Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Page 24
36
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
Fréttir
Samstaða meðal sveitarstjómarmanna á höfuðborgarsvæðinu:
4,5 milljörðum
varið í götur og
mislæg gatnamót
- samkvæmt tOIögum til samgönguráðherra og Alþingis
Forsvarsmenn sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu hafa komiö sér
saman um tillögur til vegaáætlunar
næstu íjögur árin og er megináhersl-
an lögð á Vesturlandsveg og Miklu-
braut auk breikkunar Reykjanes-
brautar til suðurs. Sveitarstjórnar-
mennirnir vilja að settir verði allt
að 4,5 milljarðar króna í vegabætur
í Reykjavík og nágrenni á næstu
árum þó að ýmislegt bendi til að að-
eins 3,5 milljarðar fari í þessar fram-
kvæmdir fram til ársins 1998. Búið
er að fjalla um tillögurnar í öllum
sveitarstjórnunum á höfuðborgar-
svæðinu og ríkir full samstaða um
þær.
„Við byggjum þessar tillögur á
ástandinu eins og það er í umferðinni
í dag og gerum fjögurra ára umferð-
arspá til að standa betur að vígi. Við
gerum okkur vonir um að fá 3,5 millj-
arða á næstu íjórum árum og að 1.550
milljónum verði ýtt yfir á næsta
tímabil, 1998-2002. Svo höfum við
gert hugmyndir að langtímaáætlun
næstu tólf árin. Þar leggjum við með-
al annars áherslu á veginn yfir
Kleppsvíkina og breikkun Vestur-
landsvegar upp í Mosfellsbæ," segir
Stefán Hermannsson borgarverk-
fræðingur.
I tillögum forsvarsmanna sveitar-
félaganna að nýrri vegaáætlun fyrir
1995-1998 kemur fram að gert er ráö
fyrir að fjárstreymi í gatnafram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu
aukist smám saman á þessu tíma-
bili. Þannig fari rétt rúmur milljarð-
ur í gatnaframkvæmdir á næsta ári
meðan 1.325 milljónir fari í vega-
framkvæmdir árið 1997 og 1.280 millj-
ónir króna árið 1998.
Gert er ráð fyrir að 820 milljónir
króna fari í breikkun Vesturlands-
vegar-Miklubrautar frá Höfðabakka
að Skeiðarvogi, 650 milljónir í mislæg
gatnamót á mótum Miklubrautar og
pv]
Kringlumýrarbrautar 1997-1998 og
460 milljónir í mislæg gatnamót á
mótum Vesturlandsvegar og Höfða-
bakka. Aðrar dýrar framkvæmdir
verða á mótum Miklubrautar og
Skeiðarvogs og Breiðholtsbraut-
Reykjanesbraut.
Samkvæmt nýjum vegalögum
verður höfuðborgarsvæðið tekið fyr-
ir sem sérstakt svæði þegar Qárveit-
Framkvæmdir við Höfðabakkabrú
Meðan fram-
kvæmdir
standa yfir
Tækniskóli
íslands
TT”-
HÁLSA-
HVERFI
Bráðabirgöavegur
inn á lóð Mjólkur-
samsölunnar
XI 1
Höfðabakki
(bráðabirgðavegur) j
1 I r /
v —JÁ.......4nr*** -
HÖFÐABAKKI
Mjólkur-
samsalan
HOFÐABAKKI
vv
Bráðabirgða-
vegur
Húsgagnahöllin
'■'
ÖV
Mislæg gatnamót á Höföabakka:
Framhjáhlaup
taka við umferðinni
„Gatnamótin við Höfðabakka eru
orðin ákaflega erfiö. Á annatímum
hafa þau ekki undan, einkum beygju-
straumnum upp í Grafarvog. Nýju
gatnamótin verða mun afkastameiri
og munu endast nokkuð lengi án erf-
iðleika," segir Sigurður Skarphéð-
insson, gatnamálastjóri í Reykjavík.
•A Undirbúningsframkvæmdirerunú
hafnar á mótum Höfðabakka og Vest-
urlandsvegar vegna gerðar mislægra
gatnamóta þar næsta sumar. Um-
ferðinni verður á næstunni beint um
framhjáhaup til hliðar við núverandi
gatnamót og í kjölfarið verður ráðist
í brúarbyggingu. Reiknað er með að
' þessum framkvæmdum verði lokið
haustiö 1995. Að sögn Sigurðar eru
framkvæmdimar á Höfðabakka lið-
ur í enn stærra vegaátaki sem sam-
tals muni kosta 1.250 til 1.300 milljón-
ir. í þvi sambandi nefnir hann nýja
akbraut norðan við núverandi veg í
Ártúnsbrekku, nýjar brýr yfir Ell-
iðaámar, endurbætur á mislægum
gatnamótum við Sæbraut og Reykja-
nesbraut og breikkun að Skeiðar-
vogi. Gert er ráð fyrir að öllum þess-
um framkvæmdum verði lokið
haustið 1996. „Þessar framkvæmdir
í heild eru löngu orðnar tímabærar
að okkar mati. Það eru erfiðleikar á
öllum þessum kafla. Þetta er sá stað-
ur í borginni þar sem umferð hefur
aukist hvað mest á undanfórnum
árum.“ Auk þessa segir Sigurður að
rætt sé um að bæta einni akgrein við
Miklubrautina í sumar að sunnan-
verðu en bætt var við slíkri akgrein
að norðanverðu síðasta sumar. Þar
með eigi austur-vestur umferðarás-
inn í Reykjavík að vera orðinn mun
greiðfærari fyrir umferð en verið
hefur. -kaa
ingar til vegaframkvæmda verða
teknar fyrir á Alþingi á næstu vik-
um. Tillögurnar hafa verið sendar til
samgönguráðherra, samgöngu-
nefndar Alþingis og þingmanna
Reykjavíkur og Reykjaness til skoð-
unar og hafa forsvarsmenn sveitar-
félaganna óskað eftir því að koma
að máhnu þegar það verður tekið
fyrir á Alþingi.
Upplýsingaskrifstofa NATO:
framtíðina
„Hingað leitar mikið af náms-
fólki sem vantar upplýsingar um
NATO, bæði með og á móti. Þetta
eru allt frá því að vera smákrakk-
ar upp í það að vera menn í dokt-
orsnámi. Mánaðarlega höldum
viö fundi og stöndum reglulega
fyrir ráðstefnum. Að þessu leyti
höfum við getað gert mikiö gagn,“
segir Dagný Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri upplýsingaskrif-
stofu Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á íslandi.
Allt frá árinu 1966 hefur NATO
starfrækt upplýsingaskrifstofu á
íslandi í samstarfi við Varðberg
og Samtök um vestræna sam-
virrnu. Um árabil var Magnús
Þórðarson, framkvæmdastjóri
skrifstofunnar, starfsmaður
NATO en eftir að hann lést fyrir
tveimur árum hefur Dagný séð
um rekstur skrifstofunnar.
NATO styrkir starfsemina
Dagný segir NATO styrkja
starfsemina hér á landi. Sú breyt-
ing hafi hins vegar orðið að nú
sinni Norðmaður í Brussel Iiinu
formlega upplýsingastarfi fyrir
ísland og fleiri aöildarríki NATO.
Aðspurð segir hún nokkra óvissu
ríkja um starfsmannamál NATO
vegna yfirmannaskipta í höfuð-
stöðvunum og breyttra viðhorfa
í alþjóðamálum. Ekki sé heldur
ljóst hvort NATO styrki áfram
upplýsíngaskrifstofuna.
„Ég er ekki í stöðu Magnúsar.
Hún var lögð niður. Hans staða
var miklu meiri en sú sem ég
gegni. Ég var í fjölda mörg ár
starfsmaður félaganna í hálfu
starfi og einfaldlega haldið því
starfi áfram, “ segir Dagný.
-kaa
Lilja ráðin
Borgarráð hefur samþykkt
samhljóða tillögu stjórnar Stræt-
isvagna Reykjavíkur, SVR, um
aö ráða Lilju Ólafsdóttur for-
stjóra SVR. Lilja tekur við starf-
inu um áramót um leið og Sveinn
Björnsson, núverandi forstjóri,
lætur af störfum.