Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Blaðsíða 6
Fréttir Slysagildra í grjótvamargarði við Faxaskjól: Níu ára drengur fastur í djúpri og þröngri gjótu - staðurinn vinsælt leiksvæði bama og fleiri gj ótur í flæðarmálinu „Drengurinn virtist alveg lokaður niðri í þessari gjótu. Það virtist úti- lokað að ná honum upp. Lögreglan, sem kom þarna, kallaði til hans og baö hann að reyna að koma upp á sama stað og hann fór niöur en hann kvaðst alveg lokaður inni og ekki komast upp. Eftir talsverðan tíma tókst lögreglunni á óskiljanlegan hátt að smokra piltinum upp um þetta litla op,“ sagði sjónarvottur að því þegar 9 ára piltur festist í gjótu sem varö til þegar gijótvamargarður var hlaðinn utan um dælustöð Reykjavíkurborgar við Faxaskjól. Við vettvangskönnun kom í ljós þröng gjóta í gijótvarnargarðinum við norðurhlið stöðvarinnar. Gjótan er um þriggja metra djúp og stallur í henni á um tveggja metra dýpi. Lít- 0 börn eru oft að leik þarna og geta þau hæglega fallið niður í hana eða fest sig í henni ef þau skríða niður í hana. Umrædd gjóta er ofan sjávar- máls en við nánari skoðun komu í ljós fleiri gjótur í fjöruborðinu og ef barn festist í þeim þyrfti ekki að spyija að leikslokum. „Þaö hefur áður verið kvartað und- an þessu og það er nauðsynlegt að ráða bót á þessu því þetta er lífs- hættulegt. Þarna eru börn að leik og þetta er ekki í fyrsta skipti sem við erum kallaðir til aðstoðar þarna,“ sagði Gylfl Jónsson lögreglufulltrúi í samtah við DV. Guðbjartur. Sigfússon, yfirverk- fræðingur hjá gatnamálastjóra, sagði í samtali við DV að gijótvarnargarð- urinn væri nýlegur og hann hefði verið hlaðinn undir eftirliti. Þess þetta. Hann sagðist ætla að kanna koma málum þannig fyrir að hætta vegna væri erfiðara en ella að skilja málið og að sjálfsögðu yrði reynt að stafaöi ekki af. piltinum upp um þetta litla op,“ sagði sjónarvottur að því þegar 9 ára drengur festist í gjótu i grjótgarði sem umlykur dælustöð Reykjavíkur- borgar við Faxaskjól. Á myndinni sést hve gjótan er djúp og þröng en blaðamaður DV seig niður í hana og átti í miklum vandræðum með að komast upp aftur. Á innfelldu myndinni sést dælustöðin og umhverfi hennar. DV-myndirSveinn Stjórn Félags islenskra bókaútgefenda og framkvæmdastjóri, f.v.: Bragi Þórðarson, Hörpuútgáfunni, Arnbjörn Kristinsson, Setbergi, Halldór Guð- mundsson, Máli og menningu, Jóhann Páll Valdimarsson, Foriaginu, Frið- rik Friðriksson, Almenna bókafélaginu, Jóhannes Oliversson, Skuggsjá, Anna Sverrisdóttir, Vöku-Helgafelli, Ásgeir Guðmundsson, Námsgagna- stofnun, og Vilborg Harðardóttir framkvæmdastjóri. DV-mynd ÞÖK Útlit fyrir samdrátt og verðhækkun í bókaútgáfu: Farið verður varlega í allar verðhækkanir - segir formaður Felags íslenskra bókaútgefenda „Það kom fram eindreginn vilji allra bókaútgefenda að stilla bóka- verði í hóf á komandi vertíð. Þó ein- hver hækkun eigi sér stað verður farið mjög varlega í allar verðhækk- anir,“ sagði Jóhann Páll Valdimars- son, formaður Félags íslenskra bó- kaútgefenda, við DV. Ný stjórn félags bókaútgefenda hélt sinn fyrsta fund á fimmtudag. Á fundinum var samdráttur í bókaút- gáfu ekki ræddur sérstaklega en ef marka má hljóðið í mönnum virtist heldur vera útlit fyrir samdrátt en hitt. „Á næstunni mun félagið snúa sér til allra bókaútgefenda til að kanna umfang Bókatíöinda. Fyrst eftir að svör hafa fengist getum við fullyrt eitthvað um samdrátt og þá hversu mikill hann verður.“ Varðandi verðhækkanirnar sagði Jóhann Páll að útgefendur gætu ekki tekið virðisaukaskattinn á sig aö fullu annað árið í röð, auk þess sem verð á pappír hefði hækkaö erlendis frá. Þess bæri þó að gæta að fram- leiðsluverð bóka væri mismunandi og því misjafnt hvaða bækur hækk- uðu. íþróttarásin Eurosport dottin út: Næst einungis með mjög stórum diskum íþróttarásin Eurosport næst ekki lengur með notkun hefðbundinna gervihnattamóttakara, þ.e. diskum sem eru.1,2 til 3 metrar í þvermál. Til að ná stöðinni á eigin vegum þarf nú mun stærri og dýrari disk. Sá möguleiki er svo opinn sem fyrr að gerast áskrifendur að Fjölvarpinu sem sendir Eurosport út. Hjá fyrirtækinu Elnet, sem hefur sérhæft sig í gervihnattasjónvarpi, örbylgjusendingum og tengdum bún- aði, fengust þær upplýsingar að Eurosport væri nú sent frá öðrum gervihnetti, Astra C í stað Astra A áður. Þótt báðir hnettirnir séu á sömu breiddargráðu er útilokað að ná Europsortsendingum Astra C þar sem sendigeisla hans er beint að Suð- ur-Evrópu. Eurosport er einnig sent frá gervi- hnöttunum Eutelsat 2F1 og Thor. Sá fyrrnefndi beinir geisla sínum hins vegar að austurhluta Evrópu og sá síðarnefndi sendir þröngan geisla á Skandinavíu. ísland er því úti í kuld- anum í öllum tilvikum nema notast sé við um 7 metra diska eða stærri. Milliuppgjör Granda: 103 milljóna króna hagnaður Á fyrstu sex mánuðum þessa árs varð ríflega 103 milljóna króna hagnaður af rekstri Granda hf. Það er um 52 milljóna króna meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra þegar hann nam 51 milljón. Brynj- ólfur Bjarnason forstjóri sagði við DV að þessi útkoma væri aðeins lakari en áætlanir hefðu gert ráð fyrir en væri engu að síður viðun- andi. Áætlanir Granda gera ráð fyrir að fyrirtækið skili um 200 milljóna króna hagnaði eftir þetta ár. Brynj- ólfur sagði að það ætti að nást und- ir eðlilegum kringumstæðum. Rekstrartekjur Granda fyrstu sex mánuðina voru 1850 milljónir sem er 18% aukning frá sama tíma í fyrra. Heildarskuldir eru 3,3 millj- arðar og hafa aukist um 440 millj- ónir frá áramótum. Munar þar mestu um frystitogarakaup og hlutabréfakaup í Þormóði ramma. Eigið fé Granda eftir fyrstu sex mánuðina er 1554 milljónir, þar af er hlutafé upp á rúman 1 milljarö. Markaðsvirði hlutaíjár er í kring- um 2 miUjarðar króna. MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994 Sandkom dv spila Framkvæmda- stjóri Sjallansá Akureyrihefur séðástasðutil aðbiðjastopin- tKTleuaafsök- unaráfram- komubassa- leikarahljóm- svcitarinnar Nýdönskeftir aö hljómsveitin lék þar í húsinu um verslunar- mannahelgina. Bassalcikarinn var mjög ósáttur við aö fá ekki gistíngu á hóteli en hij ómsveitin hafði fengið imii á góðu gístiheimili í bænum. Framkvæmdastjórinn segir að ástand mannsins iiafi verið þess eðlis þegar Ieið á dansleikinn að engu tauti hafi verið við hann komið og setti bassalcikarim punktinn yflr i-ið mcð því að yfirgefa sviðið löngu áður en dansleiknum átti að Ijúka og skUdi hljóinsveitina eftír óstarfhæfa. Held- ur eru þeir að vcrða, .flottir á því' poppararnir sumir, þykir manni. I ruslafötuna Þjónustuskráin 1994erheitiá símaskrásom gefinhefurver- iðútáAkur- eyriaffélags- skapþaríbæn- um. Ljóst virð- istaðhöndum hafiveriðkast- aðtilþessarar útgáfuþvítvö fyrstu símanúmerin sem sandkorns- ritari leitaði uppi í skránni reyndust vera röng. Þjónustuskráin á að gilda fyrir allt 96-svæði Pósts og síma en ekki tók betra við þegar leita átti að ákveðnu simanúmeri sem heyrir undir Kópasker. Þá kom í ljós að símanúmer á Kópaskeri voru ekki i skránni. Nú var tekin upp rannsókn- arblaðamennska og þá kom í Ijós að í skrána vantaði eínníg símanúmer á Raufarhöfn og Þórshöfn. Þetta hlj óta aö þykja undarleg vinnubrögð því ekki er vitað til annars en þessi sveit- arfélög tilheyri enn 96-svæði Pósts og síma. Og þjónustuski'áin hafnaði í ruslafótunni. Allir alkóhólistar Húsvíkingar áttutilskamms tímaíhinum mestuerfið- leikumhygðust þeírfásér áfengi. Engin áfengisútsaia varástaðnum og barinn á hót- eh bæjarins nkkiopinn nema af og til og menn oft þyrstir. í 15 ára afmælisblaði Víkurblaðsins á dögunum voru endurbirt ýmis um- mæh sem áður höiðu hirtst í blaðinu og þar sagði Snaídis Gunnlaugsdóttir (systir Hrafns) um vínsölubann á dansleikjum á Húsavík: „Mér varð á að spyrjaeinn veislugesta(Húsvíking i 7 ættliði) hvers vegna ekki væri hægtaðkaupavinábarnum. „Ertu alveg vitlaus manneskja, þá yrðu all- ir Húsvíkingar alkóhólistar," drafaöi i viðmælanda mínum um leið og hannhikstaði.“ bruggstöðin Snædisergill SigurjóniBene- diktssyni, rannlækni á . Húsavík.sem léiunhvcrju >umi hafaefiir scraðllúsavík værimesta bruggstoð norðanAlpa- ftaha.Bæjar- fuhtrúar voruekkipar hrifnir og gagnrýndu þessi ummælí Sigurjóns. Að því loknu birti Víkurblaðiö svo ummæli Maríu Krisftánsdóttur sem var óhress með gagnrýni bæjarfuh- trúanna: „Ogaðþað skuh gerast í bæ þar sem ákveðnir sýslumenn hafa jaftivel verið teknir í dýrölingatölu vegna umburðarlyndis gagnvart bruggurum finnst mér ansi skond- ið,“ sagði María. - Svona hafa þeir haft það í gegnum tíðina, Þingeying- ar. Þeir kunna að koma orðum að hlutunum og skafa ekkert utan af þeím.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.