Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995 Fréttir Hundunum haldið gangandi á þrúgusykri undir lokin - skiptu sköpum viö leitina 1 Súðavík, segir Elías Skaftason sem tók þátt 1 leitinni „Þetta var vægast sagt hryllilegt ástand, þetta var nánast eins og að koma inn í annan heim. Eyöilegging- in var algjör, allt í rúst og brak úti um allt. Það var blindbylur, snjór og stormur. Það var á köflum eríitt að standa á fótunum, hvað þá að standa í mokstri og leitarstörfum," segir Skafti Elíasson, tvítugur ísfirðingur sem fór sem sjálfboðaliði til leitar á snjóflóðasvæðunum í Súöavík. Skafti segist hafa brugðið skjótt við þegar hann frétti af atburðum í Súða- vík og strax ákveðið að bjóða sig fram til sjálíboðaliðastarfa. „Viö vorum í sólarhring fyrir vest- an og maður sá þarna ótrúlega hluti. Hundarnir voru þarna mjög mikil- vægir. Þegar drengurinn fannst á lífi voru það hundarnir sem fundu hann. Þeir voru alveg ótrúlegir og þeir skiptu sköpum við leitina. Það þurfti að halda þeim gangandi á þrúgusykri undir lokin,“ segir Skafti. Hann segir að leitarmenn hafi ver- ið orðnir vondaufir um tima. Þegar svo spurðist út að Elma Dögg, 14 ára, væri fundin á lífi hafi menn fyllst von og krafti. „Það var eins og menn fengju víta- mísprautu við þau tíðindi að það væri einhver fundinn með lífsmarki. Maður spáði lítið í yfirvofandi snjó- flóðahættu en mokaði bara eins og maður ætti lífið að leysa í þeirri von að bjarga einhverjum," segir Skafti. Stefán Dan Óskarsson, sem einnig tók þátt í leitinni, segir að það hafi ekki hvarflað að honum að nokkur væri lifandi á svæðinu. „Þegar við komum á staðinn voru aðstæðar hryllilegar og það sýndist í rauninni ekkert vit í að vera að moka. Það fannst samt tvennt á lífi eftir að við komum þarna. Þaö var með ólikindum 'miðað við hvernig aösfæðurnar voru. Við áttum í erfið- leikum með að fara á milli svæð- anna. Viö þurftum að fara meö látna af svæðinu og í hús og það var yfir mannhæðarháa skafla að fara. Það var stutt í Frosta þar sem miðstöðin var. Viö sáum eiginlega ekkert frá okkur vegna veðurs en rétt glittum í Ijósin. Síðan fór rafmagnið af og við sáum ekkert frá okkur. Það er ekki hægt að lýsa þeim aöstæðum sem þama vora,“ segir Stefán. -rt Félagar i Björgunarsveit skáta á Isafirði ásamt leitarhundunum sem unnu afrek i Súðavik og voru komnir að niður- lotum undir lokin. Myndin er tekin í frystihúsi Frosta hf. i Súðavík. DV-símamynd Brynjar Gauti Guðjón Petersen segir að mínútur skipti máli við leit 1 snjóflóði: Tækin töfðu brottför Týs um tvo tíma - Landhelgisgæslan bauð upp á að varðskipið færi fyrr frá Reykjavík „Þó snjóflóðið hafi fallið klukkan hálfsjö vissu menn ekki fyrr en hálf- um öðrum tíma síðar hvað hafði gerst. Menn sáu ekki út úr augum í Súöavík. Okkur var sagt að varðskip- iö ætti hvort eð er að fara klukkan tvö frá Reykjavík en þaö hefði getað orðið tilbúið fyrr. Þá var farið í að safna tækjum en það kom í ljós að þessi aðgerð tók þennan tima - sér- staklega að koma tækjunum um borð. Þetta heföi sennilega tekið tveimur tímum skemmri tíma ef tækjunum hefði verið sleppt. Aðal- atriði var að fá sem mest lið búiö sem bestum tækjum. í heildina tekið held ég þó að þetta sé ósköp eðlilegur tími miðað við umfang. Betra er að vanda vel til verks en að æða af stað,“ sagöi Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavama ríkisins, aðspurður um skipulag brottfarar varðskipsins Týs og hvort hægt hefði verið að leggja fyrr af stað en raun bar vitni. Skipið lét úr Reykjavíkurhöfn klukkan þrjú síðdegis á mánudag - átta og hálfri klukkustund eftir að snjóflóðið skæða féll í Súðavík. - Þegar tekið er tillit til þess að mín- útur skipta máli við leit í snjóflóði átti þá ekki að leggja kapp á að fara sem fyrst? „Það má segja að þegar snjóflóð falla skipti mínútur máli og mikil- vægt er að ná áfangastað sem fyrst. Við sáum frá upphafi að við áttum enga möguleika á að koma fólki á svæðið nema með margra klukku- tíma fyrirvara, í þessu tilfelli urðu það 14 klukkustundir. Þá fara mínút- ur ekki að skipta máli. En áður en þetta var gert var einnig farið í að safna saman björgunarsveitarmönn- um frá Vestfjörðunum. Síðan gerðist t.d. það merkilega aö Bolvíkingar komust ekki til Súðavíkur fyrr en á eftir Týsmönnum," sagði Guðjón. Guöjón sagði að stjórnstöð Al- mannavarna og landstjórn björgun- arsveita hefðu stjórnað því að safna saman fólki fyrir fórina til Vest- fjaröa. -Ótt Idagmælir Dagfari Enn og aftur eru menn að gefa kost á sér í prófkosningar hjá stjómmálaflokkunum og enn og aftur eru menn að rífast út af úrsht- unum. Hefur það komið rækilega í ljós í öllum flokkum að frambjóð- endur taka ekki mark á úrshtum nema þeir sjálfir beri sigtn- úr být- um. Annars eru úrshtin ómark og er nú svo komið að þaö er skeinu- hættast fyrir flokkana að hafa próf- kjör. Kosningamar sjálfar eru barnaleikur miðaö við prófkjörin sem flokkarnir hafa innleitt ihu heilh. Að öðru leyti má segja að allt sé með felldu í íslensku stjómmálalífi og flokkamir sigla góðan byr í sama fylgi og áður. Það em sem sagt ekki kosningamar sjálfar sem flokkunum stafar hætta af, heldur undirbúningur kosninganna og prófkosningar sem fæla gott fólk frá sínum gömlu flokkum. Stjóm- málaflokkamir þurfa aö endur- skoða þessar reglur sínar og leggja niður þessi óheppilegu prófkjör sem seýa allt á annan endann. Hingað til hefur það þó aðallega verið venjan að frambjóðendur láta óánægju sína í Ijós, eftir að búið er að telja upp úr kjörkössunum. Eggert Haukdal hafði ekkert á Allur er varinn góður móti prófkosningum fyrr en kosn- ingunum var lokið. Sama má segja um Pétur Bjamason, framsóknar- mann á Vestfjöröum. Hann var sáttur við prófkjörið þangað til það kom í ljós að hann hafði ekki nægj- anlegt fylgi. Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, frambjóðandi Fram- sóknarflokksins í Reykjavík, taldi prófkjörið ómark eftir að hún náði ekki efsta sæti og Anna Kristín Gunnarsdóttir hjá Alþýðubanda- laginu á Sauðárkróki efast um að hún bjóði sig fram á hsta flokksins eftir aö hún tapaöi prófkosningu. Já, það er erfitt líf að vera fram- bjóðandi án þess að hafa fylgi enda gengur frambjóðendum afar illa aö skilja hvað vaki fyrir kjósendum sem ekki vilja kjósa frambjóðendur sem hafa gefið kost á sér til að kjós- endur kjósi þá. Það er sem sagt ekkert að frambjóðendunum, held- ur kjósendunum, sem vilja ekki frambjóðendurna. Og hvers vegna ættu þá frambjóðendurnir að gefa kost á sér ef kjósendumir vilja þá ekki? Framsóknarmenn á Norðurlandi vestra hafa nú gengið feti framar en aðrir frambjóðendur að því leyti að þeir tóku það til bragðs að vé- fengja prófkjörið áður en því var lokið. Þannig heldur Stefán Guð- mundsson því fram að prófkosn- ingarnar séu ólöglegar og Páll Pét- ursson og hans stuðningsmenn hafi haft rangt við. Þetta er ný- breytni hjá Stefáni og í stað þess að bíða eftir úrshtunum og gera röfl eftir á hefur hann allan fyrir- vara á kosningaúrshtum með því að mótmæla þeim fyrirfram. Þegar Stefán hóf sín mótmæh vissi hann auðvitað ekkert um það hvort hann yrði efstur eða hvort hann yfirleitt yrði kosinn eða ekki. Hann getur þess vegna lent í fyrsta sæti eins og hann sækist eftir enda hafa fjölmargir framsóknarmenn í héraðinu hvatt hann til að taka það sæti. En Stefán veit sem er að ekk- ert er ömggt í prófkjöri og allur er varinn góður og aldrei að vita nema hann verði alls ekki kosinn í það sæti sem hann sækist eftir og aldr- ei að vita hvaða fólk tekur þátt í prófkjörinu og allra síst hafa menn hugmynd um það hvað fólk kýs. Þess vegna er best að byrja að mótmæla strax og kjósendur taka þátt í prófkjörinu til að koma í veg fyrir að flokkurinn taki mark á úrshtunum ef ske kynni að kosn- ingarnar færu ööruvísi en Stefán vfll að þær fari. Því er ekki að neita kosningar em þeim annmarka háöar að enginn veit hvort kjósendur hafi rétt við, með því að krossa við fólk og fram- bjóðendur sem ekki eiga það skiliö aövera kosnir. Þetta gerist aftur og aftur og er óþolandi fyrir þá sem gefa kost á sér með því skilyrði að þeir verði kosnir. Páll Pétursson segir að Stefán hafi farið á taugum en hið rétta er að Stefán er skrefinu á undan Páh í mótmælum sínum enda segist Stefán Guðmundsson una úrslitum prófkjörsins ef fyrir hggur að farið hafi verið eftir sett- um reglum. Það eru sem sagt ekki atkvæöin og ekki úrslitin sem ráða heldur reglurnar og á því flaskar Páll því hann er ennþá svo gamal- dags að halda að úrshtin ráði. Það hefur margsannast að úrshtin eru aukaatriði. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.