Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Síða 34
AUKhf / SfA ks-61
46
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
JÓLAKORT OG DAGATÖL
FRÁ NÝJUM VÍDDUM
6 íslenskir hönnuðir, 7 íslenskir Ijósmyndarar,
4 íslenskir textahöfundar, 5 erlendir þýðendur
og gegnheil íslensk prentun!
HÉR FÁST ÞAU:
Reykjavík: • íslenskur heimilisiðnaður, Hafnarstræti
• Penninn, Hallarmúla
• Eymundsson, um alla borg
• Rammagerðin, Hafnarstrœti
• Islandia, Kringlunni
• Bóksala stúdenta, v. Hringbraut
• Mál og menning, Laugavegi og Síðumúla
Akureyri: • Bókval, Kaupvangsstrœti
• Bókabúðin Edda, Hafnarstrœti
• Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti
Leifsstöð: • íslenskur markaður
• Aðrar helstu bóka- og ritfangaverslanir
Dreifing í verslanir: • íslensk bókadreifing, sími 568 6862
Sala og þjónusta við fyrirtæki:
Menning
Hjá góðu fólki
Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, sendir nú frá sér enn eina bókin þótt orðinn
sé áttræður. Hann kallar hana - Mannakynni, frá öðru
fólki og athöínum þess. - Það sér hins vegar ekki stað
í bókinni að hann sé orðinn þetta fullorðinn. Hann
afneitar líka ellinni og segir á einum stað að hann
hafi uppgötvað að sérbýli fyrir aldraða sé bara fyrir
gamalt fólk en ekki fyrir sig.
StOl Vilhjálms er lipur og skemmtilegur og án til-
gerðar. Hann segir i formála að „þetta kver átti að
fjalla imi fólk og helst margt fólk og gerir það raunar.“
Ef til vill er það eini galli þessarar annars hugljúfu
og skemmtilegu bókar að höfundur nefnir of marga
Bókmenntir
Sigurdór Sigurdórsson
til sögunnar. Hann getur því ekki fjailað neitt sem
nemur um fjölmarga þeirra. Einkum á þetta við um
þá sem hann n'efnir til eftir að hann er orðinn þingmað-
ur í síðara skiptið. Ég hefði viljað sjá ítarlegri umijöU-
unum um suma þá sem hann nefir þá til sögunnar og
fá þá heldur framhald í annari bók um næstu jól. En
þetta eru smámunuir og varla að taki því að nöldrá
yfir því.
Það eru einkum tveir menn sem fá ítarlega umfjöllun
í bókinni og þess vegna verða þættimir um þá um
leið saga um aldarfar. Þetta eru kaflamir um föður-
bróðiur Vilhjálms, Sigdór V. Brekkan kennara, sem
lengst bjó í Neskaupstað og Svein Benediktsson í Mjóa-
firði. Þótt aldursmunur þeirra Vilhjálms og frænda
hans Sigdórs væri mikill er ljóst að þeir hafa bundist
órjúfandi vinarböndum. Það er afar ánægjulegt að lesa
frásögn Vilhjálms af þessum vini sínum og frænda.
Hin frásögnin af Sveini Benediktssyni, kennara, odd-
vita, póst- og símstjóra, bónda og matsmanni í Mjóa-
firði er líka einstök. Allt það sem þessi maður afrek-
aði og vann er með hreinum óllkindum. En það þótti
víst ekkert tiltökumál á fyrri hluta þessarar aldar að
vinna svona.
Þeir einstaklingar sem Vilhjálmur nefnir til sögunn-
ar í bókinni skipta hundruðum. Frásagnir af þeim em
allt frá því að vera tvær til þrjár línur og upp í nokkr-
ar blaðsíður. Eftir lestur bókarinnar efast ég um að
Vilhjálmur hafi nokkm sinni hitt mann sem honum
hefur ekki samið við. Hin landsfræga kímni Vilhjálms
nýtur sín vel í sumum frásögnunum. Gömul skondin
máltæki sem hann skýtur inn í við og við lífga mjög
upp á bókina.
Fullyrða má að þeir sem hafa gaman af að lesa frá-
sagnir af fólki, alls konar fólki, ungu og gömlu, alm-
úga og háttsettu og lesa um tíðaranda fyrri hluta aldar-
innar hér á landi munu njóta þessarar bókar. Þeim
fækkar óðum sem muna tímana tvenna, eins og oft
er sagt, og geta komið þeim minningum sínum á bók.
Þess vegna ber að fagna bók Vilhjálms Hjálmarssonar.
Vilhjálmur Hjálmarsson
Mannakynni - (rá öðru fólki og athöfnum þess
Æskan
Hallelúja!
NYJAR f fVIDDIR
Hönnun og útgáfo
Snorrabraut 54, bakhús, sími 561 4300, fax 561 4302
A mínu heimili eru jól sjaldnast
haldin án þess að upptökur á Mess-
íasi eftir Hándel komi þar einhvers
staðar við sögu, annaðhvort á að-
fongadaginn á undan jólamáltið
eða undir lágnætti sama dags. Ég
tala nú ekki um ef verið er að
syngja verkið einhvers staðar í
bænum.
99*17*00
- hagnýtar upp/ýsingar þegar þér hentar
Verð aðeins 39,90 mínútan.
Eins og mörgum öðrum þótti mér
á árum áður mest varið í að heyra
múg og margmenni leika og syngja
þetta magnþrungna óratóríó, en þá
virkjuðu menn gjarnan 2-300
manna kóra til þess, takandi feil á
„fyllingu" og „styrk“ í tónlist. í
seinni tið kann ég æ betur að meta
fámennari útgáfur verksins þar
sem hafa má meiri nautn af laglín-
um og fínlegri blæbrigðum þess.
Enda eru þær útgáfur klárlega í
samræmi við hugmyndir Hándels
sjálfs. Fyrir rúmum áratug sýndu
hljómsveitarstjórar á borð við
John Eliot Gardiner, NevUle Marr-
iner og Christopher Hogwood fram
á að „Messías" tapaði engu af
kynngi sinni við flutning 30 manna
hljómsveitcir og ámóta stórrar
söngsveitar, verður andaktugra og
innilegra ef eitthvað er.
Nýjar aríur
Hljómsveitarstjórinn William
Christie, merkisberi rómaðrar og
franskættaðrar barokksveitar, Les
Arts Florissants, hefur nú bætt við
enn einni túlkuninni á „messías"
og ekki þeirri ómerkustu. Christie
tekur tíúit til nokkurra breytinga
sem Hándel gerði á verkinu frá
1742 tíl 1759, eykur til dæmis við
það síðari útgáfum tónskáldsins á
tveimur aríum og einum kórsöng
frá 1745. Til flutningsins notar
Christie 33 manna hljómsveit sína,
einungis 25 manna kór og 5 ein-
söngvara. Hér er greinilega valinn
maður í hveiju rúmu, þvi hvað
snertír öll meginatriði, hraða, mýkt
og dramatískar andstæður, stend-
ur túlkun Christies í engu að báki
fyrri Messíasarupptökum, jafnvel
William Christie.
TónJist
Aðalsteinn Ingólfsson
þeim sem mest er í lagt. Það sem
tapast af þéttri barokkhrynjandi í
þessari upptöku vinnst á léttleika
og tærum hljómi hennar. Ein-
söngvarar eru alhr hreinasta af-
bragð, sérstaklega þýski barion-
söngvarinn .Andreas Scholl og
kanadíski bassinn Nathan Berg,
greinilega upprennandi stjömur
báðir.
Hér er sem sagt komin Messías-
arútgáfan sem ég ætla að vera í
heymarsambandi við um þessi jól.
Handel: Messías
Les Arts Florissants & William Christie
Einsöngvarar: Barbara Schlick, Sandr-
ine Piau, Andreas Scholl, Mark Pad-
more, Nathan Berg
Harmonia mundi 901498.99
Umboð á íslandi: Japis