Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995 Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÚNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700 FAX: Auglýsingar: (91 )563 2727 - aðrar deildir: (91 )563 2999 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: (SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð i lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Hinn nýi stíll Davíðs Á fjögurra ára fresti er efnt til alþingiskosninga. Þjóð- in fær að velja sér talsmenn, flokka og stefnur. Ekki er það val alltaf auðvelt í ljósi þeirrar óljósu flokkaskipunar sem hér er til staðar. Og ekki bætir úr skák að innan flestra þessara flokka er hver höndin upp á móti annarri. Einkum á þetta við um A-flokkana báða og nýtt afl, Þjóðvakinn, er sprottinn upp úr þeim jarðvegi. Kvenna- listinn á sömuleiðis við innbyrðisvandamál að stríða en þar virðist eldmóður frumherjanna hðinn hjá og við hef- ur tekið karp um framboðsmál í stíl við heföbundna flokkadrætti. Jafnvel í Framsóknarflokknum gætir óróa. Á Vest- fjörðum og á Norðurlandi vestra berast frambjóðendur á banaspjótum og í Reykjavík eru framsóknarmenn enn að sleikja sárin eftir forval á frambjóðendum. í þessu sambandi er það athyghsvert að Sjálfstæðis- flokkurinn er nánast eini flokkurinn sem stendur nokkuð heih og óskiptur ef frá eru taldar vangaveltur Eggerts Haukdals um sérframboð á Suðurlandi. Enginn vafi er á því að Sjálfstæðisflokkurinn mun hagnast á þessari stöðu í kosningunum í vor. Þetta er því merkilegra þegar htið er til þess að því var almennt spáð að Sjálfstæðisflokkurinn mundi aldrei bera sitt barr eftir klofninginn sem upp kom í flokknum við stjómarmyndun Gunnars Thoroddsen í byrjun síð- asta áratugar. Sjálfstæðisflokkurinn galt afhroð þegar Albert stofnaði Borgaraflokkinn og þá var aftur tahð að Sjálfstæðisflokkurinri yrði aldrei samur aftur. Þá má heldur ekki gleyma þeim einstæða atburði að Davíð Oddsson felldi Þorstein Pálsson, sitjandi formann í flokknum, og hrifsaði til sín völdin. Sú upplausn sem orðið hefur í stjómmálum eftir hrun kommúnismans hefur af eðlilegum ástæðum haft mest áhrif á vinstri væng stjómmálanna, þar sem skilin milli sósíahsta, jafriaðarmanna og félagshyggjufólks hafa orðið óljósari en auðvitað hafa breyttar aðstæður á vettvangi stjómmálanna einnig haft sín áhrif á hægri vængnum. Kommagrýlan þjappaði andstæðingunum saman og löng- umvar tahð að hún héldi líminu í Sjálfstæðisflokknum. Á seinni árum hafa komið upp ágreiningsmál í stjóm- málum sem bitnað hafa á Sjálfstæðisflokknum og tekist hefur verið á um. Má þar nefna kvótamáhn, stefnuna í landbúnaðarmálum, kjördæmamálin og hina sterku hægri sveiflu sem fylgdi frjálshyggjuáróðrinum. Ætla mætti að þessi átakamál gerðu forystu Sjálfstæð- isflokkins erfitt að halda flokknum saman. Forystustíh Davíðs Oddssonar var í upphafi með þeim hætti að ýfa sárin frekar en að græða þau. En kannske hggur galdurinn í því að Davíð hefur ein- mitt breytt ímynd sinni. Hann verður 'landsföðurlegri með hveijum deginum og raunar má segja að forysta hans hafi breyst í andhverfu sína. í stað þess að ögra og láta sverfa til stáls hefur formaður Sjálfstæðisflokksins farið mjúku leiðina. í kvótamálum er bæði haldið og sleppt, í landbúnaðarmálum er framsóknarleiðin valin, í kjördæmamálinu og Evrópumálum er öhu slegið á frest. Þessi póhtík eða „ekki póhtík“ hefur sannarlega borg- að sig í því tilhti að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aftur náð vopnum sínum og gengur sameinaður til kosninga. En Sjálfstæðisflokkurinn er heldur ekki líklegur til átaka eða uppstokkunar. Hann er að sigla í það farið að vera hagsmunagæsluflokkur par exceUence. Það er afrek út af fýrir sig. EUert B. Schram Kf.Wtóflt EFiTÞÚ fflim'11,11-1 | „... góður skóli er fyrst og síðast málefni þjóðfélagsins alls og er að hluta til pólitískt málefni," segir m.a. í greininni. Rökin fyrir launakröfum Kennarar hafa nú sett fram kaupkröfur. Til stuðnings þeim kröfum hafa þeir einkum haldið fram tvennum rökum. Annars veg- ar að kaupmáttur launa hafi rým- að í kringum 18% frá árinu 1988, og hins vegar aö góð laun séu for- senda fyrir góðum skóla og að til kennslu veljist hæft fólk. Lítum nánar á þessi rök. Efnahagslegt samhengi Sé kaupmáttarþróunin almennt skoðuö síðasta áratuginn kemur í ljós að á árunum 1985 til 1987 jókst kaupmáttur atvinnutekna um 45% og kaupmáttur ráðstöfunartekna um 48% á þessum þremur árum. Magnaukning einkaneyslunnar varð því hreint ótrúleg eða tæp 30% á sama tíma. Orsakir þessarar miklu kaup- máttaraukningar voru að sjálf- sögðu fjölmargar, en mikilvægast- ar þeirra voru framleiðsluaukning í sjávarútvegi, erlendar lántökur og aðhaldsleysi í bankakerfmu. Á þessum árum voru veidd allt að 300 þúsund tonn af þorski umfram ráð- leggingar ílskifræðinga. Þá voru erlendar skuldir þjóðarbúsins auknar verulega en sem dæmi má nefna aö á árinu 1987 jukust þær í kringum 23% metið í SDR. Við vor- um m.ö.o. að taka út innstæður úr fiskiauðlindinni kringum landið og út úr erlendum bönkum til að auka kaupmáttinn hér innanlands. Þaö segir sig sjálft að slík kaup- máttaraukning stóðst ekki til lengdar. Eitthvað varð undan að láta því ekki gátum við veitt allan fiskinn úr sjónum á einu bretti eða tekið gegndarlaust erlend lán. Það var því eðlilegur hlutur að kaup- máttur, sem byggöur var á ofveiði og erlendri skuldasöfnun, rýrnaði um allt að 18% á árabilinu 1988 til 1993. Fjölskylda sem eitt árið eykur ráðstöfunarfé sitt um 2 milljónir króna með lántöku og ferðast í kringum hnöttinn getur ekki búist KjaUarinn Jóhann Rúnar Björgvinsson hagfræðingur við að halda þeim kaupmætti næstu árin á eftir, nema með áframhaldandi lántökum og kaf- siglingu. Af ofangreindu sést ljóslega að hér veröa menn að gera betur og horfa í efnahagslegt samhengi hlutanna þegar leitað er að rökum fyrir umtalsverðum kauphækkun- um. Pólitískt mat Seinni rökin, að góð laun séu for- senda fyrir góðum skóla og aö til kennslu veljist hæft fólk, standast eflaust út af fyrir sig. En góður skóh er fyrst og síðast málefni þjóð- félagsins alls og er að hluta póli- tískt málefni. Hversu mikið vill samfélagið greiða fyrir skólaþjón- ustu og hvar eiga skóla- og mennta- mál að vera í forgangsrööuninni? Eins og málum er háttað hér á landi er það fyrst og fremst Alþingi sem speglar þann vilja og tekur ákvörð- un um þá hhð málanna og for- gangsraðar. Vettvangur fyrir bætt- um skóla er því á Alþingi en ekki við samningaborðið. í mörgum öðrum löndum eru tíl einkaskólar sem gefa hins vegar fólkinu sjálfu færi á að forgangsraða með beinum kaupum á þjónustu. Flestar starfsstéttir hins opin- bera geta eflaust með sama hætti og kennarar talað um hversu mik- ilvæg störf þeirra og þjónusta séu fyrir samfélagið og því krafist launahækkana byggðra á því mati, en slíkt mat hlýtur undir flestum kringumstæðum að vera pólitískt, þ.e.a.s. þær eru að forgangsraða hlutunum. Aörir geta haft allt aðra skoðun á þeim málum. Laun starfsstétta ráðast fyrst og fremst af menntun þeirra, fram- boði (fjölda) og vilja samfélagsins fyrir þjónustuna. Þeim vilja má eflaust breyta og margir hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að breyta þeim vilja hvað menntun varðar því góð menntun er undirrót ný- sköpunar og framfara í þjóðfélag- inu. Jóhann Rúnar Björgvinsson „Vettvangur fyrir bættum skóla er því á Alþingi en ekki við samningaborðið. í mörgum öðrum löndum eru til einka- skólar sem gefa hins vegar fólkinu sjálfu færi á að forgangsraða með bein- um kaupum á þjónustu.“ Skoðanir annarra Úrelt landbúnaðarkerfi „Fram hefur komið að skársta kjötið, sem til var, hafi verið sent til Ameríku... Hvað sitja íslenzkir neytendur þá uppi með? Verðlagningarkerfi, sem virðist á víxl stuöla aö offramboði og því, að ekki fæst almennilegt nautakjöt í búðum. Utflutning á bezta kjötinu, en innflutningsbann, sem útilokar að hægt sé að bjóða upp á sæmilega vöru ef íslenzkir bændur geta ekki útvegað hana. Samkeppnisleysi, jafnt milli innlendra framleiðenda og frá útlöndum. Allt ber þetta vitni úreltu landbúnaðarkerfi, sem hefur fyrir löngu gengið sér til húðar." Ur forystugrein Mbl. 6. jan. Harðsæknari í sjóðina en á sjóinn „Á Vestíjörðum hefur fólk hæstu meðaltekjur allra landsmanna - rúmlega sjö prósentum hærri en landsmeðaltalið og fjórtán prósentum hærri en þar sem þau voru lægst - á Norðurlandi vestra.... En einmitt þess vegna kemur það spánskt fyrir sjónir, að þeir skuh jafnframt eiga greiðasta leið allra lands- hluta að opinberum sjóðum og framlögum af ýmsu tagi. Vestfirðingar eru jafnvel enn harðsæknari í sjóðina en sjóinn.“ Úr forystugrein Morgunpóstsins 5. jan. Þjóðlífið í uppnám „Kosningabaráttan fer senn að hefjast, eða um þaö bil sem þing kemur saman eftir jólafrí. Þá fara sam- an kjarasamningar á öhum vígstöðvum með verk- föllum og verkfallshótunum og hatrömm kosninga- barátta, sem verður að mörgu leyti sérstæð.... Hér er sem sagt veriö að reka allt í einn rembihnút. Þjóð- lífið sett í uppnám og bendir sitthvaö til þess aö ekki verði greitt úr fyrr en eftir næstu stjórnarmyndun, hvenær sem hún kann að takast." Úr forystugrein Timans 6. jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.