Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
17
Ákall til
Menriiiig
móður jarðar
- Þórdls Elín Jóelsdóttir í Stöðlakoti
Á undanförnum misserum hefur verið mikil gróska
í grafíklistinni hér á landi. íslensk grafík er að koma
á laggirnar myndarlegri aðstöðu í Tryggvagötunni og
tugir grafíklistamanna sameinast um verkstæði víða
í höfuðborginni og gera út sýningar, ýmist í samein-
ingu eða hver fyrir sig. Þórdís Elín Jóelsdóttir, sem
nú hefur sett verk sín upp í Stöðlakoti, er meðlimur
í myndlistarhópi er nefnist Áfram veginn og hefur
haldið nokkrar samsýningar. Sjálf hefur Þórdís haldiö
eina einkasýningu, í Kaffi Króki í ágúst á liðnu ári.
Sýningin í Stöðlakoti er hins vegar hennar stærsta
sýning til þessa. Þórdís fór tiltölulega seint í myndlist-
arnám - var komin á fertugsaldur er hún innritaðist
á listasvið Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Að því námi
loknu stundaði Þórdís’ nám í grafíkdeild Myndlista-
og handíðaskólans og útskrifaöist þaðan árið 1988.
Rómantískt og goðsagnakennt
Á sýningu Þórdísar í Stöðlakoti eru sautján verk,
allt vatnslitaðar koparætingar. Verkin hafa yfir sér
rómantískt og goðsagnakennt yfirbragð. Þar ber mikið
á samsömun kvenlíkamans og náttúrunnar og er Þór-
dís þar greinilega að vísa til goðsagnalíkingarinnar
um móður jörð. Á neðri hæð eru fimm stór verk sem
bera ljóðræn nöfn á borð við: „Rekur tröf úr rauða-
gulli röðull yfir dal og fjörð“. Þar, sem í flestum hinna
verkanna, notar Þórdís ætinguna einungis sem hráa
teikningu til að byggja á vatnslitamálverk. Verk eins
og númer 2, 3 og 7 hefðu ekki mikla útgeislun ef ekki
hefði komið til dýpt vatnslitarins.
Líkamspartur og kennileiti
Þannig stendur Þórdís í þeim sporum að vera grafík-
Ustamaður sem er e.t.v. færari vatnslitamálari en vill
hafa grafíkina til að njörva niður hið ljóðræna mynd-
efni. Að mínu mati mætti Þórdis íhuga að leyfa vatns-
litnum að njóta sín einum og sér, eða a.m.k. að láta
hann ekki alltaf þjóna grafíkinni sem eins konar undir-
tylla. Fróðlegt væri að sjá þessa miðla kaliast á í verk-
um hennar fremur en að þeir virki hvor um sig eins
og lagfæringar á takmörkunum hins. Verk númer
fimm er um margt athyglisvert. Þar er um að ræða
bókverk í anda mýtunnar um móður jörð. Þar lætur
MyndJist
Ólafur J. Engilbertsson
Þórdís samnefndan líkamspart og kennileiti í lands-
lagi sameinast í lítilli handlitaðri náttúruætingu.
Breitt yfir tæknilega vankanta
Við stiga gefur að líta íjórar útgáfur af sömu mynd
í mismunandi litum. Þar kemur í ljós að Þórdís er
ekki nægilega gagnrýnin á hinn grafíska þátt verka
sinna og horfir um of á möguleika vatnslitarins til að
breiða yfir tæknilega vankanta i teikningu. Slíkir van-
kantar koma víöa fram á þessari sýningu. Þórdísi tekst
þó bærilega að fela slæma módelteikningu með vel
útfærðri vatnslitadýpt á réttum stööum. Á efri hæð
gefur að líta níu smámyndir er sýna einfaldar brjóst-
myndir. Þar vatnslitar Þórdís á grófgeröan pappír. í
myndum númer 11, 15 og 17 er að finna útgeislun og
gott samspil í grafík og vatnsht. í heildina er hér um
að ræða persónulega og ljóðræna sýningu sem hefur
ýmsa tæknilega vankanta sem gagnrýnna hugarfar
og markvissari úrvinnsla gætu fært til betri vegar í
framtíðinni. Sýningin stendur til 22. janúar.
Notaðir bílar
Subaru Legacy GLi
2000 station 1992, ek. 32 þús. km, 4WD,
ssk., útvarp, segulband, beige, metallic.
Toppeintak Verð 1.690.000 kr.
hjá Brimborg
Mazda 323 station
1992, ek. 28 þús. km, 4WD, 5 gíra, út-
varp, segulband, Ijósblár, metallic.
Verð 1.060.000 kr.
MMC Lancer GLXi
1992, ek. 18 þús. km, rauður,
sjálfskiptur, útvarp, segulband.
Verð 1.150.000 kr.
Daihatsu Rocky EL-II
dísil, turbo, 1990, 4WD, 5 g., ek. 76 þús.
km, svartur og grár, útvarp, segulband.
Verð 1.580.000 kr. - 6 mán. ábyrgð.
Volvo 850 GL
station ’94, ek. 10 þ. km, ssk., m/econ-,
sport- og vetrarst., ABS og spólvörn,
vínr., metal. V. 2.650.000 kr. - 6 mán. áb.
AMC Cherokee Laredo
1990, ek. 89 þús. km, 5 gíra, 5 dyra,
4WD, grár, metallic.
Verð 1.750.000 kr.
Allt að 36 mán. greiðslukjör
og skipti á ódýrari
Visa - Euro raðgreiðslur
Opið laugardag 12-16
FAXAFENI 8 • SIMI 91- 685870
Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd
ásamt acupunchturmeðferð með lacer
Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf-
uðverk.
ELSA HALL,
Langholtsvegi 160, síml 68-77-02.
(rtjncxiAnc;
Skjalaskápar
.
s < >
, á góðu verði!
Nýjar gerðir!
20% afsláttur
j j
í-
N _
■ÆiÍK.:: i
l
- 1
Kr. 21.999 Kr. 16.415 Kr. 19.254
Nú kr. 17.599 Kr. 13.132 Kr. 15.403
SHEER PRIDE
(ÉþAMB & ©@
Sundaborg 5 104 Reykjavík Sími: 684800
Gítarnám
Vorönn hefst 23. janúar
■ Rokk, blús, klassík, metal, jazz o.fl.
Alhliða grunnnámskeið
fyrír byrjendur
■ Kassagítar (raðað I hópa
eftir aldrí og getu)
■ Dægurlög (fyrír fólk á öllum
aldri - spil og söngur)
■ Tónfræðitímar
■ Rafbassi (fyrir byrjendur)
■ Nýtt og vandað kennsluefni
■ Góðaðstaða
■ Eingöngu réttindakennarar
■ Tónleikar í lok annar
■ Allir nemendur fá 10%
afslátt afhljóðfærum hjá ZZ'M 1 'XVSSmSSS"
fyrir nemendur skólans
Grensásvegi 5,
síml 81-12-81
Skiptistöð
SVR við hliðina!
Skólinn hefst 23. janúar en skráning hefst 9. janúar
í síma 81-12-81 kl. 19-21 alla virka daga
Kennarar: Torfi Olafsson
og Tryggvi Hiibner
Þorvaldur Þorvaldsson
/TnWmnFwTo _ Tii,I