Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Page 8
8 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995 ÚTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í gólflökkun í ýmsum fasteignum Reykjavík- urborgar. Helstu magntölur: Gólffletir 4.400 m2 Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. janúar 1995, kl. 11.00 f.h. bgd 01/5 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun á húsnæði íþrótta- og tómstunda- ráðs og bókasöfnum. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 25. janúar 1995, kl. 11.00. bgd 02/5 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun á húsnæði dagvistar barna. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24. janúar 1995, kl. 14.00. bgd 03,5 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun á leiguíbúðum í Ijölbýli. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 18. janúar 1995, kl. 11.00. bgd 04,5 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í uppsteypu og fullnaðarfrágang viðbyggingar Breiðholtsskóla ásamt lóð. Helstu magntölur: Flatarmál húss 800 m2 Rúmmál 1.050 m3 Verkinu á að vera lokið 15. ágúst 1995. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000 skilatrvggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 1. febrúar 1995, kl. 11.00. bdg 05. 5 F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í glerframleiðslu og afhendingu í ýmsum fast- eignum Reykjavíkurborgar. Helstu magntölur: 800 m2 gler á ári. Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000 á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 26. janúar 1995, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 2 58 00 Utlönd Rússneskar hersveitir sækja fram af mikilli hörku: Forsetahöllin í Grosní í herkví Rússneskar hersveitir, meö aöstoö þungvopnaðs stórskotaliðs, settu for- setahöllina í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í herkví í gær. í tilkynn- ingu Moskvustjórnarinnar sagöi að hermennirnir sæktu að forsetahöll- inni úr tveimur áttum og undir kvöld í gær voru þeir í 200 til 700 metra fjar- lægð frá henni. Rússneska sjónvarpið sagði að mikið mannfall hefði orðið í sveitum Rússa sem sóttu að höll Dzhokhars Dúdajevs, leiðtoga Tsjetsjena. Stjórnvöld í Moskvu sögðu að her- sveitir þeirra héldu áfram að sækja að vopnuðum flokkum heimamanna í Grosní og kæmu í veg fyrir að stuöningsmenn Dúdajevs kæmust frá úthverfum borgarinnar til mið- borgarinnar. Harðar árásir rússnesku hermann- anna við brúna yfir Sunzja-ána stöðvuðu ferðir fréttamanna ör- skammt frá forsetahöllinni sem hef- ur verið tákn andstöðunnar við Moskvuvaldið frá því Dúdajev lýsti einhliða yfir sjálfstæði lands síns fyr- ir þremur árum. Itar-Tass fréttastofan haföi það eft- ir upplýsingamiðstöð stjómvalda i Moskvu að Dúdajev hefði flúið Grosnl fyrir tveimur dögum. Yfirlýs- ingar miðstöðvarinnar hafa yfirleitt gengið í berhögg viö fréttir bæði Tsjetsjena og óháðra sjónarvotta af atburðunum. Rússar hafa breytt um baráttuað- ferðir í sókn sinni að Grosní vegna gífurlegs mannfalls. Núna eyðileggja þeir allt sem á vegi þeirra verður á leið inn í borgina. Reuter Þessi börn voru heppin að komast í loftvarnabyrgi i Grosní þar sem þau hlustuðu á drunurnar í stórskotaliðsbyss- um Rússa sem héldu uppi linnulausum árásum á borgina um helgina. Símamynd Reuter Spillingarmálin angra Balladur SpiUingarmál gerðu Edouard Balladur, forsætisráöherra Frakk- lands, lífið leitt eina ferðina enn í gær þegar Jean-Pierre Thomas, gjaldkeri Lýðveldisflokksins, sem hggur undir grun um ólöglega íjármögnun flokksstarfsins, benti á að tveir ráð- herrar í stjórn landsins hefðu haft fulla vitneskju um málið. Ráðherrarnir sem hér um ræðir eru þeir Francois Léotard og Alain Madelin. Gérard Longuet, fyrrum viðskiptaráðherra, sem sagði af sér vegna fjármálahneykslis í fyrra, vissi einnig hvernig í pottinn var búið. Fréttir þessar koma á slæmum tíma fyrir Balladur sem nýtur meiri vinsælda nú en nokkru sinni fyrr. Nicolas Sarkozy, talsmaður ríkis- stjórnarinnar, sagði í gær að Balla- dur væri sá maður sem hæfastur væri til að sameina þjóðina og hann mundi tilkynna síðar í þessum mán- uði hvort hann byði sig fram til for- setakjörs í vor. Reuter Útsalan er hafin Teppaflísar f 25% Baðmottur ■ 50% “fakkafilsar v 25% Opið alla daga vikunnar frá 9-21. Einnig opið laugardaga og sunnudaga. Listmálaravörur f 20%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.