött?) að gerast ötulli að
taka mótpartiim meö í bíó; það er
aldrei að vita hvað kann að gerast.
Nekt er ckki lengur kvennamál,
nú sýna þeir tippin hver um aiman
þveran vcstur í Hollywood og
ekki að vita nema þessi djörfung
hafi óvænt áhrif á kvenfólk víða
um heim.
Jcan Claude van Damme gekk
berrassaður um gólf í Hard Target
og mátti sætta sig við athuga-
scmdir um stærð, breidd og lengd.
Að vísu hefur hann gert þetta áður
að flagga bossanum - en þaö hafði
William Baldwin hins vegar ekki
gert l’yrr en í Sliver en hvað gera
ekki sumir menn til að komast í
návígi við Sharon Stone.
Þá eru það ckki tíðindi af verri
endanum að Huey Lewis hefur
ckki lcngur neinn leyndarlim, ekki
þaiuúg að skilja að haim hafi verið
höggvinn af; nei eftir því sem ég
kemst næst cr hann enn í starf-
hæfu standi en þaó er bara ekkert
lcyndó við liann lengur, að
minnsta kosti ckki fyrir þá sem
hafa séð nýjustu mynd Roberts
Altmans, Short Cuts. Og þeir eru
ennþá fieiri sem hafa fylgt í fót-
spor framantaldra og spranga
meira og minna kiæölillir um á
hvíta tjaldinu þessa dagana. Lou
Diamond Phillips missir buxurnar
niður um sig í erótíska speimu-
tryllinum, Dangerous Touch. Syl-
vester Stallone fleygir af sér tusk-
unurn í Demolition Man og Har-
vey Keitel var varla fyrr búiim að
klæða sig aflur eftir The Bad Li-
eutenant en hann snaraði sér úr
öllu á nýjan leik í The Piano - eða
var það á hinn vcginn.
Þá skal ég ekkert fullyrða urn
klæðaburð Richards Gere í Int-
ersection en þar lcikur hann eigin-
mann Sharon Stone á núlli þess
sem hann ganmar sér við Lolitu
Davidovich - en cr ekki líklegt að
hann hafi orðið að fórna einhverju
til aö komast á milli rekkjuvoð-
aima meö þeim báðum?
Mason Gamklc lcikur Dcnna.
Horft upp undir afturcndann á cngum öðrum cn Sylvester Staiionc í Demo-
I lition Man.
Vampíran Tom Cruise
Ekki var Drakúla Coppolas neitt í
líkingu við það sem ég haföi
vænst og virðist helst aó margir
bíófarar hafi veriö svipaðrar
skoðunar. Vampíran, þessi blóð-
suga miðaldaima, hefur þó ekki
yfirgefið hvíta tjaldið. Nú standa
yfir tökur á nýjustu kvikmynd
Toms Cruise og aldrei þessu vant
er haim ekki í hlutverki góöa gæj-
ans, þvert á móti er hann hættu-
legur öllum möimum og drekkur
blóð eins og við vatn. Að vísu má
segja að góðar taugar fnmist í per-
sónu Cruise; haim hefur ekki valið
Tom Cruisc.
sér hlutskipti sitt af fúsum og
frjálsum vilja. Hann reynir að
berjast gegn örlögum sínum en má
ekki viö ofureflinu, hinu óskiljan-
lega scm engum er gefið að sigra.
A hverri nóttu hlýtur hann að leita
út í myrkrið eftir fórnarlambi.
Kvikmyndin byggir á metsölu-
bók Anne Rice, Interview With
The Vampire, sem er hluti stærri
ritraóar, Vampire Chronicles.
Meðal mótleikara Cruise cru Brad
Pitt og River Phoeiúx. Sögusviðið
er New Orleans árið 1790.
Sportan (Snipcs) tckurá fangavörðum sínum.
Denni dæmalausi
Það eru bráðum 40 ár síðan teikn-
ariim Hank Ketcham skapaði lít-
inn dreng er átti eftir að fara sigur-
för um heiminn. Þetta var þó eng-
iim venjulegur getnaöur og engiim
venjulegur drengur. A íslensku
fékk haim nafnið Denni dæma-
lausi en hefði kaimski frekar átt að
skírast friðarspillir eða ógnvaldur.
Að miimsta kosti var haim það í
augum nágraima síns, eldri herra-
manns er mátti ekki vainm sitt
Mason og Matthau.
vita. Prakkarinn Deimi lagði sig í
líma við að hrekkja öldunginn og
mér er það í barnsnúmú hvað
gamlingiim fór oft illa út úr þeim
viðskiptum. Mér cr hins vegar al-
veg lífsins ómögulegt að rifja upp
hvort ég sá þættina um Deima í
ríkissjónvarpinu okkar eða hvort
þetta var það snemma að Kaiúnn
réð hér ríkjum í þeim cfnum.
Hvað sem því líður þá er Deimi nú
konúim á hvíta tjaldið, leikiim af
Mason Gamble en Walter Matt-
hau leikur gamlingjann. Og það
segja þeir sem þegar hafa séð
myndina að væri persóna Deima
ekki svo gömul sem raun lx;r vitni
þá mætti halda að höfundur henn-
ar hefði beiiúínis skáldað gaml-
ingjann með Matthau í huga.
Framleiðandi myndarinnar um
Denna dæmalausa er ekki alveg
óþekktur í bransanum, nefiúlega
John Hughes, en haim á að baki
heimsþekktar kvikmyndir eins og
Home Alonc og fleiri ekki alveg
jafnþekktar.
ERT ÞU
ÁSKRIFANDI ?
Tímaritíb EIÐFAXI kemur út
mánabarlega uppfullt af fréttum og
fródleik um hesta og hestamennsku.
Með pví ab gerast áskrifandi ab
EIÐFAXA
fylgist pú best meb pvi hvab er ab gerast
í hinum lifandi og fjölbreytilega heimi
hestamennskunnar hverju sinni.
Eldri árgangar fáanlegie
TIMARIT HESTAMANNA
Ármúla 38- 108 Reykjavík
Sími: 91 -685316