Dagur - 06.11.1993, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 6. nóvember 1993
SKÓLALÍF
Fróðleíksmolar
VMA!
áaúst árió 1981, af þáverandi menn
8 i ^rr-A Inevari Gíslasym. Skol-
rnnvÍSieg/stofnaaurl.jtaí^
1984ogvarsetturí9rsta*mn^n ;
sss-íTgiss
n0gn"stó,aÞe6asam.alsU3>
nemandi sem leggur stund á boknams-
‘Sló^tsTS enn
vfirog' er nú unnið unnið við frágang a
D-álmu. Að henni
kvædirviðbyggingusko,ansv^_er
leea stöðvast td arsin ’ ,
ÍL að bví að hefja framkvæmdir að
n«iu og átó Ijúka við skólabygg'mguna
árið 2000. Skólameistan er Bemha
Hínaldsson. Aðstoðarskó,ametstan er
Haukur Jónsson.
Verk-
mennta-
skólinn
á Akur-
eyri
Málverk
Eins og áður hefur komið fram er
Málverk málfundafélag VMA og
er markmið félagsins að göfga
hina fornfrægu mælsku- og rök-
ræöulist. Ræðunámskeió eru hald-
in á hverju ári þar sem nemendum
gefst kostur á því að kynnast und-
irstöðuatriðum í uppbyggingu
máls og réttri framkomu. I þessari
list eru svo haldnar keppnir á vor-
önn á milli bekkja. Þó er stærsti
atburðurinn í starfsemi Málverks
þáttaka í mælsku- og rökræðu-
keppni framhaldsskólanna á Is-
landi, eða MORFIS. Hin seinni ár
hefur Verkmenntaskólinn sent lið
til þeirrar keppni og staðið sig
meö ágætum. I ár hefur markið
verið sett hátt. Baráttan hófst í
Hafnarfirói, þar sem nemendur
Flensborgarskóla þurftu að lúta í
gras fyrir harðskeyttu og rökföstu
liði VMA sem var dyggilega stutt
af samnemendum sínum. Bragi
Guðmundsson, Ingvar Gíslason
og Bjarmi Guðlaugsson skipuðu
lið Verkmenntaskólans undir ör-
uggri liðsstjórn Ulfars Hauksson-
ar. Þegar þessi oró eru lesin hefur
þegar verið dregió í aðra umferó
og ríkir mikill áhugi fyrir þeirri
keppni. Hvort sem um sigur eóa
tap verður að ræða er öruggt að
strákarnir munu gera sitt besta og
verða skólanum sínum til sóma.
Linsan
Ljósmyndaklúbburinn Linsan sér-
hæfir sig í framköllun og stækkun
svart/hvítra ljósmynda. Klúbbur-
inn er vel tækjum búinn og hefur
húsnæói í kjallara hússtjórnarsviðs
VMA. Þetta er virkur klúbbur í fé-
lagslífí nemenda, en í honum
starfa um þrjátíu félagsmenn.
Myndirnar sem fylgja greininni
eru teknar og framkallaðar af
klúbbmeðlimum.
3. bekkur VMA
Eins og í öðrum skólum er árlega
farið í útskriftarferó og í VMA er
það 3. bekkur sem fer um páska ár
hvert og er áætlað að ferðin í ár
kosti um 5 milljónir. Til aó standa
straurn af kostnaði eru settar á fót
hinar ýmsu nefndir sem eiga aó
sjá um fjáröflun með hinum og
þessum hætti. T.d. starfrækir cin
nefndin sjoppu í skólanum sem
sér nemendum fyrir ýmsu góðgæti
á vægu verði. Önnur nefndin gef-
ur út símaskrá Verkmenntaskólans
og fást þar tekjur af auglýsingum.
Síðast en ekki síst er sérstök fjár-
öflunarnefnd og hefur hún til
dæmis selt rósir hér í bæ um helg-
ar, staöió fyrir kaffisölu o.fl. o.fl.
Nú lesandi góður ef þú ert með
eitthvað verkefni sem þú þarft að
láta vinna fyrir þig, ekki hika og
hafðu samband við Stefán Hösk-
uldsson, formann 3. bekkjar, á
Nemendaráösskrifstofunni í síma
26817.
Róðrarfélagið
Hvað er til ráóa þegar allar heims-
ins dyr viróast luktar og heimsins
eynrd og volæöi blasir hvarvctna
við? Annars vegar er hægt að lara
auðveldustu leióina og láta alla
slíka neikvæóni fram hjá sér fara í
von um aó hagur annarra rnuni
einn góöan veóurdag vænkast af
sjálfu sér. Hins vegar er hægt að
gera eitthvað róttækara, hætta sér
Við störf í málmiðnaði.
Félagslíf
Allt frá stofnun skólans hefur ver-
ið stundað allnokkurt félagslíf
innan veggja VMA sem farið hef-
ur vaxandi ár frá ári og er nú svo
komið að þar eru starfrækt fimm-
tán félög og klúbbar af ýmsurn
stærðum og gerðum. Nemendafé-
lag dagskólanema heitir Þórduna
og sitja fimm aðilar í stjórn fé-
lagsins sem kosnir eru af nemend-
um skólans á vorönn. Öll þau fé-
lög eóa klúbbar sem eru starfrækt
af nemendum dagskóla, heyra
undir nemendafélagiö Þórdunu.
Nemendafélag Öldungadeildar
heitir Hyltingur og sitja fimm að-
ilar í stjórn félagsins. Tilgangur
félagsins er að vinna að vexti og
Todmobile í Gryfjunni,
viðgangi félagslífs öldungadeild-
arnema og kynningu þeirra inn-
byrðis, vera fulltrúi og tengiliður
öldunga gagnvart skólayfirvöld-
um, nemendafélagi dagskóla og
standa vörð um hagsmuni öld-
unga.
A vorönn ársins 1988 voru í
fyrsta skipti haldnir „Opnir dag-
ar". Þeir geröu nemendum kleift
að leggja nárnið á hilluna í 3-4
daga og þess í stað var boóiö upp
á dagskrá senr innihélt hæfilega
blöndu af skemmti- og fræðslu-
efni, í lormi fyrirlestra, kvik-
myndásýninga, útreiðartúra o.fl. A
síóastliðnu starfsári var sú ákvörð-
un tekin aö hafa ekki Opna daga
það árió og þess í staö tókst sam-
starf við Menntaskólann um aó
halda „Listadaga VMA og MA“,
sem starfræktir voru með svipuóu
sniði og Opnir dagar, og þóttu þeir
takast prýðilega.
Eins og áður sagói hefur fé-
lagslífíð í skólanum verið fjöl-
breytt sem þakka má hinu öfluga
klúbbastarfi. Locos er leikklúbbur
skólans (hét áður Stælt og Stolið)
og hefur í gegnum tíðina sýnt
mörg mjög svo frambærileg vcrk
eins og Góða sálin í Sesúan
(1990), Börn Mánans (1991),
Vorió kallar (1992). Mállundarfé-
lag skólans, Málverk, hefur unnið
nokkra glæsta sigra á sínum ferli
(nánari umfjöllun annars staóar á
síöunni). Róðrarfélagið stendur
m.a. fyrir róðrarkeppni síóasta
kennsludag fyrir próf á vorönn,
þar sem lið VMA og MA etja
kappi saman._ Félag áhugamanna
um tónlist, FÁT, helur haldió tón-
lcika nreó þekktum og minna
þekktum hljómsveitum og tónlist-
armönnum á ári hverju, eins og
Sykurmolununr (1992) og Jet
Black Joe (1992). FÁT hefur