Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
67
Afmæli
Gudmundur Sæmundsson
Guömundur Sæmundsson, verslun-
armaður og húsgagnabólstrari,
Fomhaga 15, Reykjavík, verður sex-
tugurámorgun.
Starfsferill
Guðmundur er fæddur í Haganes-
vík í Fljótum í Skagafjarðarsýslu.
Hann lauk iðnskólaprófi frá Iðn-
skólanum í Reykjavík 1960 og
sveinsprófi í bólstrun frá Trésmiðj-
unni Víði í Reykjavík sama ár. Guð-
mundur fékk meistararéttindi í
bólstrun 1967. Hann hefur sótt leið-
sögumannanámskeiö hjá Ferða-
skrifstofu ríkisins og námskeið í
auglýsingagerö, ljósmyndun, blaða-
mennsku, þáttagerð o.fl.
Guðmundur starfaði við innrétt-
ingar á flugvélum hjá Flugfélagi ís-
lands á Reykjavíkurflugvelli 1962,
var sjómaður á ms. Kötlu 1963-64
og ms. Heröubreið 1964-65 og hefur
verið húsgagnabólstrari, verslunar-
maöur o.fl. hjá Bólstrun Guðmund-
ar Sæmundssonar frá 1967.
Guðmundur var leiðsögumaður í
hálendisferðum 1958-66, sinnti ýms-
um félagsmálastörfum í Ólafsfirði
(einkum varðandi íþróttamál)
1951-54 og var félagi í Lionsklúbbi
Þorlákshafnar 1981. Hann er stofn-
félagi í Félagi leiðsögumanna í
Reykjavík (1972) og Islenska flug-
sögufélaginu í Reykjavík (1977), fé-
lagi í Félagi frímerkjasafnara í
Reykjavík frá 1984 og í Félagi póst-
kortasafnara frá 1970. Guðmundur
var félagi í skíöaráði Fljótamanna
1949-50 og íþróttafélaginu Leiftri á
Ólafsfirði 1951-54. Hann hefur veitt
Pósti og síma ráðgjöf varðandi val
samgöngutækja á íslensk frímerki
frá 1991. Guðmundur hefur safnað
minjum og gögnum í fjóra áratugi
varðandi sögu atvinnu-, samgöngu-
og ferðamála á íslandi.
Ritstörf: Bókakaflar í íslensku
flugsögunni 1-5: Ágrip af sögu síld-
arleitarinnar úr lofti við ísland
1928-65, Þættir úr flugsögu Bjöms
Pálssonar (sjúkraflugið), Færeyja-
flugið og aðdragandi þess og Þættir
úr sögu Loftleiða. Kafli í Skagfirð-
ingabók 1986: Samgöngur á sjó við
Haganesvík á 20. öld. Skrifaði um
100 þætti af íslenskum skipum í
Æskuna 1970-83. Greinar í blöðum
og tímaritum, erindi og þættir í út-
varpi um ferðamál o.fl.
Guðmundur var geröur að heið-
ursfélaga íslenska flugsögufélagsins
1987 og fékk verðlaun fyrir þátttöku
í frímerkjasýningu Nordia 91 varð-
andi póstílutninga á sjó við ísland
1876-1990,1991.
Fjölskylda
Kona Guðmundar er Sigrún
Finnsdóttir, f. 26.12.1941, matráðs-
kona. Foreldrar hennar: Finnur
Klemenzson, f. 1.12.1907, d. 2.9.1989,
bóndi og Herdís Guðmundsdóttir, f.
11.10.1910, húsmóðir. Fyrri kona
Guðmundar var Björg Ölína Hin-
riksdóttir, f. 17.2.1942, verslunar-
maður.
Dætur Guðmundar og Sigrúnar:
Linda Salbjörg, f. 23.6.1968, leið-
sögumaður og sagnfræðingur; Edda
Herdís, f. 19.10.1972, við nám í
Frakklandi; Alda Björk, f. 5.11.1978,
nemi í Verslunarskóla íslands. Son-
ur Guðmundar og Sólrúnar Páls-
dóttur: Guðjón, f. 13.11.1963, raf-
virki.
Systkini Guðmundar: Björg, f.
24.7.1920, iðnverkakona; Rósleifur,
Elísabet Lárusdóttir
Guðmundur Sæmundsson.
f. 29.6.1922, d. 10.1.1928; Bára, f.
18.6.1924, verkakona.
Foreldrar Guðmundar: Sæmund-
ur Jónsson, f. 5.10.1895 á Austari-
Hólum í Fljótum, bóndi og smiður,
og Salbjörg Helga Þorleifsdóttir, f.
15.9.1897 á Búðarhóh í Kleifum,
Ólafsfirði, d. 20.9.1976, húsmóðir.
Guðmundur er að heiman á af-
mælisdaginn.
• •
Elísabet Lárusdóttir félagsráðgjafa-
nemi, Vorsabæ 14, Reykjavík, verð-
ur sextug á morgun.
Starfsferill
Elísabet er fædd í Reykjavík en
ólst upp á Eyrarbakka til 14 ára ald-
urs hjá systkinunum Þorkatli Ólafs-
syni kaupmanni og Jóhönnu Ólafs-
dóttur. Þau eru bæði látin. Elísabet
lauk verslunarskólaprófi frá Versl-
unarskólaíslands 1953, stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1986 og BA-prófi í félags-
fræði frá Háskóla íslands 1994.
Elísabet vann við skrifstofustörf
og var eitt ár í bókabúð Máls og
menningar í Síðumúla áður en hún
hóf nám við Háskóla íslands.
Fjölskylda
Elísabet giftist 1954 Jóni Friðgeiri
Magnússyni, f. 5.2.1933, bifvéla-
virkja. Foreldrar hans: Magnús
Jónsson, frá Bolungarvík, og Laufey
Guðjónsdóttir. Þau eru bæði látin.
Börn Elísabetar og Jóns: Þorkell
Jóhann, f. 31.10.1953, tæknifræðing-
ur, kvæntur Helgu Hauksdóttur, f.
2.12.1953, húsmóður og skrifstofu-
manni, þau eiga þrjá syni, Harald
Hauk, Hlyn Hrafn og EgO Gauta;
Sigríður, f. 27.10.1956, leikskóla-
stjóri, gift Sigurbirni Rúnari Guð-
mundssyni, f. 1.6.1955, matreiðslu-
manni, þau eiga þijú börn, Jón Geir,
Evu Maríu og Guðmund Magnús;
Magnús, f. 13.12.1961, tæknifræð-
ingur, búsettur í Danmörku, kvænt-
ur Elísabetu Blach, f. 9.81957, bygg-
ingafræðingi, þau eiga tvö börn,
Vigdísi Elísabetu og Fredrik Jón;
Margrét Lóa, f. 29.3.1967, ljóðskáld
og nemi við Menntaskólann viö
Hamrahlíð, sambýlismaður hennar
er Jóhann Torfason, f. 3.4.1965,
myndlistarmaður, þau eiga eina
dóttur, Viktoríu.
Systir Elísabetar: Nína, f. 6.1.1932,
afgreiðslumaöur í Reykjavík, gift
Hans Benjamínssyni, f. 23.8.1926,
d. 1.1.1982. Hálfbróðir Elísabetar,
samfeðra: Valur Fannar, f. 24.6.1927,
gullsmiður, kvæntur Hönnu Aðal-
steinsdóttur, f. 16.6.1930.
Foreldrar Elísabetar: Lárus Böðv-
arsson, f. 15.5.1905, d. 11.9.1972,
lyfjafræðingur, og Sigríður Haralds-
dóttir, f. 16.8.1913, d. 23.7.1987, hús-
móðir.
Ætt
Lárus var sonur Böövars Stefáns-
Elísabet Lárusdóttir.
sonar söðlasmiðs og Jónínu Stefáns-
dóttur húsmóður. Þau bjuggu á
Seyðisfirði.
Sigríður var dóttir Haralds Guð-
mundssonar, frá Háeyri á Eyrar-
bakka, bankastarfsmanns í Búnað-
arbanka íslands, og Þuríðar Magn-
úsdóttur húsmóður frá Árgilsstöð- '
um í Hvolhreppi, þau bjuggu fyrst
á Eyrarbakka og síðar í Reykjavík.
Elísabet og Jón verða með opið
hús frá kl. 17-20 á afmælisdaginn,
11. desember.
___________Menning
Söngvísir
blásarar
Blásarakvintett Reykjavíkur hélt árlega kvöld-
lokku-tónleika sína ásamt öðrum félögum í Krists-
kirkju sl. miðvikudagskvöld. Kvintettinn hóf tónleik-
ana á því að leika Adagio í B-dúr K-411 eftir Mozart í
útsetningu Gúnthers Weigelts. Var þátturinn ágætlega
leikinn þótt oft hafi kvintettinn leikið af meiri fágun.
Stef og tilbrigði eftir Hándel, „Járnsmiðurinn söngv-
ísi“, hljómaði næst, en það er úr svítu nr. 5, í útsetn-
ingu Peters Vollmers. Reyndi það nokkuð á hpurð
hljóöfæraleikaranna sem skhuðu þv' léttilega og af
smekkvísi.
Blásarakvitettinn fékk að þessu sinni til hðs við sig
þau Peter Tomkins óbóleikara, Sigurð I. Snorrason
klarínettleikara, Lilju Valdimarsdóttur homleikara og
Rúnar H. Vhbergsson fagottleikara th flutnings á
tveim verkum eftir Mozart, divertimentói í B-dúr, K-
270 fyrir tvö óbó, tvö horn og tvö fagott og Serenööu
í Es-dúr, K-375 fyrir blásaraoktett.
Mozart samdi á fyrri hluta ársins 1777, (þegar hann
var 21 árs gamah) ein fjögur divertimentó. Þaö í B-
dúr, K-270 er þeirra þekktast og er ágætt dæmi um
hvemig snilligáfa Mozarts glæddi jafnvel tækifæris-
tónhst lífi ódauðleikans.
Flutningur verksins var bæði góður og einkar þokka-
fullur. Serenaðan í Es-dúr, K-375 var síðasta verk tón-
leikanna. Verkið samdi Mozart í Vínarborg árið 1781
Tónlist
Áskell Másson
upphaflega fyrir tvö klarínett, tvö horn og tvö fagott,
en bætti síðar við tveim óbóum. Serenaða þessi er
meðal þeirra þekktari frá hendi Mozarts og reyndar
má segja að öll tónlist þessara tónleika sé meðal þess
sem flestir þekkja. Þessi yndislega Serenaða var eink-
ar fallega leikin og af fágaðri líðandi.
Snihi og kankvisi Mozarts, söngvísi blásaranna og
háttvísi túlkunar þeirra gerðu þessa tónleika sérlega
ánægjulega.
Sigurlaug Andrésdóttir,
Dvalarheimihnu Sauðá, Sauðár-
króki.
75 ára_______________________
Rögnvaldur Ólafsson,
Skagfirðingabraut 11, Sauðárkróki.
Unnur Helga Möller,
Hverfisgötu27, Siglufirði.
Valtýr Jónsson,
Norðurvegi 1, Hrísey.
Unnur Einarsdóttir,
Valþjófsstaö II, Fljótsdalshreppi.
Svava Gísladóttir,
Víðilundi 4c, Akureyri.
Valtýr Jónsson,
Bólstaðarhlíð 62, Reykjavík.
60 ára
Halidór Jónsson,
Steini, Skarðshreppi.
Bogi Arnar Finnbogason,
Engjaseli 43, Reykjavík.
Hanneraðheiman.
Dagbjartur Sigursteinsson,
Eyjabakka 4, Reykjavík.
Sigurður Bergsteinsson,
Sigtúni 13, Patreksfirði.
Gylfi Friðriksson,
Barónsstíg 59, Reykjavík.
Hj ördís Edda Karlsdóttir,
Berugötu 9, Borgaraesi,
Hún tekur á móti gestum í Sam-
komuhúsinu 1 Borgarnesi á afmæl-
isdaginn milh kl. 17.00 og 20.00.
Amar Guðmundsson,
Vogalandi 6, Reykjavík.
Sunneva Jónsdóttir,
Skólagerði 30, Kópavogi.
Ásdís Gunnarsdóttir,
Lækjarhúsi, Hofi II, Hofshreppi.
Guðni Þ. Skúlason,
Hofslundi 7, Garðabæ.
Einar Pálmi Óttesen sjómaður,
Ásbúöartröð 33, Hafharfiröi.
Jón Þorvaldur Waltersson,
Kirkjugerði 10, Vogum, Vatns-
leysuströnd.
Óskar Ingólfsson,
Reykjavíkurvegi 31, Reykjavík.
Sveinfríður G. Þorvarðsdóttir,
Skipholti 60, Reykjavík.
Sveinn Eggertsson,
Skúlagötu 80, Reykjavík.
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, 3. h., sem hér segir,
á eftirfarandi eignum:
Breiðvangur 8, 0402, Hafnarfirði,
þingl. eig. Gunnar Finnsson, gerðar-
beiðendur Bæjarsjóður Hafharfiarðar,
Húsnæðisstofnun ríkisins og Lsj. raf-
iðnaðarmanna, 13. desember 1994 kl.
14.00,________________________
Hákotsvör 3, Bessastaðahreppi, þingl.
eig. Aldís Elíasdóttir, gerðarbeiðendur
Bessastaðahreppur, Húsnæðisstofnun
ríkisins, Lsj. sjómanna og Lífeyris-
sjóður verslunarmanna, 13. desember
1994 kl. 14.00._______________
Klettahraun 19, Haiharfirði, þingl.
eig. Teitur Eyjólfsson og Lovísa G.
Viðarsdóttir, gerðarbeiðendur Bæjar-
sjóður Hafharfjarðar, og Húsfélagið
Suðurgötu 7, Rvk, 13. desember 1994
kl. 14.00.
Lyngás 1, 3101,+ vélar og tæki,
Garðabæ, þingl. eig. Lyngás 1 hf.,
gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Garðabæ, Iðnlánasjóður og sýslumað-
urinn í Hafnarfirði, 13. desember 1994
kl. 14.00.
SÝSLUMADURINN í HAFNARFIRDI
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirtalinni
eign verður háð á henni
sjjálfri sem hér segir:
Lyngmóar 6, 0201, Garðabæ, þingl.
eig. Guðmundur Hilmar Zoéga og
Ágústa Björk Hestnes, gerðarbeið-
endur Anna J. Halldórsdóttir og Hús-
næðisstofhun ríkisins, 16. desember
1994 kl. 11.00.
SÝSLUMADURINN í HAFNARFIRÐI