Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
Fréttir
Sýslufulltrúi haföi afskipti af skýrslutöku hjá lögreglu:
Komívegfyrir
kæru á sjálf an sig
Bakari á Egilsstöðum hefur sam-
þykkt að hætta viö líkamsárásar-
kæru á hendur sýslufulltrúa í kjölfar
þess að embættismaðurinn kom að
bakaranum í skýrslutöku hjá lög-
reglumanni og taldi hann síðan á að
leggja ekki fram kæru. Sýslumaður-
inn, sem situr á Seyöisfiröi, og er í
sama lögsagnarumdæmi og Egils-
staðir, sagði við DV í gær að hann
„muni skoða þann þátt málsins sem
snúi að meintum afskiptum sýslu-
fulltrúans af skýrslutökunni.1
Málavextir eru þeir að lögregla var
kölluð að húsi sýslufulltrúans að-
faranótt laugardagsins. Fólk hafði
verið að skemmta sér um kvöldið en
átök höföu orðið fyrir utan húsið.
Bakarinn hafði týnt gleraugum sín-
um og kvað sýslufulltrúann hafa
Flettiskiltamálið:
Ráðuneytið
frestarákvörð-
un sýslumanns
Ægir Már Kárasati, DV, Suðumesjum:
„Viö höfum fengið bréf frá
ráðuneytinu sem segir að aðgerð-
um sýslumannsins verði frestaö
meðan kæran er hjá ráðuneytinu.
Ég gerði ráð fyrir niðurstöðu
fljótlega,“ sagði Ásgeir Jónsson,
héraðsdómslögmaður í Keflavik,
sem fer með mál eígenda fletti-
skiltis í Njarðvík.
Dómsmálaráðuneytið hefur
sent sýslumanninum í Keflavík
bréf þar sem segir að kröfu hans
um að auglýsingar og aðrar
myndir á flettiskilinu verði fjar-
lægöar, veröi frestaö meðan mál-
iö er hjá ráðuneytinu.
„Við trúum því að skiltið eigi
eftir að standa áfram á sama staö
og verða félaginu til góðs,“ sagði
Haukur Jóhannessson, formaður
Ungmennafélags Njarðvikur, en
félagið er lóðarhafi þar sem fletti-
skiltiö er og nýtur tekna af aug-
lýsingunum.
Vöruskiptin:
Afgangurinnvarð
20,3 milljarðar
Vöruskipti Islands við útlönd í
desember síðastliðnum voru hag-
stæð um 2,2 milljaröa. Á sama
tíma í fyrra voru vöruskiptin
óhagstæö um 0,8 milljarða. Á öllu
síðasta ári voru fluttar út vörur
fyrir 113,5 milljaröa en inn fyrir
93,2 milljarða. Um 20,3 milljarða
afgangur varö því af vöruskipt-
unum viö útlönd en árinu 1993
voru þau hagstæð um 12,7 milij-
aröa.
Sjávarafuröir voru um 76 pró-
sent alls vöruútflutnings á síö-
asta ári og jókst útflutningsverð-
mæti þeirra um 9 prósent milli
ára. Útflutningsverðmæti áls
jókst um 25 prósent og kísiljárns
um 8 prósent. Heildarverðraæti
vöruútflutnings jókst um 14 pró-
sent miiii ára.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ings á síðasta ári jókst um 7 pró-
sent miðað viö árið 1993. Inn-
flutningur á mat- og drykkjar-
vöru jókst um 8 prósent. Um 3
prósenta aukning varð á inn-
flutningi annarrar neysluvöru en
fólksbílainnflutningur dróst
samanum2prósent. -kaa
hlaupið á eftir sér og barið sig.
Ástæðan hefði verið að hann heföi
farið með glas sýslufulltrúans út úr
húsinu.
Bakarinn hlaut áverka við auga og
hafði samband við lögregluna og
kvaðst ætla að kæra sýslufulltrúann
fyrir líkamsárás. Síðdegis á mánudag
kom bakarinn til lögreglunnar.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, yfir-
maður sýslufulltrúans og lögregl-
unnar á Egilsstöðum, hafði þá fyrr
um daginn gefið lögreglunni fyrir-
mæh um að taka frumskýrslu af bak-
aranum ef hann vildi leggja fram
kæru. Síðan ætlaði hann að koma
gögnum til ráðuneytis sem væntan-
lega úthlutaði málinu dl hlutlauss
lögregluembættis til frekari rann-
sóknar og víkja síðan sæti.
Þegar skýrslutakan var nýhafin
kom sýslufulltrúinn inn á skrifstofu
lögreglumannsins en hans aðsetur
er í sama húsi en á næstu hæð fyrir
ofan. Fulltrúinn hafði á orði að trú-
lega væri lögreglumaðurinn vanhæf-
ur enda væri hann undirmaður þess
fyrrnefnda. Lögreglumaðurinn
kvaðst þá hafa fyrirmæli um að taka
skýrslu samkvæmt fyrirmælum
sýslumanns. Sýslufulltrúinn óskaði
síðan eftir að fá að ræða við bakar-
ann undir fjögur augu. Fallist var á
það en stuttu síðar kom bakarinn til
lögreglumannsins og kvaðst þá ætla
að fresta kærunni.
í kjölfar þessa hyggst sýslumaöur-
inn, eins og áður segir, kanna hvort
fulltrúinn hefði í krafti embættis síns
komið með óeðlilegum hætti að
skýrslutökunni þegar leggja átti
fram líkamsárásarkæruna. Sam-
kvæmt heimildum DV greiddi sýslu-
fulltrúinn bakaranum pening fyrir
nýjum gleraugum áður en maðurinn
tilkynnti lögreglunni að hann hygö-
ist falla frá kæru.
Sýslufulltrúinn sagði í samtali viö
DV, aðspurður hvort hann hefði
komið að umræddri skýrslutöku
með óeðlilegum hætti, að hann hefði
verið „nýkominn úr þinghaldi" þeg-
ar hann kom að lögreglumanninum
og bakaranum í skýrslutöku. Hann
hefði síöan spurt hvort „við gætum
fengið að ræða saman undir fiögur
augu“. Hann sagðist hafa reynt að
ná í bakarann eftir atburðinn um
nóttina en ekki tekist það.
-Ótt
Um það bil eitt þúsund Dagsbrúnarmenn komu saman á fund í Bíóborginni í gær og samþykktu með öllum greidd-
um atkvæðum verkfallsheimild til handa stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins. DV-mynd BG
Reykir í Hrútafirði:
Heittvatn
fannstloksá
440 metra dýpi
ÞóriiaBur Áamvmdsson, DV, Nl vestra:
Arangur af borun eftir heitu
vatni við skólasetrið Reyki í
Hrútafirði hefur valdið ráða-
mönnum í Staðarhreppi von-
brigðum. Ljóst er að borunin varð
árangurslaus. Lítið magn sjálf-
rennandi vatns er í holunni og
borínn var kominn á damp þegar
það fannst á 440 metra dýpi. Fyr-
irfram var reiknað með aö á þeim
staö sem borað var mundi árang-
urinn koma í ljós á 2-300 metrum.
Það voru starfsmenn Jarðbor-
ana hf. sem önnuðust borunina
með jarðbomum Ými. Aö sögn
Þórarins Þorvaldssonar, oddvita
á Þóroddsstöðum, stóðu vonir til
að árangurinn yrði svo góður að
hagkvæmt yrði aö leggja hita-
veitu um sveitina.
„Vatnið var rajög heitt en
magnið lítið. Þaö er nokkuð síöan
við létum gera forathugun á hag-
kvæmni þess að leggja hitaveitu
um sveitina," sagði Þórarinn og
kvað ljóst að einhver bið yrði á
að þessar hugmyndir kæmust í
framkvæmd.
Sá jarðhiti sem til staðar er á
Reykjum er, að sögn Þórarins,
nær fullnýttur til upphitunar
húsa í skólahverfinu.
Fangarstyrkja
Súðvíkinga
„Við tókurn þetta mjög nærri
okkur þegar við fréttum af at-
burðunum í Súðavik. Ég er
reyndar þama úr nágrenninu, frá
ísafirði og fami mikið til með
þessum nágrönnum mínum,“
segir Sölvi Arnórsson, vistmaöur
á Litla Hrauni, en hann og sam-
fangar hans gáfu fé til styrktar
Súðvíkingum í söfnunina „Sam-
hugur í verki".
„Ég vil fyrir hönd samfanga
minna votta öllum þeim sem eiga
um sárt aö binda vegna snjóflóðs-
inssamúðokkar,“segirSölvi. -rt
SeljaBoeingþotu:
Segjasthagnast
um 300milljónir
Flugleiðir hafa selt eina Boeing
737-400 flugvél félagsins til dótt-
urfyrirtækis japanska fiármögn-
xmarfyrirtækisins Nissho Iwai
fyrir tæpa 2 milljaröa króna.
Élugleiðir munu síðan leigja vél-
ina af japanska fyrirtækinu til 5
ára. Forráðamenn Flugleiða
segja að salan skili félaginu um
300 milljóna króna hagnaöi.
Flugleiðir seldu aðra Boeing
þotu með sama hætti til Japan
Leasing Corp. í desember sl.
Þúsund manna Dagsbrúnarfundur samþykkti verkfallsheimild einróma:
Samningaviðræðum hef
ur í rauninni verið slitið
- og vaxandi líkur á verkfölium, segir Guðmundur J. Guðmundsson
„Ég get ekki htið öðruvísi á en að
samningaviðræðum hafi verið slitið.
Áhugi VSÍ er enginn. Það hefur eng-
inn fundur verið boðaður og við höf-
um orðið að óska eftir þeim þremur
fundum sem haldnir hafa verið og
sá síðasti endaði með sprengingu eft-
ir að við höfðum verið móðgaðir gróf-
lega,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Dagsbrúnar,
við DV eftir að um eitt þúsund
manna félagsfundur hafði samþykkt
verkfaflsheimild einróma í gær.
„Ég þekki mina menn. Ég fann það
á stemningunni á fundinum að þeim
er dauðans alvara í að fylgja kröfum
sínum alla leiö með öllum tiltækum
ráöum," sagði Guðmundur J.
í ræðu sinni á fundinum fór hann
yfir kröfur félaganna í Flóabandalag-
inu og gang samningamála til þessa.
í lok ræðunnar sagði hann svo.
„Við viljum samninga og við mun-
um reyna til þrautar að knýja fram
samninga. En ef við eigum að vera
með yfir 700 Dagsbrúnarmenn at-
vinnulausa ár eftir ár. Ef við eigum
að láta kaupmátt minnka ár eftir ár
er komið nýtt ísland. Þá er komin
stór stétt örsnauðra manna sem er
að missa allar eigur sem þeir áttu.
Þess vegna treysti ég á ykkur félaga
að ganga uppréttir. Ég veit það er
erfitt að möguleikar skuli vera á
verkfalli fram undan. Hitt er miklu
vonlausara ef ekkert er aö gert því
að þá versna lífkjörin enn. Þessa þró-
un verður aö stöðva. Ef það er ekki
stöðvað af Dagsbrún og félögunum
sem eru með okkur í Flóabandalag-
inu heldur þetta áfram. Það skal ekki
veröa. Göngum uppréttir af þessum
fundi og fyrir guðsskuld, samþykkið
einróma verkfallsheimild," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson.
i