Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Page 17
16
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
25-
íþróttir____________________
Opna GoHheimamótið
Opna Golfheimamótið verður
haldið hjá Golfklúbbnum Keili í
Hafharíirði á morgun. Keppnis-
fyrirkomulagið er 18 holu högg-
leikur og verða veitt verðlaun
fyrir þrjú efstu sætin. Skráning í
mótið er í golfskálanum í síma
653360.
Lalas skoraði mark
Bandaríski landsliösmaðurinn
í knattspyrnu, Alexi Lalas, sá
með geitaskeggið, skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Padova þegar
liðiö vann 1-0 sigur á Inter
Milano í itölsku bikarkeppninni
í fyrrakvöld. Þessi sigur dugði þó
skammt því Inter vann fyrri leik-
inn, 3-0, og fer áfram.
Þjálfari Toríno rekinn
Þjálfara ítalska 1. deildar liðs-
ins Torio, Rosario Ramptanti, var
í gær vikiö frá störfum.
Stoichkov og Bebeto
Búlgarski landsliðsmaðurinn
Hristo Stoichkov hjá Barcelona
og brasilíski landsliðsmaðurinn
Beberto hjá Deportivo leika sína
fyrstu leiki á keppnistímabilinu
með félögum sínum um helgina.
Stoichkov kemur úr þriggja
leikja banni og Bebeto er kominn
eftir frí sem hann tók eftír HM.
Vesturlandsmótið
Síðarí leikur Vesturlandsmóts-
ins í körfuknattleik fer fram á
Akranesi í kvöld klukkan 20.
Akranes og Skallagrímur mætast
þar en Skallagrímur vann fyrri
leikinn, 84-64, og má því tapa með
19 stigum í kvöld. Snæfell tók
ekki þáttí mótinu aö þessu sinni.
Öruggt hjá Njarðvik
Njarðvíkingar unnu öruggan
sigur á Haukum, 88-68, í Reykja-
nesmótinu í körfuknattleik í gær-
kvöldi.
ÍS vann Leikni
ÍS sigraði Leikni, 93-75, í
Reykjavíkurmótinu í körfuknatt-
leik í gærkvöldi.
Allteftirbókinni
Víkingur vann Ármann, 24-19,
Fram vann Fylki, 30-22, og KR
vann ÍR, 26-18, í Reykjavíkurmóti
kvenna í handbolta í gærkvöldi.
ÓvænttapÖrebro
íslendingahðið Örebro, sem er
efst í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu, tapaði óvænt fyrir
1. deildar hðinu Brommapojk-
ama, 2-1, í sænsku bikarkeppn-
inni í gærkvöldi.
Povlsenúrleik
Flemming Povlsen, danski
landsliðsmaöurinn hjá Dort-
mund. er með rifin krossbönd í
hné og leikur ekki knattspyrnu
næsta hálfa árið.
TBR sigraði
TBR sigraði Nadir frá Spáni,
4-3, í fyrsta leik sínum í Evrópu-
keppni félagshða i badminton
sem nú stendur yfir í Tékklandi.
TBR mætir Gautaborg frá Sví-
þjóð og Liuilin frá Búlgaríu í dag.
Styrktarleikur á ísafirði
ísfirðingar mæta Keflvíkingum
í körfuknattleik á fsafirði klukk-
an 14 á morgun en ágóöinn af
leiknum rennur til fsafjaröar-
kirkju og Egils Fjeldsted, leik-
manns KFÍ, sem nýlega slasaðist
alvarlega í bilslysi.
Leikið í Hafnarfirði
Leikur Vals og Hauka í Nissan-
deildinni í handknattleik á
sunnudagskvöldið verður leikinn
í Strandgötu í Hafnarfiröi, en
ekki á Hlíðarenda eins og til stóð.
DV DV
Meistarar Vals
í barningi
gegn nýliðunum
- sigruðu HK1 Austurbergi, 20-17
Víðir agurðsson skrifar:
íslandsmeistarar Vals lentu í meiri
barningi með nýliða HK en flestir
bjuggust við í lokaleik fyrstu umferð-
ar Nissan-dehdarinnar í handknatt-
leik sem fram fór í Austurbergi í
gærkvöldi. Valsmenn höfðu þó und-
irtökin nánast allan tímann og sigur
þeirra var ekki í teljandi hættu í
seinni hálfleik, en djúpt var á meist-
aratöktunum gegn baráttuglöðum
Kópavogsbúunum. Lokatölur urðu
20-17.
„Ég er fegnastur því að hafa sigrað
því viö höfum alltaf átt í erfiðleikum
með HK-liðið. Það spilar langar sókn-
ir, við vorum því mikiö í vörn og þaö
reynir á þolinmæðina. Okkar spila-
mennska bar líka keim af því að við
höfum æft í þröngu húsnæði að und-
anförnu og það var eins og hugsunin
væri of þröng fýrir vikið,“ sagði Þor-
björn Jensson, þjálfari Vals, við DV
eftir leikinn.
Þó Valsliðið hafi verið langt frá
sínu besta er greinilegt að þaö verður
ihsigranlegt í vetur. Það er með góða
breidd af sterkum útispilurum og
ekki amalegt að eiga Júhus Gunnars-
son að fyrst Ólafur Stefánsson er frá
fram eftir vetri. Guömundur Hrafn-
kelsson er samur við sig í markinu.
HK á án efa erfiðan vetur framund-
an en getur strítt flestum liðum. Þar
vakti ung skytta, Gunnleifur Gunn-
leifsson, mesta athygli, ásamt horna-
manninum Hjálmari Vilhjálmssyni,
og Óskar Elvar Óskarsson er mið-
punkturinn í leik liösins að vanda.
Valur - HK (11-9) 20-17
0-1, 2-3, 5-3, 8-5, 9-8, 10-9, (11-9), 13-9, 15-11, 16-13, 19-14, 20-15, 20-17.
Mörk Vals: Valgarö Th. 5, Julíus G. 5, Jón Kr. 4, Geir Sveins. 2, Dagur Sig.
2, Finnur J. 1, Frosti G. 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 12/1.
Mörk HK: Gunnleifur G. 8/3, Hjálmar V. 4, Már Þ.
2, Óskar Elvar 1, Jón Bersi 1, Alexander A. 1.
Varin skot: Hlynur Jóh. 8, Baldur Baldurss. 5/2. '
, Dómarar: Egill Már og Örn Markússynir, sæmilegir.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Guðmundur Hrafnkelsson, Val.
Jón Kristjánsson, Valsmaður, er stöðvaður af HK-ingunum Jóni Bersa Ellingsen og Eyþóri Guðjónssyni
fylgist Igor Knec, hinn tékkneski þjálfari HK, með sínum mönnum.
i leik liöanna i Austurbergi í gærkvöldi. Á litlu myndinni
DV-myndir ÞÖK
Ný bók í tilefni af 50 ára afmæli ÍBR:
íþróttir í Reykjavík
Komin er út bókin íþróttir í
Reykjavík sem íþróttabandalag
Reykjavíkur hefur gefið út í tilefni
50 ára afmæhs ÍBR sem var 31. ágúst
síðastliðinn. Höfundur bókarinnar
er Sigurður Á. Friðþjófsson, blaða-
maður, en hann var fenginn til að
vinna bókina og skrá sögu iþrótta-
hreyfingarinnar i Reykjavík og þátt
ÍBR í þeirri sögu fyrir tveimur árum.
í bókinni er saga íþróttahreyfing-
arinnar á íslandi rakin frá upphafi
til dagsins í dag. Sagt er frá frumherj-
um hreyfingarinnar, nánum tengsl-
um íþrótta við sjálfstæðisbaráttu
þjóöarinnar, hvemig einstakar
íþróttagreinar bárust til landsins,
afreksfólki á leikvangi innanlands
sem utan, grettistaki sem íjölda-
hreyfing áhugafólks lyfti þegar það
skapaði íþróttaaðstöðu í höfuðborg-
inni og bjó í haginn fyrir komandi
kynslóðir svo eitthvað sé nefnt. Þá
er fjallað um setningu íþróttalaga
árið 1940 og stofnun ÍBR í kjölfar
þeirra árið 1944. í bókinni er skrá
yfir íþróttafélög í Reykjavík frá því
að Skotfélag Reykjavikur var stofnað
1867 th dagsins í dag.
íþróttir í Reykjavík er 537 síður að
lengd og hún prýdd fjölda mynda úr
íþróttasögu Reykjavíkur. Bókin
skiptist í níu kafla, auk ávarpa borg-
arstjóra, forseta ÍSÍ og formanns ÍBR.
í ritnefnd voru Ari Guðmundsson,
formaður ÍBR, Þórður Jónsson gjald-
keri ÍBR og Sigurgeir Guðmannsson,
framkvæmdastjóri ÍBR.
Bókin kostar 6.000 krónur og mun
hún fást í stærstu bókaverslunum
Reykjavíkur auk þess sem hægt er
að nálgast hana á skrifstofu ÍBR í
Laugardal.
, v'ÞRúrnR
í REVKJAVÍK
Björgvin Sigurbergsson fær stiga-
meistaratitilinn i golfi.
Sigurpáll missti af
stigameistaratitlinum
- síöari dagurinn 1 Eyjum ógildur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Stjóm Golfsambands íslands hefur
kveðið upp þann úrskurð að síðari
dagur stigameistaramótsins, sem
fram fór í Vestmannaeyjum 4. sept-
ember, gildi ekki í stigakeppni Golf-
sambandsins og þýðir þessi ákvörð-
un það að íslandsmeistarinn Sigur-
páh Sveinsson frá Akureyri verður
af stigameistaratitlinum en hann fer
til Björgvins Sigurbergssonar, GK.
Ástæðan er sú aö veður í Vest-
mannaeyjum þennan dag var mjög
slæmt og sem dæmi um það er að
erfiðleikastuðull dagsins var ll
höggum hærri en erfiöleikastuðuU
vaUarins. Spilurum mótsins var gerð
grein fyrir því fyrirfram að 18 hol-
urnar, sem leiknar væm þennan
dag, ghtu ekki í stigameistarakeppn-
inni, en þó varð úr einhver misskUn-
ingur og gefið var út að Sigurpáll
væri stigameistari. Björgvin Sigur-
bergsson, GK, er hins vegar stiga-
hæstur karla með 348 stig, Sigurpáll
Sveinsson, GA, með 343 og Birgir
Leifur Hafþórsson, GL, þriðji með 339
stig.
í kvennaflokki hlaut Karen Sæv-
arsdóttir, GS, 271 stig, Þórdís Geirs-
dóttir, GK, 239 og Herborg Amars-
dóttir, GR, 238 stig.
spáir í leiki 18. og síðustu umferð-
ar TrópídeUdarinnar í knatt-
spymu sem fram fer á laugardag-
inn og heíjast aUir leikimir
klukkan 14.
Akranes-ÍBV 3-1
Skagamenn sýna þarna og sanna
að þeir séu verðugir Islands-
meistarar og vinna ömggan sig-
ur.
Þór-Keflavík 2-2
Því miður duga þessi úrslit
skammt fyrir Þórsara. Það er
margt sem hefur spilað inn í hjá
þeim í sumar en þeir ná sér von-
andi á strik sem fyrst.
Valur-KR 1-1
Það mun vanta marga fastamenn
í bæði hð en ungir, efnilegir og
frískir strákar fá þá að spreyta
sig og þetta gæti orðið mjög
skemmtUegur leikur.
Stjarnan-UBK 1-1
Ég hef trú á að Stjaman muni
bíta vel frá sér og þegar endan-
lega er ljóst að hðið er falUÖ spila
leikmenn Uðsins undir minni
pressu. Það kæmi mér ekki á
óvart efStjörnumenn ynnu þenn-
an leik.
Fram-FH 2-3
FH hefur haft ágætt tak á Fram
og Framararnir hafa verið í
vandræðum með vörn sína í allt
sumar en skorað mörk jafnframt.
FH vinnur nauman sigur en ekki
er ósennUegt að jafntefli verði
niðurstaðan.
Verkefni fyrir íslenska körfuboltadómara:
Helgi og Leifur
dæma Evrópuleiki
Tveir íslenskir körfuboltadómarar þeir
Helgi Bragason og Leifur S. Garðarsson,
sem báðir hafa FIBA-réttindi eða alþjóðleg
körfuboltadómararskírteini, hafa fengið
úthlutað dómaraverkefnum í Evrópu-
keppnunum í körfuknattleik.
Helgi mun dæma tvívegis í Frakklandi.
Fyrri leikurinn er 5. október og er það
viðureign Racing Basket París frá Frakk-
landi og SC Beira-Mar frá Portúgal í Evr-
ópukeppni félagsliða i karlaflokki. Daginn
eftir mun hann dæma leik US Orchies frá
Frakklandi og Fide Finanz frá Sviss í Evr-
ópukeppni bikarhafa í kvennaflokki.
Leifur mun dæma tvo leiki í Belgíu sem
báðir eru í Evrópukeppni félagshða í
karlaflokki. Fyrri leikurinn er 27. sept-
ember og viðureign belgíska liðsins Boigé-
lot og Ulken Genclik frá Tyrklandi og sá
síðari er viðureign GO Pass Pepinster frá
Belgíu og Casa San Fernandez frá Spáni
og fer hann fram daginn eftir.
Upphaflega átti Kristinn Albertsson að
dæma þessa leiki en vegna anna í starfi
átti hann ekki heimangengt.
Pétur Hrafn fyrsti
alþjóðlegi eftirlitsmaðurinn
íslendingar eignuðust á dögunum fyrsta
alþjóðega eftirhtsmanninn í körfuknatt-
leik en það er Pétur Hrafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri KKÍ. Pétur sótti nám-
skeið á Kýpur og er yngsti starfandi eftir-
litsmaðurinn í dag.
Þrjárá
HMíhálfu
maraþoni
Þrjár íslenskar frjálsíþróttakonur,
þær Martha Ernstdóttir, Anna Coss-
er og Hulda Pálsdóttir, ahar úr ÍR,
taka þátt í heimsmeistaramótinu í
hálfu maraþoni sem fram fer í Ósló
í Noregi á laugardaginn. Taka þær
þátt í sveitakeppni héimsmeistara-
mótsins auk þess sem þær keppa sem
einstaklingar.
Martha á íslandsmetið í hálfu
maraþoni 1:12,01 klst. sem hún setti
í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst.
Birgir Guðjónsson, læknir og for-
maður laga-og tækninefndar FRÍ, sér
um skipulag og eftirlit með lyfjapróf-
Martha Ernstdóttir keppir á HM í Noregi um um á mótinu fyrir hönd Alþjóða-
helgina ásamt tveimur öðrum úr ÍR. frjálsíþróttasambandsins.
______________________________________________Iþróttir
Holland-ísland í Evrópukeppni kvenna í knattspymu:
Kemst íslenska
liðiðáfram?
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Hollandi:
íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu hélt utan til Hollands í gær-
morgun þar sem þaö mun spila síð-
ari leik sinn gegn Hollendingum í
Evrópukeppni kvennalandsliða á
morgun, laugardag, í Rotterdam.
Leikurinn gegn Hollendingum er
gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska
liðið. íslensku stúlkurnar sigruðu
Hollendinga hér heima 2-1 og Grikki
3-0. Með sigri á Hollendingum
tryggja þær sér sigur í riðlinum og
leika gegn Englendingum um sæti í
úrslitakeppni Evrópukeppni
kvennalandsliða á næsta ári.
Hollendingar og Grikkir hafa leikið
báða leiki sína og sigruðu Hollend-
ingar í þeim 2-0 og 4-0. Möguleikar
íslenska liðsins eru því ekki úr sög-
unni þó svo að leikurinn gegn Hol-
lendingum tapist með minnsta mun
því meö góðum sigri gegn Grikkjum
má knýja fram sigur í riðlinum.
Leikurinn verður áreiðanlega
þungur fyrir íslenska hðiö enda er
hohenska liðið tahð vera meðal sex
bestu í Evrópu.
Mikilvægúr leikur fyrir
íslenskan kvennafótbolta
„Það er annaðhvort að duga eða
drepast gegn Hollendingum. Sá leik-
ur skiptir meira máli fyrir íslenskan
kvennafótbolta heldur en nokkur
annar hingað th. Ef viö töpum gegn
Hollendingum verðum við aö vinna
Grikkina þannig aö markatalan
verði okkur í hag. Annars er ég bjart-
sýn fyrir Hohandsleikinn, leikurinn
gegn pressuliðinu um síðustu helgi
vakti okkur og það er bara vonandi
að liðið nái úr sér þessari þreytu sem
virtist hrjá það í þeim leik.
Við ætlum okkur ekkert annað en
sigur og ef við náum öllum mann-
skapnum heilum þá er það raunhæf-
ur möguleiki og ég spái því að við
vinnum, 2-1,“ sagði Asta B. Gunn-
laugsdóttir við DV.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari tók
17 leikmenn með í ferðina eða einn
leikmann aukalega fyrir utan 16
manna hóp. Ástæðan er sú að meiðsli
hrjá nokkra leikmenn auk þess sem
Ásthildur Helgadóttir er með gult
spjald á bakinu og fái hún annað
spjald gegn Hollendingum þá verður
hún i banni gegn Grikkjum á mið-
vikudaginn.
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir er
meidd og ólíklegt er að hún verði í
byrjunarliðinu gegn Hollandi. Þá er
Sigfríður Sophusdóttir markvörður
veik en ætti að vera leikfær.
Fylgst með íslensku stúlkunum
- þjálfari Fortuna Hjörring vill annan leikmann frá íslandi
Ingibjörg Hmriksdótlir, DV, Hollandi:
Á meðal áhorfenda á Evrópuleik
Hollands og íslands í Rotterdam á
morgun verður þjálfari danska úr-
valsdeildarliösins Fortuna Hjörring.
Hann er að leita að öflugum varnar-
manni eða miðjumanni og hefur
mikinn hug á að fá einhverja af ís-
lensku landsliðsstúlkunum th hðs
við sig.
Auður Skúladóttir úr Stjörnunni
byrjar aö leika með Fortuna um
næstu mánaðamót, eins og áður hef-
ur komið fram, og þjálfarinn vill
endilega fá aðra íslenska stúlku við
hlið hennar.
„Komið ekki
með Cantona“
- mlkil spenna fyrir leik Galatasaray og Man. Utd
Manchester United og Galatasaray frá Tyrklandi leika í Evrópukeppni
meistaraliöa í knattspyrnu í Tyrklandi í næstu viku og bíöa menn eftir
leiknum með mikilli eftirvæntingu.
Ldðin drógust saman í fyrra og þá höfðu Tyrkimir betur. Eric Cantona
var í kjölfarið dæmdur í fjögurra leikja bann í Evrópukeppninni en hann
fékk óblíðar móttökur í leiknum og effir hann hjá tyrkneskum lögreglu-
þjóni sem sló th hans.
Tyrkirnir eru ævareiðir og segja það betra að
Eric Cantona verði heima við er hðin leika í
næstu viku. Svo almenn er reiöi Tyrkja i garð
Frakkans að einn af forráðamönnum tyrkneska
knattspyrnusambandsins hefur blandað sér í
umræður í fjölmiðlum um leikinn og atað Can-
tona auri með ótrúlegum svívirðingum. Tyrk-
irnir segja að Cantona hafi líthlækkað leikmenn
Galatasaray inni á leikvellinum. Þeir séu honum
bálihir og vegna framkomu hans beinist reiði
leikmanna tyrkneska hðsins nú einnig að öhu
Uði Manchester United. „Það er vissara fyrir
Manchester United að koma ekki hingaö meö Cantona imianborðs. Hann
verður í leikbanni og ég myndi ekki hafa hann með í flugvélinni hingað
ef ég væri Alex Ferguson. Ef hann kemur þá myndi ég ráðleggja honum
að vera ekki einn úti á götu innan um almenning hér í Tyrklandi," sagði
einn stuðningsmanna Galatasaray á dögunum.
Annar sagði; „Við viljum að lið sem hingað koma taki ósigri eins og
um sanna íþróttamenn sé að ræða. Eric Cantona er ekki sannur íþrótta-
maður og hreint ótrúlega rætinn knattspymumaður. Þaö hafa komið
hingað stórlið og tapað og engin vandamál skotiö upp kohinum í kjölfar-
ið. En þegar Manchester United kom hingað kom í ljós aö leikmenn liðs-
ins kunnu ekki að tapa. Og fremstur í flokki var Eric Cantona. Ég vona
að hann hafi vit á þvi aö verða eftír heima í næstu viku.“
Jankovic íslenskur?
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Mhan Jankovic, hinn öflugi serbneski knattspymumaður úr hði 2. deildar-
meistara Grindavíkur, hefur í hyggju að sækja um íslenskan ríkisborgara-
rétt. Það myndi gefa Grindvíkingum svigrúm til að fá th sín tvo erlenda leik-
menn fyrir 1. deildar keppnina á næsta ári, en samkvæmt heimhdum DV
hafa þeir hug á að styrkja hð sitt verulega.
EM í götubolta:
ísland náði
sjöunda sæti
Evrópumótið í Adidas Street-
ball, götubolta í körfuknattleik,
fór fram á dögunum í Berlín. 20
þjóðir sendu lið til keppninnar
og lék hvert hð 8 leiki.
íslenska hðið hafnaði í 7. sæti á
mótinu sem er mjög góður árang-
ur. Þjóðverjar sigruðu, Spánverj-
ar komu næstir og í þriðja sæti
varð lið Frakka. íslenska hðið
sem lék á mótinu skipuðu þeir
Helgi Guðfinnsson, Bergur Már
Emilsson og Baldvin Johnsen, en
þeir skipuðu sigurliðið á Adidas
Streetball sem fram fór í Reykja-
vík 4. júní sl.
Grantsamdivið
Orlando Magic
Horace Grant hefur skipt um
félag í NBA-deildinni í körfu-
knattleik. Grant lék síðustu árin
með Chicago Bulls en er nú geng-
inn th liðs við Shaquhle O’Neal
og félaga í Orlando Magic.
Grant lék með Ah-Star liðinu í
fyrra og er geysilega öflugur leik-
maður sem mun styrkja hð Or-
lando mikið. Fyrir flutninginn
fékk Grant um 1,4 mhljarða eða
um 470 milljónir á ári.
Vilja losna við
Trevor Francis
Gengi Sheffield Wednesday hef-
ur verið slakt í ensku knattspyrn-
unni þaö sem af er sparktíöinni
ensku og nú þegar er farið að
hitna undir afturendanum á Tre-
vor Francis framkvæmdastjóra.
í enskum fjölmiðlum hafa leik-
menn hðsins sagt að best sé fyrir
félagið að Francis fari, og það sem
fyrst. Þessir leikmenn hafa hins
vegar ekki þorað enn að ræða viö
fjölmiðla undir nafni.