Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Fréttir___________________________________ Yfir 900 milljóna króna verktakafyrirtæki 1 fiárhagskröggum: Keyrir Iðnlánasjódur Byggðaverk í þrot? - þetta er rangt, segir Bragi Hannesson, forstjóri Iðnlánasjóðs „Iönlánasjóður hefur mikinn áhuga á að keyra okkur í þrot þvi að við höfum fengið einfalda ábyrgð hjá Hafnarfjarðarbæ upp á 70 millj- ónir króna í framhaldi af gömlum viðskiptasamningi við fyrri meiri- hluta í Hafnarfirði sem bærinn hefur ekki staðið við. Þessi ábyrgð gerir þaö að verkum að Iðnlánasjóður ís- lendinga þarf að keyra okkur í þrot til að komast að bæjarsjóði. Það eru miklar líkur á aö honum takist það ætlunarverk sitt,“ segir Sigurður Sigurjónsson, forstjóri Bygjgðaverks. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um DV eru verulegar líkur á því að verktakafyrirtækið Byggðaverk verði lýst gjaldþrota á föstudag eða xnn það leyti sem fram á að fara fram- haldsuppboð á nokkrum eignum fyr- irtækisins, meðal annars á húsi við Bæjarhraun 2 í Hafnarfirði. Sam- kvæmt heimildum DV nema vanskil fyrirtækisins hjá Iðnlánasjóði nú um 15-20 milljónum króna. „Fyrri meirihluti veitti Byggða- verki bæjarábyrgð upp á 70 múljónir króna. Ábyrgöin stendur í 95 milljón- um í dag. Burtséð frá því hvort veðin standi fyrir sínu þá tapar bæjarsjóð- ur því sem er umfram veðin nema Iðnlánasjóður og íslandsbanki faist til að skuldbreyta eða lengja lánin í von um betri tíð og fleiri verkefiú hjá fyrirtækinu. Fari fyrirtækið i þrot reikna ég með að bæjarsjóður tapi að minnsta kosti 25 milljónum króna og þess vegna hef ég verið í sambandi við fulltrúa Iðnlánasjóðs og íslandsbanka," segir Magnús Jón Arnason bæjarstjóri. - En skyldi Iðnlánasjóður stefna að því að koma Byggðaverki í þrot? „Þetta er rangt. Við komumst ekki hjá því að innheimta vanskil en við gerum það ekki með glöðu geði,“ seg- ir Bragi Hannesson, forstjóri Iðn- lánasjóðs. Byggðaverk var með 912 milljóna króna veltu'á síðasta ári og var eitt af fimm stærstu verktakafyrirtækj- unum í landinu, næst á eftir íslensk- um aðalverktökum, Hagvirki-Kletti, Armannsfelli og ístaki, samkvæmt lista yfir 100 stærstu 1993 í Frjálsri verslun. Sigurður Sigurjónsson forstjóri segir að unnið sé að því hörðum höndum að bjarga fyrirtækinu. Ekki er búist við að það takist fyrir upp- boðin á föstudag. Rússamir „hreinsuðutil“ í Kaupfélaginu Gyffi Knstjánason, DV, Akureyii; „Þaö má segja að þetta hafi ver- ið góð viðbót í sölunni hjá okkur í desember og þeir hreinsuðu m.a. upp þaö sem við áttum af minni heimilistækjum," segir Garðar Halldórsson, kaupfélags- stjóri hjá Kaupféiagi Langnes- inga á Þórshöfn, um heimsókn skipveija af rússneskum togara í verslun hans á dögunum. Rússamir, sem hafa veriö að veiðum í Barentshafi, lönduðu 160 tonnum af þorski til vinnslu á Þórshöfn og síðan lá leiöin i kaupfélagið þar sem þeir versl- uðu grimmt og borguðu með doli- urum. Garðar segir að þeir hafi m.a. keypt upp ýmsa vöru sem ekki hafi hreyfst lengi í verslun- inni og þeir voru sérstaklega hrifnir af kaffikönnum, brauð- ristum og vöfflujámum. „Þeir keyptu einnig mikið af fafiiaði, s.s. gallabuxum og ýmsum bama- leikföngum.“ segir Garöar. í ís- lenskum krónum nemur verslun Rússanna hundruðum þúsunda króna. Suöumes: Aukin harka i mynd- bandaleigustríðinu - 70 fyrirtæki hætta aö styrkja íþróttahreyfinguna 1 Keflavik Ægir Már Kárasan, DV, Suöumesjum: „Þeir eiga effir að tapa miklu meira en myndbandaleigan mun gefa þeim. Við viljum að þeir loki leigunni og snúi sér að annarri fjáröflun," sagði Þórir Tello, eigandi myndbandaleig- unnar Studeo í Keflavík, við DV. Myndbandaleigueigendur kærðu knattspymudeildina til samkeppnis- stofnunar. í svari kemur fram að stofiiunin sér ekkert athugavert og taldi upplýsingar, sem komu frá knattspymudeild, fullnægjandi. Myndbandaleigustríðið var rætt í bæjarstjóm Suðumesjabæjar 6. des. Þar mættu eigendur myndbanda- leiga í Keflavík með lista tæplega 70 fyrirtækja á Suðumesjum sem þeir afhentu bæjarstjóm. Þar kom fram að meðan þetta ástand varir muni fyrirtækin ekki styrkja íþrótta- og ungmennafélag Keflavikfir. Það á við í öllum greinum íþrótta þvi yfirstjóm hreyfingarinnar tók endanlega af- stööu í málinu að leyfa knattspymu- deildinni að opna myndbandaleigu. Þetta er orðiö mikið hitamál hjá íþróttafélögunum í Keflavík. Fyrir- tækin em í startholunum og munu næstu daga taka niður auglýsinga- skilti sem þau hafa komið fyrir til styrktar hreyfingunni. „Við munum senda þeim annaö bréf og munum safna gögnum um hvað þeir borga í húsaleigu og hvað þeir fá mikið fi-á bæjarsjóði á ári,“ sagöi Þórir. DV-mynd Ægir Már Myndbandaleigueigendur i Keflavík á bæjarstjórnarfundinum. í dag mælir Dagfari Sigurför Davíðs Davíö Oddsson forsætisráðherra hefur nýlokið heimsókn sinni til Kína. Ungir jafnaðarmenn sáu eitt- hvað athugavert við þessa heim- sókn og fordæmdu hana en það tekur enginn mark á jafnaðar- mönnum lengur og allra síst Davíð Oddsson og það fer heldur ekki á milli mála að ferö Davíðs til Kína hefur vakið gífurlega athygli og mun valda straumhvörfum. Al- gjörum straumhvörfum. Morgunblaðið hefur skýrt svo frá þessari heimsókn forsætisráöherra tíl Kína „að ferð hans hafi vakið mikla athygli þar í landi og henni hafi verið gerð dagleg og góð skil í fjölmiölum landsins". Og Davíð sjalfur segir af sinni alkunnu hógværð: „Þessi mikla viðhöfn og athygli, sem þeir hafa sýnt okkur hér, er jákvaeður boöskapur fyrir okkur um að hér getum viö átt innhlaup um viðskipti og samskipti sem við eigum að rækta og megum alls ekki missa af.“ Af þessu má ráða að öll kínverska þjóðin, rúmlega mifljarður, eða hvað þeir eru nú margir Kínveij- amir, hafi staðið agndofa og heilluö þegar Davíð birtist í landi þeirra. Og ráðamenn sömuleiðis. Viðræð- umar vom umfangsmiklar og kín- verskir ráðamenn gáfu sér góðan tíma til að tala við Davíö, sem undr- aði hann mest Það er reyndar óþarfi hjá Davíð Oddssyni. Kínveijar hafa alla tíð gert sér grein fyrir aö íslendingar era stórveldi í milliríkjasamskipt- um. íslendingar hafa boðið Evr- ópusambandinu birginn en Evr- ópusambandið hefur stefnt að því grímulaust að innbyrða ísland í sambandið og gleypa fullveldi ís- lensku þjóðarinnar. En Davíð hef- ur barist á móti og gefið ESB langt nef og þetta kunna Kínveijar aö meta og öll kínverska þjóðin og hún hyllir íslenska forsætisráðherrann þegar hann kemur í heimsókn. Davið segir að honum hafi þótt athyglisvert að fá tækifæri tíl að kynnast viðhorfúm Kínverja. Hingað til hefur hann talið Kín- veija forstokkaða ofbeldismenn og kommúnista af verstu gerð en svo sá hann sér tíl mikillar ánægju að þetta var fólk sem tók á móti hon- um og talaði við hann og var kurt- eist. Þeir gáfú sér meira að segja góðan tíma til að tala viö hann! Davíð varð svo glaður aö hann tel- ur þessa heimsókn vera tímamót í sögunni og það sé eins víst og tvisv- ar tveir era fjórir að hér eftir muni Kínverjar vera vinsamlegir við ís- lpndinga og verða stórveldi í við- skiptum innan nokkurra ára. Allt vegna heimsóknar Davíðs og að hann skyldi hafa gert sér grein fyrir því. Hvað ef Davíð hefði aldr- ei verið bóðið eða þá að Kínveijar hefðu ekki gefiö sér góðan tíma til að tala við Davíð? Þá hefði hann áfram vaðið í villu og Kinveijar verið útskúfaðir á heimsmarkaðn- um. Þess vegna er þessi heimsókn Davíðs ekki aðeins uppljómun fyrir hann einan, heldur er ferðin sigur fyrir Kínveija sem loksins gátu sannfært vestrænan þjóðarleiðtoga um að þeir væra á réttri leið. Nú verður ekki lengur þeim hviksög- um trúað að Kínverjar fari illa með sitt fólk eða þá að þeir virði ekki mannréttindi. Davíð hefur sann- færst um að Kínverjar séu gott fólk sem geri engum mein og þeir töluðu við hann og gáfu sér góðan tíma og það hlýtur að boða gott eitt Sigurför Davíðs mun fara sigur- fór um veröldina. Hún hafði já- kvæð áhrif á kínversku þjóðina sem fylgdist með aðdáun og virð- ingu með íslenska forsætisráðherr- anum meðan hann dvaldi í landinu og fagnaði því hve vel hann skildi allt það sem Kínveijamir sögðu við hann. Hann gerði meira heldur en að skilja. Hann trúöi því öllu og það finnst Kínveijum mest til um. Þeir hafa hingað til ekki fengið neina til að trúa því að þeir virði mannrétt- indi en Davíð trúði þvi og í því er sigurinn fólginn. Eða eins og Daviö segir sjálfur: Þetta var jákvæður boðskapur. Nú munu íslendingar geta boðið ESB birginn með fullri reisn og djörfung því Kínveijar munu opna land sitt fyrir íslenskri framleiðslu og okkur era allir vegir færir. Kina er fyrir- heitna landið. Ekki síst eftir þá við- höfn og virðingu sem Davíð Odds- syni var sýnd meö því að tala við hann og gefa sér góðan tíma til þess. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.