Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1994, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
Framhaldsaðalfundur
Lögmannafélags íslands
Fimmtudaginn 8. desember 1994, kl. 17.00, verður haldinn
framhaldsaðalfundur Lögmannafélags Islands í stofu 101
í Lögbergi, Háskóla islands.
Dagskrá:
1. Endurskipulagning á húsnæði félagsins að Álftamýri 9.
2. Önnur mál.
Stjórn L.M.F.Í.
Ob
FJÁRFESTINGARFÉIAG
ÍSLANDS HF.
Aðalfundur/hluthafafundur
Aðalfundur/hluthafafundur Fjárfestingarfélags íslands
hf. árið 1994 verður haldinn að Hótel Sögu, A-sal,
fimmtudaginn 15. desember nk. kl. 17.00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf skv. 1., 2., 3., 6., 7. og 8. tl. 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um samruna félaganna Fjárfestingarfélags
íslands hf., Takmarks hf. og Féfangs hf.
í framhaldi af samþykkt skv. 2. dagskrárlið fari fram
kjör stjórnar hins sameinaða félags og kosning endur-
skoðanda.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á fundinum,
skulu vera komnar skriílega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir fundardag. Fundargögn
félagsins verða afhent á skrifstofu Fjárfestingarfélags-
ins að Lágmúla 7, 5. hæð, Reykjavík, þrjá síðustu
daga fyrir aðalfund og á fundardegi.
Stjórnin
BÆKUR
///////////////////////////////
AUKABLAÐ
BÆKUR
Miðvikudaginn 14. desember nk. kemur út Bókahandbók
DV með upplýsingum um þær bækur sem gefnar eru út
fyrir jólin'.
í bókahandbókinni verða birtar allar tilkynningar um nýút-
komnar bækur ásamt mynd af bókarkápu. Birting þessi
er útgefendum að kostnaðarlausu.
Æskilegt er að þeir sem enn hafa ekki sent á ritstjórn
nýútkomna bók og tilkynningu geri það fyrir 7. desemb-
er svo tryggt sé að tilkýnningin birtist.
Verð þarf að fylgja.
Umsjónarmaður efnis bókahandbókarinnar er Haukur
Lárus Hauksson blaðamaður.
Þeir auglýsendur sem hafa hug á að auglýsa í Bókahand-
bók DV vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdótt-
ur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 • 27 • 23.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 8. desember.
Símbréf auglýsingadeildar er 63 ■ 27 ■ 27.
63 27 00
- skila
árangrí
UÚönd
DV
Gro Harlem sökuð um að ætla að smygla Noregi inn 1ESB:
Sækist eftir
aukaaðild
- ljóst að samstarf Noregs og ESB nær út fyrir samninginn um EES
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Ég get ekki á þessari stundu sagt
til hvaöa atriða samstarfið við ESB
tekur, aðeins aö hugmyndum okkar
hefur verið tekið með mikilli vin-
semd,“ sagði Gro Harlem Brundt-
land, forsætisráðherra Noregs, í
kvöldfréttum norska sjónvarpsins í
gær. Gro er á Ráðstefnunni um ör-
yggi og samvinnu í Evrópu í Búda-
pest og hefur átt viðræður við marga
af leiðtogum ESB-ríkjanna um nán-
ara samstarf en samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið (EES) ger-
ir ráð fyrir.
Óstaðfestar heimildir eru fyrir því
að fulltrúar Noregs fái að sitja fundi
þar sem ESB-þjóðunum er einum
ætluð sæti. Einkum er talið að þetta
varði utanríkis-, öryggis- og um-
hverfismál. í Noregi sætir Gro gagn-
rýni fyrir að ætla að smygla landinu
inn í ESB bakdyramegin eftir að
þjóðin hafnaði aðild í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni þann 28. nóvemb-
er. Noregur fái þannig eins konar
aukaaðild að sambandinu og verði
hafður með í ráðum í öllum mikil-
vægum málum.
í raun muni því aðeins skorta at-
kvæðisréttinn upp á fulla aöild Nor-
egs. í efnahagsmálum veröi samn-
ingurinn um EES látinn duga en þeg-
ar honum sleppi taki við samstarf
sem ekki geti kallast annað en auka-
aðild.
Öllu þessu neitar Gro en staðfestir
í sömu svifum að viðræður um sam-
starf standi yfir og eigi sérlega mikl-
um skilningi að mæta í Þýskalandi.
Mjög kært var með Gro og Helmut
Kohl, kanslara Þýskalands, á ráð-
stefnunni í Búdapest.
Denise Brown, systir Nicole Brown Simpson, kynnir sjóð sem ber heiti
Nicole. Fjölskylda Nicole stofnaði sjóðinn eftir að Nicole var myrt síðasta
vor og er markmiðið að berjast á móti ofbeldi gegn konum. Símamynd Reuter
Fjóröa fómarlamb skotárásarinnar látið í Stokkhólmi:
Var heyrnarlaus og
beygði sig of seint
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
Fjórða fómarlamb skotmannanna
í Stokkhólmi lést í gærkvöldi. Það
var 22 ára gömul heymarlaus stúlka
sem kunn var sem táknmálstúlkur í
sænska sjónvarpinu. Vegna fótlunar
sinnar heyrði hún ekki þegar skot-
hríðin hófst og var því seinni til að
kasta sér til jaröar en aðrir í biðröð-
inni fyrir utan staðinn. Hún fékk
skot í gegnum höfuðið. Læknar
reyndu að bjarga lífi hennar með sí-
endurteknum skurðaðgerðum en
það tókst ekki.
Sænska lögreglan sætir nú harðri
gagnrýni fyrir að hafa ekki lokaö
öllum undankomuleiöum fyrir skot-
mennina. Mennimir voru fjórir og
þeir leika enn lausum hala þrátt fyr-
ir umfangsmikla leit.
í gær voru enn engar ráðstafanir
gerðar til að hefta fór mannanna úr
landi. Landamæraverðir höfðu eng-
ar lýsingar fengið á mönnunum en
gátu séð myndir af þeim í blöðunum.
Lögreglan telur að fjórmenningarnir
séu enn í Stokkhólmi en hefur ekk-
ert í höndunum til að staðfesta það.
í Svíþjóö hallast margir að því að
mennirnir hafi komið sér úr landi
og finnist því aldrei. Vitni segja að
skotið hafi verið úr tveimur byssum
en lögreglan segir að aðeins einn
mannanna hafi verið vopnaður. í
Stokkhólmi hafa „góðkunningjar"
lögreglunnar gengið í hð með rétt-
vísinni og reynt að hafa uppi á öllum
mögulegum upplýsingum um skot-
mennina. Það hefur þó engan árang-
ur borið.
Stuttar fréttir
Viljaburt
Sameinuðu þjóöirnar hafa beð-
ið um leyfi Serba til að fara burt
með gæslusveitir sínar frá Bihac.
Majorauðmýktur
John Major
varð fyrir
miklu áfalli
þegarfrumvarp
um hækkun
skatta á gas og
rafmagn til
heimilisnota
var fellt í
breska þinginu i gær.
AdamsiHvítahúsinu
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, hitti öryggisráögjafa Clint-
ons Bandaríkjaforseta í gær.
StórslysíAndorra
Níu létust og 50 slösuðust þegar
flutningabíU ók inn í verslun í
smáríkinu Andorra.
íranirifangelsi
Franskur dómstóll hefur dæmt
tvo írani í fangelsi fyrir að myrða
Shapúr Bakhtiar, síðasta forsæt-
isráðherra keisarans.
Volontelátinn
ítalski kvikmyndaleikarinn
Gian maria Volonte lést í Grikk-
landi i gær, 61 árs.
Stöðva hernað
Rússar og Tsjetsjníja hafa kom-
ist að samkomulagi sem útilokar
frekan hernaö í Tsjetsníju.
Kreppa á írlandi
Pólistísk kreppa magnast á ír-
landi vegna máls um misnotkun
barns. Það mál hefur nú fellt eina
ríkisstjórn og hindrar myndun
aimarrar.
ChristophertilGaza
Warren
Christopher ut-
anríkisráð-
herra er á leið-
inni til Gaza til
að sýna fram á
að Bandaríkin
vilja halda
heimastjórn
NýAsíu-stefna
Leiðtogar Evrópusambandsins
hyggjast móta nýja stefnu gagn-
vart Asíu þegar þeir hittast i Ess-
enumhelgina. Beúter