Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Side 43
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
47
Sviðsljós
Ungverskur konsert-
píanisti til Skagastrandar
Margir fallegir munir voru á basar kvennadeildarinnar.
DV-mynd Ægir Þórðarson Hellissandi
Fallegir munir á Hellissandi
Skagstrendingar hafa fengið kon-
sertpíanista frá Ungveijalandi til
að kenna sér á píanó. Píanistinn,
Miklos Dalmay, kom hingað í sept-
emberlok ásamt konu sinni, Edit
Molnar, kórstjórnanda og organ-
ista, og þremur börnum, 6, 3 og 2
ára.
„Það var ungverskur tónlistar-
kennari á Siglufirði sem haíði sam-
band við okkur um mitt sumar og
sagði okkur af því að það vantaði
tónlistarkennara og organista á
Skagaströnd og Blönduósi. Við
höfðum heyrt lítið um ísland en
hugsuðum sem svo aö þetta yrði
ágætis ævintýri og að við hefðum
engu að tapa,“ greinir Miklos frá.
Þau hjónin höfðu reyndar komið
til eins Norðurlandanna áður því
þau bjuggu tvö ár í Stokkhólmi á
árunum 1989 til 1991. Miklos fékk
styrk til náms við tónlistarakadem-
íuna þar.
Miklos og Edit höfðu einnig verið
við nám við tónlistarakademíuna í
Búdapest. Miklos hóf síðan píanó-
kennslu í Búdapest. Hann hefur
haldið tónleika víða um Evrópu, í
Bandaríkjunum, Kanada og Suð-
ur-Afríku. Vegna íslandsferðarinn-
ar þurfti hann að aflýsa nokkrum
tónleikum í haust.
„Okkur líkar ágætlega á íslandi
og erum önnum kafin við að læra
íslensku. En þar sem við eigum
þrjú börn gefst ekki tími til íslensk-
unámsins nema á kvöldin. Við lær-
um heima, bæði af bókum og hljóð-
snældum."
Miklos segir þau hjónin hafa
reynt að tala íslensku strax við
nemendur sína. Það hafi verið
nauðsynlegt því sumir nemend-
urnir séu mjög ungir og tali ekki
ensku. „Ég lærði strax að segja:
Viltu spila þetta aftur?“ Edit stjórn-
ar tveimur barnakórum auk
kirkjukórs og viU auðvitað geta
rætt við bömin á íslensku um söng-
inn.
Aðspurður um hversu lengi þau
hjón hafi í hyggju að dvelja á ís-
landi segir Miklos hlæjandi að það
fari svolítið eftir því hvemig veðrið
verði í vetur. „Ég hef heyrt að það
geti orðið slæmt hérna fyrir norðan
á veturna. En það fer líka eftir því
hvort ég get farið í tónleikaferðir
um heiminn eins og ég var vanur
að gera,“ bætir hann við.
Miklos hefur leikið tónlist eftir
Beethoven á geislaplötu í Ung-
verjalandi. „Geislaplatan er ekki
komin á markað á íslandi en ég tók
nokkra með mér hingað.“
Slysavarnadeildin Helga Bárðar-
dóttir á Hellissandi hélt nýlega basar
í slysavarnahúsinu Líkn á Helbs-
sandi. Þar vora til sölu mjög vel gerð-
ir og fallegir munir sem félagskonur
höfðu unnið. Þær seldu megnið af
mununum á fyrsta degi basarins.
Tónlistarkennararnir Miklos Dalmay og Skarphéðinn Einarsson léku
fyrir gesti í tilefni 50 ára afmaelis Leikfélags Blönduóss.
DV-mynd Magnús Ólafsson.
Myndbandaleiga knattspyrnumanna í Keflavik er tekin til starfa þrátt fyrir
mótmæli eigenda myndabandaleiga þar í bæ. Leigan nýja er í vallarhúsinu
við íþróttavöllinn sem hefur verið breytt í félagsmiðstöð. Þeir voru ánægð-
ir við opnunina, talið frá vinstri, Birgir Runólfsson, gjaldkeri knattspyrnu-
deildarinnar, Jóhannes Ellertson formaður og Skúli Skúlason, formaður
íþrótta- og ungmennafélags Keflavíkur.
DV-mynd Ægir Már Kárason, Suðurnesjum
Fyrsta bílasalan með leyfi
samkvæmt nýju íslensku
lögunum um bílasala
Toyota Corolla '93, station.
Toyota 4Runner ’91, upphækkaður
með öllu.
Ford Econoline ’92 með öllu.
griitr
Nissan Sunny '93. AMC Wrangler ’91 og ’89. MMC L-300 turbo dísil '89. Isuzu Rodeo ’91.
■BSBJ dJjm
Toyota double cab '91, með öllu. Ford Bronco, upphækkaður, '86. Volkswagen Golf '93 Opel Vento ’94.
einnig Golf '87 4x4.
FordEconoline’92ferðabíllm/öllu. Nissan Patrol '85.
Chevroiet Blaser ’89.
Mercedes Benz ’84 og ’85.
Opið virka daga ki. 10-19
laugardag 10-17
sunnudag 13-16
Við erum langflottastir
Bílasala Garðars
Nóatúni 2 - símar 611010 og 619615.