Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1995, Page 5
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
5
Fréttir
Rikið kaupi upp húseignir á snjóflóðahættusvæðum:
Kemur ekki til greina
að greiða peninga beint
segir Kristján J. Jóhannesson, sveitarstjóri á Flateyri
„Þaö verður aldrei samþykkt að
ríkið kaupi og greiði út húseignir
fólks sem býr á svæðum þar sem er
talin snjóflóðahætta. Mín skoðun er
sú að verði farin sú leið að kaupa
eignir af fólki á þessum svæðum
verði það að gerast með þeim hætti
að það verði byggð hús á öruggara
svæði og skipt við fólk. Það kemur
ekki til greina að greiða út peninga
beint,“ segir Kristján J. Jóhannes-
son, sveitarstjóri á Flateyri, vegna
þeirrar hugmyndar að ríkiö kaupi
húseignir sem eru á hættusvæðum
vegna snjóflóða.
Margir hafa velt fyrir sér með
hvaða hætti ætti að framkvæma slíkt
í sveitarfélögum þar sem fasteigna-
verð er lágt. Þeir hinir sömu benda
á að hús á hættusvæði sem er í mati
upp á 10 milijónir geti hugsanlega
selst fyrir 4 til 5 milljónir á frjálsum
markaði ef miðað er viö fasteigna-
markaðinn á svæðinu. Kæmi til þess
að ríkið keypti húseignina yrði að
greiða hana samkvæmt mati og þá
fengi húseigandinn fullt verð án til-
lits til þess hvert mögulegt söluverð
væri. Mörg þeirra húsa sem eru á
umræddum svæöum eru keypt á
markaðsverði. Þarna geti því verið
um að ræða verulegan hagnað og það
sem meira er margir mundu þá nota
tækifærið og hverfa á brott af svæð-
inu.
„Ef þessi leið verður farin er um
að ræöa milljarðakostnað fyrir þjóð-
arbúið. Ég ímynda mér að ef keyptar
verða þessar 16 íbúðir sem hér eru á
hættusvæðinu muni það kosta ríkið
eitthvað á bilinu 130 til 160 miUjónir.
Ég vil að þessi mál verði tekin tU
gaumgæfilegrar athugunar. Við höf-
um verið að beijast við stjórnvöld
síðan 1991 og framkvæmdir viö snjó-
flóðavamir hjá okkur hafa stoppað á
10 tU 12 mUljónum. Við höfum óskað
eftir því við ríkisvaldið að það hjálp-
aði okkur um þessa peninga til að
koma upp lokaáfanga snjóflóðavarn-
anna sem eru net við upptök snjó-
flóðanna. SUk aðstoð hefði verið veij-
andi þar sem um er að ræða tUrauna-
starf. Við erum búnir að halda marga
fundi með félagsmálaráðherra án
þess að niðurstaða fáist,“ segir
Kristján.
Hann segir að heUdarkostnaður við
snjóflóðavarnir ofan við Flateyri sé
orðinn um 12 miUjónir króna og það
kosti á biUnu 40 til 50 milljónir að
ljúka þessum framkvæmdum.
„Það er bara reikningsdæmi hjá
okkur hvað menn vilja gera. Varn-
imar hjá okkur sýndu notagildi sitt
þegar það féll á þær þetta stóra flóð.
Það þarf að endurbæta og breyta í
samræmi við reynsluna," segir
Kristján. -rt
Ólafstún á Flateyri er á hættusvæði vegna snjóflóða. Ef farin verður sú leið að kaupa upp húseignir á hættusvæð-
um verða húsin sem sjást á myndinni keypt. Til vinstri sjást snjóflóðavarnirnar sem ekki hefur tekist að Ijúka við
vegna fjárskorts. DV-mynd rt
Vatnsveita Reykjavikur:
Fær 652 milljónir í tekjur
HeUdartekjur Vatnsveitu
Reykjavíkur að meðtöldu auka-
vatnsgjaldi, vatnssölu tíl skipa og
þriggja nágrannasveitarfélaga
nemur 652,4 milljónum króna að
meðtöldum vaxtatekjum. Tekjuá-
ætlunin er byggð á óbreyttum regl-
um um vatnsgjald og verður álagn-
ingarhlutfaUið óbreytt eða 0,13 pró-
sent af fasteignamati. Þetta kemur
fram í fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir þetta ár.
Rekstrargjöld Vatnsveitu Reykja-
víkur að meðtöldum afskriftum
verður um 539 mUljónir króna.
Áætlað er að verja 321,5 imlljónum
króna til eignabreytinga. Kostnað-
ur við viðhald og rekstur borgar-
kerfisins er áætlaður 170 miUjónir,
þar af fara 90 miUjónir til endurnýj-
unar heimæða.
Áætlað er að níu mUljónir fari til
endumýjunar stofnæða vestan Ell-
iðaánna og 22 mUljónir til end-
urnýjunar dreifikerfis Vatns-
veitunnar. Rúmar 44 miUjónir fara
tU nýlagna og 32 milljónir í nýlagn-
ir aðalæða. Ráðgert er að setja 16
miUjónir í rannsóknir og 35 miUj-
ónir í hlutafjáraukningu og lán til
Þórsbranns hf.
Rafmagnsveitan:
3,7 milljarðar
í tekjur á árinu
Rekstrartekjur Rafmagnsveitu
Reykjavíkur eru áætlaðar 3.731 millj-
ón króna á þessu ári, þar af eru tekj-
ur af raforkusölu 3.445 milljónir.
Aðrar tekjur nema rúmum 286 mUlj-
ónum króna og vaxtatekjur eru áætl-
aðar 45 nnlljónir. Virðisaukaskattur
á raforkusölu nemur 844 miUjónum
króna. Þetta kemur fram í frumvarpi
að fjárhagsáætlun borgarsjóðs fyrir
þetta ár.
Rekstrargjöld Rafmagnsveitunnar
eru áætluð tæpar 3.540 mUljónir
króna, þar af gjöld vegna raforku-
kaupa 1.970 milljónir. Þá eru reiknuð
gjöld vegna verðlagsbreytinga 5,2
miUjónir. Hagnaður af reglulegri
starfsemi nemur um 230 milljónum
króna.
Fjárfesting í veitukerfi Rafmagns-
veitunnar er áætiuð 372 miUjónir og
önnur fjárfesting 45 milljónir króna.
Rafbúnaður í Aðveitustöð 1 við Bar-
ónsstíg verður aukinn fyrir 100 miUj-
ónir, viðbótarspennir í aðveitustöð
við MeistaravelU kostar 34'mtiljónir
og rofabúnaður við Korpu kostar 39
milljónir.
Afgjald Rafmagnsveitunnar í borg-
arsjóð er áætlað 596 mUljónir og
lækkun á handbæru fé fyrirtækisins
verður því 353,3 milljónir króna.
Forsætisráðherra um erindi Hafnarfl arðarkrata:
lllskiljanlegt,
ósatt og utan við
ef ni máls
Davíð Oddsson forsætisráðherra
telur sig ekki geta hnekkt þeirri
ákvörðun Rannveigar Guðmunds-
dóttur félagsmálaráðherra að úr-
skurða sig vanhæfa til að fjaUa um
kæru meirihlutans í Hafnarfirði
vegna viðskipta bæjarsjóðs og Hag-
virkis-Kletts.
í skriflegu svari til bæjarfuUtrúa
Alþýöuflokksins segir aö forsætis-
ráðherra beri samkvæmt lögum að
beita sér fyrir setningu ráðherra. Sá
ráðherra yrði sjálfstætt að meta
hvort vanhæfisannmarkar væru á
því að hann gæti tekið að sér málið.
í bréfi sínu segir forsætisráðherra
að málatilbúnaður bréfsins sé í
grundvallaratriðum byggður á mis-
skilningi og rökstuðningur illskUjan-
legur. Þá segir í bréfinu: „Önnur at-
riði bréfs yðar eru ekki innlegg í
umræðu þessa, sum ósönn og önnur
utan við efni máls.“
þvottavélar
AEG Lavamat 508
Vínduhraði 800 sn/mín, tekur 5 kg, sér hitavalrofi, ullar-
forskrift, orkusparnaðarforskrift, orkunotkun 2,1 kWst á
lengsta kerfi, einföld og traustvekjandi,
Kr. 69.990 stgr.
eða 73.674
Raðgreiðslur, kr. 3.574 á mán., í 24 mánuði
Raðgreiðslur, kr. 2.541 á mánuði, í 36 mánuði
Umboðsmenn
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Helliss-
andi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúö, Búðardal.
Vestfirðir: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, isafiröi.
Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavik. Kf. V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga. Blöndu-
ósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvík. Kf. Þin-
geyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn.
Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirói, Stál, Seyðisfirði.
Versl. Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn.
Suðuriand: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi, Rás, Þorlákshöfn. Jón
Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Fit Hafnarfirði.
BRÆÐURNIR
SflÖRMSSONHF
Lágmúla 8, simi 38820.