Dagur - 06.11.1993, Síða 24
Lögreglan á Akureyri:
Handtaka vegna fuglamálsins
Einn úr áhöfn togarans Stak-
fells ÞH-360 var handtekinn af
lögreglunni í Kristiansand í
Noregi sl. fimmtudag, grunað-
ur um að hafa ætlað að smygla
48 dauðum fuglum til Bret-
lands. Togarinn kom við í Nor-
egi til áhafnaskipta áður en
haldið vrði áfram til Hull í
Bretlandi í sölutúr með 220
tonn af frystum afurðum, afla-
verðmaeti 65 milljónir króna.
„Það iöru tveir menn og tvær
konur með flugvél frá Akureyri
til Noregs og með þeim var senl
fullt af pökkum, m.a. frá útgerð-
inni. en þessum pakka með fugl-
unum hefur mcð einhverjum
hætti verið komið með en hann
var stílaður á Stakfelliö. Rann-
sóknarlögreglan á Akureyri er að
kanna uppruna þessa fugla-
pakka,“ segir Magnús Helgason,
útgerðarstjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf.
Rannsóknarlögreglan handtók
einn mann á föstudagsmorgun
vegna málsins og var hann í ylir-
heyrslu er blaðið fór í prentun. í
pakkanum voru nt.a. þrfr fálkar,
straumendur og himbrimar, sem
allt eru friðaðar fuglategundir.
GG
Dalvík:
Gott atvinnuástand
og bjartsýni ríkjandi
Síðasta vinnudag októbermán-
aðar voru 7 manns á atvinnu-
leysisskrá á Dalvík, 4 konur og 3
karlar. Þetta er svipaður fjöldi
og undanfarna mánuði en allt
frá því í byrjun sumars hafa 4-
10 verið á skrá og því varla
hægt að tala um atvinnuleysi á
Dalvík.
Atvinnumiðlun Dalvíkur er á
skrifstofu Einingar og þar fengust
þær upplýsingar að raunverulegt
atvinnuleysi þekktist varla á Dal-
vík og það fólk sem kæmi inn á
skrá fengi yfirleitt eitthvað að
gera. Horfumar eru góðar og fólk
því bjartsýnl.
Samtals hafa 14 manns fengið
vinnu við átaksverkefni frá því í
sumar og eru 2 í slíku verkefni nú.
Starfsmaður Einingar sagði að
það vantaði konur sem treystu sér
til að vinna í frystihúsinu og
einnig hefði verið óskað eftir karl-
manni í saltfiskverkun þannig að
óhætt væri að segja að atvinnu-
leysi væri ekki vandamál á Dal-
vík. SS
Norðlendingar geta haldið
áfram að þökuleggja um
helgina en á þriðjudag er
von á breytingum, norðvest-
an strekkingi og éljagangi.
Spáin fyrir helgina og
mánudag hljóðar upp á suð-
vestan kalda, úrkoma verð-
ur fyrir sunnan og svalt, en
þurrt og um 5 stiga hiti
norðanlands. Á þriðjudag
kólnartil muna.
HELGARVEÐRIÐ
Mynd: Robyn
Húsavík:
Grunur ura rjúpna-
veiðar við húsveggi
„Ég hef heyrt að það hafi verið
skotnar rjúpur hérna, þær étn-
ar og þótt góðar,“ sagði Tryggvi
Guðmundsson, verkstæðiseig-
andi í Haukamýri, aðspurður
um sögusagnir um rjúpnaveiðar
í iðnaðarhverfinu syðst í Húsa-
víkurbæ.
Nýlega auglýstu lóðareigendur
í Haukamýri bann við rjúpnaveið-
um, af gefnu lilefni. Ðagur hefur
haft samband við nokkur fyrirtæki
á svæðinu og viðmælendur kann-
ast allir við að hafa heyrt sögur af
skotveiðum milli fyrirtækjanna þó
þeir vilji ekki staðfesta neitt þar
um. Lögregla kannást ekki við að
hafa hcyrt af slíkum veiðum og
engin kæra hefur borist.
Tryggvi sagði að mikið hefði
verið af rjúpu við húsin fyrr í
haust, tvö hreiður voru á svæðinu
og hann sá um 25 fugla á vappi.
Starfsmaður Bifreiðaskoðunar Is-
lands sagði einnig að mikið hefði
verið af rjúpu á svæðinu, en þær
væru horfnar núna. Hann hefði oft
þurft að reka hjarðir af rjúpum frá
dyrum skoðunarstöðvarinnar.
„Þetta er furðuleg menning,"
sagði Atli Vigfússon, formaður
Rjúpnaverndarfélagsins, en hann
hefur heyrt sögusagnir að skot-
veiðum milli húsa í Haukanrýri.
IM
Sendum vinum
og vandamönnum
erlendis
jólahangi-
kjötið frá
KEA
Byggðavegi 98
Opiðtilkl. 22 alla daga
Vökviin eftir vœnan túr.
Sameiningarfundir á Norðurlandi vestra:
Málefnalegir en ekki
hallelújasamkomur
Björn Sigurbjörnsson, formað-
ur umdæmisnefndar um sam-
einingu sveitarfélaga á Norður-
landi vestra, segist ánægður
með hvernig til hafi tekist með
kynningarfundi umdæmis-
nefndar um sameiningarmálið,
en síðasti fundurinn var á Sauð-
árkróki sl. flmmtudagskvöld.
Á fundinn á Króknum mættu á
milli 40 og 50 manns, en hafa
verður í huga að fundinum var út-
varpað og það hefur að mati
Björns dregið úr fundarsókn.
Þrátt fyrir að kynningarfundum
á vegum umdæmisnefndar sé lok-
ið, þá er kynningarfundum um
sameiningarmálið síður en svo
lokið. Björn sagði það afar
ánægjulegt að sveitarstjórnir
margra sveitarfélaga hafi óskað
eftir „lókal“ kynningarfundum og
á þá myndu fulllrúar umdæmis-
nefndar mæta. Einn slíkur fundur
var á Hofsósi í gærkvöld og fram-
undan eru fundir í Varmahlíð,
Viðvíkursveit, Skefilsstaðahreppi,
Lýtingsstaðahreppi, Þorkelshóls-
hreppi, Fremri-Tprfustaðahreppj
og Fljólahreppi.
„Á þessum kynningarfundum
hafa mcnn auðvitað talað bæði
með og á móti, cnda bjóst maður
ekkert við neinum hallelújasám-
komum." óþh
Ekki 15% - Ekki 20%
heldur
25%
afsláttur af
umhverfisvænni
innimálnmsu
Tölvublöndum þúsundir lita
Gæði - Góð þjónusta
KAUPLAND HF.
Kaupangi v/ Mýrarveg • 600 Akureyri
Sími 96-23565 • Fax 96-11829