Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 13 Bridge Bridgesamband íslands: Happamót Bridge- sambands íslands Helgina 3.-4. des. var haldið mót í Þönglabakka 1, nýju og glæsilegu húsnæði Bridgesambands íslands, til fláröflunar vegna kaupanna. Vegleg verðlaun voru í boði, þar á meðal ferð fyrir tvo á Evrópumót í tvímenningi sem haldið verður í Róm í mars nk. auk annarra ferðavinn- inga og fjölda happavinninga sem dregnir voru út í hverri lotu. Auk þess voru flokkaverðlaun í flokki yngri spilara, kvenna, para og eldri spilara. 58 pör spiluðu fyrstu lotu á laugar- deginmn og 54 pör í lotu tvö. 16 efstu pörin komust áfram í úrslitabaró- meter sem hófst kl. 11 á smmudag, en einungis 23 pör komu í þriðju Mitchell-lotuna sem spiluð var kl. 13 á sunnudeginum. Barómeterúrshta- keppnin var spennandi allan tímann en Sigurður B. Þorsteinsson og Gylfi Baldursson, sem unnu undankeppn ina á laugardeginum, enduðu einnig sem sigurvegarar í aðalkeppninni með 43 stig og hlutu þar með farmiða og þátttökugjald á Evrópumeistara- mótinu í Róm. 2.-3. sætið var hníflafnt að stigum, þeir hlutu 40 stig og þar var það inn- byrðis seta sem réð úrshtum um að Kristján Blöndal og Stefan Guðjohn- sen hlutu aimað sætið og helgarferð til Dublin með Samvinnuferðum en Hallgrímur Hallgrímsson og Haukur Ingason hlutu þriðja sætið og ferð innanlands með Flugleiðum í verð- laun. í flórða sæti voru Guðmundur Páll Amarson og Þorlákur Jónsson með 38 stig. í flokki 25 ára og yngri unnu Stein- ar Jónsson frá Siglufirði og Magnús Magnússon og þar með ferð með Flugleiðum á yngri spilara mót í Hollandi í byijun janúar 1995. í flokki eldri spilara unnu Símon Símonarson og Bjöm Theódórsson ferð með Flugleiðum innanlands. Í kvennaflokki unnu Guðlaug Jónsdóttir og Dröfii Guðmundsdóttir ferð með Flugleiðum á Schiphol- mótið í Hollandi næsta vor. í paraflokki varð að draga um sig- urvegara þar sem työ pör, Guðrún Jóhannesdóttir og Björgvin Már Kristinsson og Ólöf H. Þorsteinsdótt- ir og Sveinn R. Eiríksson, vom ná- kvæmlega jöfii að stigum, Ólöf og Sveinn urðu þar hlutskarpari, drógu tígulsexu en Guðrún og Björgvin tíg- ulfjarka! Þau hlutu ferðavinning í leiguflugi Samvinnuferða að verðmæti 30.000 kr. Kristján Hauksson og Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir sáu um keppnistjóm og útreikning og Helgi Jóhannsson, forseti Bridgesambands íslands, og Elín Bjamadóttir, fram- kvæmdastjóri Bridgesambands ís- lands, afhentu verðlaun í mótslok. Stjóm Bridgesambands íslands vill þakka þeim spilurum sem mættu og sýndu í verki stuðning við húsakaup- in en þeir hefðu vissulega mátt vera fleiri. GALINA (l50 cm /42% búmuM/58% hör) fi erslun IKEA GULLRIPS (púðar/48x48cm) 790 kr. úrval af álnavöru hagstæðu verði. Líttu inn og þú finnur örugglega það sem þig vantar. GANJA (l50 cm/100% bómuil) 595 kr. JEDDY ( 140 cm/100% bómull ) 445 kr. GILDA (l50 cm/100% bómull) 445 kr. LENA i cm/100% bómuli 445 kr. GISELLE (púðar 50x50 cm) 595 kr. Nýtt kortatímabil cm/100% bómull ) 195 kr. fyrir fólkið í landinu Holtagörðum við Holtaveg / Sfmi 68 66 50 / Grænt númer 99 68 50 Fógetans er hláðið krásum Milli kl. 18.00 og 22.00 er upplagt áð gæða sér á Ijúffengum jólaréttum á aðeins kr. 1.700,- fyrir manninn. Aðaistræti io ■ sími 16323 Jólaglögg og piparkökur ki'. 300,- glasið. Sérlagaður jólabjór kr. 200,- glasið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.