Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 49
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
53
Sviðsljós
ÁFANGAR II
Léttistum 110
Bjern Thoresen elskar smjör en
hann má ekki boröa það. í mars síö-
astliðið vor sagði Bjom frá því í
fjölmiðlum að hann væri 250 kíló og
var hann í rauninni að hrópa á hjálp.
Hann hafði fengið þau skilaboð frá
læknum að ef hann vildi halda lífi
yrði hann að léttast um að minnsta
kosti 80 kíló. Nú er Bjorn orðinn 110
kílóum léttari, að þvi að greint er frá
í Norsk Ukeblad.
Bjorn, sem er 48 ára, var fangelsis-
vörður í Lundi. Hann segir miklar
kyrrsetur hafa fylgt vinnunni og að
hann borðaði mikinn mat á öllum
tímum sólarhringsins. Hann var bú-
inn að prófa alla mögulega megrun-
arkúra og hafði meira segjast gengist
undir aðgerð fyrir um tveimur ára-
Smjörfjallið fyrir aftan Bjorn er um það bil jafnmörg kíló og hann léttist um
á hálfu ári.
I mars síðastliðnum leit Bjorn svona
út. Hann var þá 250 kiló og mjög
þunglyndur að sögn eiginkonunnar,
Birgittu.
tugum, en án árangurs.
Að lokum virtist bara vera um eitt
ráð aö ræða, magaaðgerð sem gerir
þaö að verkum að viðkomandi inn-
byrðir minna fæðumagn. En áöur
varð Bjorn að léttast um 100 kíló.
Honum tókst sjálfum að létta sig
um 20 kíló en ekki meir. Bjorn leit-
aöi því eftir aðstoð sérfræðinga og fór
á megrunarstofnunina Sommarsol í
Vejbystrand í Sviþjóð, á kostnað rík-
isins. Með skynsamlegu mataræði og
lítils háttar hreyfingu tókst honum
að léttast um 110 kíló á mettíma.
kíló á hálfu ári
i
Spennandi unglingasaga um Sóleyju
sem finnst hún vera ljót. Pabbi hennar
er aldrei heima og stjúpan er henni
vond. En allt breytist þegar hún tekur
þátt í fegurðarsamkeppni. Skyndilega
er hún-orðin vinsæl og eftirsótt. Hún
eignast nýja vini og lífið breytist til
hins betra.
Saga sálmsins Heims um ból,
Ægisbyggð 24, Ólafsfirði
Sími(Rvk) 91-814144-502
Sími (Ólafsfj.) 96-62676 - Fax: 96-62374
Hugljúf bamasaga.
ÁFXNGAR
Ferðahandbók hestamannsins
I þessari bók er lýst 87 reiðleiðum frá
Hvítá í Borgarfirði, um Mýrasýslu,
Hnappadalssýslu, Snæfellssýslu, Dala-
sýslu og Húnavatnssýslurnar báðar.
Leiðirnar eru merktar inn á kort sem
fylgir hverjum kafla og auðveldar það
mönnum að átta sig á lýsingunni.. Þá
eru í bókinni margar gullfallegar lit-
myndir. 16 höfundar rita leiðarlýsing-
arnar, en þeir eru allir staðkunnugir.
Bókin kostar um 3.690 kr.
Þú getur pantað bókina hjá Hjalta Pálssyni i sima 91-19117
og hjá Landssambandi hestamanna í símum 91-29899 og
91-630325. Einnig seld í Hestamanninum, Reiðsport,
Ástund og MR-búðinni.
V I N N I N C3 A R
Styrktu gott málefni og kauptu jólakortin og
jólamerkimiðana frá Slysavarnarfélagi íslands,
því þau eru jafnframt skafmiðar.
Stórglæsilegir vinningar
að verðmæti yfir 20 milljónir kr.
Tugir ferðavinninga til Florida, tugir fjallahjóla,
skíðaútbúnaður, gasgrill, kuldagallar,
geisladiskar o.fl. o.fl. o.fl.
SKAFÐU HÉR, 0G ÞÚ FÆRÐ AÐ VITA
. HV0RT ÞÚ HLÝTUR GJÖF. x
Jólakortin og merkimiðarnir eru seld í
stórmörkuðum, blómaverslunum, bókaverslunum
og hjá björgunarsveitunum.
Styrktu gott málefni - vinir þínir og ættingjar
gætu fengið óvænta gjöf.
- til bjargar mannslífum