Dagur - 21.01.1995, Side 10

Dagur - 21.01.1995, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 21. janúar 1995 100 ár liðin frá fæðingu Davíðs Stefánssonar í kvöld verður frumsýnt nýtt íslenskt leikrit, Á svörtum Qöðrum - úr Ijóð- um Davíðs Stefánssonar, eftir Erling Sigurðarson frá Grænavatni í Mý- vatnssveit, kennara í Menntaskólanum og Háskólanum á Akureyri. Leikritið er unnið fyrir Leikfélag Akureyrar í tilefni því að 100 ár eru liðin frá fæðingu skáldsins frá Fagraskógi en Davíð var fæddur 21. janúar árið 1895 en hann lést árið 1964. Það er sannarlega ekki á hverjum degi sem nýtt íslenskt leikrit er frum- sýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri en hvernig bar það til að Erlingur tók að sér að skrifa leikrit í tilefni af aldarafmæli Davíðs Stefánssonar? „Ég var búinn aö velta því fyrir mér í nokkur ár hvort ekki mætti búa ljóð Davíós til flutnings á leiksviöi. En þaö sem hratt þessu verki af stað lofs því að þaó varð til þess að ég losnaói úr mínu venjubundna fari og gaf mér tíma til að hugleiða ýmislegt. Þetta verk er því á vissan hátt afleið- ansi heitt á köflum. Ég var þó aldrei svo þjakaður að mér væri innanbrjósts eins og Davíð þegar hann orti eftir Ítalíudvöl: Það er mín köllun að kveða í klakans paradís. “ - Leikritið heitir, Á svörtum fjöðrum, með vísun til fyrstu ljóða- bókar Davíðs. Er einhver sérstök ástæða fyrir því? „Mikió af kveðskap Davíðs höfð- ar beint til fólks, sérstaklega ljóðin í Svörtum fjöórum, enda eru þau uppi- staðan í leikritinu en í því eru þó ljóð úr öllum bókum hans. Á svörtum fjöðrum kom út árið 1919. Þá var Davíð 24 ára og á næsta áratug komu út þrjár bækur til vióbótar og þessar fyrstu bækur eru fyrirferðarmestar í leikritinu. Ljóðin í þeim eru svo einlæg, skír- skotun þeirra er svo bein og í þeim býr líf, þróttur og ögrun. Hann var - Þú hefur þá raðað Ijóðum hans saman eins og púsluspili? „Já og nei, púsluspil er brotió upp til að raða saman sömu myndinni aft- ur og aftur. Ég er vissulega aó brjóta upp en leitast við að setja stykkin saman á nýjan hátt. Ég efast ekki um að það veki spumingar og ótta við það hvort verið sé að vinna spjöll á ljóðum skáldsins en þaó er sannarlega ekki tilgangurinn. Ætlun mín er að koma ljóðunum á framfæri viö nýja kynslóð með nýjum hætti. Ljóð lifa ekki nema í vitund fólks, þau lifa ekki í lokuðum bókum. En það er nauósynlegt að skilja á milli skáldsins og mannsins. Maóur- inn Davíð er dáinn fyrir rúmum þrjá- tíu árum og af honum gengu ýmsar 99Á svörtum Qöðrum ílaug Kann háttu - Kynni mín af skáldinu - spjallað við Erling Sigurðarson í tilefni af frumsýningu á leikritinu Á svörtum Qöðrum A Erlingur „með Davíð“ í sumaryl Sváfalands. lang heitastur í sínum fyrstu bókum. Síðar kveður oft vió töluverðan beiskjutón og ljóðin verða sögulegri. Ég hafói það alla tíð að markmiði að þetta verk væri orð skáldsins og skrifa raunar minnst af leikritinu sjálf- ur. Þau orð sem ég bæti inn í eru ör- stuttir tengikaflar. Ljóðin sem Davíó orti í fyrstu persónu eru uppistaða verksins. Hann orti mikió í fyrstu per- sónu, lagói fólki orð í munn, bæði körlum og konum, og margt af því þótti ögrandi eins og þessar ljóðlínur: Ég hefsjálfsagt virt oflítils marga virðulega dóma verið mér oftar til skammar en sóma því hœttulegtfinnst mörgum að hýsa mig sem gest... Fullum bikar ann ég enfyrirlít þann tóma, fordœmi það stundum, sem aðrir tigna mest... ^ Skáldið er á sviðinu að baki en Erlingur með handritið í höndunum á ieikhúsbekknum. var að í fyrra haust skrafaðist þetta upp á milli okkar Þráins Karlssonar leikara og Þráinn sagði Viðari Egg- ertssyni leikhússtjóra frá þessum hug- myndum mínum. Viðar fékk áhuga á málinu og hafði í framhaldi af því samband við mig og á vordögum varð úr aó ég tók þetta verkefni að mér.“ - Hefur þú fengist við eitthvað þessu líkt áður? „Nei aldrei, það er nú það sem ger- ir þetta svo ögrandi og skemmtilegt. Þaó má eflaust virða mér það til stæri- lætis aó reyna mig á slíku en löngunin var fyrir hendi. Löngunin til aó gera mitt til að koma á framfæri því ólg- andi lífi sem í Ijóðum Davíðs býr en hefur leynst allt of mörgum upp á síð- kastið. Enda hefur verið óþægilega mikil þögn um nafn hans ef þaó er haft í huga sem hann orti sjálfur í sinni fyrstu bók. Þá verður eilífþögn um minning mína um mínar ástir Ijóð og strengjaspil. Það var ekki langur tími til stefnu því ég varó að skila handritinu í haust. Ég byggói auðvitað á ákveðnum grunni þar sem ég þekkti til ljóða Davíðs en samt sem áður varð ég að lesa mig enn og aftur inn í þennan heim ljóöa hans.“ - Á svörtum fjöðrum var þá skrifað í sumar? „Já, sumarið átti ég meó Davíð suður í Schwaben í Þýskalandi, í ná- grenni Stuttgart, en þar dvaldi ég ásamt fjölskyldu minni um nokkurra vikna skeió. Við höfóum íbúðarskipti við þýsk hjón. Þama vorum viö á gömlum slóðum því að fyrir þremur árum dvöldum við í Þýskalandi í eitt ár í orlofi. Ef til vill má rekja verkið, Á svörtum fjöðrum, óbeint til þess or- ing af því að rjúfa sinn vanahring. Ég held að þaó hafi verið nauðsyn- legt fyrir mig að komast burt frá dag- legum erli hér á heimavelli til að geta unnið að þessu verkefni án truflunar enda var skammur tími til stefnu. Vikumar meðal Sváfa áttu að verða sumarfrí meó fjölskyldunni og voru það vissulega en með nokkmm öðrum hætti en upphaflega var ætlað þar scm Davíð var meö í för. Ég sat meó „Davíð“ úti á svölum í 30-35 stiga hita og það var vel vió hæfi því Davíð orti vissulega af hita en sá hiti kom að innan og því var mér sögur. Nú fækkar þeim sem muna hann sem persónu en svo framarlega sem verk hans eiga aðgang að fólki þá lifir skáldið Davíð. Þaó gerist hins vegar ekki af sjálfu sér til þess þarf að opna bækumar.“ - Það er skáldið sem þú ætlar að kynna leikhúsgestum? „Já, eða öllu heldur lofa því aó kynna sig í gegnum ljóðin, þau em svo heit og tær og í þeim er iðandi líf, hvort sem skáldið er ástfangið... Að ungur sveinn og djarfur hjá ástmey sinni rekki er ekki nema sjálfsagt efþannig stendur á... Þaðfinnst mér jafn eðlilegt og þyrstur maður drekki... reitt... Nú skeyti ég hvorki um skömm né heiður, Nú skora ég drottin á hólm. Nú vil ég glíma. Nú er ég reiður. eða vonlaust. Krunk, krunk, krá. Sumum hvíla þau álög á, aldrei fögrum tóni að ná, þó að þeir eigi enga þrá aðra en þá að syngja. Krunk, krunk, krá. í kuflinum svarta hann krunka má uns krummahjartað brestur. Davíð er ögrandi skáld, til dæmis þegar hann mælir fyrir munn kvenna. Okkur er ef til vill óskiljanlegt að þaó hafi verið mikil ögmn á fjórða áratug aldarinnar að leggja konu þessi orð í munn... í nótt gekk ég nakin til hvílu og naut þess að vera til. eftir að hafa áður sagt: Það er eitthvað sem logar í brjósti mér... Þá vaknar hjá mér hin villta þrá. Öll veröldin fer að kalla... og nóttin hún skilur alla... Hvað ætli hefói verið álitið og sagt

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.