Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1994 Viðskipti Þorskur á fiskm. Fö Má Þingvísit. hlutabr. Mi Fi Fö Má Álverö erlendis $Aonn þri Mi Fi Fö Má Þri Dollarinn Þri Mi Fi Fö Má Kauph. í Nevv York Fö M á Hlutabréf hækka Þorskverð á fiskmörkuðum hefur að meðaltali verið frá 106 til 142 króna kílóið síðustu daga. Á mánudag var kílóverðið 110 krónur. Þingvísitala hlutabréfa náði sínu hæsta gildi til þessa sl. mánudag þegar hún fór í 1020 stig. Hlutabréfaverð hefur ýmist hækkað eða staðið í stað. Eins og kemur fram hér til hhð- ar á síðunni rauf álverð 2000 doh- ara múrinn í London í gærmorg- un. Á einni viku hefur verðið hækkað um 8%. Fra fimmtudegi til mánudags hækkaði gengi dohars nokkuð og ■ var 68,40 krónur á mánudag. 0,7 Sölugengi gærdagsins lá ekki fyr- 0 69 ir þegar þetta var skráð. Hlutabréfaverð í WaU Street 0,69 hækkaði á mánudag eftir stööuga 0,68 lækkun í síðustu viku. Dow Jones 0,68 stóö i 3825 stigum um miðjan dag 0.67 á mánudag. Kr. Þjóðhagsspá Gjaldeyrismála fyrir 1994: Of mikil bjartsýni - segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar Eins og kom fram í DV í gær gerir ný þjóðhagsspá Gjaldeyrismála ráð fyrir ríflega helmingi meiri hagvexti á þessu ári en spár Þjóðhagsstofnun- ar hafa gert til þessa. Gjaldeyrismál, sem Ráðgjöf og efnahagsspár hf. gefa út, birti í gær spá um 4% hagvöxt á þessu og 2% á því næsta. Þjóðhags- stofnun hefur spáð 1,9% hagvexti á þessu ári og 1,4% á næsta. Þetta má sjá nánar á meðfylgjandi grafi. „Ég hef ekki mikið um þessa spá að segja að svo stöddu. Við förum í gegnum okkar forsendur að nýju í byrjun desember eins og venja er í tengslum við afgreiðslu fjárlaga- frumvarps. Mér sýnist þessi spá Gjaldeyrismála einkennast af of miklli bjartsýni. Það bendir fátt til að hagvöxturinn á þessu ári verði svona mikill, sérsfaklega þegar litið er til þróunar innflutnings aö und- anfómu og veltu samkvæmt virðis- aukaskattsskýrslum," sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn- unar, við DV um spá Gjaldeyrismála. Þjóðhagsspá 1994-1995 Viöskiptajöfnuður 11 milljarðar 10 ; 9 8 7 6 5 4 2 " ' ÍU i B H—WB M.. i0 Gjaldeyrismál Þjóðhagsstofnun '94 '95 Cjaldeyrísmál '94 '95 Þjóðhagssl Þórður sagði hins vegar að spá Gjaldeyrismála um viðskiptajöfnuð- inn gæti orðið nærri lagi. „Það stafar af meiri tekjum af út- flutningi sjávarafurða en við höfum reiknað með. Einnig hafa þættir áhrif eins og minni aukning innflutn- ings en við spáðum," sagði Þórður. Hér eru fulltrúar þeirra þriggja einkafyrirtækja sem tilnefnd voru til Hvatningarverðlauna Gæðastjórnunarfélags íslands 1994. Frá vinstri eru Ágúst Guðmundsson frá Bakkavör, Elín Agnarsdóttir frá Hans Petersen og Þórður Sverrisson frá Eimskip. Það var síðan Hans Petersen sem fékk sjálf verðlaunin. Úr hópi ríkisfyrirtækja fékk Iðn- tæknistofnun Hvatningarverðlaunin en auk hennar voru ÁTVR, Ríkisspitalar og Skýrr tilnefnd til verðlaunanna. 2000 dollara álmúrinn rof inn Staðgreiðsluverð áls rauf 2 þúsund dollara múrinn í gærmorgun þegar verðið fór í 2009 dollara tonnið á markaði í London. Álverö er núna helmingi hærra en þaö var fyrir ári og hefur ekki verið hærra í rúm 4 ár. Sérfræðingar telja að hér sé um spákaupmennsku að ræða á álmark- aðnum þar sem birgðir séu enn tölu- veröar, eða tæpar 2 milljónir tonna. Álverð er núna komið langt upp fyr- ir þau mörk sem Atlantsál-hópurinn svokallaði setti fyrir því að reisa nýtt álver á Keilisnesi. Þá var miðað við aö heimsmarkaðsverð á áh þyrfti að vera 1800 dollarar tonnið. Léleg skipasala Lélegt verð fékkst fyrir íslenskan fisk í skipasölu í Þýskalandi í síðustu viku. Tveir togarar seldu þar afla og meöalverð þeirra beggja var 92 krón- ur kílóið. Skagfirðingur SK seldi 155 tonn fyrir 15 milljónir og Ottó N. Þorláksson RE fékk 14,6 mflljónir fyrir 167 tonn. í gámasölu í Englandi seldust 203 tonn fyrir rúmar 30 mUlj- ónir. Hlutabréfaviðskipti í síðustu viku námu 13,5 mUljónum króna og tæp- um 2 mflljónum sl. mánudag. Mest hefur verið keypt af hlutabréfum Flugleiða, Þormóðs ramma og Hluta- bréfasjóðsins. Hlutabréf nokkurra helstu félaga hefur hækkað þannig að þingvísitala hlutabréfa hefur hækkað. Vísitalan náði sögulegu há- marki á mánudag, 1020 stigum. Útflutningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf 2500 2000 1500 500 USD/ tonn 1 2009 0 N Skipasölur 200 150 100 50 Kr/ < k« A 92,18 0 N 200 150 50 Kr/ á Kg A 151,33 0 N Dollar 70 691 6.8 67 66 XjjJf 65 68,40 Kr. Á S 0 N 104 Kr. i 107,29 0 N Eimskip 4,9 4,8 4,7 4,6 Flugleiðir 1040 1020 1000 4,5 Á S 0 N 0,5 A S 980/I\ yf 960^1 w 940 1020,27 1 Á S 0 N 138 136 134 132 % 130 Á S 0 N Landsbréfmeð nýjaþjónustu Verðbréfafyrirtækið Landsbréf hf. kynnti í síðustu viku nýjung fyrir íslenska fjárfesta sem nefn- ist AlþjóðlegQárfestingaþjónusta Landsbréfa. Fjárfestum gefst núna í fyrsta sinn kostur á fjár- festingum meö möguleika á flár- festingarábyrgð fyrir einstakl- inga. Jafnframt fá íjárfestar tæki- færi til að sameina umsjón og eftirlit með allri verðbréfaeign sinni á einum stað, bæði í inn- lendum og erlendum veröbréf- um. Landsbréf bjóða núna upp á þrjú verðbréfasöfn; Grunnval, Fjölval og Framval. í Grunnvali er 80% safnsins ráðstafað í inn- lendum verðbréfum, 60% af Fjölvali fer í innlend verðbréf en í Framvali er hlutfallið komið 20% innanlands en 80% í erlend- um verðbréfasjóöum. í Framvali er mesta áhættan tekin er þar er líka von á mestu arðseminni. Verðbréfasöfnin veita aðgang að 28 veröbréfasjóöum, þar af 26 er- lendum. Fjárfestingarábyrgöin, sem er íjárfestum að kostnaðar- lausu, er veitt vegna mikilla sveiflna á erlendum verðbréfa- mörkuðum og gengisþróunar helstu gjaldtniðla gagnvart ís- lensku krónunni. Ábyrgðin tryggir aðstandendum fjárfesta verðmæti verðbréfaeignar ef hann fellur frá. Múrari kaupir matvöruverslun Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: Byggingahúsið hf. á Akranesi hefur fest kaup á einni helstu matvöruversluninni á staðnum, Skagaveri. Verslunin hafði verið til sölu um skeið og sýndu aðilar á borð við Hagkaup og Nóatún henni áhuga. Aðaleigandi Byggingahússins er Sveinn Arnar Knútsson múrarameistari. Hann segir að áfram verði rekin matvöruversl- un í Skagaveri og segist setja sér það markmið að koma rekstrin- um aftur á rétta braut. FokkerFlug- leiðaíParís- Dakarrallið Flugleiðir hafa fengið nýtt leiguverkefni fyrir Fokker 50 vél sína sem ekki hefur verið notuð í áætlunarflugi. Samningurhefur verið geröur við franskt fyrirtæki um að leigja flugvélinga með áhöfn og flugvirkja til að fylgja París-Dakar rallinu frá rásstað í París og til ýmissa landa í norð- vesturhluta Afríku allt þar til keppninni lýkur í Dakar. Frá þessu er greint i fréttabréfi Flug- leiða. Véhn fer utan milli jóla og ný- árs og fylgir rallköppunum fram yfir miðjan janúar. Tveir flug- menn, flugfreyja og flugvirki fylgja Fokkernum allan tímann. EHendarskuldir milljón á mann Alls varð 7,7 milljarða halh á þjónustujöfnuði fyrstu níu mán- uði þessa árs. Halhnn stafar eink- um af miklum vaxtagreiðslum af erlendum skuldum þjóðarinnar sem námu um 230 milljörðum króna í lok september sl. Það ger- ir tæp milljón í skuld á hvem ein- stakling. Langtímaskuldir þjóð- arinnar erlendis námu tæpum 260 milljörðum í septemberlok. Það dró úr þjónustuhallanum að tekjur af erlendum ferða- mönnum og Vamarliöinu hafa aukist frá fyrri hluta ársins. Far- gjaldatekjur jukust í tákt við fjölgun feröamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.