Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Hlúum að börnum heims - framtíðin er þeirra FRAMLAG ÞITT ER MIKILS VIRÐI Fleece fóSraSar Neoprene andlitsgrímur. Verð aðeins kr. f.690 S% sta&grei&sluafslóttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. B1ÚTILÍFP Hffl GLÆSIBÆ SÍMI 812922 Stálvaskar Besta verð á íslandi 1 'á hólf + borö Kr. 10.950 11 gerðir af eldhúsvöskum á frábæru verði. Einnig mikið úrval af blönd- unartækjum. Verslun Faxafeni 9, s. 887332 Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18 laugard. kl. 10-16 Menning Axlarbjörn og Sveinn Skotti Megasar Þetta er fyrsta skáldsaga hins kunna söngvara og ljóðskálds. Hún segir frá feðgum tveimur, sem frægir eru úr íslenskum þjóðsögum. Hinn fyrri var athafnasamur ránmorðingi, pyntaður til bana nálægt aldamótum 1600. En sonur hans, þá ófæddur, var hengdur fyrir þjófnað hálfri öld síðar. Þjóðsögur og aðrar fornar frásagnir af þeim feðgum eru stundum riíjaðar upp í bókinni. En Bókmenntir Örn Ólafsson aðallega gerist hún þó í Reykjavík nú á dögum, í samfélagshópi sem í blöðum er kallaður „góð- kunningjar lögreglunnar". Hér ríkir samfelld eftirsókn eftir vímu, auk áfengis er allt fljótandi í alls konar fíkniefnum. Björn er ránmorðingi, en Sveinn er sínauðgandi barnungum stúlkum. Söguþráöurinn er í meginatriðum úr óperu Mozarts, Don Giovanni sem segir frá flagaran- um Don Juan. Endahnútur sögunnar er opinber aftaka, þar sem áhorfendur, reykvískur al- menningur, virðist sýnu óðgeðfelldari en glæpa- maðurinn, enda fylgir mikil réttlætingarræða fyrir hann frá e.k. holdgervingi kvenkynsins. Nokkur ljóð Megasar prýða bókina, og stíll hennar er einkar kjarnyrtur og magnaður, svo sem vænta mátti af höfundi. Inn í textann er fléttað tilvitnunum í kunn bókmenntaverk, að- BJORN OG SVEINN MEGAS allega íslensk. Við þær eru svo gerð ýmis til- brigði með rími og stuölun, þannig að þau aðlag- ast nútímaslangri, sem er áberandi í bókinni, enskuslettur stafsettar upp á íslensku. Alkunna er að rithöfundar endurrita oft aftur og aftur marga kafla í bókum sínum til að velja svo úr það sem best fellur saman í endanlega gerð. En þessi bók er eins og skrifborð höfundar hafi verið tæmt, öflum drögum frásagna raðað saman nokkurn veginn í tímaröð sögu og bunk- inn svo verið borinn beint í prentsmiðju. Flest atriði sögunnar eru margendurtekin með nokkrum tilbrigðum. Verða þessar gegndar- lausu endurtekningar bara leiðigjarnar. Eink- um á það við um endalausar sjálfsréttlætingar barnanauðgarans Sveins. Þá eru og einkar þreytandi andlausar þulur lyíjaheita (bls. 71 o.áfr.) og afbrota Björns og Sveins, þeir eiga að hafa staðið á bak við alla helstu atburði í sögu þjóðarinnar frá því á stríðs- árunum (bls. 58). Þessi bók er nær 400 bls., þéttprentaðar. Ef flestallar endurtekningarnar hefðu verið fjar- lægðar, þá hefði hún styst um helming, á að giska, og líklega orðið lesandi. Ekki þó góð, til þess er textinn of einsleitur. Sögumaður yfir- gnæfir hvarvetna með sínar útskýringar, at- hugasemdir og sérkennilega málfar, en söguper- sónur verða aldrei lifandi. Þær eru alltaf sömu einhliða rissmyndirnar, séðar úr fjarlægð. Margt er Megasi til lista lagt, en ekki sagna- gerð, enn að minnsta kosti. Útgáfan geröi honum engan greiða með því að gefa ritið út í þessari mynd. Megas: Björn og Sveinn eða Makleg málagjöld Mál og menning 1994, 384 bls. Líf, dauði og eilífð ...það er ekki tjl neins / að sofa lengur - / fyrst ég er ekki dáinn“, segir Jónas Þorbjarnarson í nýrri ljóðabók, Á bersvæði; upptekinn af lifi og dauða sem löngum fyrr. Á bersvæði er í þrem íúutum. Sá fyrsti segir á hógværan hátt frá slagn- um viö veruleikann. Stundum er eina hlutverk manns að láta ógert það sem aðrir vetja ævinni í, það er að segja að lifa („Borg við sjó“), og þó að rofl til í „Uppstyttu" er undiraldan enn þung. Honum er raun að nútíman- um og reynir að flýja inn í drauminn („Eldsnemma") og inn á gamla ljós- mynd („Vinnudagur"); tekst loks að flýja austur fyrir fjafl. I Álftaveri hefur syndafall ekki enn oröið, þar er tíðindaleysi, friður og eilíft líf eins og lesa má í „Hleöslu". Þar verðum við nútímamenn skelfing einangrað- ir eyjarskeggjar miðað við eldri kynslóðir sem þekkja forfeður sína aftur í tröll og æsi og sjá þá Jafn berlega og álfa í klettum / og mig og þig“. í miðhlutanum liggur leiðin til Mexíkó þar sem skáldið er einmana þrátt fyrir mergðina; mannlíf er dapurlegt, fátt lifandi fólks og landslagið tilbreytingarlaust og fyrirsjáanlegt. Þó er lyginni líkast hvað himinninn er blár („Utlendingur") og hitabeltisnóttin í þessu landi ævafomrar menn- ingar er nærri áþreifanleg í „Náttkirkjunni". I þriðja hluta eru fáein bemskuljóð, full af söknuði eftir liðnum tíma þegar enn var langt til fullorðinsáranna með sínum lygna kulda milli Bókmenntir Silja Aðalsteinsdóttir fólks. „Strákar" lýsir vel tilfinningum þess sem strýkur að heiman og finnst hann vera týndur. Allir eru vísir nema hann vegna þess að enginn veit hvar hann er. Svo verður hverfulleikinn ágengur. „Að endingu hvorki lífs né liðin" segir frá letrinu sem er „bráðum ólæsilegt" á aðeins mannsaldursgömlum leiðum, „bráðum / ekkert eftir af dauðanum". Og síðustu fjögur ljóð bókarinnar eru frásögn af raunverulegum dauða; djörf ljóð á sinn kurteisa hátt og frumleg þó að yrkisefnin séu aldagömul: dauði nákomins ættingja („og ég sem er sagður svo líkur honum") og jaröarfór („Síðan lokar maður að sér / með hinu ártalinu: / kistuloki"). Erfiljóðið „Á lágþrepum tónstigans" grípur á snjallan hátt utan um viðfangsefnið á þeirri stund þegar það hefur víða og óvænta skírskotun. Dauði og eilífð verða eitt. Jónas er ungur maður, en þó stendur á bak við ljóðin gömul sál sem man „þúsund ár allglöggt", er jafnvel „fimm þúsund ára“ eins og segir í „Arfinum". Lífið er því aðeins einhvers virði að maður hafi djúpar rætur í fortíðinni. Hann kaflar auðveldlega á vettvang gamalt fólk, bæði dáið (eins og Elínu gömlu sem las Nietzsche og lét skáldinu eftir innbú sitt) og lifandi (bræðuma í Skálmarbæ). Hann sökkvir sér í nýliðna og löngu liðna fortíð, en þekkir fáa lifendur. Skáldið er einfari í samtímanum, tal- ar úr sínu víðfeðma einrúmi við lesanda sinn, segir honum sögur eða sýnir honum myndir á máli sem virðist einfalt talmál en er þegar nánar er aö gáö margrætt og spennandi. Lætur okkur í té varanleg vopn í bar- áttunni við tómið. Jónas Þorbjarnarson: Á bersvæðl Forlaglð 1994 Byggjum tónlistarhús - djasstónleikar í Perlunni Föstudagskvöldið 2. desember voru haldnir djasstónleikar í Perlunni til styrktar byggingu tónlistarhúss á íslandi. Komu þar fram ýmsir af okkar fremstu djasstónlistarmönnum þótt ekki væru það alveg sömu nöfnin og birt voru í fréttatilkynningu fyrir tónleikana. Fyrst á sviðið var hljómsveit Guðmundar Steingrímssonar, en auk hans spiluðu þar Þórir Baldursson á píanó, Ólafur Sigurðsson á tenórsaxófón og Bjöm Thoroddsen á gítar. í fyrsta laginu, Take the A-Train, sem Andrea Gylfa- dóttir söng, spilaði Þórður Högnason á kontrabassa, en síðan tók Róbert Þórhallsson við bassaleiknum á rafbassann sinn í síðari lögunum tveim- ur, Yesterdays og St. Thomas. Róbert hélt svo áfram með næstu sveit en þar var kominn Sigurður Flosason með hrynsveit úr FÍH-skólanum. Auk Róberts léku þeir Agnar Már Magnússon á píanó og Tómas Jónsson á trommur. Þeir léku lög eftir Sigurð, fyrst „Flug 622“ sem allir þekkja af plötunni „Gengið á lagið“. En síðan kom frumflutningur á þremur nýjum lögum frá Sigurði. „Heim“, sem er falleg ballaða, „Tíminn drepinn", sem er blúsættar, og svo lag sem mér heyrðist hann nefna „Upptekinn hátt- ur“, skemmtilegt lag í hrööu tempói, sveifluhrynur og suðuramerískur til skiptis. Það er alltaf gaman að heyra Sigurö blásá og er virðingarvert hjá honum að gefa ungu drengjunum tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni með sér, en þeir stóðu sig ágætlega. Tórúist Ársæll Másson Næst kom sú hljómsveit sem ég hygg að hafi höfðað mest til við- staddra, en þar var kominn Tómas R. Einarsson djassskáld með sína sveit, Gunnar Gunnarsson á píanó, Hilmar Jensson á gítar og Matthías M.D. Hemstock á trommur. Þeir fluttu efni af Landsýnarplötunni. Eftir tvö lög bættist Óskar Guðjónsson í hópinn með tenórinn og blés titillag plötunnar, og lokalag þeirra, „Þú ert“, söng Guðmundur Andri Thorsson. Flutningur þeirra var verulega góður og húmorískur, og tilbreyting í því að heyra gítarista eins og Hilmar spila tónlist af þessu tagi. Síðasta orðið átti Niels Henning 0rsted-Pedersen, en með honum var fenginn Björn Thoroddsen. Þeir spiluðu Au Privave, eina ballöðu og Oleo. Egill Ólafsson bættist síðan í hópinn og söng frasa eftir Irving Berlin og aö lokum Ain’t Misbehavin’. Þessi uppákoma var greinilega óundirbúin og er skemmst frá því aö segja að hún misheppnaðist gersamlega, því miður. En Niels á þakkir skildar fyrh’ að koma hingað til þess að styrkja okkur í þeim góðu áformum aö byggja tónlistarhús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.