Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Spumingin Lesendur Lestrarkennsla áAlþingi? Árni hrmgdi: Nú þykir mér tira. Ég las í blaði nýlega aö ein þingkona Kvenna- listans þyrfti nánast að stafa fyr- irspurn sína til þeirra i forsætis- ráðuneytinu. Hún var að spyrja um svokölluð „sérverkefni" sem t.d. sumir hinna eldri og brott- flognu starfsmenn ráðuneytanna hafa fengið eftir að þeir fóru heim. Kvennalistakonan lagöi fram fyrirspurn fyrir rúmum mánuði en ekkert gerðist, Og nú er hún sögð ætla.að stafa fyrir- spurn sína svo ekki verði um villst hvað hún á við. En m.a. orða. Væri ekki annars bráð- snjallt að hafa lestrarkennslu á Alþingi fyrir treglæsa? Foreldravakt aðstaðaldri Katrín Guðmundsdóttir hringdi: Ég vil taka undir meö Ómari Smára Ármannssyni í grein hans um útivistartíma barna og ungl- ínga. Ég held að foreldravakt sé ákjósanleg leið og ekki síst ásamt og i samstarfi við lögregluna. Og eins og Ómar Smári segir: Hver hefði trúað þvi að hægt væri að losa miðborgina að mestu við börn og unglinga að kvöld- og næturlagi um helgar? Það tókst hins vegar fyrir u.þ.b. ári þrátt fyrir úrtöluraddir. Þessir aldurs- hópar færðust á heimaslóðir þar sem von var til að foreldrar könn- uðu ástand barna sinna eða vissu af þv i „Au pair“ í Þýskalandi Svlvia hringdi: Ég varð bæði undrandi og sár þegar ég heyrði að íslenskar stúlkur sem færu sem „au pair“ til Þýskalands væru bæði drykk- felldar og skemmtanasjúkar. Eitt sinn fór ég „au pair“ til smábæjar í Bandaríkjunum. Þar var ekkert diskótek og ekkert félagsheimili en þar var bar og veitingahús sem allir hittust á um helgar. En þar sást aldrei drukkinn maður. Ég fékk að fara þangað á fríkvöldum ef ég fór ekki annað. En mér var fylgt þangað af virmuveitendum minum og sótt aftur þegar ég vildi koma heim. Ég held aö þetta í Þýskalandi eigi aðeins við ein- stakar stúlkur, ekki fjöldann. Þjóöverjar hafa það mikinn skikk á sínu heimilisfólki að ég trúi ekki að þeir láti eitthvað henda nema einu sinni. SkoraáGuðrúnu Helgadóttur Ámundi hringdi: Ráðandi öfl í Alþýðubandalag- inu eru sýnilega að gera tilraun til að koma Guðrúnu Helgadóttur út af listanum hér í Reykjavík. Með því eru þeir vísvitandi að reyta fylgi af flokknum. Þeim er kannski sama. Mér er hins vegar ekki sama því ég vil frekar fá fleiri en færri þingmenn fyrir flokkinn. Guðrún sem virt per- sóna og rithöfundur er einn besti kosturinn í framlínu flokks sins. Ég skora á Gui'únu Helgadóttur að gefa nú hvergi eftir. ValtýrBjörner fræðandi G.Þ. skrifar: Hinn 5. des. sl. fjallar blaðamað- ur DV um Valtý Björn Valtýsson og telm- hann óhæfan til þess að lýsa fótbolta í sjónvarpi vegna þess að hann fræðir áhorfendur sína, sem flestir eru væntanlega áhugamenn um knattspyrnu, um aldur leikmanna. Ég held að flest- ir íþróttaáhugamenn telji það til bóta þegar þeir fá viðbótarupp- lýsingar. Valtýr Björn Valtýsson er tvímælalaust einn af þremur bestu íþróttafréttamönnunum á fjósvakamiðlunum. Svíar ná ekki glæpamönnum Steinn skrifar: íslenska lögreglan er ótrúlega fljót að ná til þeirra sem gerast brotlegir við lögin. Það helgast kannski af því hve fámennir við íslendingar erum og lögreglan hefur komist í kast við allflesta okkar einhvern tíma. Svo ólöghlýðnir erum við nú einu sinni. - En þetta með Svíana, maður nær því varla. Að þeir skuh nánast aldrei hafa hendur í hári Stórglæpamanna í sínu landi, hvemig má það vera? Þeir náðu aldrei þeim seka í máli Olofs Palme, fyrrum forsætisráð- herra, og þó hljóp sá seki brott af morðstað. Og núna finna þeir engan þótt dyravörður hafi borið kennsl á einn glæpamannanna sem myrtu þrjá í næturklúbbi. Ég held að sænsku lögreglunni sé bara ekki sjálfrátt. Hún er líka svo kauðsk í klæðaburði. Getur hugsast að t.d. þessir gamaldags „bátar“, pokalegu vaðmálsbuxurnar og bítlahárið, sem enn viðgengst innan lögreglunnar, standi í vegi fyrir frumkvæði og skarpleika í hugsun? Jólahlaðborð - jólasteik Kristrún Dröfn: Já, ég heffengiðjóla- sveinasúkkulaði og mandarínur. Egill Jónsson skrifar: Jólahlaðborð, jólasteik, eða dauð- inn og djöfullinn. - Þetta eru slagorð- in sem eru uppi á borðinu þessa dag- ana. Hótel og veitingastaðir auglýsa grimmt hlaðborðin sín, verslanirnar jólasteikurnar og ákveðinn hluti þjóðarinnar er svo í því að harma hlutinn sinn og sér ekkert nema eymd og volæði. Það er staöreynd aö til eru þær fjöl- skyldur hér sem etja ofurkappi við að ná saman endum. Sumir ná því ekki. Enn aörir bera fátækt með reisn og er það einkar lagið. - Því er það að „ljós og myrkur vegast á“ eins og einn ráðherra okkar lagði m.a. út af í jólaboðskap fyrir stuttu. En mér er spurn: hverjir eru orðn- ir svo aðþrengdir af skorti á kræsing- um að þeir leggi ofurkapp á að sitja jólahlaðborð, og oft fremur fleiri en eitt? Og svo kemur jólasteikin! Er hún þá nokkuð sérstök eftir öll jóla- hlaðborðin? Eða láta menn beinlínis ginnast af auglýsingunum? Mikið ofboðslegt ósjálfstæði er þar á ferð- inni. Og það í öllu krepputalinu. Ég sá nýlega hóp fólks sitja við jóla- hlaðborð og þar á meðal mann einn sem er landsþekktur „kvartari" yfir öllu því „óréttlæti“ sem viðgengst í þjóðfélaginu. Og þama vora einnig konur sem eiga í verkfalli þessa dag- ana. Var þá engin kreppa hjá þessu fólki? hugsaði ég með mér. - Jú, mik- il ósköp, ég var þarna líka, en ég hef bara aldrei kvartað um óréttlæti í íslensku þjóðfélagi, því það er ekki til með raun og sann. Það eru hins vegar til láglaunahóp- ar, t.d. einstæðar mæður með börn á framfæri. Varla margir aörir sem hægt er að telja í hópum. Þessu fólki ber að koma til hjálpar meö ríflegri launahækkun. Þá geta allir étið sig sadda við jólahlaðborð og af jólasteik þessi jól eins og öll önnur sl. 50 ár. Ætlarðu að setja skóinn út í glugga? Ragnar Guðmundsson: Já. Pétur Grímsson: Ég læt takkaskóna út í glugga. Smári Gunnarsson: Já, og ég hef fengið körfuboltamyndir. Jolahlaoborðio. - Slagorðin eymd og volæði víðs fjarri. Tómas Guðmundsson: Já, og ég hef fengið kubba og nammi. Valur örnólfsson: Já, ég set stígvélið mitt út í glugga. íslenskur handbolti eða hnefaleikar: Eiga dómarar sökina? Guðmundur Guðmundsson skrifar: íslenskur handbolti líkist nú æ meir hnefaleikum, alla vega hjá sum- um liðum og einstaklingum, og virð- ast dómarar vera famir að leyfa meira og meira ofbeldi en áöur. - Þetta á gjaman við þegar slakari lið eru að tapa leik að ofbeldi er beitt sem lokasvari í vonlausri baráttu gegn þeim betri liðum. Dæmi um þetta er þegar lið HK, sem vermir fallsæti deildarinnar, spilaði gegn Val á dögunum. HK- mönnum tókst þar að nef- og kinn- beinsbráka einn leikmann Vals- manna og handarbrjóta annan. Bæði atvikin voru mjög augljóslega vilj- andi frá áhorfendum séð og sætti það mikilli furðu og gremju áhorfenda að ekki skyldi vera tekið strangar á þessum brotum. Þetta hátterni virðist þó ekki ein- göngu fylgja leikmönnum slakari liða. Að fylgjast með ákveðnum KA- manni og öðrum Stjörnu-leikmanni spila vörn mætti halda að þeirra ein- asta markmið í varnarspúi væri að koma höggi á andht andstæðings. Þetta vekur þá spurningu hvort handbolti yfirleitt sé að breytast í blóðuga hnefaleika - eða hvort þetta sé einungis svona á íslandi. Einnig mætti draga fram Haukana. Það gleymist þeim seint sem fylgdust með handboltaleik Vals og Hauka laugardaginn 3. desember sl. þar sem Haukar sýndu ofbeldi eins og það gerist verst. Voru gerðar markvissar tilraunir til að koma höggi á bólgið andht Jóns Kristjánssonar, leik- manns Vals, sem sphaði með brákað nef- og kinnbein. Það tókst í þrígang Viljum sjá skemmtilegan handbolta, ekki kýlingar eða ofbeldi. og alltaf var þess gætt að það væri ekki sami maður sem kýldi. Það var ótrúlegt að fylgjast með þessu. Dóm- ararnir leyfðu að Jón væri kýldur í tvígang í andlitið áður en þeir veittu þeim þriðja tvær mínútur fyrir þriðja kjaftshöggið. - Til aö kóróna allt þá veittu þeir Jóni, sem sýnilega var orðinn mjög reiöur, og þjáður í and- liti, rautt spjald fyrir að skeyta skapi sínu á stólræfli utan leikvallar. - Hvílíkur dómarasirkus! Að sjálfsögðu eru það dómararnir sem bera ábyrgð á þessari þróun og það er á þeirra ábyrgð að snúa henni við. Dómarar sem lengi hafa verið í þessum bransa þekkja þessa menn og þeim ber að fylgjast betur með þeim. Dómarar verða að taka harðar, miklu harðar, á vhjandi líkamsmeið- ingum þannig að þeim verði útrýmt úr íslenskum handbolta. Við áhorfendur vhjum sjá skemmtilegan handbolta, leikkerfi og leikfléttur, falleg mörk, glæshega markvörslu og öfluga varnarmúra, en ekki þessar kýlingar og þennan óþverraskap sem tröhríður íþrótt- inni nú og eyðileggur ánægjuna af að sjá handbolta leikinn. Hringiö 1 síma 63 27 00 milli kl. 14 og 16 eða skrifið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.