Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1994, Page 44
FRETTASKOTIÐ
62 * 25 * 25
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað t DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 63 27 00
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ASKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriöjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SIMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 63 27 77
KL. &8 LAUGARDAGS- OG MANUDAGSMORGNA
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994.
i
i
i
i
i
i
i
i
* » /
ímorgun:
Fómarfamb Steingríms
dæmt til ef tirlits
24 ára íjölskyldumaður var í
morgun dæmdur í 9 mánaða skil-
orðsbundiö fangelsi og til þess að
sæta sérstakri umsjón „einstakra
manna“ í tvö ár á skilorðstíman-
um. Hann var jafnframt dæmdur
til að greiöa 7 ára stúlku 200 þusund
krónur i skaðabætur.
Maðurixm varð sjálfur íyrir mis-
notkun af hálfu kynferðisbrota-
mannsins Steingríms Njálssonar.
Réttarhöldin og niðurstaðan sner-
ist að talsverðu leyti um þann þátt
málsins, meðal annars sálfræði-
rannsókn, þó svo að refsingin og
niðurstaðan miðist ekki beinlínis
viö að maðurinn hafi haft fortíð
sína til afsökunar.
Sakborningurínn tók þrjú börn,
6 og 3 ára, upp 1 bfl sinn í Hafnar-
firði í september 1993. Hann er
dæmdur fyrir að hafa sýnt þeim
klámblöð og getnaöarlim sinn.
Hann var síðan handtekinn í októ-
ber þegar hann var kærður fyrir
svipað athæfi i Reykjavík. Maður-
inn gekkst viö þvi sem honum var
gefið aö sök.
Niöurstaða sálfræðings var sú að
sennilegt væri að kynferðisbrot
mannsins tengdist tiifmningatog-
streitu hans frá því að hann varö
fórnarlamb SteingrímsNjálssonar.
Rannsóknir á kynferðisbrota-
mönnum sýna að meirihluti þeirra
hefur orðið fyrír kynferöíslegu of-
beldi í æsku, aö sögn sálfræðings-
ins - fylgni sé á milli þess að verða
þolandi og síðan gerandi. Miklu
máli skipti að kynferðisbrotamenn
séu meðhöndlaöir. Sálfræðingur-
inn segir aö það hafi vafalaust
markað djúp spor í sálarlíf manns-
ins að hafa orðið fórnarlamb Stein-
gríms. Til rökstuðnings því voru
ýmis eiitkenni í fari mannsins lögð
til grundvallar - skömm, sjálfsefa-
semdir, heift og fleira. Þó hann
hafi sagt frá ofbeldinu á sínum tíma
fari því fjarri að hann hafi fengiö
viðeigandi andlegan stuðning.
Dómurinn taldi að til að koma í
veg fyrir frekari brot, sem sakborn-
ingurinn telur í raun sjálfur aö
hætta sé á, skyldi maðurinn dæmd-
ur til eftirlits sérstakra umsjónar-
manna.
-Ótt
Gjaldþrot Helgarpóstsins:
Þettaeraf ogfrá
- segir Guömundur Ámi
Mér heyrist kafiaheitið Draumur-
inn vera sannnefni. í bókinni minni
ræði ég hvemig það var að vinna á
fátæku blaði og tek sem dæmi að sjö
einstaklingar hafl tekið á sig skuld-
bindingar á Helgarpóstinum sem við
höfum verið aö greiða fram á þennan
dag. Þetta voru skuldir sem voru
okkur óviðkomandi því að við vorum
bara starfsmenn á þessu blaði en
lentum í þessu að ófyrirsynju. Þetta
var og er hið eðlilegasta mál að öllu
leyti,“ segir Guðmundur Árni Stef-
ánsson alþingismaður.
Morgunpósturinn birtir í morgun
tvo sambærilega þætti úr Bankabók-
inni eftir Ömólf Ámason og Hrein-
_um línum eftir Kristján Þorvaldsson
um gjaldþrot Helgarpóstsins fyrir tíu
árum þegar Guðmundur Ámi Stef-
ánsson var þar blaðamaður. Að sögn
Morgunpóstsins koma fram „vægast
sagt alvarlegar ásakanir" um skjala-
fals, fjárdrátt, samsæri við embættis-
menn um glæpsamlegt athæfi, brot á
bókhaldslögum og skattsvikum í
Bankabókinni.
„Þetta er meira en draumur. Þetta
er martröð. Það er af og frá að það
eigi við rök að styðjast að það séu
einhver undirmál eða glæpsamlegir
hlutir á ferðinni. Ég veit ekki hvaða
fullyrðingar þama era á ferð. í bók-
inni minni greini ég bara frá einfóld-
um staðreyndum um hvemig málin
engu fyrir sig á sínum tíma og hafa
:engiö fram á þennan dag,“ segir
Guðmundur Ámi.
Nýja kortatlmabiliö:
Rétt að spyrja í hvert sinn
„Sá misskilningur hefur komið
fram að nýtt kortatímabil sé hafið
hjá öllum fyrirtækjum sem hafa
posa-vélar. Það eru einungis þeir
söluaðilar sem era á svokölluðu
breytilegu tímabili sem era meö nýtt
kortatímabil. Almennt eru það sam-
keppnisverslanir sem hafa þegar
byriað á nýju kortatímabili, en sjopp-
ur og margir aðrir aðilar halda sig
við fasta tímabiliö, 18. hvers mánað-
ar. Langbest væri ef viöskiptavinur-
inn kannaði málið í hvert sinn sem
hann notar kortið,“ sagði Hörður
Valsson, deildarstjóri hjá Visa.
I i
i
i
i
Bónus 1 Holtagörðum:
Tíu söluhæstu bækurnar í sölu
- samkvæmt bókalista D V
Jóhannes Jónsson í verslun Bónuss t Holtagörðum með nokkrar af þeim
10 söluhæstu bókum sem hann er farinn að selja og miðar við bókalista
DV sem fyrst birtist í gær. DV-mynd ÞÖK
Bónus í Holtagörðum hóf í gær
sölu á 10 söluhæstu bókunum sam-
kvæmt lista DV sem birtur var í
fyrsta sinn í gær. Bækurnar eru seld-
ar á 15% lægra verði en gerist og
gengur í bókabúðunum. Að sögn
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hjá
Bónusi verður framvegis miðað við
bókahsta DV þegar velja á bækur í
sölu en hstinn styðst við sölutölur frá
fjölda bókaverslana um land allt.
Jón Ásgeir sagði að sumir bókaút-
gefendur hefðu „hikstað" þegar til
þeirra var leitað í gærmorgun en á
endanum hefði tekist að útvega allar
bækumar tíu. Að sögn Jóns var
framtakinu vel tekið af viðskiptavin-
um Bónuss. Bækurnar verða aðeins
seldar í versluninni í Holtagöröum.
Jóhann Valdimarsson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefanda,
sagði við DV að félagið gerði á þessu
stigi enga athugasemd við bókasölu
Bónuss þótt boðið væri 15% lægra
verð en annars staðar. Til skamms
tíma hefði regla gilt á milh útgefenda
og bóksala um fast verð en sú regla
gilti ekki lengur. Þess má geta að
Bóksala stúdenta hefur selt jólabæk-
ur á 10% afslætti sl. 2 ár.
Meðal þeirra útgefenda sem „hikst-
uðu“ í gær vora Vaka-Helgafell og
Setberg en á endanum fékk Bónus
bækur frá þeim. Ambjörn Kristins-
son hjá Setbergi sagði við DV að
Bónus væri greinilega að fleyta rjóm-
ann.
„Bókmenntir eru ekki eins og syk-
ur og hveiti. Slíkar vörur seljast allt
áriö en bækur nær eingöngu fyrir
jólin. Hundraö bókaverslanir era
hins vegar að rembast við aö selja
bækur allt árið. Við værum afskap-
lega hlynntir því ef Bónus seldi bæk-
ur allt árið,“ sagði Arnbjörn.
<■ 1
LOKI
Þetta er sannkallaðurjóla-
bónus hjá Jóhannesi!
Veðrið á morgun:
Kólnandi
veður
A morgun verður allhvöss
noröaustanátt á Vestfjörðum en
norðanáttin breiðist smám sam-
an austur yfir landið og annað
kvöld verður norðan og norð-
austan strekkingur um mestallt
land með éljum norðan til en úr-
komulausu syðra og kólnandi
veðri.
Veðrið í dag er á bls. 52
VINNA
3>
BLINDRA
BURSTAF RAMLEIÐSLA
SÉRGREIN BLINDRA
HAMRAHLlÐ 17 • REYKJAVlK
©91 - 68 73 35
i
i
i
i
i
f
i
i
i
f
f