Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1995, Qupperneq 17
16
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
17
Íþróttír
NBA-deildin í nótt:
Orlando sterkt heima
- Phoenix meö 15 3ja stiga körfur gegn Denver
Orlando Magic er nánast ósigrandi á
heimavelli. Liðið hefur ekki beðið ósigur
þar í 18 leikjum og í nótt batt það enda á
langa sigurgöngu Charlotte Hornets.
Varla þarf oröið að taka fram að Saquille
O’Neal fór á kostum hjá Orlando, skoraði
35 stig og tók 15 fráköst, Arnfernee
Hardaway 23 stig og Nick Anderson 18
stig og 10 fráköst. Alonzo Mourning skor-
aði 33 stig fyrir Charlotte.
Seattle með nokkra
yfirburði gegn Cleveland
Seattle vann sinn 16. sigur í röð á heima-
velh í nótt þegar liðið mætti Cleveland.
Gary Payton gerði 25 stig fyrir Seattle og
Þjóöverjinn Detlef Schrempf 21. Seattle
hafði nokkra yfirburði allan tímann. Te-
rell Brandon skoraði 20 stig fyrir Cleve-
land. Liðið saknaði Mark Price sem lék
ekki með vegna meiðsla.
Leikmenn Phoenix gerðu 15 3ja stiga
körfur gegn Denver í nótt. Þar var Char-
les Barkley stigahæstur með sín 26 stig
fyrir Phoenix. Dan Majerle skoraði 32 stig,
þar af sex 3ja stiga körfur. Danny Mann-
ing var einnig góður með sín 24 stig.
Chuck Person gerði 24 stig fyrir San
Antonio gegn Boston. David Robinson
skoraði 18 stig og tók jafnmörg fráköst.
Dino Radja gerði 22 stig fyrir Boston.
Gott hjá Sacramento
gegn Portland á heimavelli
Sacramento vann góðan sigur á Portland.
Mitch Richmond skoraði 29 stig fyrir
Sacramento. Clifford Robinson skoraði 22
stig fyrir Portland.
ÚrsUt leikja í nótt:
Boston - San Antonio............92-101
Orlando - Charlotte...............109-98
Phoenix - Denver.................129-113
Sacramento - Portland..............95-88
Seattle - Cleveland...............115-91
• David Robinson tók
18 fráköst gegn Bost-
on í nótt.
„Valur og KA f ara
í úrslitaleikinn"
- segir þjálfari bikarmeistara FH-inga
Facius þjálfar
landsliðið
Bandaríkjamaðurinn Rajboni
Facius hefur verið ráðinn lands-
liösþjálfari íslands í tennis út
þetta ár og tekur hann við starfi
Króatans Bozobar Skaramuca
sem stakk af fyrirvaralaust af
landi brott í desember síðastliðn-
um. Facius hefúr verið starfandi
hér á landi undanfarin 2 ár og
hefur þjálfað hjá tennisdeild
Fjölnis i Grafarvogi. Auk þess
hefur hann átt sæti í stjórn Tenn-
issambands íslands.
Fyrsta verkefni landsliðsíns
undir stjórn Bandaríkjamanns-
ins eru Smáþjóðaleikamir sem
haldnir verða i Lúxemborg um
mánaðamótin maí-júm.
McEnroesló
Beckerút
Óvænt úrsUt uröu á opna ástr-
alska meistaramótinu í terrnis í
gær. Patrick McEnroe frá Banda-
ríkjunum, yngri bróðir John
McEnroes, sló þá út Þjóðverjann
Boris Becker í fyrstu umferð
mótsins, 6-3,6-4 og 7-6. McEnroe
er 28 ára gamall og á sunnudag-
inn vann hann sitt fyrsta mót á
ferlinum þegar hann bar sigur
úr býtum á opna Suður-Wales
mótinu. Hann er í 65. sæti á styrk-
leikalista Alþjóða tennissam-
bandsins en Becker er í 3. sæti.
„Ég spilaöi rajög lélegan tennis
og náði aldrei að finna taktinn,"
sagði Becker eftir leikinn.
Sabatiniúrleik
Króatinn Goran Ivanisevic er
einnig úr leik en hann tapaði fyr-
ir Þjóðverjanum Carl Uwe Steeb,
6-1, 7-6 og 6-3. Bandaríkjamenn-
irnir Andre Agassi, Todd Martin,
Michael Chang, Jim Courier og
Pete Sampras eru allir komnir í
2. umferö eftír auðvelda sigra í
1. uraferð. í kvennaflokki er
Gabriela Sabatíni frá Argentínu
úr leik eftir að hafa tapað fyrir
bandarísku stúlkunni Marianne
Werdel Witmeyer, 6-4 og 6-4. Sa-
batíni, sem unníð hefur sigur í
síöustu tveimur stórmótum, hef-
ur átt við bakmeíðsU að striða og
þurftí að gera hlé á leiknum
vegna meiðsla hennar.
Þorrablót hjá Keili
Þorrablót Golfklúbbsins Keilis
í Hafnarfirði verður haldið i golf-
skálanum á fóstudaginn og hefst
klukkan 19.30. Veislustjóri er
Magnús Birgisson og ræðumaður
kvöldsins verður Ragnar Lár.
Miðapantanir eru í sima 653360.
Undanúrslitin í bikarkeppni karla
og kvenna í handknattleik fara fram
í kvöld. í karlaflokki taka íslands-
meistarar Vals á mótí Haukum og 2.
deildar lið Gróttu tekur á móti KA.
í kvennaflokki leika Fram og KR í
Fram-húsinu og í Garðabæ fá Stjörn-
ustúlkur stöllur sínar frá Eyjum í
heimsókn. DV fékk Guðmund Karls-
son, þjálfara bikarmeistara FH, tíl
að spá í spilin um leiki kvöldsins í
karlaflokki.
„Ég spái að Valsmenn fari með sig-
ur af hólmi og að þeir vinni leikinn
fyrst og fremst á fjölbreyttum sókn-
arleik og öflugum varnarleik. Þrátt
fyrir útreið Haukanna í Portúgal hef
ég trú á að úrslitín í þeim leik gefi
Haukunum spark í rassinn í þessum
leik og færi þeim möguleika á að
leggja Valsmennina að velli. Hauk-
arnir stóðu í Val í úrslitakeppninni
í fyrra og það gefur þeim sálfræðilega
möguleika í leiknum."
„Um leikinn á Nesinu hallast ég að
sigri KA. Ef Grótta nær hins vegar
að hanga í KA-mönnum fram eftir
síðari hálfleik getur allt gerst og ég
tala nú ekki um ef liðið nær upp
stemningu, sterkum varnarleik og
góðri markvörslu. Árni Indriðason,
þjálfari Gróttu, á örugglega einhver
tromp á hendi en munurinn á liðun-
um er þó of mikill að mínu mati til
að Grótta geti sigrað," sagði Guð-
mundur.
Theodór Guðfmnsson, þjálfara ís-
lands- og bikarmeistara Víkings í
kvennaflokki, var fenginn tíl að spá
fyrir um úrslit kvennaleikjanna.
„Mín tilfinning er sú að Fram vinni
auðveldan sigur. Ég byggi það á að
KR hefur verið aö missa mannskap
og með liðinu hafa verið að leika
stúlkur úr 3. flokki. Miöað við það
er ekki hægt að búast við að KR veiti
hinu leikreynda Framliði keppni.
„Hvaö leik Stjörnunnar og ÍBV
varðar típpa ég á sigur Stjörnunnar.
Meiri reynsla býr í liði Stjörnunnar
en ÍBV auk þess sem liðiö hefur
heimavöllinn. Þrátt fyrir öflugan
stuðning frá Eyjamönnum tíl ÍBV-
stúlknanna kæmi mér ekki á óvart
að Stjarnan ynni stórsigur og liðið
er með nokkra yfirburði umfram
önnur lið á íslandi í dag,“ sagði The-
odór Guðfmnsson.
Garðbæingar - Garðbæingar!
Bikarleikur í handknattleik í Ásgarði í kvöld kl. 20.
Undanúrslit í meistaraflokki kvenna.
STJARNAN - ÍBV
Garðbæingar, komum og styðjum
Stjörnustelpurnar!
íslandsbanki Islandsbarikinn í Garðabæ
Bikarkeppni karla í handknattleik.
GRÓTTA - KA
í íþróttahúsi Seitjarnarness
í kvöld ki. 20.00
Seltirningar, fjölmennum á völlinn!!!
ÁFRAM, GRÓTTA!
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
íþróttir
Ófarir FH og Hauka merki um íslenskan handknattieik á niðurleið?
Handknattleiknum
hef ur ekki hrakað
- segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, efsta liðs 1. deildar
Eftir leikina á Evrópumót-
unum í handknattleik um síö-
ustu helgi hafa eflaust margir
velt því fyrir sér hvort hand-
boltinn almennt sé á niöur-
leiö. Haukar fengu háöulega
útreiö hjá portúgalska liöinu
Braga í borgakeppni Evrópu
en portúgalskur handbolti
hefur ekki fram að þessu ver-
ið hátt skrifaður. FH-ingar
léku fyrri leikinn sinn í Hafn-
arfirði gegn danska liöinu
GOG Gudme og ollu áhang-
endum sínum vonbrigðum.
Uppskera liösins á heimavelli
var fjögurra marka ósigur og
víst aö útileikurinn veröur
erfiður.
Eftir uppskeru síöustu helg-
ar hlýtur spurning aö vakna
í framhaldinu sem hljóðar á
þessa leið: Er eitthvaö aö ís-
lenskum handbolta, hefur
eitthvaö farið úrskeiöis?
Viggó Sigurösson, þjálfari
efsta liðs 1. deildar um þessar
mundir, Stjörnunnar, var
spuröur hvort handboltinn
væri á niöurleiö.
Leikmenn hafa dreifst meira
á liðin, sem eru jafnari
„Ég held að handboltínn sé alls ekki
á niðurleið. Það sem hér hefur gerst
undanfarna vetur er að leikmenn
hafa dreifst meira á Uðin og þau orð-
ið jafnari um leið. Handboltanum
hefur ekki hrakað, að mínu matí.
Sterku Uðin áður eru ekki eins sterk
í dag en í staöinn eru komin fleiri
góð lið. Liðin eru að æfa mun meira
en þau geröu áður. Ég vil meina að
það sé eitthvað að hjá Haukunum en
að öðru leyti vil ég ekki tjá mig meira
um það. Eg vil þó segja að þeir séu
að leika undir getu. Töluvert
reynsluleysi þeirra spilar þarna inn
í en þeir sjáÚir hljóta að geta gefið
skýringu á því hvað fór úrskeiðis
þegar liðið tapaði með tólf mörkum
gegn portúgölsku hði. Það segir sig
sjálft.“
Evrópukeppnin er
orðin hálfgerö pína
„Það var slæmt fyrir þessi félög að
fá á sig þessa leiki eftír langt hlé á
íslandsmótínu. Það sýnir sig á öllum
sterku liðunum á mótínu aö þau fara
illa af stað í sínum fyrstu leikjum.
Evrópukeppnin er oröin hálfgerð
pína fyrir liðin en ékkert er komið
til móts við þau í mótamálum hér
heima,“ sagði Viggó Sigurðsson.
„FH-ingar misstu mikið þegar
Kristján Arason fór. Það á sér líka
skýringar að lykilmenn hjá þeim
hafa verið í persónulegum breyting-
um. Það spilar eitthvað þarna inn í.
Mér finnst það almennt há íslensk-
um leikmönnum að menn eru byrj-
aðir að fá peningagreiðslur og sumir
hveijir orðnir atvinnumenn. Þeir
hinir sömu slaka ekki á annars stað-
ar á sama tíma. Það er eins og menn
áttí sig ekki á því að til þeirra eru
gerðar meiri kröfur en áður. Þetta
held ég að þurfi að breytast."
íslandsmótið er síst
lakara en undanfarin ár
- Hvað viltu þá almennt segja um
handboltann í vetur?
„Nú, ég, sem þjálfari efsta hðsins,
hlýt að segja að hann sé ofsalega
góður. Mótíð er mjög jafnt, erfitt og
þú getur ekki bókað neinn sigur fyr-
irfram. Útívehimir eru orðnir sterk-
ir og ég held að þegar maður htur
yfir hlutina hafa mótíð fram að þessu
verið jafnt og spennandi. Mótið núna
er síst lakara en árin á undan.
Keppnin er orðin mun erfiðari,
kannski færri góðir menn í liðunum
en á móti kemur að hðin eru jafnari."
- Hvað sýnist þér um Evrópu-
keppni? Er hún orðin of stór í sniðum
með fjórum keppnum?
„Aö fjórar keppnir eru í gangi
finnst mér af hinu góða. Það kemur
til með að hjálpa Uðunum þegar fram
í sækir að þá fá fleiri lið meiri
reynslu. Þaö þarf fyrst að koma hug-
arfarsbreyting hjá þeim sem sjá um
mótin hér heima. Það er eins og úti-
lokað sé að reikna með hði í 8 liöa
úrslit. Við erum núna að gera sex
vikna frí á íslandsmótínu en þegar
Evrópukeppnin er í gangi þarf helst
aö hrúga leikjum á hðin þannig að
þau ná helst ekki að undirbúa sig
fyrir þessa leiki. Núna þurftu FH-
ingar að fresta leik sem síðan kemur
í bakið á þeim þegar þeir þurfa að
fara tii Danmerkur í síðari leikinn.
Þeir þurfa þannig að leika undir
meira álagi. Þarna er brotalöm, að
mínu mati.“
Ósannfærandi að þjálfarinn
skuli enn leita að leikjum
- Nú styttist óðum í heimsmeistara-
keppnina. Hvernig tilfinningu hefur
þú fyrir henni?
„Ég hef enga sérstaka tilfmningu,
sjötta sætið verður mjög góður ár-
angur. Mér finnst það ósannfærandi
að vita til þess að landshösþjálfarinn
er að leita að leikjum fyrir landslið-
ið. Að það skuh ekki vera búið að
skipuleggja betur hlutína og að þjálf-
arinn skuli núna vera að leita að
leikjum svona stuttu fyrir keppnina.
Ég hefði viljað sjá þetta plan betur
komið og fyrr. Þaö hefur líka háð lið-
inu verulega hve margir lykilmenn
hafa verið meiddir. Það má segja að
undirbúningurinn fari fyrir lítið ef
svo koma fjórir menn kannski inn
sem hafa verið meiddir í langan
tíma.“
Þjóðverjarnir ollu mér
gífurlegum vonbrigðum
- Hvaða þjóðir koma til með að
standa upp úr í heimsmeistarakeppn-
inni?
„Ég hef mikla trú á Rússum og
Svíum. Þjóðverjarnir ohu mér gífur-
legum vonbrigðum hér á dögunum.
Manni finnst næstum því að hand-
bolti þar sé að hruni kominn. Ef ís-
lenskur handbolti er í vandræðum,
hvað þá með þann þýska. Spánverjar
eiga erfitt uppdráttar, hð sem manni
finnst eiga að vera í fremstu röð. Þar
er eitthvað að gerast. Ég sé ekki ann-
að en að Svíar og Rússar komi til
með að leika um fyrsta sætið,“ sagði
Viggó Sigurðsson.
Knattspyrna:
Middlesboro
úr bikarnum
Swansea sló Middlesboro mjög
óvænt út úr ensku bikarkeppn-
inni í knattspymu í gærkvöldi.
Swansea sigraði, 1-2, og mætir
Newcastle eða Biackburn í fjóröu
umferð á útivelli.
i öðrum leikjum sigraði Leeds hð
Walsall eftir framlengingu, 5-2, og
mætír Oldham í 4. umferö. Sunder-
land vann hö Carlisle, 1-3, og leikur
gegn Tottenham á heimavelh. Þá
sigraði Watford Scarboro, 2-0, og
leikurnæst gegn Swindon á heima-
velh. í 2. deild sigraði Cambridge
Cardiff, 2-0.
• í skosku úrvalsdeildinni voru
tveir leikir í gærkvöldi. Partíck
sigraði Falkirk á útívelh, 1-3, og
Kilmarnock sigraði Motherwell,
2-0.
STAÐAN
Einn leikur fór fram í 2. deild
karla í handknattleik í gær-
kvöldi. Þór sigraði Keflavík á
Akureyri, 35-24. Staðan er þannig
í deildinni:
Breiðaþlik. 13 9 l 3 357-314 19
Fram.......11 7 2 2 384-314 16
Grótta.....11 8 0 3 292-237 16
Fylkir......12 8 0 4 314-268 16
ÍBV.........11 6 1 4 306-245 13
Þór.........10 6 1 3 266-227 13
Fjölnir.....11 3 1 7 218-263 7
Keflavík.... 13 1 0 12 271-382 2
BÍ..........12 1 0 11 229-338 2
• Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík, og Kristjana Magnúsdóttir (nr. 12) berjast um boltann
í leik liðanna í undanúrslitum bikarsins í gærkvöldi. Erla og stöllur hennar höfðu
betur og mæta KR i úrslitum bikarkeppninnar. DV-mynd ÞÖK
Kvennakarfa
Ingibjörg HinrikBdóttir skrifer
Keflavíkurstúlkur komust ör-
ugglega í úrslitaleik bikarkeppn-
innar í gærkvöldi þegar þær sigr-
uöu Val, 74-47, að Hhöarenda.
Valsstúlkur veittu íslands- og bik-
armeisturunum viðnám í upphafi
en meistaramir léku af öryggi og
höfðu 20 stiga forskot í hálfleik
41-21, sem Valur réð ekki við.
Keflavíkurhðið sýndi það í gær-
kvöldi að það er mjög öflugt um
þessar mundir og er alls ekki lík-
legt til þess að gefa titlana eftir.
Ldðið hefur skemmtilega blöndu
eldri og yngri leikmanna sem
vinna vel saman og virðast fylli-
lega ná að fyha það skarð sem
þær Qlga Færseth og Hanna
Kjartansdóttir skildu eftir sig er
þær fóru tíl Breiðabhks.
Anna María Sveinsdóttir, sem
lék best Keílavíkurstúlkna í gær,
var þeirra stigahæst með 22 stig
og Björg Hafsteinsdóttir skoraði
13. Linda Stefánsdóttír, var sem
fyrr best i Uði Vals og skoraöi 15
stig. Valsstúlkur léku án þriggja
lykilmanna, þeirra Hrannar
Harðardóttur, sem hefur tekið
sér frí frá körfunni sökum anna,
og tngibjargar Magnúsdóttur og
Hildigunnar Grétarsdóttur sem
erú meiddar.
• Grindavík vann Njarðvík í 1.
deildinni I gærkvöldi, 53-48.
íslendingarnir duttu
allir úr keppninni
Fimm islenskir skíöamenn tóku í gær þátt í alþjóðlegu mótí i stórsvigi
í Austurríki og allir duttu þeir úr keppninni og enginn komst í mark.
Kristinn Bjömsson var á meðal keppendanna og hann sagði við DV í
gærkvöldi: „Þetta var á sama stað og keppt var í fyrradag og um hreina
torfærubraut að ræða. Helmingur keppenda datt út í fyrri umferð.“
Norðurlandamót í badminton haldið hér á landi:
Margir af bestu spilurum
heimsins koma á mótið
í kvöld
Bikarkeppni karla:
Valur-Haukar 20.00
Grótta-KA 20.00
Bikarkeppni kvenna:
Stjaman-IBV 20.00
Fram-KR 20.00
1. deild karla í körfuknattleik:
Leiknir-Selfoss 20.00
Badmintonáhugamenn ættu að
geta glaðst því í apríl næstkomandi
verður haldið hér á landi Norður-
landamót í badminton. Hingað
koma ahir sterkustu badminton-
spilarar í Evrópu en Norðurlanda-
þjóðimar em ahar flokkaðar sem
A-þjóðir í Evrópu og ísland þar með
tahð.
Danir hafa í gegnum árin átt frá-
bæra spilara og landshð þeirra
undir stjórn hins fræga Mortens
Frost, er eitt það besta í heiminum
í dag. Svíar og Finnar hafa einnig
marga snjalla badmintonleika í
sínum röðum svo ljóst er að hingaö
tíl lands koma margir af bestu bad-
mintonspilurum heims. Mótíð
verður haldið í TBR-húsinu viö
Laugardal og veröa gerðar ráðstaf-
anir til að hægt verði aö taka á
móti fjölda áhörfenda.
Meöal keppenda frá Danmörku
sem koma á mótiö eru: Thomas
Stuer Lauridsen sem er í 2. sæti á
afrekahstanum í einliðaleik, Paul
Erik Hoyer Larsen sem er fjórði á
þessum sama Usta og Lotte Olsen
sem ásamt Stuer Lauridsen er í 2.
sæti yfir besta tvenndarparið í
heiminum. Frá Svíþjóð kemur Lim
Xiaoqing, kínverskættuð, sem er í
2. sæti á styrkleikalistanum í ein-
liðaleik kvenna.
íslenska liðið
undirbýr sig af krafti
íslenska landshðið undirbýr sig af
krafti undir Norðurlandamótíð og
í haust ákvað landshðsnefnd Bad-
mintonsambands íslands að ráð
Gauta Grétarsson, sjúkraþjálfara,
til aðstoðar við að meta ástand og
aðstoða við skipulagningu æfinga
fyrir landshðshópa sambandsins
og hefur hann framkvæmt ýmsar
mæhngar á hópnum.
Niðurstöður þeirra mæhnga svo
sem mjólkusýrumæhngar hafa síð-
an verið notaðar til að skipuleggja
æfingar og hfur hópurinn æft með
púlsklukkum til að hægt sé aö
meta æfingaálag. Árangur er nú
þegar farinn að skila sér og er það
mat manna að sjaldan hafa kepp-
endur verið í eins góðu formi og nú.