Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 24
24
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Skák
Friðrik og Larsen vöktu
athygli í Moskvn '56
11. desemberkl. 16:30
Ólympíuskákmótiö sem nú
stendur yfir í Moskvu er 32. mótið
í röðinni. Þetta er í annað sinn sem
ólympíumót er haldið í Moskvu
þótt aðstæður séu nú með riokkuð
öðrum hætti. Þegar tefit var í
Moskvu 1956 stóð veldi kommún-
ista sem hæst en nú er öldin önnur
þótt áhöld séu um það hvort ástand
þar eystra hafi batnað eða versnað.
Þrjátíu og íjórar þjóðir sendu full-
trúa sína á mótið í Moskvu ’56. Eins
og við mátti búast fóru Sovétmenn
með sigur af hólmi, enda engir
smáfiskar þar um borð: Botvinnik,
Smyslov, Keres, Bronstein, Taj-
manov og Geller. Sveit Júgóslava,
með Gligoric á fyrsta borði, hreppti
silfurverðlaun og bronsið kom í
hlut Ungverja þar sem Szabo var í
fararbroddi.
Teflt var með öðru sniði á ólymp-
íuskákmótunum en nú er þar sem
tefldar eru 14 umferðir eftir
Monrad-keríi í einum stórum
flokki yfir hundrað þátttökuþjóða.
Fyrst voru undanrásir og síðan
teflt til úrshta í þremur flokkum. '
íslenska skáksveitin var skipuð
Friðriki Ólafssyni, Inga R. Jó-
hannssyni, Baldri Möller, Frey- Friðrik Ólafsson og Bent Larsen vöktu mikla athygli á ólympíumótinu í Moskvu 1956, liðlega tvitugir. Friðrik
steini Þorbergssyni, Sigurgeiri vann m.a. Najdorf og Larsen hreppti stórmeistaratitil.
Gíslasyni og Arinbimi Guðmunds-
syni. f undanrásum gekk sveitinni
ekki sem skyldi og tókst ekki að
komast í „A-úrslit“ og tefia í hópi
tólf útvalinna þjóða. Hins vegar
stóð sveitin sig vel í B-flokki, varð
þar í 2. sæti á eftir Austurríkis-
mönnum en fyrir ofan sveitir Svía,
Finna, Hollendinga, Þjóðverja,
Frakka og Norðmanna, svo nokkr-
ar séu nefndar.
Friðrik Ólafsson, 21 árs gamall,
náði bestum árangri íslensku kepp-
endanna, fékk 13 v. úr 18 skákum.
Friðrik hafði þegar getið sér gott
orð á alþjóðavettvangi og þátttaka
hans vakti töluverða athygli, enda
var sýnt að þarna var maður fram-
tíðarinnar á ferð. Athyglin beindist
ekki síður að jafnaldra Friðriks og
félaga, Bent Larsen, sem var svo
lánsamur að koma dönsku sveit-
inni upp í A-flokk. Larsen „sló í
gegn“ í baráttunni við stórmeistar-
ana, hlaut 14 v. af 18 mögulegum
og var í kjölfarið útnefndur stór-
meistari.
Lítum á þekktustu skák Friðriks
frá Moskvu. Hér á hann í höggi við
stórmeistarann fræga, Miguel
Najdorf, sem þá var 46 ára gamall
og margreyndur áskorandi.
Hvítt: Friðrik Ólafsson
Svart: Miguel Najdorf
Kóngsindversk vörn.
1. c4 RfB 2. Rc3 g6 3. d4 Bg7 4. e4
d6 5. f3 e5 6. Rge2 c6 7. Be3 0-0 8.
Dd2 Da5?!
Þótt mikið vatn hafi runnið til
sjávar síðan þessi skák var tefld
byggist „teórían" enn á gömlum
grunni. Betra er taliö 8. - Rbd7, eða
8. - exd4 en tilraun Najdorfs, sem
virðist beint gegn langri hrókun
hvíts, reynist einfaldlega leiktap.
9. d5! cxd5 10. cxd5 a6 11. a3 Dd8
Ef 11. - b5 12. b4 Dd8 13. Rcl og
síðan 14. Rb3 og hvítur beinir spjót-
um sínum að drottningarvængn-
um.
12. g4 Rbd7 13. Hbl b5 14. h4 Hb8
Eins og Friðrik bendir á í sinni
ágætu bók, Við skákborðið í aldar-
fjórðung, sem út kom hjá tímarit-
inu Skák 1976, er 14. - h5 betra sem
spomar við atlögu hvíts.
15. Rg3 b4 16. axb4 Hxb4 17. h5 Rc5
18. hxg6?! fxg6 19. Dh2!
Svartur á nú í mestu erfiðleikum
BJARTMAR GUÐLAUGSSON
BJÖRGVÍN HALLDÓRSSON
BJÖRN JÖRUNDUR
BUBBI MORTHENS
DANCIN MANIA
EGILL ÓLAFSSON
HÖRÐUR TORFASON
KÓR ÖLDUTÚNSSKÓLA
PLÁHNETAN
SCOPE OG SVALA BJÖRGVINS
SSSÓL
TRÍÓ ÓLAFS STEPHENSEN
VINIRVORS &BLÓMA
ólatónleikar
SKÍFUNNAR
1 Háskólabíói
til styrktar krabbameinssjúkum bömum
með að mæta hótuninni 20. g5 en
gæti þó reynt 19. - Kf7! sem sovéski
skákmeistarinn Romanovsky
stakk upp á, með hugmyndinni 20.
g5 Re8 21. Dxh7? Hh8 og fangar
drottninguna. Þetta er ástæðan fyr-
ir því að uppskiptin í 18. leik vora
trúlega of snemma á ferðinni.
19. - De8? 20. g5 Rh5 21. Rxh5 gxh5
8 i VXé
7 Jl A
6 1 Á
5 4Ai AA
4 I A
ABCDEFGH
22. Bxc5!
í raun og veru vinnur Friðrik sig-
ur með þessum og næstu leikjum
sem byggjast á þeirri strategísku
hugmynd að skilja svartan eftir
með tætta peðastöðu í endataflinu.
22. - dxc5 23. Be2!
Auðvitað ekki strax 23. Dxh5?
Dxh5 24. Hxh5 Hxf3 og hótar 25. -
Hxc3. Peðið á h5 býr ekki við nein-
ar samgöngur.
Umsjón
Jón L. Árnason
23. - a5 24. Rdl!
Annar sterkur leikur. Riddarinn
býr sig undir að heija að veikleik-
um svarts.
24. - Dg6 25. Dxh5 Dxh5 26. Hxh5
Bd7 27. Hcl Hc8 28. Bc4 Be8 29. Hh2
Bf8 30. Re3 Hcb8 31. Hlc2 Bg6 32.
Hhd2 Bd6 33. Ba2!
Og nú, þegar riddarinn hefur að-
gang að c4-reitnum, fer að styttast
til leiksloka.
33. - Kg7 34. Rc4 Bc7 35. d6 Bd8 36.
Rxe5 Bxg5 37. Rc6! H4b6 38. Rxb8
Bxd2+ 39. Hxd2 Hxb8 40. e5
- Og Najdorf gafst upp. Eitt ein-
kenni á skákum Friðriks er hversu
seint hann hrókar. í þessari skák
hrókaði hann alls ekki og hvíti
kóngurinn stendur meira að segja
enn á upphafsreitnum.
í pólskri bók um ólympíuskák-
mótin er birt úrval skáka og stöðu-
mynda frá mótinu í Moskvu, alls
48 dæmi. Þar af eru birtar fimm
skákir Friðriks sem sýnir hve
frísklega hann tefldi á mótinu og
hve taflmennska hans vakti mikla
athygli. Grípum niður í skák hans
við Wantz, frá Lúxemborg. Friðrik
hafði hvítt og átti leik í þessari
stöðu:
19. Rb5! Bxcl 20. Rd6+ Kf8 21. Bxcl!
Kg8 22. Hxf7 Dxf7 23. Rxf7 Kxf7 24.
Dh5+ g6 25. Df3+ Ke8 26. Df6 Hf8
27. De6+ Kd8 28. Bxh6
- Og svartur gafst upp.