Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFURT3. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr, m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Lygin er ekki ókeypis Guörún Helgadóttir alþingismaður sagðist í fyrradag hafa skrökvað að fjölmiðli þá um morguninn. Hún hafði sagzt ekki ætla að gefa baráttulaust eftir sæti sitt á fram- boðshsta Alþýðubandalagsins í Reykjavík. í rauninni var hún þegar búin að ákveða að gefa þetta sæti eftir. Alþingismaðurinn taldi henta sér betur, að sannleikur- inn kæmi ekki í ljós fyrr en síðar um daginn. Þetta fannst honum eðhleg málsmeðferð. Sannleikurinn er í augum hans ekkert annað en verkfæri, sem stundum má nota og stundum ekki, aht eftir hentugleikum hverju sinni. Síðan ætlast sami þingmaðurinn th þess, að fólk trúi honum, þegar hann segist hafa tekið þessa ákvörðun að eigin frumkvæði. Af þvi að reynsla er fyrir því, að þing- maðurinn segir satt og ósatt eftir hentugleikum hverju sinni, verður honum ekki trúað í þessu frekar en öðru. Þvert á móti verður haft fyrir satt, að þingmaðurinn hafr aðeins átt tveggja óþægilegra kosta völ. Annar var sá að gefa eftir sætið og fara niður í það fjórða. Hinn var, að flokksbræður hans mundu reyna að koma honum alveg út af listanum, ef hann makkaði ekki rétt. Með lækkuninni er þingmaðurinn búinn að missa þingsætið og það er gott. Það er þó einum pólitíkusnum færra, sem segir ósatt. Og einum færra, sem er svo blygð- unarlaus, að hann talar um það eins og hvem annan sjálfsagðan hlut. Vonandi er brottfórin endanleg. Þingmaðurinn ósannsögh er ekki einn um hituna. Það hefur færzt í vöxt á undanfömum árum, að stjómmála- menn og embættismenn fari vísvitandi með rangt mál í viðtölum við íjölmiðla. Þessir valdamenn telja hag- kvæmnisástæöur heimha sér að fara með rangt mál. Nýlegt dæmi er ráðuneytisstjóri utanríkismála. Hann laug því, að menningarfuhtrúinn í London hefði þá diplómatísku stöðu, að hann gæti orðið sendiherraíghdi. Síðar kom í ljós, að í kjölfar lyginnar þurfti að breyta stöðu fuhtrúans, svo að hann gæti orðið íghdi. Sá, sem lengst hefur gengið á þessu sviði upp á síðkast- ið, er hrakfallabálkurinn Guðmundur Ami Stefánsson. Hann hefur sjálfur gefið fjölmiðlum rangar upplýsingar og jafnvel haft samráð við embættismenn um, hvemig þeir eigi að reyna að ljúga sig út úr vondum málum. Hverjum eiga fjölmiðlamenn og almenningur að treysta, þegar svo er komið, að tilgangurinn helgar með- ahð hjá viðmælendum fjölmiðla? Ein leið er að trúa aldr- ei neinu, sem frá stjórnmálamönnum og embættismönn- um kemur. Sú afstaða er skiljanleg, en erfið í raun. Önnur leið er, að fjölmiðlar venji sig á að fylgjast með, hvort reynslan leiði í ljós, að ákveðnir stjómmála- menn og embættismenn hafi logið sér th þægindaauka; og setji lygna valdamenn á hsta yfir þá, sem hvorki beri að trúa né treysta. Þessi vöm er raunar þegar hafin. Flest fólk fer aðra leið. Það áttar sig smám saman á, að sannleikur er eins og lygi bara eitt verkfæri af mörg- um 1 hentistefnukassa stj ómmálamanna og embættis- manna. Þetta veldur vantrausti á valdamönnum al- mennt, bæði þeim, sem ljúga og hinum, sem segja satt. Þetta er ein af orsökum þess, að fólk á erfitt með að gera upp hug sinn mihi stjómmálaflokka og -manna og er þar á ofan reiðubúið að setja traust sitt á ný stjóm- málaöfl, að minnsta kosti meðan ekki er enn komið í ljós, hvort þau séu eins ómerkileg og eldri öflin hafa reynzt. Þannig er lygin ekki ókeypis frekar en hádegisverður- inn frægi. Hún er hvorki ókeypis fyrir þjóðfélagsgerðina í hehd né fyrir þann, sem telur hagkvæmt að beita henni. Jónas Kristjánsson Viljum við kynna land okkar sem ímynd hreinleikans getum við ekki látið útrás holræsanna enda í fjöruborð- inu, segir borgarstjóri m.a. i grein sinni. - Frá framkvæmdum við Ánanaust. Af hverju holræsagjald? Þegar Reykjavíkurlistinn tók viö búi af Sjálfstæöisflokknum nú í vor blasti við ófogur sjón. Allar tekjur borgarinnar á þessu ári fóru í reksturinn og afgangur til framkvæmda var enginn. Sjálf- stæöisílokkurinn ákvað að taka lán fyrir öllum sínum framkvæmdum. Engin lán höföu þó enn verið tekin þegar Reykjavíkurlistinn tók viö heldur var framúrkeyrslan fjár- mögnuö meö yfirdrætti í Lands- bankanum. Þaö beið Reykjavíkurlistans að breyta 2.000 milljón króna skamm- tímaskuldum í langtímalán. Á ár- inu 1993 fóru 90% af tekjum borgar- innar í reksturinn og þaö áriö nam framúrkeyrslan 2.725 milljónum króna. Svona hefur fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins veriö undan- farin fjögur ár. „Við tókum lán“ Á borgarstjórnarfundi sl. fimmtudag var holræsagjald til umræöu. Viö þaö tækifæri sagði Árni Sigfússon aö sjálfstæðismenn heföu ekki hækkaö skatta til að standa undir holræsaframkvæmd- um. - „Við tókum lán,“ sagöi hann stoltur. En lán þarf aö borga og nú er komið aö skuldadögunum. Á næsta ári nema afborganir og vext- ir af lánum sem tekin voru í tíð sjálfstæöismanna 2.000 milljónum króna. Þær 2.000 milljónir hggja ekkert á lausu. Fjármunir til holræsafram- kvæmda liggja heldur ekkert á lausu. í þeim málaflokki blasir við okkur kostnaður upp á 8.500 m. kr. á næstu 10-12 árum, eða um 700 m. kr. á ári að meðaltali. Þegar all- ar þessar tölur eru hafðar í huga hlýtur mönnum aö veröa ljóst að 550 m. kr. holræsagjald hrekkur afskaplega skammt. Þaö verður ekki notað til aö fjármagna hol- ræsaframkvæmdir, greiða niður skuldir sem sjálfstæöismenn söfn- uðu og eins og sjálfstæðismenn segja - til að standa undir gylhboð- um Reykjavíkurlistans. Það er ekki KjaUaxiim Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í Reykjavík hægt að nota sömu krónuna mörg- um sinnum. Skattbyrði næstlægst í Reykjavík í nær öllum kaupstöðum á land- inu er lagt á holræsagjald sem nemur 0,1-0,2% af fasteignamati. Reykjavík. það sveitarfélag á land- inu sem stendur andspænis stærstu verkefnum í holræsamál- um, hefur ekki lengur efni á því að sleppa þessari gjaldtöku. Þökk sé ríkisstjóm Davíðs Oddssonar sem hefur gengið ötullega fram í því að skerða tekjustofna borgar- innar og þökk sé sjálfstæöismönn- um í borgarstjórn Reykjavíkur sem um langt árabil hafa skrifað út úr heftinu án þess að athuga hvort það væri innstæða fyrir því. Af ummælum ýmissa aöila um holræsagjaldið í Reykjavík hefði mátt skilja að það væri verið aö leggja meiri álögur á Reykvíkinga en aðra landsmenn. Því er alls ekki þannig farið. Eftir þessa breytingu greiða Reykvíkingar lægri fast- eignagjöld en Garðbæingar, Kópa- vogsbúar og Hafnflrðingar. Ef litið er svo á heildarskattbyrðina, þ.e. bæði fasteignagjöld og útsvar, veröur hún næstlægst í Reykjavík á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins Sel- tirningar greiða lægri skatta. ímynd hreinleikans Það breytir auðvitað ekki þeirri staðreynd að holræsagjaldið felur í sér nýja gjaldtöku af Reykvíking- um. En borgarstjórn Reykjavíkur er nauðsynlegur þessi kostur. Viö viljum draga úr nýjum lántökum eins og okkur er framast kostur, en við treystum okkur ekki til að hætta öllum framkvæmdum, allra síst í holræsamálum. Ef við íslendingar viljum kynna land okkar sem ímynd hreinleik- ans þá getum við ekki látið útrás holræsanna enda í fjöruborðinu. Þá verðum við að uppfylla þær lág- markskröfur sem settar eru á al- þjóðavettvangi. Þetta ætlum við að gera í Reykjavík og meðan ríkis- valdið tekur ekkert á í þessum málum með sveitarfélögunum þá verðum við að leggja á holræsa- gjald. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „A árinu 1993 fóru 90% af tekjum borg- arinnar 1 reksturinn og það árið nam framúrkeyrslan 2.725 milljónum króna. Svona hefur Qármálastjórn Sjálfstæðisflokksins verið undanfarin Qögur ár.“ Skoðanir annarra Guðrún skal út „Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson hafa nú öh ráð Ólafs Ragnars í hendi sér, og þeir eru í reynd teknir við stjórnartaumum Alþýðubandalags- ins. ... Hið opna prófkjör sem Alþýöubandalagið boðaði meö pompi og pragt verður aldrei haldið, af þvi tilgangi þess er þegar náð: Að losna við Guðrúnu Helgadóttur af þingi. Hún hefði ekki átt nokkra möguleika á að halda 2. sæti í prófjöri, rúin trausti fyrrum félaga og í harðri anstööu við Svavar Gests- son og aðra „handhafa hinnar sögulegu arfleifðar" flokksins." Úr forystugrein Alþbl. 7. des. Fram til skattalækkunar! „Eftir því sem hið opinbera seilist dýpra niður i vasa einstaklinganna er mikilvægara fyrir þá að þekkja rétt sinn og þá möguleika sem lög og reglur bjóða upp á vð að lækka tekjuskatt. Þar eru ýmsar leiðir færar, þótt ríkið hafi skert þá möguleika á undanfórnum árum, samhhða hækkandi skattpró- sentu.... Svigrúm einstaklinganna er stöðugð skert. Eini möguleikinn sem einstaklingar eiga, þegar ekki er kosningaár, er að kynna sér öh lög og allar reglur og nýta sér allar leiðir til að lækka skattana." Úr forystugrein Viðskiptablaðsins 7. des. Verkkaupinn ríkisvaldið „Afleiðingar versnandi atvinnuástands í landinu birtast í ýmsum myndum, og ein af þeim er sú aö launafólk er þvingað til verktöku í vaxandi mæli. í mörgum tilfellum þýðir þetta stórlega skerðingu á launum og réttindum þess.... Það hefur viðgengist aö opinber verkefni eru undirboðin af fyrirtækjum sem hafa þennan hátt á gagnvart starfsfólki sínu. Verkkaupi, sem í þessum tilfellum er ríkisvaldið, lætur sér þetta vel líka. Hér þarf að verða breyting á.“ Úr forystugrein Timans 7. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.