Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1994, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 1994 3 Macintosh Performa 475 er öflug einkatölva, sem hentar sérlega vel hvort heldur er fyrir heimili, skóla eða fyrirtæki. Hún er næstum þrefalt öflugri en Macintosh LCIII og er því augljóslega um ótrúlega hagstætt tilboð að ræða fyrir svo öfluga tölvu. (Einnig seld sem Macintosh LC 475). Macintosh Performa 475 er með 14” hágæða Apple-litaskjá, hnappaborði, mús, 4 Mb vinnslummni og 250 Mb harðdiski. Vinnsluminni Macintosh Performa 475 má auka í allt að 36 Mb og með auknu skjáminni getur tölvan birt þúsundir lita. Nettenging er innbyggð og þannig má tengja hana við aðrar tölvur til að samnýta t.d. prentara, senda upp- lýsingar á milU tölva og vinna í sameiginlegum gögnum. Tölvunni fylgir hinn nýi Kerfishugbúnaður 7.5, ásamt íslenskri útgáfú hins margverðlaunaða forrits ClarisWorks, en það er með sex mismun- andi vinnslumögu- leikum: ritvinnslu, teiknun, málun, töflu- reikni, gagnagrunni og samskiptum. Auk þess fylgir tölvunni úrval kennslu- forrita, hjálparforrita og leikja. Nýtt skjal (S) Rltuinnsla OTeikning OMóluerk OTöflureiknir OGagnagrunnur O Samskipti W | Bréfseíni |Ehgin ▼! [Hœtta uiö) [j i lagi ]j Verð á Macintosh Performa 475 er aðeins 123.053,- kr. eða Apple-umboðið hf. Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00 Allir sem kaupa Macintosh Performa 475 fá enn fremur sérstakt afsláttartilboð á tölvunámskeið. Auk alls þessa fæst alls kyns búnaður fyrir Macintosh- tölvur, svo sem: prentarar, geisladrif, hátalarar, músa- mottur og íjölbreytt úrval leikja á tölvudiskum og geisladiskum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.