Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Síða 19
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
19
Menning
Sýn á samtíma-
listina í Gerðarsaf ni
Nokkuð hefur færst í vöxt að samsýningar íslenskra
myndlistarmanna séu gerðar út af örkinni til kynning-
ar á hérlendri samtímalist erlendis. Þannig hafa Kjarv-
alsstaðir sent sýningar til Norðurlandanna og Bret-
lands áður en þær hafa verið settar upp á Kjarvalsstöð-
um. Ekki standa listastofnanir þó alltaf fyrir slíkum
Ustkynningum, líkt og sannast á „Sýn“, eða „Visi-
ons“, sýningu á verkum sex íslenskra myndUstar-
kvenna sem sett var upp í Barbican Centre í London
sl. sumar. HaUdór Björn Runólfsson skipulagði sýning-
una í samvinnu við Jakob Frímann Magnússon, menn-
ingarfuUtrúa sendiráðsins í London. „Sýn“ hefur nú
verið sett upp í Gerðarsafni í Kópavogi, e.t.v. tU að
gefa hugmynd um hvernig staðið er að ímynd íslands
út á við.
Þjóðleg ímynd?
HaUdór Björn fylgir sýningunni úr hlaði með nokkr-
um orðum. Hann lætur í ljós þá skoðun að „hin með-
vitaða leit að þjóðlegum tjáningarmáta til að treysta
ákveðna ímynd" hafi nýlega þokað fyrir afslappaðri
og hispurslausari Ust. Ekki veit ég hvaða Ustamenn
Halldór hefur þar í huga. Hispursleysi og alþjóðleg
hugmyndasamskipti hafa nefnUega verið viðloðandi
hér síðustu þrjá áratugina og áratugina þrjá þar á
undan var hið þjóðlega ávallt skrefi á eftir hinum al-
þjóðlegu straumum og hefur jafnvel ekki þótt fínt fyrr
en á allra síðustu árum, samanber ijúpuna hans Guð-
mundar frá Miðdal og verk ýmissa alþýðulistamanna.
Fyrstu þrjá áratugi aldarinnar er hins vegar hægt að
segja að leit að þjóðlegri ímynd hafi verið númer eitt,
tvö og þijú í verkum Þórarins B., Einars Jónssonar o.fl.
Sýning hinna sex Ustakvenna er, samkvæmt ofan-
skráðu, með alþjóðlegu yfirbragði og hispursleysið
uppmálað. Aukinheldur má segja að hún sé þráðlaus,
því verkin eru eins og sitt úr hverri áttinni, a.m.k. við
fyrstu sýn. Inga Þórey Jóhannsdóttir kemur talsvert
á óvart með vel heppnuðu samspili lágmyndar og
málverks þar sem áferð strigans minnir einna helst á
sjóbarða grjóthnuUunga. Hulda Hákon heldur sig á
svipuðum slóðum í lágmyndagerðinni og mótar að
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
þessu sinni fimm konur og fjóra karla og málar setn-
ingu neðanvið, s.s. „Self portait as a sleeping hero“.
Sólveig Aðalsteinsdóttir fetar ennfremur áþekkar slóð-
ir sem fyrr og göfgar rusl í fjórum gólfverkum og sex
veggverkum. Efni á borð við svamp, ull og sag öðlast
nýtt líf í hennar meðfórum. Ugglaust má þó slá því
föstu að verk hennar séu hvað umdeildust á sýning-
unni vegna þess hve óhefluð þau eru.
Hversdagsleiki og göfgun
Verk Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur eru heldur
ekki allra sakir hráleika. Þar teflir hún saman, líkt og
á öðrum sýningum síðustu þrjú árin, húsgögnum og
hst. Form skápsins heillar listakonuna sýnilega mest
og með hjálp veggfóðurs nær hún að tengja verk sín
hversdeginuin, sem þó er ekki séríslenskur. Svava
Björnsdóttir sýnir þijú veggverk sem voru á sýningu
hennar á Kjarvalsstöðum á síðasta ári. Þar göfgar hún
pappírinn og býr til lágmyndir sem í senn hafa hand-
gert og fjöldaframleitt yfirbragð. Loks hefur Ráðhildur
Ingadóttir tússaö bláar mandölur á vegg. Verk hennar
gefa sýningunni allt að því trúarlegan tón. í heild má
þó segja óvenjulegur efniviður og margbreytileg út-
víkkun lágmyndarinnar geti tahst samnefnari þessar-
ar samsýningar sem stendur í Gerðarsafni til 18. des-
ember. Þess má að lokum geta að handverkssýning á
neðri hæð hefur verið framlengd til sama dags.
Mörkinni 1 - sími 885858, Smiðjuvegi 4B - sími 673838
Otrúlegt verð á undirfötum, t.d.
Wonder-Bra á b. 990-1.490.
Opið tíl ld. 23.30 öll kvöld.
Hefurþú
athugao
hvaoþab
kostar?
Sendu jólapakkana og
jólapóstinn með DHL
Jólapóstur
NYTSAMAR
A OTRULEGU VERÐI
Kolster 14" litasjónvarp
með ísl. textavarpi og fjarstýringu.
TV201
Kolster 20"
litasjónvarp
með fjarstýringu.
Kolster 21"
litasjónvarp
með ísl. textavarpi
og fjarstýringu.
TVC14
TVC21
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 68 90 90 • OPIÐ LAUG. 10-16 - SUN. 13-16
Við erum ódýrari en Pósturinn
Það er ódýrara að senda jólakortin til útlanda
með sendibréfaþjónustu DHL en með
hefðbundnum flugþósti.
Ef þú ert með 20 jólakort eða fleiri sækjum
við þau heim til þín endurgjaldslaust.
ATH Skilið bréfunum ófrímerktum.
MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR
Síðasti dagur til að senda jólakort til
einstakra landa er:
► 16. des. Til Norðurlandanna.
► 15. des. Til Evrópu.
► 12. des. Til USA, Kanada og
annarra landa.
Jólapakkar
Við gefum þér 2 auka viku
Það er engin ástæða
til að láta jólapakkana
og jólamatinn velkjast
um í pósti í nokkrar vikur.
DHL kemur jólapökkunum hratt og
örugglega heim til viðtakenda.
Síðasti skiladagur er 19. des
EINFALT ÞÆGILEGT ÓDÝRT
jótatííbaé óéýrara en þig gntnarí
woMjmvmexpmM
DHL HRAÐFLUTNINGAR HF, Faxafen 9 108 Reykjavík
Sími 568 9822
DHL' fljótarí en jóíasvehmímt