Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Stuttarfréttir
Já*menn svartsýnir
Stuöningsmenn ESB-aðildar í
Noregi eru svartsýnir á framtíö
efnahagslífs Noregs vegna nei-
sigursins.
Jobimlátinn
Brasilíski
tónlistarma
urinn Antonio
Carlos Jobim,
upphafsmaöur
bossanóva-tón-
iistarinnar og
höfundurlagaá
borð Stúlkuna
frá Ipanema, lést í sjúkrahúsi í
New York á fimmtudag, 67 ára.
Ákærður fyrir hníf aárás
Þrítugur atvinnuleysingi í
Birmingham hefur veriö ákærð-
ur fyrir hnífaárás í verslun þar
sem 14 særðust.
Forsetadraumar
Phil Gramm, hægrisinnaður
repúblikani frá Texas, ætlar að
keppa um útnefningu flokksins
fyrir forsetakosningarnar 1996.
VillíEFTA
Stjórn fyrrum júgóslavneska
lýðveldisins Slóveniu hefur sótt
um aðild að EFTA.
Skipaðaðafvopna
Jeltsín Rússlandsforseti skipaði
stjórn sinni að afvopna andstæð-
ar fylkingar í Tsjetsjeníu.
Fjendurtalasaman
Sinn Fein, pólitískur armur
IRA, og bresk stjómvöld ræddu
ffið á Norður-írlandi í gær.
Dómurfordæmdur
Leiðtogar ESB fordæmdu fang-
elsisdóra yfir tyrknesk-kúrdísk-
um þingmönnum fyrir starfsemi
fjandsamlega tyrkneska ríkinu.
Hægff á vexti
Búist er við hægari hagvexti í
Bandaríkjunum á næsta ári
MaturtilBlhac
Fyrsta matarlestin í tvo mánuöi
komst til Bihac í Bosníu í gær.
Forðistátök
William
Perry, vamar-
málaráðherra
Bandaríkjanna,
sagöi í gær að
bandarisk
stjómvöld
væru staöráðin
í að blanda sér
ekki í átökin í Bosníu þótt þau
hefðu boðiö aðstoö við brottflutn-
ing sveita SÞ.
Frjálsverslun
Clinton Bandaríkjaforseti vill
mynda eitt verslunarsvæði fVá
Argentínu til Alaska.
NTB, Reutcr
Verðsveiflur
á bensíni
Gríðarmikil kaup á bensini á er-
lendum mörkuðum urðu til þess að
veröið lækkaöi verulega í byrjun vik-
unnar eða um allt að 12 prósent. Á
fimmtudag hækkaði verðið á ný en
er engu að síður nokkuð lægra en
fyrir viku. Á 92 oktana bensíni mun-
ar þar 7 prósentum.
Olía hefur ekki lækkað eins mikið
og bensínið undanfama viku en þó
um nokkra dollara tonnið. Helsta
ástæðan fýrir miklum kaupum er að
menn ætla að birgja sig upp fyrir
vetrarhörkur sem sums staðar eru
þegar byriaðar.
Verð á hlutabréfum í helstu kaup-
höllum heims er almennt lægra en
fyrir viku. Þannig náði Hang Seng
vísitalan í Hong Kong sögulegu lág-
marki á dögunum.
Reuter/Fin. Times
Útlönd
ísraelsk kona heldur uppi mynd af dóttur sinni sem hún segir að palestínsku skæruliðasamtökin Al Fatah hafi
myrt. Konan tók þátt í mótmælaaðgerðum i Osló í gær.
Símamynd Reuter
Öfgasinnaðir gyðingar mótmæla friðverðlaunahöfum 1 Ósló:
Rabin kallaður
landráðamaður
Öfgasinnaðir hópar gyðinga efndu
til mótmæla gegn friðarverðlauna-
höfum Nóbels, þeim Yasser Arafat,
leiðtoga PLO, Yitzhak Rabin, forsæt-
isráðherra ísraels, og Símoni Peres
utanríkisráðherra þegar þeir komu
til Óslóar í gær til að veita verðlaun-
unum viðtöku. Alls voru fimm mót-
mælendur handteknir.
„Rabin er landráðamaður," hróp-
uöu bandarískir öfgasinnar sem
höfðu tekið sér stöðu fyrir utan
Grand hótelið í Ósló þar sem þeir
Rabin og Peres halda til.
Talsmaður eins gyðingahópsins
sagði að með því að veita Arafat frið-
arverðlaunin hefðu Norðmenn gert
jafn mikið til að útbreiða hryðjuverk
og öll heimsins hryðjuverkasamtök
hefðu gert til samans.
Mikill viðbúnaður er í Ósló vegna
verðlaunaafhendingarinnar í dag og
hefur svæðið kringum Grand hótelið
verið girt af þannig að þangað kemst
enginn, hvorki akandi né gangandi.
Rabin sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær að það hefði verið
erfið ákvörðun að taka við verðlaun-
unum með Arafat. „En ísraelska rík-
isstjómin ákvað að viö vildum friö í
Miðausturlöndum," sagði Rabin.
Símon Peres sagði aö hann mundi
ræða við Arafat á meðan á Óslóar-
dvölinni stæði. „Við ætlum aö nota
allan þann tíma sem við höfum til
að ræða saman. Ég tel þó ekki að þau
vandamál séu til sem við getum leyst
á tveimur dögum, heldur ekki á
tveimur vikum,“ sagöi Peres.
Haft var eftir Yasser Arafat í gær
að ísraelsmenn væru að torvelda
friðarviðleitni manna með því aö
fresta kosningum á heimastjórnar-
SVæðunum. NTB, Reuter
Tvímenningarnir neita aðild
Mennirnir tveir sem grunaðir eru
um að hafa staðið fyrir skotárásinni
á næturklúbbinn í Stokkhólmi í vik-
unni, Guillermo Marquez Jara og
Tommy Zethraeus, voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald í gær. Fjórir létu líf-
ið í árásinni og fjölmargir slösuðust.
Báðir mennirnir neita að hafa átt
þátt í moröunum. Jara viðurkenndi
að gildar ástæður væru fyrir því að
hneppa hann í varðhald. Það þýddi
þó ekki að hann gengist við morðun-
um, að sögn lögfræðings hans.
„Morðvorpnið hefur ekki fundist
enn,“ sagði Jan Danielsson, aðalsak-
sóknari í málinu, í gær.
Mikil þröng var á þingi þegar
beiðnin um gæsluvarðhald yfir
mönnunum var tekin fyrir og hélt
lögreglan uppi strangri öryggis-
gæslu. TT
m W(t) Kauphallir og vöruverð erlendis
3700
3600 3488,73
-ft
|1900S55S7204iL12
s Q N D.
N,kkd
19000
18500
gj -f, 18978,30
S 0 N D
10000 H«níS«ní
, 9500 V
7500 8268,50
■''®: S 0 N D
bdh
.—r-T irnui-TTvm
360 4000^
340 í J
fr innn
320<s // JUUU
• 300 -
. 2000
280. 349,10 2782
s 0 N D S 0 N D
200
=m3M
Ferðamennvilja
framhaldævin-
týrisins
„Díana er svo
fallegstúlka. Ég
vona aö þau
skilji ekki.
Hvað verður
um litlu prins-
ana ef þau
bjarga ekki
hjónaband-
inu?“ sagði Elaine Holloway, 91
árs gömul kona, í fyrstu heim-
sókn sinni til Buckingham-hallar
í gær.
Aðrir ferðamenn við bresku
konungshöllina voru sama sinnis
en í gær voru liðin tvö ár frá því
að Karl prins og Dfana skildu að
borði og sæng og þeim því heim-
ilt að fá lögskilnað í flýti ef sá
væri viljj þeirra beggja.
Djúpkreppaí
grænlensku
samfélagi
Efnahagslífiö á Grænlandi er í
mikiili kreppu og nauðsynlegt að
einkavæða smásöluverslunina og
samgöngufyrirtækin til að skapa
eðlilegt atvinnulíf í landinu.
Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu um efnahagslíf granna
okkar í vestri sem prófessor
Martin Paldam i Árósum gerði
að beiðni Rockwool-sjóðsins og
birt var í gær.
Hver einasti Grænlendingur
þiggur sem svarar um sex hundr-
uð þúsund íslenskum krónum að
gjöf frá danska ríkinu og Evrópu-
sambandinu til að geta lifað viö
svipuð kjör og Danir gera. Fram-
leiðsla landsins er hins vegar í
engu samræmi við neysluna.
Ef ekki kæmi til ríkisstyrkur
Dana upp á tæpa þrjátíu milíjaröa
væri illt í efni en óvist er hins
vegar hversu lengi póhtískur vilji
verður í Danmörku tU að borga
brúsann.
Fliigræiunginn
ekkiframseldur
Þjóðverjum
Norskur dómstóll ákvað í gær
að palestínska baráttukonan og
flugræninginn, Souhaila Sami
Andrawes, skyldi ekki framseld
til Þýskalands vegna ráns á flug-
vél Lufthansa árið 1977.
„Þetta er ekki sigur fyrir mig,
heldur sigur palestínsku þjóðar-
innar," sagöi Souhaila þegar nið-
urstaðan lá fyrir.
Þýsk dómsmálayfirvöld viidu
ekkert tjá sig um máliö þegar eft-
ir var leitað þar sem opinber til-
kynning hafði ekki borist síðdeg-
is 1 gær.
KohlsegirESB
Horðmönnum
ennþáopið
Helmut Kohl
Þýskalands-
kanslari undir-
strikaði viö
upphaf leiö-
togafimdar
Evrópusam-
bandsins í Ess-
en i gær aö dyr
sambandsins stæðu Norðmönn-
um enn þá opnar.
Það virðist því sem norsk
stjómvöld séu farin aö sjá árang-
ur af þeirrí viðleitni sinni að
varðveita sem best tengsl við ESB
eftir að þjóðin hafnaöi aðild á
dögunum.
Kohl harmaði aö fulltrúar
Norðmanna sætu ekki við fund-
arboröíð í Essen en sagðist vona
að efnt yrði til þriðju þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar.
Reuter, Ritzau, NTB