Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Fréttir
DV
Slagurinn um sölumál Útgerðarfélags Akureyringa:
Meirihluti í bæjarstjórn
fyrir viðskiptum við ÍS
- væntanlegar niðurstöður athugana á sölumálunum þó úrslitaatriði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ef niðurstööurnar í þeirri rann-
sókn, sem verið er að vinna, um áhrif
þess að flytja sölumál ÚA frá Sölu-
miðstöðinni til íslenskra sjávaraf-
urða hf. segja ótvírætt að hagsmun-
um ÚA sé allt eins borgið með ÍS sem
söluaðila á afurðum ÚA þá styð ég
það að ÍS fái þessi viðskipti og flytji
hingað höfuðstöðvar sínar að fullu,“
segir Heimir Ingimarsson, annar
tveggja bæjarfulltrúa Alþýöubanda-
lagsins á Akureyri.
Þar með virðist ljóst að verði niður-
stöður rannsókna Nýsis hf. og Andra
Teitssonar á áhrifum á flutningi
sölumála ÚA á þann veg að hagur
ÚA verði tryggður með samningi viö
íslenskar sjávarafurðir hf. þá sé
meirihluti í bæjarstjórn Akureyrar
fyrir því að flytja viðskiptin frá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna til ÍS.
Framsóknarfulltrúarnir fimm í bæj-
arstjórn eru allir á bandi ÍS í þessu
máli.
Heimir hefur þó þann varnagla á
að hann vilji fá það gulltryggt að ÍS
verði á Akureyri með höfuðstöövar
sínar til frambúðar. „Ef hægt verður
að treysta þvi að ÍS verði hér. með
allt sitt veldi en ekki litlar höfuö-
stöðvar hér og stórt útibú í Reykja-
vík þá líst mér betur á þennan kost
en Sölumiðstöðina. Ef ég fæ þetta
gulltryggt þá er ekki minnsti vafi í
mínum huga á að taka eigi tilboði
ÍS,“ segir Heimir.
Enginn skrípaleikur
„Við erum ekki að leika þann
skripaleik að ætla okkur að vera meö
litlar aðalstöðvar á Akureyri og stórt
útibú í Reykjavík, það væri að falsa
tékkann," segir Benedikt Sveinsson,
framkvæmdastjóri íslenskra sjávar-
afurða. „Við flytjum okkar höfuð-
stöðvar norður með öllu sem þeim
tilheyrir fáum við viðskiptin viö ÚA.
Við myndum sennilega hafa aðstöðu
í Reykjavík til að taka á móti gestum
sem kæmu til landsins og eins fyrir
okkur ef sú staöa kæmi upp að við
yrðum veðurtepptir í borginni en
starfsemin yrði öll á Akureyri."
Benedikt segir að um 66 störf sé að
ræða en auk þess vinni um 10 laus-
ráðnir hjá fyrirtækinu. Flutningur
ÍS ef af yrði tæki til höfuðstöðvanna
með þróunarsetri og vöruhúsi þar
sem m.a. er lager fyrirtækisins.
Benedikt segir að um þriðjungur
starfsfólks hafi þegar lýst vilja sínum
til þess að flytja með fyrirtækinu.
Annar álíka stór hópur hefur ekki
tekið ákvörðun ennþá en þriðjungur
starfsmanna á e.t.v. óhægt um vik
með flutning. Er þar aðallega um að
ræða konur sem starfa í fyrirtækinu.
Innsiglingin að Stykkishólmshöfn er nú full af ís sem veldur töfum fyrir skip og báta. Stærri bátar sigla gegnum
ísinn en smábátar úr plasti hafa lokast inni og þess vegna hafa orðið tafir á hráefnisöflun fyrir ígulkeravinnslur.
Þetta ismagn telst þó ekki mikið og nefna má að 1978 þurfti að fá varðskip til að halda innsiglingunni opinni.
Flóabáturinn Baldur er sérstaklega styrktur til siglinga í ís og getur því haldið siglingaleiðum opnum að mestu á
erfiðum ísárum. Hann er til hægri á myndinni. DV-mynd Arnheiður Ólafsdóttir, Stykkishólmi
Stjóm Útgerðarfélags Akureyringa og sölumálin:
Annar fulltrúi Sjálfstæðis-
f lokks í stjórninni vilj ÍS
- líkur á hluthafafundi og nýrri stjóm ÚA vegna málsins
MeiriMutasamstarfið:
Allaballar
gætukomist
í lykilaðstöðu
Gyifi Kiistjánssan, DV, Akureyit ’
Sigríður Stefánsdóttir, oddviti
Alþýðubandalagsins í bæjar-
stjórn Akureyrar, neitar því ekki
aö Alþýðubandalagið getí komist
í oddaaöstöðu um myndun meiri-
hluta í bæjarstjóm nái núverandi
meirihluti ekki saman um lausn
á sölumálum Útgerðarfélags Ak-
ureyringa.
Eins og DV skýrði ftá í gær rið-
ar meirihlutasamstarf krata og
framsóknarmanna í bæjarstjóm-
inni til falls vegna þessa máls og
líkur era á að samstarfið bresti
vegna þess, Gerist það era mögu-
leikamir um nýjan bæjarstjóm-
armeirihluta sem menn ræða að-
allega tveir. Annar er sá aö bæj-
arfulltrúi Alþýðuflokks gangi til
samstarfs við Sjálfstæðisflokk og
Alþýðubandalag, hinn sá að
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
bandalag myndi meirihluta.
„Ég heyri ýmislegt rætt og við
gerum okkur grein fyrir því að
þessir möguleikar eru fyrir
hendi. Að öðra leyti segi ég ekki
meira um þetta,“ segir Sigríður.
Um kapphlaup Sölumiðstööv-
arinnar og íslenskra sjávaraf-
uröa um viðskipti með afurðir
ÚA segir hún að sin afstaða liggi
ekki fyrir.
Stálu kjöti úr
frystigámi
Tveir menn sáust vera að bera
reykt folaldaKjöt og lambahryggi
út úr frystigámi sem þeir höfðu
brotíst inn í fyrir utan húsnæöi
kjötvinnslufyrírtækis að Grens-
ásvegi snemma í gærmorgun.
Málið er í rannsókn en vitni sem
sá mennina taldi að hér hefði
verið um að ræða rétta eigendur
sem reyndist ekki vera.
Mennirnir tveir vora á dök-
kleitum Econoline sendibíl. Þeir
komu aö fyrirtækinu um klukk-
an sex aö morgninum og brutu
upp hengilás á gáminum og létu
síðan greipar sópa. Talið er að á
þriðja hundrað kílóum af folalda-
kjöti og lambahryggjum hafi ver-
ið stoliö. Umrætt vitm gat gefið
lýsingu á mönnunum en þeir sem
geta gefiö frekarí upplýsingar um
máhö eru beönir um aö hafa sam-
band við lögregluna. -ótt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mín afstaða er ekkert leyndarmál.
Það er mitt mat að íslenskar sjávar-
afurðir hf. geti sem best annast sölu-
mál Útgerðarfélagsins og í atvinnu-
legu tilliti tel ég mjög mikilvægt aö
fá slíkt fyrirtæki með alla starfsemi
sína hingað tíl bæjarins,“ segir
Sverrir Leósson, annar tveggja full-
trúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn Út-
gerðarfélags Akureyringa.
Stjóm ÚA er pólitískt kjörin, og í
dag skipuð fulltrúum sem kjömir
vora er Sjálfstæðisflokkur og Al-
þýðubandalag vora í meirihlutasam-
starfi í bæjarstjóm fyrir kosningam-
ar sl. vor. Sjálfstæðisflokkurinn á 2
menn í stjórn en Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
bandalag einn mann hver flokkur.
Hver sem niðurstaða sölumála ÚA
verður, hvort sem Sölumiðstöðin
heldur þeim eða þau veröa flutt til
íslenskra sjávarafurða, veröur það
stjóm ÚA sem gerir hið formlega
samkomulag viö söluaðilann. Þar
mun m.a. verða að taka inn í ákvæði
um samningstíma við söluaðilann til
ákveðins árafjölda með einhverjum
uppsagnarákvæöum.
Afstaða Sverris Leóssonar í stjóm
ÚA gerir það að verkum að ógerlegt
er að segja tíl um hvernig atkvæði
myndu falla í stjórn ÚA varðandi það
hvort ÍS eða SH fái sölumálin. Full-
trúi Framsóknarflokks er að öllum
líkindum með samningi við ÍS, full-
trúi krata hlynntur samningi við SH
en frekar óljóst hvernig fulltrúi Al-
þýðubandalags og annar fulltrúi
Sjálfstæöisflokks myndu greiða at-
kvæði. Það má því reikna með að
þeir sem standa að meirihlutaniður-
stöðu í bæjarstjórn varðandi þetta
mál muni grípa til þess ráðs að kalla
saman hlutahafafund og láta þar
kjósa nýja stjóm sem yrði samstiga
varðandi ákvörðunina.
Stuttar fréttir
Viðskiptajöfnuður
Líklegt er að viðskiptajöfnuður-
inn hafi verið hagstæður um átta
til tiu milljarða á síöastá ári. Það
eru um tvö prósent af landsfram-
leiðslunni og er hagstæðara en
búist var við. Þetta kemur fram
i Mogganum í morgun.
Kjörnef nd klofnar
Kjörnefnd Alþýöubandalagsins
á Reykjanesi klofnaöií afstöðu til
þess hver á að skipa annað sætí
framboðslista flokksins. Hörð
barátta er milli alþýðubandalags-
manna í Kópavogi og á Suöur-
nesjum um þetta sætí. Þetta kem-
ur fram í Alþýðublaðinu.
Svikibanka
Fyrrverandi forstöðumaður
hagdeildar Búnaðarbankans hef-
ur verið ákærður fyrir umboös-
svik með þvi að hafa nýtt gengis-
upplýsingar Reuters tíl aö hagn-
ast og færa inneign milli gjaldeyr-
isreikninga í bankanum. Þetta
kemur fram í Morgunblaðinu.
Skýrslurafhentar
Hæstiréttur hefur dæmt yfir-
lækni á geðdeild Landspítala,
Ríkisspítala, landlækni og heil-
brigðisráöuneytið til að afhenda
Sigurði Þór Guðjónssyni rithöf-
undi upplýsingar um sjúkra-
skýrslur sínar.
Kristinn sigraði
Kristinn H. Gunnarsson alþing-
ismaður sigraði i síðari umferð
forvals Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum. Kristinn fékk 82 at-
kvæði i fyrsta sætið. Lilja R.
Magnúsdóttir verkakona lentí í
öðru sæti og Bryndís Friðgeirs-
dóttir kennarí í þriðja sæti. 113
greiddu atkvæði í forvalinu.
Infiúensa greínist
Inflúensa af A-stofni hefur
greinst hér á landi en ekki hefur
borið mikið á veikindum enn sem
komið er. Búist er við faraldri í
nokkra mánuði nái flensan sér á
strik, samkvæmt Morgunblaðinu
í morgun.
130bílarkeyptir
Tilboð hafa verið opnuð í útboði
Ríkiskaupa vegna kaupa opin-
berra stofnana á 130 nýjum bif-
reiðum á þessu ári. Tilboö bárust
frá ellefu aðilum og réyndust níu
aðilar eiga lægustu tilboð. Eftir
er aö yfirfara tilboðin.