Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
49
„Mér finnst
kynlíf
leiðinlegt!"
„Stundum er fólki i kynlífs- eða samlifsvanda ráðlagt að breyta um
umhverfi um stundarsakir, fara í fri eða njótast eina helgi á hótelher-
bergi, fjarri simum og argaþrasi í heimabyggðum."
„ Já, Nökkvi minn, þetta er svona
einfalt. Mér finnst kynlíf leiöin-
legt!“ Maðurinn þagnaði og leit
upp. Hann hafði setið og rakið
raunir sínar um stund. Hjónaband-
ið var ekki gott. Kynlífið var bæði
dauft og óspennandi. Fjárhagurinn
ekki heldur eins og best varð á
kosið. Hann fann enga aðra skýr-
ingu á kynlífsvanda en leiðindi.
Nökkvi sagðist kannast við þessi
vandamál. Margir miðaldra karl-
menn kvarta undan kynlífsleiða
sem oft stafar af því að kynferðis-
legur neisti megnar ekki lengur að
tendra skemmtilegt ástríðubál.
Kannski má kalla vandamálið
vana. Heilinn hættir að æsast upp
þegar ákveðið áreiti kemst upp í
vana og verður leiðinlegt. Vana-
bundið tilbreytingarlaust kynlíf ár
eftir ár getur orðið jafn leiðinlegt
Á læknavaktiimi
og frasakenndar ræöur stjórn-
málamanna eða áramótaræða út-
varpsstjóra. Ekkert nýtt, ekkert
spennandi, alltaf sama haliæris-
legarútínan.
litlaust kynlíf
Nökkvi leit á manninn og sagði:
„Litlaust kynlíf getur orðið mörg-
um til ánægju í nokkur ár meðan
losti og löngun er mikil hjá fólki.
^ En eftir því sem árin líða þarf
meira áreiti til að koma mönnum
til. í dýratilraunum hefur verið
sýnt fram á að framleiðsla heilans
á dópamíni minnkar með aldrin-
um. Þetta boðefni er tahð bera á
einhvem hátt áhyrgð á kynæsingn-
um eða greddunni sem allir þekkja
misvel. Margir líkja kynæsingu eða
greddu við hástökk. Tvítugir karl-
ar geta hoppað hátt yfir rána bæði
aftur á bak og áfram, með bundið
fyrir augun. Eftir því sem árin líða
hækkar ráin og smám saman
breytist hástökkið í stangarstökk.
Menn þurfa meira áreiti og spennu
en áður til að stökkva yfir slána.
Þetta gerir það að verkum að til-
breytingarlaust og leiðinlegt kynlíf
verður jafn spennandi og hrár
laukur með súkkulaðisósu. Það er
því nauðsynlegt að brjótast út úr
viðjum vanans.“ Nökkvi tók sér
stutta málhvíld. „Öll önnur vanda-
mál sambúðarinnar setja svip sinn
á kynlífið enda er erfitt að skapa
sér ástríðuþrungið kynlíf í tilfinn-
ingalegri fry stikistu. “ Hann hélt
áfram: „Ég las eitt sinn um rann-
sókn sem gerð var á hópi karl-
manna sem horfðu á spennandi
klámmynd. Þeir voru neyddir til
að horfa á sömu myndina nokkmm
sinnum. Eftir því sem sýningum
fjölgaði minnkaði allur æsingur.
Stunur sem heyrðust í fyrstu sýn-
ingunni breyttust í geispa og þreytt
blístur. Smábreytingar á myndinni
gátu þó gert hana spennandi á nýj-
an leik. Stundum er fólki í kynlífs-
eða samlifsvanda ráðlagt að breyta
um umhverfi um stundarsakir,
fara í frí eða njótast eina helgi á
hótelherbergi fjarri símum og
argaþrasi í heimabyggðum. Stund-
um var mælt með því að breyta til
í svefnherberginu, færa rúmið,
skipta um myndir á veggj um eða
hætta að klæöast grámuskulegum
náttfötum." Maðurinn horfði á
Nökkva gleðisnauðum augum.
Fleiri úrræði
Nökkvi færöist allur í aukana.
„En þetta dugir ekki alltaf. Stund-
um þarf að grípa til einhverra ann-
arra úrræða til að vekja áhuga
fólks að hoppa yfir rána. Konan
getur tekið á sig gervi Rauðhettu,
vændiskonu, skólastúlku, stöðu-
mælavarðar eða æstrar nunnu til
að örva mann sinn til dáða. Maður-
inn þarf stundum að leika ástríðu-
fullan ítalskan smákrimma eða
bandarískan slökkvihðsmann til
að æsa konu sína til trylltra kyn-
maka.“ Viðmælandi Nökkva horfði
á hann furðuaugum. „Ertu genginn
af göflunum, Nökkvi?" sagði hann.
„Þú ert ekki í neinum tengslum við
veruleikann." En Nökkvi hélt
áfram: „Kannski þarft þú að taka
meira frumkvæði og láta andartak-
ið bera þig á vængjum sér. Koma
við frúna í eldhúsinu, hvísla að
henni ástarorðum og strjúka henni
um bakið og rassinn." Maðurinn
hafði nú sannfærst um það að
Nökkvi væri genginn af vitinu. „Ef
ég gerði eitthvað slíkt yfir eldhús-
vaskinum mundi konan mín reka
mig í gegn með brauðsaxinu."
Nökkvi lét sem hann heyrði þetta
ekki. „Þið verðið bæði að vinna
ykkur út úr viðjum kynhfsvanans
þar sem allt gengur sinn þreytta
gang eins og sjónvarpsþáttur þar
sem ahir eru löngu búnir að átta
sig á atburðarásinni marga þætti
fram í tímann. Stundum þarf kon-
an að taka frumkvæði og sýna
meiri áhuga á kynlifi. Það nægir í
fæstum tilvikum að haha sér aftur
á bak, loka augunum og velta fyrir
sér helgarinnkaupunum í Bónusi
meðan kalhnn athafnar sig. Slíkt
kveikir engan neista hjá manni
sem er að reyna aö tendra ástarbál
með rennandi blautum eldspýtum
í hífandi roki.“ Þeir horfðust í augu
nokkra hríð. „Máhð er að vinna sig
út úr rútínunni. Endurnýja kynn-
in, kveikja bál, vinna í sambandinu
og finna aftur þennan grunn sem'
allt byggðist á eitt sinn í árdaga.“
Maðurinn horfði á Nökkva. Það
var gaddavír í augum hans. „En
hvað á að gera þegar sambandið
var eins og skýjaborg, byggö á
sandi? Hvaö á að gera við kynlíf
sem hkist mest 2005ta þættinum í
Húsinu á sléttunni?" Hann reis á
fætur og gekk á dyr. „Vertu sæh!
Nökkvi kynlífsexpert. Þú hefur
engar lausnir nú fremur en venju-
lega. Réttast væri að kæra þig fyrir
landlækni!"
„BÚKOLLA44
Orðsending til áskrifenda
Bókin Sveitir og jarðir í Múlaþingi, 5. bindi,
kemur ekki út fyrir jól. Boðið er upp á gjafa-
kort fyrir áskrifendur og aðra sem höfðu
hugsað sér að hafa bókina í jólapakkann.
Áskrifendum stendur einnig til boða að fá
fleiri eintök á áskriftarverði.
Upplýsingar í s. 97-11161 og 11226 (Freyja).
Búnaðarsamband Austurlands
Rýmingarsala í cptll
Vegna skipulagsbreytinga höf-
um við rýmingarsölu laugardag-
inn 10. desember, kl. 10-18, og
sunnudaginn 11. desember, kl.
13-17, og næstu viku.
20—40% afsláttur á flestu sem til er
á lager.
• Stakir stólar, sófar, fatahengi og fleiri húsgögn.
• Stokke Balans stólar með 20% afslætti.
• Allir lampar á lager með 25% afslætti.
• Afmælislampar Poul Henningsen á kostnaðarverði.
• Værðarvoðir frá kr. 3.500.
• Hewi baðherbergisvörur: snagar, slár, pappírshaldar-
ar o.fl. í hvítum lit. Uno form skápar og fylgihlutir,
stakir.
• Bútar, bútar,
mikill afsláttur.
Faxafeni 7, sími 687733
DANWEAR
5.Stræti
KRINGLUNNI