Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
11
Sviðsljós
Nýr bíósýning-
arsalur tekinn
í notkun
Júlía Imsland, DV, Höfru
Fyrir skömmu var nýr bíósýning-
arsalur tekinn í notkun í félagsheim-
ilinu Sindrabæ. Af því tilefni bauð
bæjarstjórnin þeim sem á einn eða
annan hátt hafa lagt bíómálum stað-
arins hð að sjá myndina Bíódaga.
Áður en sýning hófst bauð Albert
Eymundsson gesti velkomna og bað
þau Áslaugu Jónsdóttur og Höskuld
Imsland að „klippa á filmuna" og
opna nýja salinn.
Það munu vera um 10 ár síðan bíó-
sýningar voru í Sindrabæ, að nokkr-
um sýningum undanskildum, en þá
voru sýningar flesta daga vikunnar
og þá oft upp í fjórar sýningar á dag.
En svo komu myndbandaleigurnar
til sögunnar og bíóferðir heyrðu sög-
unni til að sinni en nú eru allar líkur
á að bíóhúsin úti á landi séu að taka
til starfa aftur.
^índesíf
Heimilistæki
WN 802 W
Snúningshraði 500-850 sn/mín.
Stigalaus hitarofi -14 þvottakerfi
Tekur 4,5 kg.
Verð kr. 59.876,-
56.882,- stgr.
Umboðsmenn um land allt
BRÆÐURNIR
ÐJORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Aslaug Jónsdóttir og Höskuldur Imsland eru hér að opna nýja bíósýningarsalinn.
DV-mynd Ragnar
Patreksfjörður:
Fjölmennt á meira-
prófsnámskeiði
Lúövig Thorberg, DV, TáJknafirði:
Ökuskóli Sigurðar Gíslasonar var
með meiraprófsnámskeið á Patreks-
firði 4. ágúst til 3. september sl. Þátt-
takendur voru 22 og stóðust þeir all-
ir prófið með ágætum enda var vel
til allrar kennslu vandað. M.a. óku
nemendur rútu til Reykjavíkur og
aftur hingað vestur.
Fimm kennarar önnuðust undir-
búning prófsins og báru nemendur
þeim hina bestu sögu. Einnig létu
þeir góð orð falla í garð prófdómar-
anna og þeir sögðu að nemendurnir
hefðu staðið sig mjög vel.
Það hefur sem betur fer færst í
vöxt að hin ýmsu námskeið flytjist
út á landsbyggðina og er það óneitan-
lega bæði stoð og styrkur fyrir dreif-
býlinga landsins.
Þetta starfsmenntunarframtak
Ökuskóla Sigurðar Gíslasonar er til
mikillar fyrirmyndar og vonandi
verður þar framhald á.
Meiraprófsnemendur ásamt Sigurði Gíslasyni skólastjóra (l.t.v.) og prófdóm-
urum. DV-mynd Lúðvig
/?ö
NsJ Veitingastaður .
^ í miðbæ Kópavogs
g2E
Kráarhornid
Helgartílboö
Grafinn lax með hunangssósu
og hvítlauksristaðar lambakótelettur
j m/bakaðri kartöflu,
fersku grænmeti og kryddsmjöri
I aðeins 980 kr.
^ Sá stóri 390 kr.
Ómar Diðriksson skemmtir gestum til kl. 3.00.
Hamraborg 11 - sími 42166
22
zi
Halla Haraldsdóttir, listamaður
Keflavíkur 1993, opnaði mikla sýn-
ingu á gler- og málverkum sínum í
Risinu í Keflavik fyrir skömmu, að
viðstöddu miklu fjölmenni gesta.
Halla hefur haldið fjölda einkasýn-
inga og tekið þátt i samsýningum
bæði innanlands og utan en hún var
fyrsta konan sem sýndi á Kjarvals-
stöðum.
Halla var við nám og siðar við störf
á hinu virta gler- og mósaíkverk-
stæði dr. H. Oidtmanns í Þýskalandi
sem er eitt elsta og virtasta sinnar
tegundar i heiminum. Á myndinni
má sjá Höllu ásamt Friedrich Oidt-
mann en hann setti upp sýninguna
fyrir Höllu.
DV-mynd Ægir Már Kárason, DV,
BOSCH
Allt á sama stað
Handverkfæri Bílavarahlutir
Opið
laugardaga
frá kl. 10-14.
BRÆÐURNIR
C<p ORMSSON HF
Lágmúla 9 - Sími 38825
Ath. Ekið inn frá Háaleitisbraut.
Ákveðið hefur verið að lengja líf Fasteignablaðsins upp í 3 vikur í stað tveggja,
þ.e.a.s. framvegis kemur blaðið út á 3ja vikna fresti.
Fasteignablaðið verður enn hagstæðari kostur fyrir auglýsendur!
Þú sparar u.þ.b. 50-70% með því að auglýsa í Fasteignablaðinu.
Verð auglýsinga með mynd er kr. 2.358.- (m/vsk) eða kr. 786.- á viku.
Verð textaauglýsinga án mynda er aðeins kr. 374,- (m/vsk) eða kr. 125.- á viku.
Fasteignablaðið fæst á öllum betri blaðsölustöðum. Verð kr.100.-
Biddu Fasteignasalann þinn að auglýsa í Fasteignablaðinu.
Fasteignablaðið - ódýrara og lifir lengur!